Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir059
Boðsundskeppni við samkomu þegar fagnað var endurbyggingu sundlaugarinnar á Skagaströnd. Konan í svarta sundbolnum er Guðrún Pálsdóttir hin sundkonan er óþekkt. Aðrir á myndinni eru m.a.: Guðbjörg Viggósdóttir, í svartri kápu, Baldur Magnússon með húfu síðan má sjá þrjá sveitarstjóra, Sigfús Jónsson, Magnús B. Jónsson og Guðmund Sigvaldason. Börnin eru óþekkt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir080
Hljómsveit úr Höfðaskóla leikur á skólaskemmtun í Fellsborg. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Steinunn Berndsen, Kristján Blöndal er á bak við trommurnar, Guðmundur Jónsson og Þorlákur Jónsson.
Stefán Jósefsson - safn010
Maðurinn til vinstri á myndinni er óþekktur en Jósef Stefánsson í Reykholti (frá Kambakoti) er til hægri. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson017
Kristinn Jóhannsson skipstjóri og hafnarvörður frá Ósi á Skaga.
Guðmundur Guðnason717
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Ef þú veist hver óþekkti leikarinn er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir104
Sjóferð á sjómannadegi. Lengst til vinstri er Adolf J. Berndsen. Strákurinn í dökku fötunum sem er að veifa er Hafþór Gylfason og stúlkan fremst á myndinni er Steinunn Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnasonr684
Guðbergur Stefánsson við réttarstörf í Hofsrétt?
Guðmundur Guðnason772
Myndin er af gömlu kirkjunni á Höskuldsstöðum. Hún var rifin fljótlega eftir að sú nýja var vígð 1963.
Guðmundur Guðnason757
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum og Signý Ástmarsdóttir úr Héðinshöfða. Myndin var sennilega tekin nálægt Húnaveri haustið 1969.
Sigmar Hróbjartsson - safn017
Myndin tekin af Höfðanum yfir frystihús Kaupfélags Skagstrendinga og framkvæmdirnar við verksmiðjuna. Myndin líklega tekin 1946
Guðmundur Guðnason776
Jón Kr. Jónsson sem lengi bjó í Laufási.
Guðmundur Guðnason771
1969 kom Kristján Eldjárn forseti lýðveldisins í opinbera heimsókn í Húnaþing. Haldin var móttaka í félagsheimilinu á Blönduósi af þessu tilefni. Á myndinni er fólk að ganga út úr félagsheimilinu eftir móttökuna. maðurinn með stafinn og slaufuna er Guðmundur Guðmundsson frá Holti sem lengi bjó í Kistu við Koppagötu á Blönduósi. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason740
Þetta er Garðar Árni Gíslason, sem ólst upp í Kúskerpi hjá afa sínum og ömmu, Garðari Stefánssyni og Guðlaugu Sigurðardóttur.
Guðmundur Guðnason863
Þorfinnshús (Bogabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65. Síðan þá hafa svalirnar verið brotnar niður og húsið klætt að utan.
Guðmundur Guðnason736

Valgarður Jökulsson frá Núpi í Laxárdal.

Guðmundur Guðnasonr681
Henrý Kristjánsson til vinstri og Bernódus Ólafsson til hægri við réttarstörf í Hofsrétt.
Guðmundur Guðnason881
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason858
Snjór í útbænum. Stórholt til vinstri, Þórshamar og Skálholt til hægri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir024
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir075
Gestir Kántrýhátíðar 1984 skoða tryllitæki sem voru til sýnis á tjaldsvæðinu.
Guðmundur Guðnason785

Kristján Eldjárn Þórarinsson (d. 14.9.1982) forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1969. Á myndinni býr séra Pétur Þ. Ingjaldsson sig undir að taka í hönd hans á kirkjutröppunum. Kristján sést yfir handlegg Péturs. Aftar eru Halldóru Ingólfsdóttur Eldjárn (d. 21.12.2008), forsetafrú, færð blóm. Ingvar Jónsson (d. 29.7. 1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og Adolf J. Berndsen oddviti eru til hægri við forsetafrúna.

Guðrún Guðbjörnsdóttir092
Stúkurnar sem hér eru að leika sér í snjónum fyrir utan gamla pósthúsið (nú tónlistarskólinn) eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir með Höllu Kristínu Árnadóttur í fanginu, Katrín Sigurjónsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir og Pálína Harðardóttir
Guðrún Guðbjörnsdóttir073
Aftari röð frá vinstri: Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Soffía Guðmundsdóttir. Sá sem krýpur er óþekktur.
Guðmundur Guðnason818
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason697
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum og Helga Berndsen frá Karlsskála slá á létta strengi undir réttarvegg á Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason824
Hrefna Þorbjörnsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason712
Mennirnir sem standa á tröppum Höskuldsstaðakirkju eru, talið frá vinstri: skólabræðurnir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Friðgeir Kemp frá Efri Lækjardal, Björn Jónsson frá Ytra-hóli, Snorri Bjarnason frá Sturluhóli
Guðrún Guðbjörnsdóttir030
Saltfiskurinn metinn í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Guðmundur Árnason matsmaður, Högni Jensson, Stefán Þór Árnason, Ottó Ákason, Sigfús Sævar Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason759

Óþekktur kvartett syngur í Akureyrarkirkju.

Guðmundur Guðnason805
Þessi litli strákur heitir Þórður Gylfason
Guðmundur Guðnason893
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir bara hluta söngmannanna.
Guðmundur Guðnason713

Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru sennilega Skúli Pálsson (d.3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.1978) ásamt Nönnu Tómasdóttur (d. 2013). Ef þú getur staðfest nöfn leikaranna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason755
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Þessir aðilar hafa greinilega unnið í samkeppninni um bestu búningana því þarna eru þau á sviðinu í Tunnunni með verðlaun í höndunum. Myndin var tekin rétt áður en þau felldu grímuna en þá kom í ljós hver var hvað.
Guðmundur Guðnason756

Pétur Johannsson er til vinstri og Steindór Haraldsson til vinstri . Leikarinn á milli þeirra er óþekktur.

Guðmundur Guðnasonr683
Óþekkt fólk við ráttarstörf í Hofsrétt
Guðmundur Guðnason780
Kristín Grímsdóttir
Guðmundur Guðnason718
Héðinshöfði sem stóð við Skagaveg. Þar bjuggu Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sínum börnum í suðurendanum en Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir í norðurendanum með börnin sín. Húsið hefur verið rifið.
Guðmundur Guðnason698
Á myndinni eru börn og fósturbarn Sigurðar Magnússonar og Dórotheu Hallgrímsdóttur frá Hólanesi. Einnig eru á myndinni tvö óþekkt börn sem þau hjón eiga ekki. Börnin á myndinni eru: aftast stendur Jósef Sigurðsson, í næstu röð eru Sigríður Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson. Fremst á myndinni eru svo óþekktur drengur, Inga Stefánsdóttir (fósturdóttir) sem situr með Hjört Sigurðsson og síðast er óþekkt stúlka.
Guðrún Guðbjörnsdóttir098
Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi og Jóhann Jakobsson frá Blálandi heiðraðir á sjómannadegi 1979. Ólafur er til vinstri á myndinni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir106
Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk og séra Pétur Þ. Ingjaldsson á spjalli.
Guðmundur Guðnason782
Ferming í Holtastaðakirkju 1961. Til hægri er Valgarður Hilmarsson frá Fremstagili í Langadal. Hinn drengurinn er Eysteinn Agnar Georgsson frá Miðgili í Langadal.
Guðmundur Guðnason762
Leikararnir eru , frá vinstri: Pétur Jóhannsson, óþekktur og Kristín Lúðvíksdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir036
Högni Jensson sem lengi bjó í Miðnesi á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason832
Hafþór Smári Gylfason
Guðmundur Guðnason850
Vinaminni (Hólabraut 16) fyrir miðri mynd. Til hægri sér í Brautarholt. Þegar þessi mynd var tekin, sennilega í kringum 1960, lá akvegurinn, eins og sést, rétt sunnan við Vinaminni og svo var hægri beygja vestan við Brautarholt. Snjórinn sem liggur fyrir framan Vinaminni hylur malarkrús sem þar var en hún var vinsæll leikvangur og sullstaður barnanna í innbænum á sínum tíma. Í dag standa Hólabraut 12 og Hólabraut 14 á þessum slóðum.
Jón Jónsson164
Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Þorsteinn Jónsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Sigurbjörn Kristjánsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir090
Björn Pálsson frá Löngumýri, kaupfélagsstjóri, útgerðarmaður og Alþingismaður.
Guðrún Guðbjörnsdóttir058
Sveitarstjórarnir Sigfús Jónsson og Guðmundur Sigvaldason virða fyrir sér sunlaugarmannvirkin eftir endurbyggingu. Á myndinni má einnig þekkja Maríu Alexandersdóttur (með barn) og Guðbjörgu Viggósdóttur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir065
Bjarney Valdimarsdóttir með dætur sínar þær Soffíu , til vinstri og Erlu Maríu Lárusdætur.
Guðmundur Guðnason795
Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) verksmiðjustjóri. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason827
Börnin í Réttarholti. Frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Erla Másdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Vilborg Másdóttir, Árni Hall Másson og Ómar Másson (d. 16.6.2002). Myndin var tekin 1964 eða 1965.
Guðmundur Guðnason725
Þröstur Þorbjörnsson frá Akurgerði
Guðrún Guðbjörnsdóttir053
Jóhanna Thorarensen hjálpar til við að moka snjó frá gluggum í þjónustuíbúðum við Ægisgrund 1995 eða 1996
Guðmundur Guðnason787
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason773
Bjarmaland kringum 1970. Þá bjuggu þar hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) með dóttur sinni Áslaugu.
Guðmundur Guðnason933
Vilhelm Harðarson ca 8 ára
Guðmundur Guðnason767
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, í ræðustól í móttöku í félagsheimilinu á Blönduósi er hann kom í opinbera heimsókn í Húnaþing árið 1969.
Guðmundur Guðnason774
Einar Páll Guðmannsson, frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason815
Systkini úr Akurgerði. Þröstur Þorbjarnarson og Sonny Lísa Þorbjarnardóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir060
Á þessari mynd, sem Guðrún Guðbjörnsdóttir tók, er Sigfús Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd að gera fólki grein fyrir skipulagi áburðar- og frædreifingar í Spákonufelli af verönd skíðaskálans áður en verkið er hafið. Eins og sjá má mætti fjöldi fólks til að taka þátt í þessu ræktunarátaki þar sem grasfræi og áburði var dreift á melinn norðan og ofan við skíðaskálann. Fullorðna fólkið sem þekkja má á myndinni, sem var tekin snemma á níunda áratugnum, er talið frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Sigfús Jónsson (snýr baki í myndavélina), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) (í rauðum stakk), Gylfi Sigurðsson, Jón Ingi Ingvarsson (með húfu), Ólafur Bernódusson og síðan grillir í Svein Ingólfsson og Lárus Ægi Guðmundsson. Sigfús stjórnaði dreifingunni eins og herforingi. Skipaði fólki í raðir og skammaðist ef einhver fór svo fram úr öðrum við dreifinguna. Því miður varð árangur dreifingarinnar fremur lítill en seinna var plantað Alaska lúpínu í melinn og hefur hún rækilega fest rætur og gjörbreytt ásýnd Spákonufellsins með sínum bláu blómum á sumrin.
1

22
23
24

167
Leita í myndasafninu
Leita