Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Gunnar Jónsson015
Ómar Jakobsson frá Grund við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari).
Guðmundur Guðnason768
Ingvar Pálsson frá Balaskarði flytur ræðu við vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963.
Guðmundur Guðnason819
Fritz Bjarnason frá Bjargi
Guðrún Guðbjörnsdóttir069
Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri bindur á sig skautana í skautaferð á Vindhælistjörn.
Guðmundur Guðnason845
Þorbjörn Sigurðsson lengst til vinstri og Þorvaldur Ásgeirsson flytja skemmtiatriði á sviðinu í Tunnunni sennilega 1. maí 1963. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason814

Frændurnir Árni Björn Birgisson (til vinstri) og Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason708
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn fremst á myndinni er Jósef Stefánsson. Lengst til vinstri er Jóhann Jakobsson frá Blálandi og svo Haraldur Sigurjónsson frá Iðavöllum.
Stefán Jósefsson - safn005
Vísir Hu 10 drekkhlaðinn við litlu bryggjuna. Vísir var 16 brúttótonn en eftir þessa veiðferð var landað úr honum 23 tonnum af þorski eða 7 tonnum meira en hann átti að geta borið.
Guðmundur Guðnason753
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu.
Guðmundur Guðnason684
Hjónin Helga G. Guðmundsdóttir og Kristján Sigurðsson frá Höskuldsstöðum með dóttur sína Elínbjörgu Kristjánsdóttur, sennilega á fermingardegi hennar.
Guðrún Guðbjörnsdóttir114
Á myndinn eru, frá vinstri: Standandi: Jón Jónsson, Elín Njálsdóttir, Magnús Ólafsson, Hallgrimur Kristmundsson, Eðvarð Hallgrímsson, María Magnúsdóttir, óþekkt, Björgvin Brynjólfsson, Sigrún Lárusdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Steindór Gíslason, Guðný Finnsdóttir, óþekktur, óþekkt,óþekkt, Anna Aspar, Pétur Eggertsson og Gunnar Sveinsson. Fremri röð: Adolf J. Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Árni Guðbjartsson, Sólveig Róarsdóttir, Haraldur Árnason, Lárus Ægir Guðmundsson og Bernódus Ólafsson
Guðmundur Guðnason821
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason761
Þessar fallegu stúlkur tóku þátt í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969, sem haldin var í Húnaveri. Fegurðardrottningin sjálf situr á steininum. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkurnar á myndinni eru frá vinstri: Sóley Guðmundsdóttir Eiríksstöðum, Anna Grímsdóttir Ljótshólum sem varð sigurvegari, Kristín H. Guðmundsdóttir Hvammstanga og tvær óþekktar stúlkur. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason729
Hjálmfríður Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðmundur Guðnason840
Þórgunnur Snædal bróðurdóttir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar.
Guðmundur Guðnason891
Þessi mynd var sennilega tekin 1963. Drengirnir eru, frá vinstri: Hannes Björnsson, óþekktur og Kristján Björnsson. Strákarnir sitja á skúrþaki nálægt húsi sem faðir þeirra Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5.2005) frá Þórshamri var að byggja í Kópavogi á þeim tíma.
Guðmundur Guðnason794
Andrés Baldursson og séra Pétur Þ. Ingjaldsson 1964 eftir fermingu Andrésar.
Guðmundur Guðnason868
Jóhann Ingibjörnsson á fermingardaginn sinn 1961
Stefán Jósefsson - safn012
Myndin er tekin um borð í dýpkunarskipinu Gretti á Eyjafirði. Maðurinn til vinstri er Jósef Stefánsson en hinn er óþekktur. Jósef var skipverji á Vísi Hu 10 sem fenginn var til að draga flutningsprammann fyrir Gretti meðan á dýpkun stóð við Hrísey.
Guðmundur Guðnason883
Þetta barn er óþekkt en ef þú veist hvaða barn þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Stefán Jósefsson - safn008

Á myndinni er glaðbeitt áhöfnin á Skallarifi Hu 15. Talið frá vinstri eru á myndinni: Standandi: Óþekktur strákur, Grímur (Toggi) Pálsson frá Bakka, Jósef Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Hróbjartsson. Maðurinn sem situr til vinstri er Lýður Hallbertsson en Jón Stefánsson frá Kambakoti er til hægri. Myndin var tekin þegar Skallarifið fór inn á Blönduós til að sækja nýfelld þorskanet sem voru að koma frá Reykjavík. Skallarifið var bara gert út frá Skagaströnd í eitt ár en báturinn var í eigu Höfðakletts h/f þar sem Lárus Valdimarsson var stjórnarformaður og framkvæmdastjóri.

Björn Bergmann 003

Ásdís, fyrsti báturinn sem smíðaður var í stöðinni, í byggingu 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.

Guðmundur Guðnason829
Hér hefur þetta góða fólk áð á ferð sinni. Frá vinstri: Frímann Lúðvíksson frá Steinholti, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) konan hans og óþekktur drengur. Þórður og Guðríður bjuggu í Skjaldbreið (Fellsborg 7) á Skagaströnd með tveimur börnum sínum.
Guðmundur Guðnason811
Lengst til vinstri á þessari mynd er María Jónsdóttir úr Sænska húsinu (Hólabraut 23), ?Margrét Valdimarsdóttir? Hólabraut 1 og óþekkt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir044
Jón Örn Stefánsson og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson ánægðir með aflann. Aftan við þá er Gylfi Sigurðsson. Myndin er tekin um borð í Hafrúnu Hu 12.
Guðmundur Guðnason831

Auður Björnsdóttir Ísfeld frá Brandsstöðum

Guðmundur Guðnason844
Óþekkt fólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Stefán Jósefsson - safn007
Bjarni Helgason um borð í bát sínum Stíganda Hu 9. Myndin líklega tekin 1949 eða 1950.
Guðmundur Guðnason911

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðrún Guðbjörnsdóttir056

Sigurður Guðmonsson með barnabarn sitt Hafþór Gylfason í fanginu. Myndirn er tekin við heimili Sigurðar, Þórsmörk sem hann var gjarnan kenndur við.

Ólafur Bernódusson011 - Copy - Copy
Lárus Ægir Guðmundsson rekur byggingasögu Bjarmaness eftir endurbyggingu þess 19. júní 2004.
Guðmundur Guðnason833
Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir frá Grund.
Guðmundur Guðnason873
Hjónin frá Njálsstöðum með barnabörn sín. Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) með Rut Jónasdóttur og Hafsteinn Jónasson (d.11.6.1975) með Hörð Jónasson. Soffía og Hafsteinn fluttu til Skagastrandar eftir að þau hættu búskap og bjuggu í Sæbóli.
Guðrún Guðbjörnsdóttir071
Krakkar á skautum á Vindhælistjörn. Aftari röð frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Ægir Jónsson, Jóney Gylfadóttir. Fremri röð: Jóna Sigurðardóttir, Gígja Finnsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Vilborg eða Áslaug Jóhannsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir050
Hús Eiðs Hilmarssonar að Sunnuvegi mokað upp úr snjó 1995 eða 1996. Húsið var við að sligast og til að hægt væri að moka af þakinu þurfti líka að moka frá því.
Guðmundur Guðnason816
Björn Hafsteinsson Fossdal á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Bernódus Ólafsson er lengst til vinstri á myndinni og Henrý Kristjánsson er maðurinn með húfuna. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Guðmundur Guðnason806
Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason677
Dansað á Siglufirði 15. júní 1968. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir089

Við háborðið sitja talið frá vinstri: Jón Ísberg sýslumaður, Anna Aspar, séra Pétur Ingjaldsson, Dómhildur Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, ?Brigit? (kona Sigursteins), Sigursteinn Guðmundsson læknir, Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Lárus Ægir Guðmundsson er í ræðustól. Ungi drengurinn er Ólafur Kristjánsson en maðurinn með gleraugun er Kristján Sigurðsson faðir hans. Aftan við þá eru Kristine Jóhannsdóttir og Þorsteinn Húnfjörð bakari.

Guðmundur Guðnason898
Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Gísli Snorrason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Myndin var tekin í mars 1962.
Guðmundur Guðnason792
Þorgrímur Pálmason frá Holti
Guðrún Guðbjörnsdóttir067
Konan á myndinni er Sólveig Aðalheiður Magnúsdóttir (Alla) frá Hofi. Maðurinn með hattinn er Halldór Guðmundsson frá Hólma, Jón Árnason frá Ólafsvöllum er næstur og lengst til hægri er Hrólfur Jónsson frá Bjarmalandi. Myndin er sennilega tekin við Hofsrtétt.
Guðmundur Guðnason856
Fermingarbörn ársins 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri: Stefanía Guðjónsdóttir, Brynja Axelsdóttir frá Læk og Sólveig Georgsdóttir.
Guðmundur Guðnason869
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir046
Torfi Sigurðsson frá Mánaskál og séra Pétur Þ. Ingjaldsson á spjalli.
Guðmundur Guðnason882
Bóndinn á Ferguson dráttarvélinni er líklega Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason791
Systurnar Jóhanna Ásmundsdóttir til vinstri og Halldóra Ásmundsdóttir til hægri. Þær áttu heima á Bogabraut 9, þar sem myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason837
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið 1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason721
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Jóhanna Ásmundsdóttir, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin á sýningu en Stendór og Jóhanna léku þar kærustpar og var strítt á því í skólanum það sem eftir lifði vetrar.
Guðmundur Guðnason963
Myndin er sennilega tekin á jólaballi - barnaballi í Tunnunni. Frá vinstri: Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), ?Kolbrún Jónsdóttir?, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson og Þórir Ágústsson (d.24.9.2000).
Guðrún Guðbjörnsdóttir063
Röð fólks í hlíðum Spákonufells við dreifingu á grasfræi. Frá vinstri eru: Óþekkt stúlka, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Elín Njálsdóttir, Ægir Jónsson, Laufey Ingimundardóttir, Elínborg Jónsdóttir, aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason904
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir
Guðmundur Guðnason913

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðrún Guðbjörnsdóttir086

Myndin er tekin í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar í Fellsborg 1981. Á henni má þekkja, frá vinstri: Margrét Sigurðardóttir frá Fjallsminni, Jónína Valdimarsdóttir og Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum og Bergljót Óskarsdóttir.

Guðmundur Guðnason714
Sjómannadagur á Hafnarhúsplaninu á Skagaströnd. Kynnir í ræðustól, sem er gamalt skýli af Helgu Bjög Hu. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason890
Sigurbjörg Angantýsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason786

Aftasta röð frá vinstri: Vilhjálmur Pálmason frá Holti, Hrafnhildur systir hans og Heiðmar Jónsson frá Ártúnum. Miðröð frá vinstri: Tryggvi Jónsson frá Ártúnum, Þorgrímur Pálmason Holti, Klara Jónsdóttir Ártúnum, Guðrún Þóranna Jónsdóttir Ártúnum, Guðrún Pálmadóttir Holti. Fremsta röð: sitjandi Ólöf Una Jónsdóttir Ártúnum, Ólöf Pálmadóttir Holti, Margrét Jónsdóttir Ártúnum, Elísabet Hrönn Pálmadóttir Holti.

Guðrún Guðbjörnsdóttir038
Á myndinni eru fermingarbörn 1955 í gömlu kirkjunni á Skagaströnd. Talið frá vinstri í aftari röð: Fjóla Ólafsdóttir frá Kambakoti, Ólína Hafsteinsdóttir, séra Pétur Ingjaldsson, Helgi Ingi Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson. Fremri röð: Vilberg Jóhannesson, Helga Haraldsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Eðvarð Jóhannesson og Jónas Skaftason.
1

23
24
25

167
Leita í myndasafninu
Leita