Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Guðmundur Guðnason812
Sigurður Pálmason á femingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason716
Hólaneskirkja í kringum 1970.
Guðmundur Guðnason720
Ingvar Jónsson hreppsstjóri sinnir starfi sínu sem kynnir á sjómannadegi. Bak við hann er Björgvin Jónsson í Höfðabrekku. Rauðhærði strákurinn í bláu peysunni til vinstri er Óskar Jóhannesson. Myndin tekin á sjöunda áratugnum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir074
Krakkarnir á skautunum, sem hér drekka kakóið sitt, eru frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Gígja Finnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason875
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason931
Adolf J. Berndsen sem lengi var oddviti hreppsnefndar á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason889

Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5. 2005) frá Þórshamri með syni sína tvo árið 1963. Hægra megin við Björn er Hannes Björnsson en vinstra megin er Kristján Björnsson

Guðmundur Guðnason879
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir099

Guðbjörg Gylfadóttir á efsta palli á frjálsíþróttamóti. Sigríður Gestsdóttir er til vinstri við Guðbjörgu en konan til hægri er Sólveig Þráinsdóttir sem keppti árum saman fyrir HSÞ (Suður Þingeyinga). Myndin er tekin á Norðurlandsmóti.

Guðmundur Guðnason830
Systurnar Guðrún Berndsen til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason951
Fjársafn rekið í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason674
Bryggjan í Hagnesvík skoðuð á ferðalagi til Siglufjarðar 15. júní 1968. Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún er í ljósum frakka. Til hægri við hann er óþekktur heimamaður en Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi snýr baki í myndavélina.
Guðrún Guðbjörnsdóttir047
Á spjalli fyrir utan verslunina í vetrarríki. Frá vinstri: Rúnar Loftsson, Gylfi Sigurðsson, Friðjón Guðmundsson og Hulda Árnadóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir072
Jón Helgason, Bára Þorvaldsdóttir og Aðalheiður Guðmundsdóttir á gönguskíðum.
Guðmundur Guðnason746
Vigfús Elvan Friðriksson
Guðmundur Guðnason754
Frá vinstri: Magdalena Axelsdóttir frá Læk, Guðrún Þórbjarnardóttir. Árni Björn Ingvarsson er með fánann til vinstri en Gissur Jóhannsson hægra megin. Konan fyrir miðju er Bergdís Sigmarsdóttir.
Guðmundur Guðnason941

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Maðurinn með kaskeitið vinstra megin við uppboðshaldarann er Kristján Hjartarson.

Guðrún Guðbjörnsdóttir088
Í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) í Fellsborg 1981. Fremst á myndinni eru hjónin Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Viggó Brynjólfsson ásamt Kristjáni Hjartarsyni (d. 2.8.2003) frá Grund. Aftan við þau eru, talið frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) á Iðavöllum og Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) kona hans , Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) og ?Ingvar Jónsson? (d. 18.1.2003).
Guðmundur Guðnason808
Ester Axelsdóttir frá Læk á fermingardaginn 1962.
Guðmundur Guðnason742

Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi í Laxárdal

Guðmundur Guðnason800
Hrönn Árnadóttir á fermingardaginn 1970.
Guðmundur Guðnason723
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Guðmundur Guðnason991
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir sex fermingarbörn í Höskuldsstaðakirkju 1964. Fyrir miðju eru tvíburarnir Ellert og Jakob Guðmundssynir frá Neðri Lækjardal.
Guðmundur Guðnason866
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason680
Fermingarmynd af Eygló Gunnarsdóttur.
Guðmundur Guðnason920

Stúlknakór úr Höfðaskóla í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Maðurinn lengst til vinstri er Jónatan Jónsson kennari og stjórnandi kórsins. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri í aftari röð: Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Bryndís Hallgrímsdóttir (Júdý), Kristín Sigurðardóttir og Anna Margrét Kristjánsdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Áslaug Hrólfsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir, óþekkt, Sigríður Birna ?, Fjóla Sigurðardóttir, ?Guðbjörg Kristinsdóttir? Eygló Gunnarsdóttir, Unnur Gunnarsdóttir og ?Gréta Jónsdóttir?.

Guðmundur Guðnason852
Þessi götumynd er gjörbreytt í dag því öll húsin sem sjást á myndinni eru horfin og ný komin í stað þeirra. Myndin var sennilega tekin kringum 1960. Lengst til vinstri sér í útihús tilheyrandi Sunnuhlíð (Bogabraut 19) þá kemur Akurgerði (Hólabraut 9). Goðhóll (Hólabraut 10) er næstur og ef vel er að gáð má sjá Þorkel Magnússon (d. 30.8.1968), íbúa þar, fyrir utan húsið.Til hægri er svo Baldursheimur sem stóð á milli þar sem í dag eru Hólabraut 10 og Fellsbraut 9.
Guðmundur Guðnason943

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup.Í tröppum eru frá vinstri: Jóhann Ingabjörnsson, Jón Áskelsson, Kristján Hjartarson, Andrés Guðjónsson, Guðrún Þórbjörnsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Jóhanna Thorarensen og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.

Guðmundur Guðnason976
Á myndinni er Ole Aamundsen athafnamaður á Skagaströnd ásamt konu sinni Margréti Jóhannesdóttur og vinnustúlkunni Sigurlaugu Friðgeirsdóttur. Ole, sem var norskur að uppruna, var lengi umboðsmaður á Skagaströnd fyrir Shell olíufélagið og rak líka lýsisbræðslu og útgerð um tíma.
Guðmundur Guðnason766
Ás
Guðmundur Guðnason744

Á myndinni eru Haukur Jóhannsson frá Breiðavaði með harmonikku og líklega Sigurður Þorsteinsson með hattinn og Nanna Tómasdóttir. Myndin var mjög líklega tekin í gamla samkomuhúsinu á Aðalgötu 1 á Blönduósi.

Guðmundur Guðnason935

Myndin er tekin á arunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Á myndinni má þekkja konurnar Bergljótu Óskarsdóttur til vinstri og Jónu Vilhjálmsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason902
Kristján Guðmundsson frá Hágerði
Guðmundur Guðnason938

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Konan lengst til vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum og hjónin Jóna Vilhjálmsdóttir og Skafti Fanndal Jónasson standa fyrir neðan tröppurnar.

Guðmundur Guðnason970
Héðinshöfði í vetrarsnjó. Þar bjuggu Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir með fjölskyldu sinni í norðurendanum en Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sinni fjölskyldu í Suðurendanum. Húsið sem grillir í fjær er Garður.
Guðmundur Guðnason857
Klemensína Klemensdóttir frá Ægissíðu móðir Guðmundar ljósmyndara þessarar myndar
Stefán Jósefsson - safn002

Vísir Hu 10 var tekinn á leigu við að draga prammann frá dýpkunarskipinu Gretti þegar unnið var að dýpkun Skagastrandarhafnar 1963. Á myndinni er Vísir með dekk á síðunni vegna hnoðsins með prammann og hluti af dýpkunarskipinu.

Guðmundur Guðnason809
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri með óþekktum vini sínum uppi á Höfða. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason923

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni og taka þátt, eins og sést á þessari mynd af keppnissvæðinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason864
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason779
Gunnar Jón Jónsson frá Asparlundi. Myndin var sennilega tekin 1969.
Guðrún Guðbjörnsdóttir051
Jóhanna Thorarensen fædd 1911.
Guðmundur Guðnason679
Dansað á Siglufirði 15. júní 1968. Björgvin Jónsson frá Höfðabrekku dansar við óþekkta konu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir064
Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, óþekktur, Ingibergur Guðmundsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson á spjalli útivið.
Guðmundur Guðnason783
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd 1969. Gömlu búningsklefarnir eru enn í notkun og byggingin til vinstri var stór kyndiklefi. Maðurinn lengst til vinstri í hvítri skyrtu er Lárus Ægir Guðmundsson sundkennari með meiru. Yfir öxlina á honum grillir í Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) frá Sunnuhvoli að taka tíma. Næst honum er Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála einnig í tímatöku. Maðurinn fyrir miðri mynd með bindi er Steindór Haraldsson úr Höfðakoti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason781
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd 1969. Gömlu búningsklefarnir eru enn í notkun og byggingin til vinstri var stór kyndiklefi. Maðurinn lengt til vinstri, með hattinn, er Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) frá Sunnuhvoli að taka tíma. Næst honum er Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála einnig í tímatöku. Maðurinn fyrir miðri mynd með bindi er Steindór Haraldsson úr Höfðakoti og lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson sundkennari með meiru. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir101
Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað "berjaferð 1961". Líklegara er að hér hafi verið um að ræða einhvers konar skemmtiferð því klæðnaður fólksins bendir alls ekki til að um berjaferð sé að ræða. Á myndinni eru, frá vinstri: Ástmar Ingvarsson (Addi Bala), Ingvar Ástmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Steindór Haraldsson, Reynir Sigurðsson,Gylfi Sigurðsson, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gunnar Sveinsson, Inga Dóra Sigurðardóttir og Gréta Sigurðardóttir. Bílinn aftan við fólkið átti Ástmar Ingvarsson, sem ættaður var frá Balaskarði, en á honum ók hann fólki gjarnan á dansleiki og ýmsa aðra viðburði innan og utan héraðs. Myndin er sennilega tekin af Sigurði Steingrímssyni frá Höfðakoti en hann er maður Grétu sem er lengst til hægri á myndinni. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason912
Sönghópur stúlkna treður upp á skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir,Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna Björnsdóttir, Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.Myndin er sennilega tekin árið 1967.
Guðrún Guðbjörnsdóttir055
Sigurður Guðmonsson (Siggi í Þórsmörk/ Siggi Mona) með barnabarnabarn sitt Jón Ólaf Sigurjónsson í fanginu.
Guðmundur Guðnason956
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason789
Börnin sem hér eru með afa sínum og ömmu eru, talið frá vinstri: Ásmundur Ásmundsson, Kristján Pétur Ásmundsson, Jóhanna Ásmundsdóttir og Halldóra Ásmundsdóttir. Amma barnanna hét Petrína Steinþórsdóttir en afinn hét Kristján H. Jóhannsson og voru þau móðurforeldrar barnanna.
Guðmundur Guðnason957
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Þekkja má Kjartan Bjarnason í miðjum hópnum með mikið ljóst hár og Lilju Guðjónsdóttur og Grétu Ingvarsdóttur sem báðar eru á dansgólfinu.
Guðmundur Guðnason878
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason928
Bjarnarhöfn á Skagaströnd. Byggt af Birni Fossdal á fimmta áratugnum. Þar bjuggu lengi Bjarni Loftsson og Fanney Jónsdóttir með fjórum dætrum sínum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir095
Skötuveisla Skagstrendings hf í skátaskálanum. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Jón Helgason. Bak við Jón er Árni Ólafur Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason900
Bylgja Angantýsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason926
Óþekktur ræðumaður í kirkjudyrum á Hólahátíð 1968.
Guðmundur Guðnason817
Guðbjörg Þorbjarnardóttir frá Akurgerði með litlu systur sína Sonny Lísu Þorbjarnardóttur.
Guðmundur Guðnason788

Hrafnhildur Pálmadóttir frá Holti

1

24
25
26

167
Leita í myndasafninu
Leita