Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason973
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Á myndinni eru frá vinstri: Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson, Frits Bjarnason, Rúnar Kristjánsson, óþekktur og Ísleifur Þorbjörnsson.
Guðmundur Guðnason967

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Skafti Fanndal Jónasson heldur á einhverjum útsaum sem boðinn er falur. Upp við vegginn eru hjónin Guðbjörg Lárusdóttir (Budda) og Sigurður Árnason (reykir sígarettu). Maðurinn með ljósa kaskeitið er Kristján Hjartarson og ljóshærði drengurinn sem horfir í myndavélina er Andrés Árni Baldursson. Konan framan við Kristján er Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk en maðurinn fyrir aftan hann er Björgvin Guðmundsson frá Melstað. Drengurinn lengst til vinstri er Birgir Júlíusson og maðurinn milli hans og Björgvins er faðir hans Júlíus Árnason.

Guðmundur Guðnason839
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason747
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir107
Séra Pétur Ingjaldsson spjallar við Björn Pálsson Alþingismann frá Löngumýri.
Guðmundur Guðnason908
Sævar Bjarnason frá Bjargi.
Ævar Axelsson - safn020

Hjónin Sigríður Björnsdóttir og Hrólfur Jakobsson í skemmtiferð með tvö börn. Stúlkan er líklega Sylvía dóttir þeirra en drengurinn á myndinni er óþekktur.

Guðmundur Guðnason803
Systurnar (frá vinstri): Kristjana Þorbjarnardóttir, Heiðdís Þorbjarnardóttir og Heiðrún Þorbjarnardóttir frá Akurgerði.
Guðmundur Guðnason799
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu til vinstri og Þorbjörn Jónsson (2.9.1986) frá Akurgerði til hægri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir102
Frá vinstri á myndinni: Áslaug Gunnarsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Stefán Ægir Lárusson, Páll Jóhannesson, Pálína Harðardóttir og Jóney Gylfadóttir. Myndin tekin á áttunda áratugnum.
Ævar Axelsson - safn023
Árni Guðmundsson var bróðir Jóns Guðmundssonar sem lengst bjó á Sölvabakka.
Guðmundur Guðnason854
Fermingarbörn árið 1964 ganga til Hólaneskirkju. Drengurinn lengst til vinstri er Óskar Jóhannesson frá Sunnufelli (Sunnuvegur 3) en sá til hægri er Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku (Bankastræti 10). Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson en stúlkurnar eru óþekkta þessari mynd.
Guðmundur Guðnason899
Þessi mynd af bókmenntakettlingi var að öllum líkindum tekin í herbergi Guðmundar Guðnasonar í Ægissíðu. Myndin ber merki áhugamála hans með eigin ljósmyndum á veggjum, trúarlegt tákn, bækur og væntumþykja hans um dýr.
Guðmundur Guðnason915

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Fólk þurfti að ganga alllanga leið áður en komið var á skíðasvæðið því enginn akvegur liggur upp að Hörfelli. Á myndinni má sjá keppendur og áhorfendur á leið á keppnissvæðið.

Guðmundur Guðnason834
Guðbjörg Gylfadóttir nokkuð mörgum árum áður en hún varð Íslandsmeistari í kúluvarpi.
Guðmundur Guðnason037
Aftan á þessari mynd stendur: "Þarna er Lilja og Lóa fyrir aftan vagninn. Kveðja frá Dísu og Lilju". Ef þú kannt einhver deili á Lilju og Lóu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason932
Fjársafn við Stafnsrétt.
Ævar Axelsson - safn012
Karla Helgadóttir og bróðir hennar Axel Helgason uppábúin á ungligsárum sínum. .
Guðmundur Guðnason862
Búi Birgisson á fermingardaginn sinn 1971.
Guðmundur Guðnason014
Börn Lárusar Valdimarssonar og Ingibjargar Daníelsdóttur sem lengi bjuggu í Grund. Systkinin eru, frá vinstri: Þórdís Lárusdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Magnús Lárusson og Grímur Valdimar Lárusson.
Guðmundur Guðnason842
Skóla- eða fermingarhópur með leiðbeinanda sínum. Séra Jón Kr. Ísfeld er maðurinn á myndinnni en hægra megin við hann situr Sævar Hafsteinsson Fossdal. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá upplýsingar þar um.
Guðmundur Guðnason919

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason034
Aðalsteinn Jörgensen í Reykholti.
Guðmundur Guðnason929
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson skírir Jón Hilmar Indriðason í fangi móður sinnar Guðrúnar Angantýsdóttur. Systir Jóns, Sigurbjörg Árdís fylgist með.
Guðmundur Guðnason977
Margrét Jóhannesdóttir (til vinstri) og Sigurlaug Friðgeirsdóttir í Lundi.
Ævar Axelsson - safn007
Björn Guðmundsson frá Árbakka
Guðmundur Guðnason017
Bylgja Angantýsdóttir með tvær systurdætur sínar Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til vinstri og Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur til hægri. Myndin tekin 1961 eða ´62.
Guðmundur Guðnason003
Áslaug Hrólfsdóttir í Bjarmalandi
Guðmundur Guðnason855
tveir óþekktir menn eiga í viðskiptum - sennilega hrútakaupum. .Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir annan hvorn þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason871
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason836
Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Hafþór Smári Gylfason og Guðrún Berndsen.
Ævar Axelsson - safn021
Ragheiður Brynjólfsdóttir ( f.22.5.1901- d.10.6.1994) frá Ytri - Ey sem var þekkt kona á sinni tíð; kennari í kvennaskólanum og grunnskólanum og var með veitingahússrekstur á Blönduósi um tíma.
Ævar Axelsson - safn015
Harry var einn af bresku hermönnunum sem staðsettir voru hér á Sakagaströnd um tíma. Þeir höfðu lítið við að vera og Harry þessum fannst gaman að lyfta sér upp með því að fara á hestbak. Þegar bandarísku hermennirnir leystu þá bresku af 1941 var Harry fljótlega sendur á vígstöðvarnar þar sem hann dó.
Guðmundur Guðnason874
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Ævar Axelsson - safn032
Hjónin Axel Helgason og Jóhanna Lárusdóttir frá Læk. Saman eignuðust þau tíu börn.
Guðmundur Guðnason918
Unglingahljómsveit leikur á skemmtun í Tunnunnni. Líklega er þetta hljómsveit sem kallaðist Tíglar. Frá vinstri: Steindór Haraldsson á bassa, Reynir Sigurðsson á trommur, Bergur Þórðarson á gítar, Hjörtur Guðbjartsson á gítar. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968. Til gamans má geta þess að þessar fallegu peysur voru prjónaðar af Jóhönnu hans Adda (Jóhanna Sigurjónsdóttir d. 15.12.1990) eins og hún var alltaf kölluð. Allar hljómsveitir á þessum tíma voru í hljómsveitar búning og þetta var okkar. Þetta voru gífurlega þétt prjónaðar flíkur og lítil loftræsting í gömlu tunnunni þess vegna átti ég í vandræðum með að komast úr peysunni er heim kom. Litirnir höfðu fært sig úr peysunni yfir á búkinn og leit skinnið út eins og að ég væri með nýtt tattú á skrokknum. En þetta fór af með góðum skammti af grænsápu. (Sent inn af Reyni Sigurðssyni frá Þórsmörk)
Guðmundur Guðnason760
Bærinn Ásholt
Guðmundur Guðnason910
Guðrún Angantýsdóttir
Ævar Axelsson - safn018
Þorvaldur Axelsson frá læk með Bryndísi dóttur sína.
Ævar Axelsson - safn011
Jóhann Guðmundsson f.10.júní.1821 d. 22.apríl 1895. Jóhann var með herðakistil og þess vegna festist viðurnefnið "hnútur" við hann. Hann var þrígiftur og eignaðist 15 börn með þessum þremur konum sínum. Af þeim dóu átta á barnsaldri þar með talin fjögur börn sem dóu á sama ári - reyndar á sama hálfa mánuðinum. Eitt af börnum Jóhanns sem komust til fullorðinsára var Lárus Jóhannsson sem var faðir Jóhönnu Lárusdóttur sem var gift Axel Helgasyni frá Læk og eignaðist með honum átta börn.
Guðmundur Guðnason796
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni 1964. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Guðmundur Jónatansson, Árni Ingibjörnsson, Ingþór Þorfinnsson, Óskar Jóhannesson, Stefán Jósefsson og Rúnar Ingvarsson. Stúlkurnar eru óþekktar
Guðmundur Guðnason948
Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Á myndinni hefur einhver gert góð kaup í dívan með teppi.
Guðmundur Guðnason076
Pálína Freyja Harðardóttir sem var alin upp í Póshúsinu (Bogabraut 10).
Guðmundur Guðnason952
Fjársafn rekið til réttar í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason128
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í Ægissíðu, uppáklæddur með sparihattinn gleður sig með bættum kaffisopa. Myndin sennilega tekin 1969.
Guðmundur Guðnason975
Ísleifur Þorbjörnsson á fermingardaginn sinn í maí 1965.
Guðmundur Guðnason994
Katrín Líndal, frá Bakkakoti
Guðmundur Guðnason917

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Mynd frá skíðastökkkeppninni. Klæðnaður skíðastökkvara hefur greinilega breyst allmikið til dagsins í dag því drengurinn á myndinni tekur flugið í gallabuxum. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason959
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason958

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Ævar Axelsson - safn033
Jóhann Jakobsson sem lengst af bjó í Blálandi með konu sinni Katrínu (Stellu) Sigurjónsdóttur og einkadótturinni Hrafnhildi.
Guðmundur Guðnason964
Myndin var sennilega tekin á jóla- barnaballi í Tunnunni upp úr 1960. Þá sátu ballgestir á bekkjum meðfram veggjunum sitt hvoru megin í salnum, gjarnan strákar öðru megin og stelpur hinum megin. Á myndinni eru frá vinstri: Óskar Kristinsson úr Héðinshöfða, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Örn Berg Guðmundsson (Assi) úr Höfðabrekku, Árni Ingibjörnsson á Hólabraut, Rúnar Ingvarsson á Bogabraut, Ísleifur Þorbjörnsson í Akurgerði, Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) á Bogabraut, Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Sævar Hallgrímsson í Bragganum, Bergur Þórðarson í Herðubreið, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) í Valhöll og Ómar Jakobsson í Grund.
Guðmundur Guðnason885
Þessi stúlka er óþekkt. Myndin var tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason989
Þórarinn Eiðsson kíkir yfir girðinguna sem var umhverfis sundlaugina. Hann er að öllum líkindum að fylgast með sundkennslu.
Guðmundur Guðnason728
Filippía Helgadóttir Syðri-ey.
Guðmundur Guðnason018
Hjónin Karl Guðmundsson frá Vindhæli og Dagný Hannesdóttir með frumburð sinn Einar Karlsson. Myndin var sennilega tekin 1964.
Guðmundur Guðnason870
Sigurður Bjarnason á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason880
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir fermingu 1965. Fremst gengur Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Síðan koma frá vinstri: Björn Sigmundson, Bergur Þórðarson, Kristófer Einarsson, Frits Bjarnason, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Jóhannes Pálsson.
Guðmundur Guðnason934
Skúli Árnason Gnýstöðum Vatnsnesi bróðir Guðmundar og Gunnlaugs Árnasona sem lengi bjuggu á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason730
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin sennilega tekin á fermingardaginn hennar.
1

26
27
28

167
Leita í myndasafninu
Leita