Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason036
Vilhelm Harðarson í Reykholti.
Guðmundur Guðnason987

Kór Blönduóskirkju. Konan lengt til vinstri í aftari röð er Anna Tryggvadóttir við hlið hennar er Guðmann Hjálmarsson þá Jónas Tryggvason en framan við hann er Kristófer Kristjánsson, frá Köldukinn. Ungi maðurinn fyrir miðju er líklega Jón Kristinsson úr Laxárvirkjun en við hlið hans er Ingileif ?? frá Kleifum og síðan Guðfinna Pálsdóttir. Fyrir aftan Guðfinnu er Einar Þorláksson og lengst til hægri er Einar Guðlaugsson. Framan við Einar stendur Þorgerður Sæmundsen. Sólveig Sövik situr fyrir miðju fremst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Ævar Axelsson - safn027

Guðrún Gísladóttir (f. 30.12.1863. - d.11.6. 1951). Systir (sammæðra) Lárusar Jóhannsonar föður Jóhönnu Lárusdóttur á Læk. Maður Guðrúnar var Halldór J. Halldórsson, meðal bara þeirra voru Sigvaldi bóndi í Stafni og Bjarni í Brautarholti á Blönduósi.

Guðmundur Guðnason887
Þetta fólk er óþekkt. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason894
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir í mars 1962
Ævar Axelsson - safn006
Skopmynd af Axel Helgasyni frá Læk gerð af Sveinbirni Blöndal.
Guðmundur Guðnason924

Konan sem situr með barnið (líklega Pálínu Harðardóttur) er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Konan sem situr hjá henni er Bára Þórðardóttir. Strákarnir í sófanum eru talið frá hægri: Valdimar Valdimarsson (Númason), Ernst Berndsen, Vilhelm Harðarson og Ólafur Valdimarsson (Númason). Myndin tekin ca 1970

Guðmundur Guðnason053
Willis jeppi H 364. Ekki er vitað hver átti þennan bíl en ekki er ólíklegt að Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) hafi átt hann. Ingvi var bróðir Guðmundar sem tók þessa mynd.
Guðmundur Guðnason922
Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason903
Grund. Sennilega var myndin tekin 1965.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn017

Stund milli stríða í lúkarnum á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Sigurður Árnason (d.26.3.2013) skipstjóri, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) og Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996) hásetar. Myndin var tekin á hafísárinu 1965.

Björn Bergmann 008
Guðmundur Jóhannesson til vinstri og Birgir Árnason (d. 2.2.2005) til hægri vinna í járnadeild stöðvarinnar 1970 - 1971. Í stöðinni voru smíðaðir allmargir bátar úr eik og seinna úr trefjaplasti. Fjöldi manna hafði atvinnu af skipasmíðunum og nokkrir ungir menn lærðu skipsmíðaiðnina í stöðinni. Annar af fyrstu bátunum tveimur sem smíðaðir voru í stöðinni er á Skagaströnd og gerður þar út. Þetta er Dagrún St 12 í eigu Lýðs Hallbertssonar.
Guðmundur Guðnason846
Maðurinn á myndinni er Jakob Þorsteinsson sem lengi bjó í Sæbóli á Skagaströnd með konu sinni Lilju Guðmundsdóttur og börnum sínum. Nöfn barnanna eru frá vinstri: Sigríður Jakobsdóttir, Þorsteinn Magnús Jakobsson og Ísleifur Ólafur Jakobsson.
Guðmundur Guðnason872
Hrefna Júlía Viggósdóttir á femingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason865
Akurgerði (Hólabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Ævar Axelsson - safn003
Axel Helgason á Læk
Guðmundur Guðnason997
Ólafur Pálsson ( f. 03.05.1924 d: 26.03. 2004) frá Króksseli sem seinna bjó á Ytri - Björgum.
Björn Bergmann 002
Ólafur Guðmundsson skipasmiður til vinstri og Kári Lárusson lærlingur í faginu vinna hér að smíði fyrsta báts stöðvarinnar - Ásdísi - 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.
Guðmundur Guðnason790

Vilhjálmur Pálmason frá Holti

Guðmundur Guðnason961
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason981

Óskar Axelsson frá Ásholti til vinstri og Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu.

Guðmundur Guðnason769
1969 kom Kristján Eldjárn forseti lýðveldisins í opinbera heimsókn í Húnaþing. Haldin var móttaka í félagsheimilinu á Blönduósi af þessu tilefni. Á myndinni er fólk að ganga út úr félagsheimilinu eftir móttökuna. Maðurinn lengst til hægri sem er að hneppa að sér jakkanum er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) en við hlið hans eru hjónin Kristinn Magnússon (d. 26.11.1979) frá Kleifum og Ingileif Sæmundsdóttir (d. 7.6.1993). Maðurinn í dökku jakkafötunum, sem virðist vera að ganga í átt til séra Péturs, er Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason775
Höfðaberg kringum 1970. Lengst til vinstri sér í fjárhús/hlöðu sem var sambyggð við Valhöll. Milli þeirra sér svo í Höfðakot ásamt fjárhúsum og hlöðu þar. Öll þessi hús eru nú löngu farin.
Guðmundur Guðnason732

Kristján Jökulsson frá Núpi í Laxárdal á fermingardaginn sinn 1967.

Guðmundur Guðnason838
Konan lengst til vinstri er líklega Guðrún Björnsdóttir frá Ytri-Löngumýri. Í miðjunni er Alda Björnsdóttir frá Fjósum í Svartárdal og lengst til hægri er Guðrún Steingrímsdóttir frá Snæringsstöðum í Svínavatnshreppi.
Guðmundur Guðnason006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson predikar í Þingeyrarkirkju.
Guðmundur Guðnason067

Mynd tekinn á Æsustöðum í Langadal , þarna má þekkja séra Birgi Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) í hvítri skyrtu með uppbrettar ermar og við hlið hans, til vinstri, Guðmund Klemenzson (d. 24.12.1999) kennara í Bólstaðarhlíð. Pétur Guðlaugsson (d. 19.5.2006) fyrrum bóndi á Brandsstöðum og trúlega bræður hans tveir. Konurnar og stúlkan eru óþekktar. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason906
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir til vinstri með bróður sínum Hjalta Indriðasyni.
Björn Bergmann 019
Hafís á Húnaflóa 1963 eða 1965
Guðmundur Guðnason980
Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari og Ásgeir Axelsson seinna bóndi á Litla-felli.
Björn Bergmann 004
Unnið að smíði báts á fyrsta ári stöðvarinnar 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís en hún var fyrsti báturinn sem sjósettur var frá stöðinni. Mennirnir á mydinni eru frá vinstri: Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson, Sveinn Ingi Grímsson og Ólafur Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason077
Áhorfendur fylgjast spenntir með kúlunni svífa í kúluvarpskeppni á ókunnu íþróttamóti (Frá Úlfari Björnssyni?). Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason823
Stefanía Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason867
Bogabraut 16. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason035
Þekkir þú þennan mann? Ef svo er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ævar Axelsson - safn005
Á myndinni hafa ungir Húnvetningar brugðið sér á ljósmyndastofu Ólafs Magnússonar í Reykjavík. Frá vinstri: Björn Helgason Efri - læk, Axel Helgason Læk, Þórhallur Jakobsson Neðri - Þverá og Indriði Brynjólfsson Ytri - ey.
Ævar Axelsson - safn002
Bræðurnir Björn Helgason (sitjandi) frá Efri - læk og Axel Helgason frá Læk.
Guðmundur Guðnason983
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í Ægissíðu á Skagaströnd.
Ævar Axelsson - safn008

Aftan á þessari mynd stendur skrifað með blekpenna: "Lárus Jóhannsson fæddur einn góðviðrisdag fyrir mörgum árum hefir leifi til að ríða tvíhjóla tík. Lögreglustjórin". Síðan hefur einhver látið Lárus hlægja að þessu með því að krota haaaaa inn á myndina. Lárus var m.a. bóndi á Höllustöðum og Kúskerpi. Hann var faðir Jóhönnu Lárusdóttur á Læk , konu Axels Helgasonar.

Ævar Axelsson - safn010
Axel Helgason frá Læk með hestinn sinn reiðubúinn í útreiðartúr.
Ævar Axelsson - safn009
Axel Helgason frá Læk.
Guðmundur Guðnason942

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Maðurinn með kaskeitið er Kristján Hjartarson.

Guðmundur Guðnason030
Rósberg Guðnason Snædal skáld og rithöfundur, f. 8.8.1991 og d. 9.1.1983, á heimaslóðum í Laxárdal sem þá voru komin í eyði. Rósberg var bróðir Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara.
Ævar Axelsson - safn028
Karla Helgadóttir frá Efra - læk.
Guðmundur Guðnason861
Bogabraut 12. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Ævar Axelsson - safn024
Myndin er sennilega tekin um 1940. Á myndinni eru bræðurnir Adolf Jakob Berndsen og Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) að leika sér á árabát á víkinni fram af Læk. Hafnarframkvæmdir í gangi í baksýn.
Björn Bergmann 014
Guðbjartur Guðjónsson vinnur við að kalfatta bát í stöðinni 1970 - 1971.
Björn Bergmann 009
Lúðvík Kristjánsson smíðar á stöðinni 1970 - 1971
Guðmundur Guðnason946

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Fólkið á myndinni fylgist með uppboðinu. Konan lengst til vinstri er Margrét Sigurðardóttir úr Fjallsminni en framan við hana með ljósleita húfu er Björgvin Guðmundsson frá Melstað. Drengurinn aftast er Árni Björn Birgisson. Berhöfðaða konan fyrir miðri mynd er Elíborg Árnadóttir í Sólheimum en framan við hana eru Ingvar Jónsson, maður hennar og mennirnir framan við hann eru Hartmann Jóhannesson frá Garði og Sigurður Guðmonsson frá Þórsmörk. Mennirnir hægra megin við Elínborgu eru Sigurður Magnússon (Siggi pípa)frá Brekku og Birgir Árnason í Straumnesi. Framan við þá tvo er Þorbjörn Jónsson úr Akurgerði.

Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn024
Lilja Bernódusdóttir úr Stórholti til vinstri með Önnu Sjöfn Jónasdóttur frænku sinni. Myndin var tekin í janúar 1968
Björn Bergmann 007
Ásdís og Guðmundur Þór, fyrstu bátar stöðvarinnar, í smíðum 1970 -1971. Mennirnir við smíðarnar eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001).
Guðmundur Guðnason945
Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason085

Örvar kristjánsson leikur á harmóniku við óþekkt tilefni.

Guðmundur Guðnason105
Þessi mynd var tekin eftir árekstur þessa tveggja jeppa. Líklega var myndin tekin á þjóðveginum neðan við Hvamm í Norðurárdal í Borgarfirði. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa rekist saman H 94 og S 95. H var á þessum tíma á bílum úr Húnavatnssýslum en S á bílum frá Seyðisfirði og Norður Múlasýslu. Síðastur til að nota númerið H 94, áður en tekið var upp nýtt númerakerfi, var Ástmar Kári Ástmarsson á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason064

Systkinin Sigfríður Konráðsdóttir og Sigurjón Konráðsson með óskírða Konráðsdóttur (d. 16.12.1969).

Ævar Axelsson - safn001
Konan á myndinni er talin vera Guðrún Helgadóttir seinna húsfreyja á Karlsskála eiginkona Ernst Berndsen.
Guðmundur Guðnason041
Mynd tekin yfir Blönduós.
Guðmundur Guðnason004

Þessi mynd er tekin í fermingarveislu Valgarðs Jökulssonar,heima á Núpi. Talið frá hægri: Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Guðmundur maður Bjargar Ingvarsdóttur frá Balaskarði, Karl Guðmundsson frá Vindhæli,Garðar Stefánsson frá Kúskerpi, Þorvaldur Jónsson fyrir endanum, fermingarbarnið og Signý Benediktsdóttir á Balaskarði.

Guðmundur Guðnason876
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason897
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

27
28
29

167
Leita í myndasafninu
Leita