Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekkt101
Hér er verið að koma fyrir fyrstu skúffunni í viðlegukantinum syðst í höfninni 1991. Baksvipurinn tilheyrir s Hjalta Indriðasyni. Eldri maðurinn var verkstjórinn Aðalsteinn Aðalsteinsson, maðurinn í græna mittisjakkanum er Magnús Blöndal en hálfi maðurinn er Ólafur Bernódusson.
Óþekkt017
Magnús B. Jónsson oddviti Höfðahrepps heldur ræðu á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989. Ragnar Jónsson (með heyrnatól) tekur ræðuna upp fyrir útvarp sem var starfrækt afmælisdagana.
Óþekkt109
Mynd tekin inn eftir gömlu kirkjunni á Skagaströnd - Hólaneskirkju eldri.
Óþekkt006
Leikskólabörn syngja á hátíðarpalli vegna afmælis Höfðahrepps 1989 undir stjórn Guðrúnar Hrólfsdóttur og Bóelar Hallgrímsdóttur.
hem014
Gamalt póstkort frá Skagaströnd. Á kortið er ritað þann 17. nóvember 1913. Tvílyfta húsið lengt til vinstri er Verslunarstjórahúsið, sem seinna var kallað Kaupfélagshúsið. Húsið var byggt um 1906 og stóð skammt vestan við núverandi Gamla kaupfélagið við Einbúastíg. Stóra rismikla húsið fyrir miðri mynd var hesthús og fjós kaupmannsins og líklega líka notað sem pakkhús að hluta. Við vinstra horn hesthússins sér í Assistentshús sem var heimili verslunarþjónsins, sem vann hjá kaupmanninum. Við hægra horn hesthússins sér svo í Sæmundsensbúð. Litla húsið vestan í Einbúanum var þvottahús. Eins og sést var þessi mynd tekin áður en vinna hófst við núverandi höfn hófst (1934). Þá var Einbúinn klettadrangur sem stóð fram í sjó í víkinni sem annars var órofin frá Hólsnefi og inn að Bjargi (nú Breiðabliki). Þjóðtrúin segir að álfar búi í Einbúanum og því boði það ógæfu fyrir samfélgið ef hann verður skertur eða skemmdur á einhvern hátt. Leyfi fékkst þó hjá álfunum til að koma fyrir fánastöng efst á Einbúanum og þar er enn flaggað á tyllidögum.
Myndina tók Evald Hemmert kaupmaður.
Þórður012
Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd er lengst til hægri. Konan sem er lengst til vinstri er Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi á Blönduósi. Milli þeirra situr ónefndur skátaforingi frá Finnlandi. Myndin var tekin þegar hún kom í heimsókn árið 1960.
Óþekkt023
Magnús B. Jónsson flytur ræðu á hátíðarpalli á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989
Óþekkt039
Kvenfélagskonur úr Húnavatnssýslu. Myndin tekin í félagsheimilinu á Blönduósi.
Þórður016
Lengst til vinstri í efri röð er Ingólfur Ármannson á Akureyri. Ingólfur stóð fyrir stofnum skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd. Maðurinn sem situr fyrir miðju er Hörður Sóphaníusson sem lengi var skólastjóri í Hafnarfirði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekkt096
Malarkeyrsla úr krús ofan við Spákonufellsrétt til uppfyllingar í Miðgarð í höfninni 1991
Óþekkt051
Unnið við að koma fyrir fánum fyrir forsetaheimsókn 1988
Óþekkt079
Gatnagerð neðst á Fellsbraut 1988. Framkvæmdir við smíði kirkjunnar í fullum gangi.
Þórður011
Myndin er tekin af tjaldbúðum Sigurfara frá Skagaströnd á landsmóti skáta að Hreðavatni einhverntíma á árunum 1960 - 1965. Drengirnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur060
Mynd tekin frá kirkjunni upp Fellsbraut. Heysátur eru í forgrunni á lóð kirkjunnar.
Óþekkt130
Frá samkomu í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar. Þrjú úr kirkjukórnum. Talið frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Sigurðardóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir
guðmundur006

Laufás er lengst til vinstri þá Melstaður og Ægissíða lengt til hægri. Svarta húsið sem ber yfir Melstað var einhvers konar útihús. Í Laufási bjuggu Sigurður Guðmundsson og Margrét Björnsdóttir með dóttur sinni Fjólu. Sigurður var smiður og var með trésmíðaverkstæði í húsnæðinu lengst til hægri í Laufási. Seinna byggðu svo Fjóla og Jón Kr. Jónsson þáverandi maður hennar hús, sem enn stendur, við enda bygginganna í Laufási til vinstri. Melstaður er nú horfin en þar bjuggu Björgvin Guðmundsson frá Saurum og Margrét ? kona hans. Þau voru barnlaus og eftir að þau fluttu burt var Melstaður rifinn. Neðan við götuna stóð Ægissíða en þar bjuggu Guðni Sveinsson og Klemensína Klemensdóttir með syni sínum Guðmundi. Guðmundur Guðnason var mjög lengi póstur á Skagaströnd og vinsæll og góður ljósmyndari. Þessi mynd er t.d. tekin af honum. Eins og algengt var á þessum árum eru fjárhús og hlöður gjarnan sambyggðar íbúðarhúsum fólks eins og glögglega sést á Melstað. Þessi mynd var líklega tekin einhventíma upp úr 1960.

Óþekkt011
Þrjár litlar stúlkur troða upp á hátíðarpalli vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 1989. Bergþóra Guðjónsdóttir er lengst til vinstri, María Jóna Gunnarsdóttir í miðjunni og Salóme Ýr Rúnarsdóttir lengst til hægri. Bóel Hallgrímsdóttir sem er til hægri á myndinni var kynnir á hátíðinni.
Óþekkt042
Bræðurnir Ari, Þórarinn og Atli Þórssynir á Kántrýhátíð. Ari er sá með húfuna, Þórarinn (Diddi) með hattinn og Atli er í norskri peysu.
Guðmundur032
Kristján Hjartarson spilar hér á orgel heima hjá sér. Kristjan var ljóðskáld, söngvari og tónlistarmaður af Guðs náð. Kristján stjórnaði kirkjukór Hólaneskirkju um árabil
Óþekkt046
Fellsbraut fánum prýdd vegna forsetaheimsóknar 1988
Óþekkt122
Sigmar Jóhannesson (til vinstri) og Sigurður Björnsson taka við blómum fyrir störf sín við byggingu Hólaneskirkju úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar.
Óþekkt084
Tvær stórar vinnuvélar að moka snjó af Strandgötunni þ.e. fyrir víkina.
Guðmundur136
Sólvangur til vinstri og Ásholt til hægri.
Óþekkt117
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju færir kirkjusmiðunum Sigmari Jóhannessyni (til vinstri) og Sigurði Björnssyni blóm sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Fremst á myndinni má sjá Jón Ingvar Valdimarsson.
Óþekkt040
Framkvæmdir komnar vel á veg við nýja kirkju á Skagaströnd. Sú gamla sést í baksýn.
Óþekkt127
Frá samkomu í Fellsborg að lokinn vígslu kirkjunnar. Kristján Hjartarson fyrrum organisti hvíslar í eyra séra Péturs Þ. Ingjaldssonar sem var sóknarprestur í Hólaneskirkju í 40 ár 1941 - 1981. Bak við þá sést í Þorvald Skaftason.
Snorri009
Helga Björg Hu 7 á siglingu.
Guðmundur081
Glatt á hjalla af ókunnu tilefni, sennilega þó einhver uppákoma hjá kirkjukórnum. Við borðið nær okkur eru, talið frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d.?), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Guðrún Sigurðardóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Við hitt borðið sjást frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Helga Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson og Gunnar Sveinsson,
Guðmundur100
Frá vinstri á myndinni eru: Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson sem snýr baki í vélina. Hin hjónin eru Vilhjálmur Pálmason og Ingibjörg Jóhannsdóttir.
Óþekkt080
Gatnagerð neðst á Fellsbraut. Karl Guðmundsson stjórnar þjöppunni, Gunnar Helgason stjórnar krananum á bíl sínum H 34. Aðrir eru óþekktir.
Huni_HU1_3_SM
Góður afli í netin hjá Húna Hu 1. Mennirnir eru óþekktir.
Óþekkt014
Biðröð eftir grillmat í boði Höfðahrepps á 50 ára afmæli hans 1989
Óþekkt058
Jóhann Baldvinson og Cora kona hans eru hér næst okkur. Jón Jónsson er með hatt en á undan þeim gengur Kári Lárusson. Fólkið er á leið á Hnappstaðatún til að taka á móti Vigdísi Finnbogadóttur forseta 1988.
Óþekkt103
Veisla á hótel Dagsbrún til að fagna verklokum við smíði Sægarðs 1991. fremst á myndinni er Elín Njálsdóttir. Maðurinn í bláu peysunni sem snýr andlitinu að ljósmyndaranum er Davíð Reynisson. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt041
Þökulagning á Hnappstaðatúni 1988. Í baksýn er húsið Ásbyrgi/Ásberg og til hægri er Breiðablik
Óþekkt081
Snjóhengjur í víkinni
Óþekkt009
Hljómsveit á palli á hátíðasvæðinu á tjaldstæðinu. frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson, Kristján Blöndal. Konan neðst í vinstra horninu er Guðný Hjartardóttir
Óþekkt126
Frá samkomu í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar. Gylfi Sigurðsson og Oddur Einarsson ræða málin við borðið en í bakgrunni eru talið frá vinstri: Torfhildur, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður Gestsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Óþekkt078
Unnið að gatnagerð neðst á Fellsbraut. H 34 var í eigu Gunnars Helgasonar.
Þórður019
Frá vinstri: Óþekktur maður og Páll Jónsson skólastjóri
Guðmundur076

Eldri borgara frá Skagaströnd við minnismerki um Þorvald víðförla við Stóru Giljá. Myndin er sennilega tekin einhverntíma kringum 1980. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: fremsta röð: Guðlaugur Guðlaugsson, Sveinn Kristófersson Litla Bergi, Teitný Guðmundsdóttir kona hans, Rósa Pálsdóttir Bjargi, Jóna Vilhjálmsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði og Jóhanna Thorarensen Litla Bergi. Næsta röð frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir úr Höfðatúni, Snorri Gíslason maður hennar, Soffía Lárusdóttir, Elínborg Jónsdóttir kennari í Röðulfelli, Guðný Hjartardóttir Blálandi, María Konráðsdóttir Sænska húsinu, Fjóla Gísladóttir frá Háagerði, Björk Axelsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka, Dagný Guðmundsdóttir, óþekkt, óþekkt og Birna Jónsdóttir Blöndal. Aftast frá vinstri: Ottó Ákason frá Réttarholti, óþekkt, Skafti Fanndal Jónasson, óþekktur bílstjóri og Sigurður Jónsson frá Fjallsminni

Óþekkt010

Frá vinstri: Björgvin Karlsson, Jóhnna Karlsdóttir, Karl Bjarnason og sonur þeirra. Myndin tekin á hátíðasvæðinu á tjaldstæðinu sumarið 1989 þegar haldið var upp á 50 ára afmæli Höfðahrepps.
guðmundur008
Sæból. Þetta hús brann síðar en það stóð rétt hjá þar sem nú er leikskólinn Barnaból.
Óþekkt055
Magnús B. Jónsson gerir fána kláran til að hengja upp fyrir forsetaheimsókn 1988.
Óþekkt020
Guðmundur Sigvaldason í ræðustól í afmælishófi þegar Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Hægra megin í forgrunni er Kristján Hjartarson skáld og organisti sem löngum var kenndur við hús sitt Grund. Maðurinn til vinstri er Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti. Bak við Guðmund má þekkja Finn Kristinsson og Jónu Vilhjálmsdóttur
Óþekkt057
Allt orðið tilbúið á Hnappstaðatúni fyrir heimsókn forsetans 1988. Sólbakki og Ásbyrgi/Ásberg í baksýn.
Óþekkt005
Hluti kirkjukórsins syngur á hátíðarpalli við undirleik Þorvaldar Skaftasonar. Söngfólkið er, frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir. Lengst til hægri er Bóel Hallgrímsdóttir.
Þórður015

Skátaforingjar. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) er lengst til vinstri í aftari röð. Sigurður Þorsteinsson skólamaður og frímerkjasafnari er þriðji frá hægri í aftari röð og sitjandi annar frá hægri er Ingólfur Ármannsson frá Akureyri sem stóð að stofnun skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd og var fyrsti félagsforingi þess meðan hann var kennari við Höfðaskóla. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Óþekkt110
Steindór Rúniberg Haraldsson mátar sig í predikunarstól Hólaneskirkju eldri. Steindór varð seinna meðhjálpari við Hólaneskirkju í mörg ár.
guðmundur022

Verslunin Borg , sem var í húsinu á myndinni, var ekta krambúð þar sem hægt var að fá keypt nánast hvað sem var til heimilisins. Verslunina áttu og ráku hjónin Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Hjónin bjuggu í húsinu - í austurenda þess - en verslunin var í meginhluta hússins. Kjallari var undir því og var hann nýttur fyrir hluta af lager verslunarinnar. Hinum megin við götuna var líka lagerhúsnæði, sem þau hjón áttu, en það hús stendur enn þó verslunarhúsið sjálft á myndinni hafi verið rifið fyrir allöngu. Eftir að Sigurður lést var húsið selt rafmagnsfyrirtækinu Neistanum sem þá var í eigu þeirra Jóns Inga Ingvarssonar og Hallbjörns Björnssonar. Ráku þeir félagar saman rafverkstæði í húsinu í allmörg ár. Hallbjörn keypti síðan hlut Jóns Inga, þegar hann fór að starfa á öðrum vettvangi, og hefur átt og rekið Neistann síðan. Hallbjörn byggði stórt húsnæði yfir starfsemi sína ekki langt frá þessu húsi og þar hefur hann rekið Neistann til þessa dags (janúar 2016). Húsið á myndinni var svo rifið fyrir allnokkrum árum eftir að Neistinn hafði flutt í nýja húsnæði sitt. Þá var verslunarhúsið komið í eigu Höfðahrepps.

Óþekkt129
Frá samkomu í Fellsborg að lokinn vígslu kirkjunnar. Í forgrunni talið frá vinstri: Guðrún Lárusdóttir prestsmaddama á Mælifelli, Inga Björgvinsdóttir, Pétur Þ. Ingjaldsson, Lárus Ægir Guðmundsson og sitjandi er Árni Sigurðsson. Maðurinn í bakgrunni myndarinnar, til vinstri við höfuð Lárusar, er Pálmi Jónsson alþingismaður frá Akri.
Óþekkt118
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju færir Hega Gunnarssyni, yfirsmið við bygginguna, blóm sem þakklætisvott fyrir hans góðu störf.
Óþekkt083
Allt á kafi í snjó. Myndin er tekin niður Ránarbraut
Óþekkt037
Þessi mynd var tekin í Fellsborg, líklega einhverntíma á áttunda áratugnum, af prúðbúnum kvenfélagskonum í kvenfélaginu Einingin á Skagaströnd. Efri röð frá vinstri: Jóna Vilhjálmsdóttir, ?Sigfríður Runólfsdóttir?, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Birna Jónsdóttir Blöndal, Elísabet Árnadóttir í Réttarholti, María Konráðsdóttir úr Sænska húsinu, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Margrét Konráðsdóttir kaupkona í versluninni Borg, Guðrún Helgadóttir Karlsskála, Karla Helgadóttir Ásbyrgi, Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir í Árnesi, Soffía Sigurðardóttir frá Njálsstöðum, Halldóra Pétursdóttir úr Höfðakoti og Helga Berdsen Karlsskála.
guðmundur005
Vetrarmynd af Skagaströnd tekin frá Höfðanum. Húsið fyrir miðju er Garðarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir sem þarna voru.
Óþekkt022
Hjónin Jóhann Pétursson og Sigríður Ásgeirsdóttir á Lækjarbakka.
Snorri008
Helga Björg Hu 7 á siglingu
Guðmundur093
Fjöldasöngur í kaffiveislu í Skátaskálanum.
Guðmundur123
Á myndinni eru á fundi í Fellsborg, talið frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Anna Skaftadóttir, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Þorgerður Guðmundsdóttir (d.24.4.2008).
guðmundur004
Frá vinstri: Laufás, Melstaður, Réttarholt og Ægisíða. Í baksýn er Sólvangur. Myndin er tekin á hafísári því íshrafl er á víkinni fram undan Sólvangi.
1
2
3
4
5

167
Leita í myndasafninu
Leita