Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason117
Ekkert er vitað um þessa mynd frá sundlauginni á Skagaströnd en greinilega hefur eitthvað mikið staðið til vegna áhorfendaskarans sem fylgist með sundfólkinu. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason065
Aftan á þessari mynd stendur: "Frá skemmtiferð skólabarna í Engihlíðarhreppi til Reykjaskóla í Hrútafirði 1939". Gaman er að skoða farartækið sem notað var í þessari skemmtiferð. Því miður eru allir á myndinni óþekktir nema Guðmundur Guðnason sem stendur farman við aftari dyrnar á farþegakassanum. Hann er með derhúfu og röndótt bindi. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason993
Jarðýta mokar snjó við Ægissíðu þar sem Guðmundur ljósmyndari þessarar myndar átti heima. Í baksýn sést í Melstað hinum megin við götuna. Maðurinn á myndinni er sennilega Guðni Sveinsson faðir Guðmundar.
Guðmundur Guðnason094
Gylfi Sigurðsson Bogabraut 12.
Ævar Axelsson - safn019
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Guðný Finnsdóttir kona hans, Hulda Pálsdóttir og Axel Helgason (d. 16.7.1971) frá Læk. Tilefni gleðskaparins var 50 ára afmæli Margrétar Jóhannesdóttur (d. ?) í Lundi en hún var sambýliskona Ole Aamundsem (d. ?). Ole talaði af virðingu um Margréti sambýliskonu sína, sem hann alltaf kallaði "jómfrúna".
Ævar Axelsson - safn030
Sigríður Björnsdóttir á sumardegi.
Guðmundur Guðnason009
Ekkert er vitað um þessa mynd né næstu mynd (nr. 3916) sem tekin er á sama stað en af öðrum mönnum. Ef þú veist hvar myndin er tekin eða hverjir eru á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Línan í forgrunni myndarinnar er einhver skemmd í myndinni en ekki planki.
Ævar Axelsson - safn026
Sigríður Guðmundsdóttir systir Jóns Guðmundssonar sem lengi bjó á Sölvabakka.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn008
Halldór Gunnar Ólafsson 1983 fyrir utan Mánabraut 5 í miklum snjó
Guðmundur Guðnason972
<P> Myndin er tekin við Tröllafoss í ágúst 1961. Til vinstri er Þórir Konráð Guðmundsson frá Garðhúsum og til hægri Björgvin Brynjólfsson. Myndin er tekin úr bókinni "Minningar og lífssýn" eftir Björgvin Brynjólfsson bls. 258.</P>
Guðmundur Guðnason124
Tvö börn skírð í Hofskirkju 13. júlí 1969. Konurnar með börnin eru systurnar María Línbjörg Hjaltadóttir(Bogga) á Neðri Harrastöðum með Hjalta Viðar Reynisson í fanginu og Árný Hjaltadóttir (Dúdú) á Steinnýjarstöðum með Guðríði Ingunni Kristjánsdóttur. María er til vinstri á myndinni. Aftast má þekkja Dómhildi Jónsdóttur prestsfrú til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson er lengst til hægri. Milli þeirra stendur Hilmar Árnason bóndi á Hofi. Litla dökkhærða daman á fremsta bekk er Anna Kristjánsdóttir eldri systir Guðríðar Ingunnar sem verið var að skíra.
Ólafur Bernódusson031
Kirkjukórinn syngur við athöfn þegar kveikt er á jólatré á Hnappstaðatúni í aðdraganda jólanna. Logndrífa var þegar athöfnin fór fram og þess vegna er myndin eins og hún er. Á myndinni frá hægri: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason, Kristján Hjartarson, Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir,óþekkt kona með lítinn jólasvein, Bára Þorvaldsdóttir. Aðrir á myninni eru óþekktir. Myndin er tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn007
Lilja Bernódusdóttir í Stórholti til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir í Höfðakoti til hægri. Myndin tekin einhverntíma kringum 1970.
Guðmundur Guðnason047
Þessi mynd var tekin þegar verið var að bora eftir heitu vatni á melnum neðan við Ásholt. Borað var niður á 30 metra dýpi en því miður fannst ekki heitt vatn á staðnum.
Óþekktur ljósmyndari121
<P>Veitingastaðurinn Kántrýbær byrjaði rekstur í þessu húsi. Útvarp kántrýbær var á efri hæðinni. Aðfaranótt 27 október 1997 brann þetta hús til kaldra kola. Hallbjörn Hjartarson, sem átti húsið og starfsemina þar, gafst ekki upp. Hann safnaði peningum hjá þjóðinni og reisti það hús sem stendur í dag á sama stað og þetta var. Nýja húsið með veitingasölu og útvarpi Kántrýbæ var opnað rúmu ári eftir brunann 27. júní 1998. </P>
Guðmundur Guðnason025
Frá vinstri á þessari mynd eru feðgarnir: Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971), Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) og Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) frá Ægissíðu. Guðni flutti í Ægissíðu á Skagaströnd með fjölskyldu sína framan úr Laxárdal, sennilega um 1948.
Guðmundur Guðnason093
<p>Maðurinn til vinstri er Sigurjón Jóhannsson (d. ?) frá Sunnuhlíð en ungi berhöfðaði maðurinn er Jón S. Pálsson frá Breiðabliki. Á myndinni eru þeir að setja hrúta á bíl - eða taka þá niður - sennilega vegna hrútasýningar. Líklega var bíllinn í eigu Sigurjóns. </p>
Óþekktur ljósmyndari135
<P>Maríanna Þorgrímsdóttir snurfusar aðkeyrsluna að tjaldsvæðinu fyrir Kántrýhátíð (sennilega 1998). </P>
Ævar Axelsson - safn004
Áð í skemmtiferð fólks frá Skagaströnd. Fremst á myndinni eru systkinin Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) með hatt og Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) frá Brúarlandi. Maðurinn í hvítu skyrtunni er Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) frá Iðavöllum og maðurinn vinstra megin við konuna með skupluna er Axel Helgason (d. ?) frá Læk. Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason126
Líklega er þetta Blönduóskirkja, konan lengst til vinstri er Ingibjörg Pálsdóttir ( Budda Páls) og lengst til hægri er Ingileif á Kleifum næst henni Aðalbjörg í Holti. Presturinn er Gunnar Árnason frá Æsustöðum.
Guðmundur Guðnason028
Ásgeir Axelsson bóndi á Litla-Felli á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason087
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær myndin var teklin.
Guðmundur Guðnason110
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Gengið upp bryggjuna í Ögri eftir sjóferð með Fagranesinu frá Ísafirði. Maðurinn í dökku fötunum er Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) er í ljósum jakkafötum og Hallbjörn Björnsson er aftastur í opinni lopapeysu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason062
Systkinin í Grund talin frá vinstri: Þórdís Lárusdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Magnús Lárusson með Grím Valdimar Lárusson í fanginu.
Guðmundur Guðnason996
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (Óli í Braut) í svörtum frakka með skinnhúfu spjallar við Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum undir réttarvegg í Spákonufellsrétt. Takið eftir réttarpelanum í úlpuvasa Sigurbjörns og svipunni í stígvélinu. Stúlkan á myndinni er Kristín Sigurðardóttir sem ólst upp á Kárastöðum. Strákurinn á hjólinu er óþekktur.
Guðmundur Guðnason015
Þetta par er óþekkt. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason011
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir en eru sjóaralegir til fara. Ekki er heldur vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason007
Ekki er vitað hvar þetta myndarlega hús er né hvaða erindi allt þetta fólk á framan við húsið. Ef þú getur hjálpað okkur með þetta vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingvar Jónss,Lára Kristj.d.(ath), .., Bogi Björnss,Þórey Jónsd._035
Þetta ágæta fólk frá Skagaströnd er hér einhversstaðar á ferðalagi. Frá vinstri: Ingvar Jónsson frá Brúarlandi, óþekkt, ?Jón Ólafur Ívarsson?, óþekkt inni í bílnum , Bogi Björnsson, Þórey Jónsdóttir frá Brúarlandi og óþekktur maður. Myndin er sennilega tekin einhverntíma á sjötta áratugnum.
Guðmundur Guðnason114
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Gert klárt fyrir brottför frá Ögri í Ísafjarðardjúpi. Á miðri mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) kona hans er hægra megin við manninn sem snýr baki í myndavélina. Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) er til vinstri með sólgleraugu og slæðu. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson018
Myndin er tekin 1992 og er af Lárusi Ægi Guðmundssyni þá framkvæmdastjóri Hólaness hf að afhenda Jóhönnu Jónasdóttur blómvönd í tilefni af á 75 ára afmæli hennar og 40 ára starfsafmæli hjá frystihúsinu
Guðmundur Guðnason078
Túnbraut 7 í forgrunni. Til vinstri eru Iðavellir og sér í hornið á Stóra - bergi framundan Túnbraut 7. Húsið til hægri er Litla - berg ( Fellsbraut 2).
Guðmundur Guðnason046
Tekið til altaris í Holtastaðakirkju við fermingu Ólafar Jónsdóttur frá Ártúnum og Rannveigar Runólfsdóttur í Hvammi í Langadal. Fólkið sem fylgir þeim til altaris er óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn026
<P>Hjónin Unnur Björnsdóttir (d.14.12.1990) og Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) frá Þórshamri.</P>
Guðmundur Guðnason032
Rúnar Jósefsson í Reykholti.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn003
Þessi mynd er tekin 1949 . Á henni eru systurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Halla Björg Bernódusdóttir til hægri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn029
Veiðimenn við Blöndu áður en hún var virkjuð. Algengt var að menn keyptu sér saman eina stöng því áin þótti erfið. Hún var alltaf kolmórauð eins og kakósúpa og mest var veitt á spún af stærstu gerð þannig að oftar en ekki var laxinn húkkaður tilviljanakennt. Menn skiptust því á um að veiða en settust bara og fylgdust með félaganum meðan þeir voru ekki sjálfir að kasta fyrir laxinn og voru tilbúnir að stökkva af stað til að aðstoða við löndunina. Þá var líka algengt að áhugasamir gestir kæmu í heimsókn til að fylgjast með hvernig veiðin gengi. Á þessari mynd frá 1982 eru frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) allir frá Skagaströnd og Lárus Jónsson Blönduósi (frá Bakka í Vatnsdal).
Guðmundur Guðnason019
Myndin er tekin fyrir neðan bæinn að Vindhæli af elstu börnum Guðmanns Magnússonar bónda þar og konu hans Maríu Ólafsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Anna Guðmannsdóttir, Einar Guðmannsson og Guðrún Guðmannsdóttir.
Guðmundur Guðnason113
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Myndin er gömul því ekki er búið að byggja löndunarkranann á höfninni og hann var reistur einhverntíma á árunum 1943 - 1945 og því er myndin eldri en það. Ef þú þekkir húsin á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason026
Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands á ferð á Akureyri 29. ágúst 1962. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Erla, Lára Bylgja, Guðmundur, Valdimar, Guðm. Viðar 013
Hjónin Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) og Erla Valdimarsdóttir (d.29.9.2008) með þrjú elstu börn sín. Lára Bylgja stendur á milli foreldra sinna, Valdimar (d.4.4.2015) situr í fangi móður sinnar en Guðmundur Viðar er í fangi föður síns. Myndin er tekin 1960 - 1965.
Björn Bergmann 001
Björn Bergmann Jónsson (d.30.5.1985) ljósmyndari og kennari á Blönduósi til margra ára. Björn tók mikið af ljósmyndum í Húnavatnssýslu og víðar. Margar mynda hans má sjá í eldri Húnavökuritum.
Guðmundur Guðnason045
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason101
Myndin var tekin í nýbyggðri höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Líklega er báturinn Ludendorf Hu 46 nær á myndinni en hinn gæti verið Hindenburg Hu 45 seinna Jón Bjarnason.
Guðmundur Guðnason953
Skólasýning á óþekktu leikverki í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla. Fólkið í myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason135
Flekkótt kind með tvö flekkótt lömb. Ekki er ólíklegt að Guðmundur ljósmyndari hafi átt þessa kind og þótt hún falleg enda var hann áhugamaður um sauðfé. Myndin var tekin á túninu við Ægissíðu þar sem Guðmundur átti heima.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn005
Vigfús Elvan Friðriksson fæddur 5. 10. 1953 og dáinn 7. 12. 2001 í hörmulegu sjóslysi við Snæfellsnes.
Guðmundur Karlsson 019
Guðmundur Karlsson (f. 10.10.1919 - d. 28.7.2001) skipstjóri.
Hverjir skyldu þetta vera 031
Frændurnir Guðmundur Sveinsson, vinstra megin, og Birgir Árnason til hægri í smíðavinnu. Myndin er sennilega tekin á sjötta áratugnum.
Guðmundur Guðnason143
Hesti hleypt á hestamannamóti í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum. Knapi og hestur óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari140
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
Guðmundur Guðnason992
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson skírir þrjú börn í fermingarmessu á Höskuldsstöðum vorið 1964, börnin eru þrjú, Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson frá Núpi með Jón Tryggva Jökulsson lengst til hægri. Trausti Kristjánsson með Guðmund Einar Traustason í fanginu í miðið og snýr baki í myndavélina. Síðan eru Erla og Svavar á Síðu með Björn son sinn. Tvíburarnir frá Neðri Lækjardal eru í fremstu sætum fermingarbarnanna.
Guðmundur Guðnason140
Í Hofsrétt sumarið 1965. Gígja Axelsdóttir frá Litla -felli og Jón Sigurðsson bóndi á Árbakka, tengdasonur Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum.
Guðmundur Guðnason979
Tveir óþekktir snáðar í náttfötunum sínum. Ef þú þekkir drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari132
Kaffi og "meððí" í Áhaldahúsinu. Frá vinstri eru Guðmundur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri fær sér kaffi og Ragnar Ingvarsson fær sér mjólk í kaffið. Allir voru þeir starfsmenn Höfðahrepps á þessum tíma. Myndin var tekin 10. september 1998.
Guðmundur Guðnason029
Þessi ungi maður er Húnn Snædal sem er einn af fjórum sonum Rósbergs G. Snædal (d. 9.1.1983) frá Ægissíðu. Nöfn þeirra eru: Húnn Snædal, Hólmsteinn Snædal, Magnús Hreinn Snædal og Guðni Bragi Snædal.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Vetur á Skagaströnd og allt á kafi í snjó. Myndin er líklega tekin veturinn 1995-96 þegar mikill snjór var í bænum. Á myndinni er Skafti Fanndal Jónasson að moka upp bílinn sinn.
Ævar Axelsson - safn014
Hrólfur Jakobsson sem lengi var verkstjóri í fiskvinnslu.
Guðmundur Guðnason058
Spákonufell að vetri til. Myndin tekin af hlaðinu á Ægissíðu, heimili Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar. Húsin til vinstri er Ásholt en til hægri sér í Ás.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn062
Einar Haukur Arason. Myndin tekin ca 1966
1
…
29
30
31
…
167
Leita í myndasafninu
Leita