Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Afmæli Fram 1976 005
50 ára afmælisveisla umf Fram í Fellsborg 1976. Við borðið sitja frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, óþekkt, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson, þjár óþekktar manneskjur og Soffía S. Lárusdóttir.
Ólafur Bernódusson033
Hér er verið að vinna við að ná upp bátnum Rúna Hu 101 sem Ólafur Ingibjörnsson gerði út frá Skagaströnd. Í illviðri hlóðst ísing á bátinn í Skagatrandarhöfn og hann sökk. Á myndinni er búið að koma böndum á Rúnu og stór kranabíll er byrjaður að lyfta henni úr kafi. Myndin er tekin á níunda áratugnum.
Jóhannes Pálsson Garði 036
Jóhannes Pálsson (f. 1878 - d. 9.3.1972) skósmiður í Garði á Skagaströnd
Á toppi Spákonufells 006
Þessi mynd er tekin kringum 1940 af hressu fólki við vörðuna upp á Spákonufellsborg. Fólkið er óþekkt en takið eftir klæðnaði fólksins; konurnar eru í kjólum og karlarnir flestir með hatt. Sunnudags - fjallgöngutúrar tíðkuðust á þessum árum en þá bjó fólk sig í betri fötin og lagði svo af stað. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson040
Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri og Bernódus Ólafsson lesa saman stuttan einþáttung á skemmtun í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Báðir voru þeir mjög virkir og vinsælir leikarar í starfi Leikklúbbsins og Bernódus í Leikfélagi Skagastrandar þar á undan. Auk þess að leika var Bernódus leikstjóri margra leikrita á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason097
Kindur á túni fyrir vestan Sænska húsið (Hólabraut 23), sem sést í baksýn. Líklega eru þetta kindur sem Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) í Baldursheimi átti því hann átti fjárhús þarna. Nú eru á þessu svæði tvö hús; Hólabraut 21 og Hólabraut 19. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason054
Hjónin í Höfðabrekku Þorgerður Guðmundsdóttir og Björgvin Jónsson á góðri stund á heimili sínu.
Ólafur Bernódusson036
Hjörtur Guðbjartsson svamlar hér í sjónum í flotbúningi. Þetta var liður í öryggisnámskeiði sjómanna sem haldið var á Skagaströnd veturinn 1985.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn022
Á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda var mikill skíðaáhugi á Skagaströnd. Skíðalyfta var keypt og starfrækt í hlíðum Spákonufells, skíðaskálinn var byggður og skíðaáhuginn var almennur. Haldin voru fjölmenn skíðamót í svigi, bruni og skíðagöngu þar sem allir skemmtu sér vel. Fólkið á þessari mynd tók sig til og gekk á gönguskíðum frá Skagaströnd og út að Háagerði einn sunnudag vorið 1983. Þegar þangað kom beið Jón Jónsson eftir fólkinu með heitt kakó í potti og samlokur í rússajeppa sem hann átti. Standandi frá vinstri á myndinni: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Sitjandi: Jón Jónsson (d.9.7.1991), Gylfi Sigurðsson, Bára Þorvaldsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir. Myndina tók Ólafur Bernódusson fyrir utan Háagerðisbæinn.
Guðmundur Guðnason155
Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) frá Ægissíðu bjó lengst af á Blönduósi. Þessa mynd hefur hann látið taka af sér á ljósmyndastofu Jóns Kaldal og síðan sent móður sinni sem póstkort því aftan á myndinni stendur: <em>Klemensína Klemensdóttir, Vesturá,</em> en foreldrar Pálma bjuggu um hríð á Vesturá í Laxárdal.
Ingibjörg Lárusdóttir 033
Ingibjörg Lárusdóttir (f. 12.6.1930 - d. 20.10.2010) frá Skagaströnd
Hafsteinn, Guðbjörg, Soffía, Laufey 025
Fólkið á myndinni er frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson Reykholti (d.18.5.1974), Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981), Soffía S. Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) eiginkona Hafsteins. Myndin er sennilega tekin á byggðasafninu á Reykjum á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason160
<p>Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Mennirnir sem standa við réttarveggin eru Markús Sigurjónsson bóndi á Reykjarhóli til vinstri og Kristinn Helgason áður bóndi á Íbishóli til hægri.</p>
17. júní 1944 - Ísland 50 ára
Skrúðganga kemur á skólavöllinn á Skagaströnd á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1994. Íslenska lýðveldið 50 ára.
Guðmundur Guðnason073
Börnin á þessari mynd eru óþekkt. Sama má segja um húsið í baksýn. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir húsið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Sigurðardóttir dóttir Jónínu 050
Kristín Sigurðardóttir sem ólst upp hjá móður sinni, Jónínu Valdimarsdóttur, á Kárastöðum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn023
Birgir Árnason (d.2.2.2005) frá Árnesi (og Straumnesi) til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) úr Stórholti á ferðalagi á Ströndum. Hér hafa þeir skreytt sig með ýmsu dóti sem þeir fundu í rekið í fjöru. Myndin er tekin einhverntíma á áttunda áratugnum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn048
Byrjunarframkvæmdir við Trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar árið 1987.
Ólafur Bernódusson038
Hafrún Hu 12 kemur úr róðri. Myndin var tekin áður en gagngerar breytingar voru gerðar á bátnum eftir að hann hafði sokkið í höfninni á Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1980.
Óþekktur ljósmyndari123
Magnús Ólafsson og Adolf H. Berndsen (til hægri) vinna við að reisa samkomutjald fyrir Kántrýhátíð 2002.
Jón Jónsson180
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Frá vinstri eru: Anna Halldórsdóttir Aspar, Inga Björgvinsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir og Rakel Sara Gunnarsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn050
Fermingarbörn 1989. Frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Börkur Árnason, Hafdís Ásgeirsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Soffía Lárusdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir, Þröstur Árnason, Særún Níelsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir eða Áslaug Jóhannsdóttir sem eru tvíburasystur og aðra þeirra vantar á myndina, Svanur Árnason, Jóhannes Óskarsson, Óskar Ingi Þórsson, Hallgrímur Björgvinsson og Guðmundur Henry Stefánsson.
Ingibjörg Lárusdóttir og fjölskylda 034
Á myndinni eru hjónin Ingibjörg Lárusdóttir (f. 12.6.1930 - d. 20.10.2010) og Sigurður Magnússon kennari og vörubílstjóri með börnin sín. Guðmundur Haukur Sigurðsson er lengst til vinstri en Sigurður Sigurðsson (Mansi) er lengst til hægri. Ingibjörg situr með Þórdísi Sigurðardóttur en Sigurður situr með Svanfríði Sigurðardóttur. Myndin var tekin snemma á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson035
Ólafur Ingibjörnsson landar fiski úr bát sínum Rúnu Hu 101 í apríl 1986. Rúna sökk seinna í Skagastrandarhöfn og var hífð upp aftur en ekki gerð út frá Skagaströnd eftir það
Jón Jónsson199
Fjóla Gísladóttir frá Háagerði ( f. 5.7.1918 - d. 5.11.1991), lengi heimilismaður á Sæborg.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn040
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á Á þessari mynd sést hluti hópsins sitja að kvöldverði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt kona, Anna H. Aspar, Bára Þorvaldsdóttir, Signý Richter, María Magnúsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Jón Jónsson, Gunnar Sveinsson og Högni Jensson.
Elísabet Knudsen - ljósm. H Einarsson Akureyri 011
Elísabet Knudsen. Um þessa konu er lítið vitað annað en hún bar mjög fyrir brjósti lestarakennslu barna. Ef þú veist eitthvað um Elísabetu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason100
Skrifborð Guðmundar Guðnasonar pósts og ljósmyndara einhverntíma kringum 1970.
Ólafur Bernódusson060
Á myndinni er Sveinn S. Ingólfsson að afhenda Lárusi Ægi Guðmundssyni styrk frá útgerðarfyrirtækinu Skagstrendingi hf til ungmennafélagsins Fram. Myndin er tekin 1984 og það er Sveinn sem er til vinstri.
Guðmundur Guðnason164
<p>Í Stafnsrétt 1963. Guðmundur Guðmundsson (d. 29.8.1976) bóndi að Fossum er sá sem er með höndina í fatla. Hinn maðurinn er Baldur Sigurðsson frá Vesturhlíð í Lýtingsstaðahreppi. </p>
Guðmundur Guðnason061
Óþekktur maður með tvö börn. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason194
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Á myndinni er verið að brjóta málin til mergjar. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn028
Henry Kristjánsson (d.22.6.1972) frá Kárastöðum á hrútasýningu við fjárhúsin í Bjarmalandi. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1960.
Guðm. Jóh. að kafa 1961 018
Guðmundur Jóhannesson við köfunarstörf 1961. Á bátnum Ægi eru hjálparmenn hans þeir Kristófer Árnason slöngumaður og Þórbjörn Jónsson í talstöðinni. Guðmundur vann lengi sem kafari, aðallega við hafnargerð, víða um land. Ef grannt er skoðað sést í stórt hjól lengst til vinstri á myndinni. Þessu hjóli var snúið stanslaust meðan Guðmundur var í kafi og með því dælt lofti niður til hans eftir loftslöngunni sem Kristófer var ábyrgur fyrir að ekki flæktist eða á hana kæmi gat. Mikið ábyrgðarstarf var líka að vera á talstöðinni og þurfti að ríkja mikið traust milli kafarans og talstöðvarmannsins. Bátinn Ægi áttu þeir saman um tíma þeir Guðmundur og Þórbjörn.
Jón Jónsson179
Mæðgurnar á myndinni eru Jóhanna Ólafsdóttir kennari og prestsfrú á Skagaströnd til vinstri og Hafdís Hanna Ægisdóttir dóttir hennar. Á bak við þær sér í Sigurbjörgu Angantýsdóttur vinstra megin og Dagný Guðmundsdóttur til hægri. Myndin var tekin í Fellsborg á einhverri uppákomu tengdri kirkjunni á árunum kringum 1990.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn021
Þetta unga og glaða fólk er frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir (d.?) frá Bergi, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) úr Stórholti og Helga Berndsen frá Karlsskála. Hér eru þau á skemmtiferð einhverntíma kringum 1950.
Guðmundur Guðnason021
<p>Hólmfríður Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli</p>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn001
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) sem lengi bjó í Akri (Hólabraut 13) er hér með sonum sínum: Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til hægri.
Guðmundur Guðnason172
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Maðurinn með hattinn er Páll Jónsson skólastjóri, Rúnar Ingvarsson er í ljósu peysunni og maðurinn með sixpensarann er Eggert Skarphéðinsson úr Sólheimum.
Guðmundur Guðnason122
Elínbjörg Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum og Bjarnhildur Sigurðardóttir Efrimýrum fermdar af séra Pétri Þ. Ingjldssyni í Höskuldsstaðakirkju líklega árið 1969.
Lárus G Guðm. Vindhæli 054
Lárus G. Guðmundsson (d. 21.9.1981) bóndi á Vidhæli.
Guðmundur Guðnason226
Feðgarnir Magnús Sigurðsson (til vinstri) og Sigurður Magnússon (f. 18.11.1920 - d. 2.8.2002) í Hólanesi.
Jón Jónsson181
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson með dætrum sínum; Soffíu Lárusdóttur til vinstri og Erlu Maríu Lárusdóttur til hægri. Við enda borðsins situr Guðný Hjartardóttir í Blálandi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn046
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Bjórstopp í búðarrápinu í London. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson maður hennar á bak við hana. Hinum megin við borðið eru Benóný Gunnarsson, Hallgrímur Kristmundsson og María Magnúsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari133
Verkefni dagsins skipulögð á morgunfundi í Áhaldahúsinu. Starfsmenn Höfðahrepps á þessari mynd eru frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson, Páll Jóhannesson og Ragnar Ingvarsson. Myndin var tekin 10. september 1998.
Guðmundur Guðnason139
Er þetta Konráð Guðmundsson úr Garðhúsum (Konnabænum) ? Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason109
Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : <em>"Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði". </em>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn016
Helga Berndsen frá Karlsskála í Vaglaskógi sennnilega í kringum 1950.
Óþekktur ljósmyndari144
Undirbúningur Kántrýhátíðar 2. ágúst 2000. Unnið er við að koma upp tjöldum á Hnappstaðatúninu. Frá vinstri: Helga Bergsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir, Ragnar Ingvarsson, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Berglind Karlsdóttir.
Guðbjörg Guðjónsdóttir 015
Guðbjörg Guðjónsdóttir (Gudda gamla) verkakona á Skagaströnd (d.3.7.1981)
Albert Haraldsson
Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) sem lengst af bjó á Litla Bergi (Fellbraut 2) á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason088
Gamli bærinn á Réttarholti. Þetta hús brann en þá hafði ekki verið búið í því um tíma. Ábúendur í Réttarholti, Már Sveinsson og Elísabet (Bebbý) Árnadóttir, höfðu þá byggt nýtt hús, nær þjóðveginum, sem enn stendur í Réttarholti.
Ludvig R. Kemp og Hjörtur 1953 063
Lúðvík R. Kemp (f. 8.8.1889 - d. 30.7.1971) með brennivínsflösku og vinur hans Hjörtur Laxdal frá Sauðárkróki
Guðmundur Guðnason070
Unnur Gunnarsdóttir úr Stórholti (seinna Lundi) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti til hægri á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason165
Hjónin frá Réttarholti; Þorbjörg Halldórsdóttir (d. 30.6.1970) og Jón Sölvason (d. 17.8.1969). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var tekin framan við Flankastaði (Bankastræti 7) en þar bjó Þórbjörn sonur þeirra með sína fjölskyldu.
Þórbjörn og Kristófer 095
Þetta eru mágarnir Þórbjörn Jónsson (f. 19.11.1917 - d. 22.1 1996) frá Flankastöðum (Tóti Flankur) til vinstri og Kristófer Árnason (f. 31.1.1916 - d. 10.5.2000) til hægri. Kristófer var bróðir Guðmundu konu Þórbjarnar.
Óþekktur ljósmyndari129
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Starfsmennirnir Rósa Björg Högnadóttir til vinstri og Kristín Þórðasrdóttir til hægri voru verkstjórar í vinnuskólanum. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Jón Jónsson172
Kristján Arinbjörn Hjartarson (d. 2.8.2003) syngur á sviðinu í Fellsborg við undirleik Steinunnar Berndsen. Tilefnið er óþekkt.
Díana, Grétar og synir 007
<P>Hjónin Grétar Haraldsson og Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir með syni sína þrjá. Drengirnir eru frá vinstri: Jóhannes William Grétarsson, Ívar Logi Grétarsson og Elvar Arinbjörn Grétarsson. Myndin tekin 1990 - ´95.</P>
Elínborg með bekk Kalla og Begga 009
Bekkjarmynd af börnum í Höfðaskóla fæddum 1953. Myndin gæti verið tekin ca 1963. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) Lækjarhvammi, Böðvar Jónsson Sænska húsinu, Ólína Bjarnadóttir Bjarnarhöfn, Gylfi Jóhannsson Lækjarbakka og Sveinn Mássson Réttarholti. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson Akurgerði, Gísli Bergsson Hólanesi, Jón Geir Jónatansson Höfðabrekku, Jón Jósefsson Reykholti, Finnur Kristinsson Héðinshöfða og Guðmundur Kristinsson Bræðraborg. Fremsta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson Hólabraut 25, Halla Júlíusdóttir Höfðabergi, Elínborg Jónsdóttir kennari Röðulfelli, Edda Þórarinsdóttir Höfðaborg og Ingibergur Guðmundsson Hólabraut 25.
1
…
31
32
33
…
167
Leita í myndasafninu
Leita