Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason209
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Á myndinni er Kristinn Jóhannsson glaðbeittur við vinnu sína við að taka gærur af skrokkunum. Bak við hann sér í Bjarna Loftsson að rista fyrir.
Ólafur Bernódusson022
Lengst til vinstri er Oliver Oliversson þá kemur Ingvar Jónsson, greinilega sigurvegari á mótinu því hann er með bikar, og síðan til hægri er faðir Ingvars, Jón Ingi Ingvarsson. Þessir menn voru sigursælir á innanfélagsmótum Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli á árunum kringum 1990
HuniHU2_1_SM
Húni ll HU-2 Höfðakaupstað í reynslusiglingu á Eyjafirði í júní 1963. Báturinn var smíðaður á Akureyri fyrir Björn Pálsson og Hákon Magnússon 130 brúttótonn með 450 hestafla Stork vél og þótti lista smíð á sinum tíma. Hét seinna Haukafell SF-111. Gauti HU ? Sigurður Lárusson SF ? og síðan Húni ll og heitir það enn og er varðveittur á Akureyri.
Guðmundur Guðnason103

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Brúnn Georgs Agnarssonar". Mennirnir á hliðarlínunni eru Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) frá Bollastöðum nær og Þorkell Sigurðsson (d. 7.10.2008) á Barkarstöðum
fjær.

Lára Kristj. og Lárus G Guðm. 052
Hjónin Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Lárus G. Guðmundsson (d.21.9.1981).
Guðmundur Guðnason130
Þennan bíl átti Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) í Réttarholti nágranni Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar.
Guðmundur Guðnason208
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Ræsing. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 092

Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Á myndinni eru Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) að spjalla saman. Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) situr upp við gluggann og í fremstu röðinni má þekkja Þorfinn Bjarnason (d. 6.11.2005) og Huldu Pálsdóttur konu hans.

Guðmundur Guðnason075

Hástökkvarinn á myndinni er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Jón Jónsson168
Anna Dröfn Guðjónsdóttir leikur á flygil í Fellsborg á einhverri uppákomu á vegum tónlistarskólans. Myndin tekin snemma á níunda áratugnum.
28_Bjarnina_ Litla_Bergi_1945
Bjarnina á Litla-bergi, 1945
Guðmundur Guðnason212
Þessir menn mættu á kappreiðar á Hvammsbökkum 1961 ásamt fjölda annarra. Maðurinn til hægri er Jón Kr. Jónsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson060
Guðbjörg Viggósdóttir að fara af stað með lyftunni upp brekkuna á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells. Nægur snjór og nægt fólk. Myndin var tekin ca 1980.
Óþekktur ljósmyndari136
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans 1996. Hér er Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri með fríðum hópi kvenkyns verkstjóra úr vinnuskólanum. Myndin er tekin á Hótel Dagsbrún 11. október 1996. Frá vinstri á myndinni eru: Kristín Þórðardóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Linda Kristjánsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba). Magnús Ólafsson krýpur fyrir framan.
Lárus Ægir og Helga 059
Systkinin Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Helga Guðmundsdóttir til hægri. Myndin tekin um 1950.
Guðmundur Guðnason069
Á þessari mynd, sem tekin var á ókunnum stað, er fólk úr kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi, óþekktur, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Páll Jónsson (d.19.7.1979) Breiðabliki organisti Hólaneskirkju, Sigríður Guðnadóttir (d. 4.3.1964) Breiðabliki, óþekkt, Ása Hafsteinsdóttir Reykholti, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu, og þrír óþekktir. Aftar frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, óþekkti, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og óþekkt. Myndin hefur sennilega verið tekin um 1960.
Inga Þorvaldsdóttir 032
Inga Þorvaldsdóttir (f. 24.2.1926 - d. desember 2012) um borð í bát sem liggur við bryggju sem var austan við Hólsnefið á Höfðanum (syðsta enda Höfðans). Í baksýn sér í steypta garðinn frá landi út í Spákonufellsey.
Lárus G Guðm. 055
Lárus G. Guðmundsson (d. 291.9.1981).
Kiddi Árna, Mundi og Tóti Flankur 048

Frá vinstri á myndinni eru: Kristófer Árnason (f. 13.1.1916 - d. 10.5.2000), Guðmundur Jóhannesson og Þórbjörn Jónsson (f. 19.11.1917 - d. 22.1.1996) að vinna við að ná sundur frosnum beitublokkum til að hægt sé að skera beituna í bita og beita síðan á línuna. Myndin var sennilega tekin á fimmta áratugnum.

Guðmundur Guðnason102
Óþekkt ungabarn. Myndin gæti verið tekin 1962. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason080
Þetta eru Sturluhólssystkinin. Frá vinstri er Sturla, Bjarni og Guðrún Snorrabörn.
Jón Jónsson198
Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði (f. 3.9.1911 - d. 9.11.2011), heimilismaður á Sæborg í mörg ár.
Magnús B Jónsson004
Sjómannadagur 1982-1983 á planinu við Hafnarhúsið. Skemmtilegur leikur í gangi undir stjórn Gylfa Sigurðssonar og Ingibergs Guðmundssonar.
Ólafur Bernódusson052
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987 og hér er í gangi einhver þraut úti á skólavelli. Frá vinstri: Þorlákur Sveinsson, Vilborg magnúsdóttir kennari og Gunnar Borg Jónsson sem einbeitir sér að þrautinni sem hann á að leysa.
Ólafur Bernódusson053
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er hópverkefni í gangi. Frá vinstri: Óþekkt, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, óþekkt, Hafdís Ásgeirsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir en unglingurinn við saumavélina er óþekktur.
Ólafur Bernódusson032
Þorvaldur Skaftason greiðir þara úr netum um borð í bát sínum á grásleppuvertíð í apríl 1986. Þorvaldur gerði út á grásleppu í mörg ár frá Skagaströnd.
Jón Jónsson217
Vilhjálmur Skaftason klæddur í samhengi við tilefnið, Kántrýhátíð 1985.
Ólafur Bernódusson028
Stund milli stríða í Skipasmíðastöðinni. Frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ágúst Jónsson, Kári Lárusson, Sveinbjörn Blöndal og Sigurður Jónsson. mennirnir sem snúa baki í myndavélina eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason159
Þessi mynd er frekar óskýr en maðurinn á myndinni er sennilega Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason223
Þetta er tekið í Stafnsrétt sennilega 1968. Maðurinn fremst á myndinni er Halldór Sigurðsson gullsmiður og hrossaræktandi í Stokkhólma í Skagafirði.
Guðmundur Guðnason154
Prestur predikar í ?Hofskirkju?. Presturinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann og /eða kirkjuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn042
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Úti á götu í London í góðu skapi eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Helga Jóhannesdóttir, Sigrún Lárusdóttir kona Sigurðar og Sveinn Ingólfsson maður Helgu.
Guðmundur Guðnason163

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Sigurður Ísólfsson við orgel Skálholtsdómkirkju". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.

Ólafur Bernódusson044
Í nokkur ár fóru félagar úr björgunarsveitinni á Skagaströnd í eggjatökuleiðangra út í Stapa, sem er eyjan rétt norðan við fossinn á Króksbjarginu. Þar söfnuðu þeir svartbakseggjum og fílseggjum sem voru síðan seld til ágóða fyrir sveitina. Svartbakseggin þóttu góð til átu en fílseggin voru meira notuð í bakstur. Kökur sem bakaðar voru úr fílseggjum urðu fallega skærgular á litinn. Á heimleið á Þórdísi sem var bátur björgunarsveitarinnar. Henni var nýrri gefið það nafn á sjómannadegi 1987. Frá vinstri Guðmundur Björnsson, Helgi Gunnarsson og Gunnlaugur Sigmarsson.
Guðmundur Guðnason107
Á þessari mynd er verið að vinna að vegagerð við svokallaða Vetrarbraut sem er rétt norðan við bæinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver maðurinn á jarðýtunni er en sennilega hefur myndin verið tekin á sjötta áratugnum. Ef þú þekkir manninn á ýtunni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óli Ásgeirs, Mundi og Snorri Gísla 073
Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum, Guðmundur Jóhannesson frá Garði og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) frá Viðvík í óþekktum skógarlundi.
Guðmundur Guðnason137

Kristján Kristófersson (d. 30.3.1973) bóndi í Köldukinn í Torfalækjarhreppi.

Stefán Ingólfsson og Lárus Ægir 084

Fermingarbræðurnir 1960, Stefán Ingólfsson (d. 21.0.2004) til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.

Stella Lárusdóttir og fjölskylda 087
Hjónin Kristjana Sigurbjörg (Stella) Lárusdóttir (f. 12.6.1926) og Jörgen Berndsen (f. 4.12.1922 - d. 25.11.2012) með börnum sínum. Börnin eru frá vinstri: Lára Berndsen, Fritz H. Berndsen, Bjarki Berndsen og Bára Berndsen. Myndin var tekin á sjötta áratugnum.
Ólafur Bernódusson041

Á þessari mynd er starfsfólk Rækjuvinnslunnar á fundi eða námskeiði í Fellsborg einhverntíma á níunda áratugnum. Á myndinni eru frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Líney Jósefsdóttir, óþekktur, Guðrún Angantýsdóttir, Sigubjörg Angantýsdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason, óþekkt, Ragnheiður Magnúsdóttir, Guðmundur Jóhannesson, óþekkt, óþekktur, Eygló Gunnarsdóttir, Jón Jónsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).

Magnús B Jónsson024
Birgir Þórbjarnarson, til vinstri, keppir við óþekktan andstæðing á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Keppnin felst í því að rekja tóman olíubrúsa eftir ákveðinni braut með netakúlu sem fest er um mittið með bandi. Hér reynir á að hafa vald á tvíræðum mjaðmahnykkjum.
Kalli, Lára, Ingibergur 044
Systkin, börn Guðmundar Jóhannessonar og Soffíu S. Lárusdóttur. Frá vinstri: Karl Guðmundsson, Lára Guðmundsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Karl og Ingibergur eru tvíburar eins og sjá má. Myndin er tekin um 1960. Þessir krakkar eru yngstu þrjú börn Guðmundar og Soffíu en auk þeirra áttu þau tvo eldri syni og eina eldri dóttur.
Óþekktur ljósmyndari143
Kaffitími í Áhaldahúsinu sumarið 2000. Frá vinstri eru: Rósa Björg Högnadóttir, Gígja Óskarsdóttir, Magnús Ólafsson, Berglind Karlsdóttir og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson046
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. hátíðasvæðið var á tjaldsvæðinu. Á þessari mynd er Jonny King umkringdur aðdáendum í viðtali við útvarpið sem starfrækt var á hátíðinni. Jonny King var eitt af aðalnúmerum hátíðarinnar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn013
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadeginum 1965, eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994) í Höfðatúni (áður í Viðvík), Konráð Klemensson (d.20.11.1981) í Garðhúsum (Konnabænum), Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) frá Garði, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir sjómannadagsins og Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) frá Höfðakoti.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn056
Þórunn Bernódusdóttir á sjötta áratugnum. Myndin tekin utan við Stórholt.
Elísabet og Margrét Hemmertsdætur 012
Systurnar Elísabet og Margrét Hemmert.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn053
Fjölskyldan í Stórholti (Bankastræti 3 efri hæð). Anna Halldórsdóttir Aspar og Bernódus Ólafsson með börnin sín. Þórunn til vinstri, Ólafur Halldór í miðjunni og Halla Björg til hægri. Lilja situr í fangi móður sinnar.
Kári Kristjánsson 047
Kári Kristjánson (f. 5.12.1914 - d. 11.12.1990) frá Kárastöðum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn044
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á þessari mynd situr hluti hópsins að kvöldverði á veitingahúsi. Frá vinstri eru: Sigurjón Guðbjartsson, Björn Ingi Óskarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir kona Björns bak við þau eru hjónin Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason. Hinum megin við borðið eru Hallgrímur Kristmundsson, Sigríður Baldursdóttir, Ingvi Þór Guðjónsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Ólafur Bernódusson051
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á litlu jólum er leyft að vera með nammi og gos í skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Inga Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir öll úr 1968 árganginum.
Guðrún Teitsd. og Árni Kristóf. 021
Hjónin Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir (d. 17.6.1978) og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) í Árnesi
Hrólfur, Bogi, Steingr., Andrés, Björn, Sigurbj. 029
Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996), Bogi Björnsson, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992), Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968), Björn Þorláksson og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989). Mennirnir eru greinilega í skemmtiferð en tilefnið og hvenær myndin var tekin er óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn019
Myndin er tekin í listigarðinum á Akureyri á árunum fyrir 1950. Frá vinstri eru: Vilborg Jónsdóttir (d.?) Bergi, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) Stórholti og systurnar Guðný Pálsdóttir (d.17.2.2005) og Guðfinna Pálsdóttir (d. 27.4.2015).
Jónína Valdimarsdóttir 1970 042
Jónína Valdimarsdóttir sem lengi var ráðskona hjá bræðrunum Kára og Sigurbirni á Kárastöðum. Myndin sennilega tekin á sjöunda áratugnum.
IMG_3284
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Ólafur Bernódusson039

Í nokkur ár var Arnar Hu 1 málaður á Skagaströnd þ.e.a.s. árleg "skvering" önnur en botmálning var framkvæmd á Skagaströnd. Oft var fenginn einhver verkstjóri og síðan ráðinn hópur unglinga til verksins. Á myndinni er einn slíkur unglingahópur sem málaði skipið í ágúst 1983. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Þorvaldsson, Guðmundur Óskarsson, Arnar Erlingsson, Björn Hallbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Arnar Arnarsson, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.

Jón Jónsson220
Hjónin Sigurbjörg K.G. Hjartardóttir (Bogga í Vík) (d.17.7.1985) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) í Vík á sjómannadegi.
Jón Jónsson214
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni er fólk að fylgjast með skemmtiatriðunum. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson ( d. 2.9.2006), Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Magnús B Jónsson055
Ólafur Bernódusson rennir sér á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Í baksýn má sjá að margir eru á leiðinni upp með lyftunni. Myndin var tekin að vori ca 1980.
1

33
34
35

167
Leita í myndasafninu
Leita