Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason210
Skrautreið um keppnissvæðið á Hvammsbökkum við kappreiðar 1961. Mikill fjöldi gesta fylgist með því sem fram fer.
70 ára afmæli Kára 1984 - Bjössi, Kári, Lúlli, Lára 003

Myndin er tekin af systkinum í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar 5. desember 1984. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Fyrir framan þá situr systir þeirra, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Litla stúlkan til hægri er Erla María Lárusdóttir sem er langömmubarn Láru. Myndin var tekin heima á Kárastöðum (Bankastræti 5), sem nú eru horfnir, en þar bjuggju þeir Kári og Sigurbjörn saman ásamt ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur.

Magnús B Jónsson012
Heiðursfólk á sjómannadegi 1989 eftir að hafa verið sæmd heiðurskrossi sjómannadagsins. Frá vinstri: Jóhann F. Pétursson frá Lækjarbakka (d. 13.1.1999), Jóhanna Jónasdóttir frá Höfðatúni og Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991).
Magnús B Jónsson082
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni (d. 5.4.1998) en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á þessari myndi er Birna Blöndal að kynna Jónas sem stendur við sviðið og hlustar á.
Magnús B Jónsson021
Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991) á fullri ferð í eggjaboðhlaupi á sjómannadegi á planinu hjá Hafnarhúsinu. Eggið er haft í skeið sem haldið er með munninum. Hendurnar mega ekki koma nálægt egginu eins og sjá má á stellingu Jóns.
IMG_3285
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sést að miklar uppfyllingar hafa átt sér stað frá því að hún var tekin - hús hafa horfið - nýr viðlegukantur o.fl..
Óþekktur ljósmyndari138
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Kristín Þórðardóttir verkstjóri.
Ólafur Bernódusson024
Landsbanki Íslands stóð fyrir víðavangshlaupum ungmenna á hverju vori í mörg ár. Útibúið á Skagaströnd lét ekki sitt eftir liggja og voru haldin slík hlaup í mörg ár. Þátttakendu komu af "markaðssvæði" Landsbankans, Skagaströnd, Blönduósi, Hvammstanga og úr sveitunum. Þessi mynd er tekin á árunum kringum 1985 og sýnir verðlaunahafa í strákaflokki. Á myndinni eru þekkt: Anna Dröfn Guðjónsdóttir lengst til vinstri, Atli Þórsson á verðlaunapalli með númer 3 á maganum, Bjarni Gaukur Arason er efstur, númer10, og til hægri við verðlaunahafana sér í Guðnýju Finnsdóttur. Ef þú þekkir hina krakkana á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Lárus og Lára, börn og tengdabörn 057
Hjónin Lára Kristjánsdóttir og Lárus G. Guðmundsson með börnum sínum og tengdabörnum. Frá vinstri í fremri röð: Ingibjörg Lárusdóttir, Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir, Lára Kristjánsdóttir, Erla Valdimarsdóttir og Soffía S. Lárusdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Magnússon, Jörgen Berndsen, Lárus G. Guðmundsson, Guðmundur Lárusson og Guðmundur Jóhannesson.
Jón Jónsson223
Hátíð við höfnina. Prestshjónin Una Dagbjört Kristjánsdóttir og séra Oddur Einarsson með þrjú af börnum sínum. Í baksýn sér í óþekktan mann lengst til vinstri við hlið Steindórs Gíslasonar. Til hægri eru Gestur Arnarson og Kristín Þórðardóttir.
María Magnúsdóttir 066
María Magnúsdóttir frá Syðra - Hóli kennari og verslunarmaður á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason190
Myndin var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Réttarstörfum er líklega lokið og menn að undirbúa heimferð. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn009
Bridge spilaður í stofunni á Stórholti um jólin 1964. Til vinstri á myndinni er Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) í Höfðakoti en til hægri Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) mágur hans sem líka bjó í Höfðakoti.
Jón Jónsson216
Kántrýhátíð 1985. Messa þar sem kirkjukórinn söng við undirleik Kristjáns Hjartarsonar organista. Prestur var séra Oddur Einarsson og meðhjálpari var Hallbjörn Hjartarson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn045
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson uppábúin yfir kvöldverði á veitingastað í London.
Ólafur Bernódusson058
Jón Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla í u.þ.b. tvo áratugi fram til ársins 1986 er hann lét af störfum. Hér er hann í ræðustól í skólanum við einhvert hátíðlegt tækifæri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn036
Uppábúnar kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Einingin á Þorrablóti í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Frá vinstri: Elísabet (Bebbý) Árnadóttir frá Réttarholti, Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri Harrastöðum, Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka, Gestheiður Jónsdóttir Bogabraut 5, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Helga Berndsen frá Karlsskála og Karla Helgadóttir í Ásbyrgi. Svona klæddar gengu þessar konur um beina á þorrablótinu.
36_Þura_Litla_Bergi_1947
Þuríður á Litla-bergi, 1947
Guðmundur Guðnason184
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Drengurinn á myndinni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en baksvipinn á Ágúst Jakobsson Blálandi.
Sigurbjörg á Kárast. og Lárus g Guðm. 076
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir (d.31.12.1965) frá Kárastöðum á spjalli við Lárus G. Guðmundsson (d. 21.9.1981).
Magnús B Jónsson085

Björn Pálsson alþingismaður frá Löngumýri á ferð á Skagaströnd að vetri til. Hann var meðal annars kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagstrendinga - KAST - um tíma. Þá var hann með útgerð á Skagaströnd og lét smíða eikarbátinn Húna ll á Akureyri og er hann enn varðveittur. Eftirfarandi ljóð var samið um Björn af óþekktum höfund og komst á flot.

Björn hinn ríki vex og verður stórmenni
hann stjórnar bæði KAST og löngu mýrinni
og er hann keypti flaggskipið í flota norðurlands
þá frétti allur heimurinn um afrek þessa manns
því hefur nú verið spáð að saga verði um hann skráð
og sagt í útvarps sendingum frá Sameinuðu þjóðunum
að hann mun leysa Hammerskjöld af hólminum.

Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
Ólafur Bernódusson023
Verðlaunahafar í karlaflokki á innanfélagsmóti í golfi á Háagerðisvelli. einhverntíma á árunum í kringum 1990. Þessir menn voru sigursælir á golfmótum þessara ára. Frá vinstri: Ómar Jakobsson, Oliver Oliversson og Jón Ingi Ingvarsson
Jón Jónsson187
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd Hólaneskirkju flytur ávarp.
Guðmundur Guðnason148

Aftan á þessari mynd af fjórum konum stendur : Frá v. Kamilla frá Dalvík, 2. Sigrún Ármannsdóttir, 3. ?, 4. Sigríður frá Dalvík. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Magnús B Jónsson086
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni situr Jónas (í miðið) fyrir svörum þeirra Magnúsar B. Jónssonar og Guðnýjar Sigurðardóttur úr Leikklúbbnum.
Ólafur Bernódusson043
Í nokkur ár fóru félagar úr björgunarsveitinni á Skagaströnd í eggjatökuleiðangra út í Stapa, sem er eyjan rétt norðan við fossinn á Króksbjarginu. Þar söfnuðu þeir svartbakseggjum og fílseggjum sem voru síðan seld til ágóða fyrir sveitina. Svartbakseggin þóttu góð til átu en fílseggin voru meira notuð í bakstur. Kökur sem bakaðar voru úr fílseggjum urðu fallega skærgular á litinn. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson að ganga frá eggjunum í plastbrúsa en Guðmundur Björnsson bíður á brúninni til að láta eggin síga niður í björgunarbátin Þórdísi sem sést í baksýn. Myndin er tekin ca 1987 - 1988.
Guðmundur Guðnason169
Börnin á þessari mynd frá árinu 1962 eru ekki auðþekkt en líklega eru þetta útbæingarnir Árni Þórhallsson lengst til hægri, Halla Þórhallsdóttir í miðjunni og Marías Bjarni Viggósson til vinstri. Þau hafa verið á aldrinum 5 -10 ára þegar myndin var tekin.
Magnús B Jónsson061
Ólafur Bernódusson á leið upp með lyftunni á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin er tekin að vori til ca 1980.
Ólafur Bernódusson021
Verðlaunahafar í kvennaflokki á golfmóti á Háagerðisvelli kringum 1990. Frá vinstri: Bjarney valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari139
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Maríanna Þorgrímsdóttir verkstjóri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn049
Þessi mynd var tekin í 90 ára afmæli Þórunnar Samsonardóttur 1981 þegar fjölskylda hennar hélt veislu af því tilefni. Veislan var haldin á ellideild Héraðshælisins þar sem Þórunn bjó síðust ár æfi sinnar. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson frá Höfðakoti, sem þá var heimilismaður á ellideildinni, Bernódus Ólafsson úr Stórholti og Þórunn Samsonardóttir frá Akri, móðir Bernódusar.
Ólafur Bernódusson030
Þegar Hallbjörn Hjartarson hætti með Verslun Hallbjörns Hjartarsonar og byrjaði veitingarekstur í Kántrýbæ var haldið uppboð á ýmsu úr versluninni. Bernódus Ólafsson (d. 1.9.1996) stjórnaði uppboðinu á hressilegan hátt þannig að allt sem til sölu var seldist á ásættanlegu verði. Á myndinni er verið að bjóða upp poka með ýmsum varningi og greinilegt að Hallbjörn, sem er fyrir aftan Bernódus á myndinni, skemmtir sér vel.
Magnús B Jónsson014
Ingibergur Guðmundsson, Dómhildur Jónsdóttir og séra Pétur Þ. Ingjaldsson ganga niður landganginn úr Örvari Hu 21 á sjómannadegi 1983.
Guðmundur Guðnason123
Óþekktur maður í réttum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson170

Hér má sjá á sviðinu í Fellsborg frá vinstri: Guðjón Árnason, Guðmunda Ólafsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Þórarinn Ingvarsson. Baksviðs má þekkja Elísabetu Hallbjörnsdóttur með blöð í höndunum og Bjarney Valdimarsdóttiur sitjandi. Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 1893 eða 1984. Dansatriðið þótti það gott að það var síðar sýnt á Húnavöku á Blönduósi.

Guðmundur Guðnason331
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku klappa fyrir sjömönnunum öldnu.
Guðmundur Guðnason079

Slegið með Ferguson. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Magnús B Jónsson064
Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), rennir sér á skíðasvæði Skagstrendinga í suðuhlíðum Spákonufells. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason182
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Eggert Skarphéðinsson frá Sólheimum skoðar mark á kind. Maðurinn til hægri er Ingvi Guðnason en á milli þeirra er drengurinn Magnús Blöndal.
Ólafur Bernódusson045
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu en þar voru byggð ýmis leiktæki. Á myndinni eru krakkar að nýta sér eitt af leiktækjunum í bergjunum austan við tjaldsvæðið.
Magnús B Jónsson015
Hefðbundið tunnuboðhlaup á sjómannadegi 1983. Keppendur eru óþekktir en leggja sig greinilega öll fram.
Lilja Andrésd. og Elísabet Berndsen 060
Lilja Andrésdóttir til vinstri og Elísabet Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason056
Kokkurinn dansaður í Húnaveri. Þegar hljómsveitin hættir að spila dansa þau pör saman sem enda hvert á móti öðru.
Lísa Berndsen og Stella 1945 062
Elísabet Berndsen (Lísa) vinstra megin og Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir (Stella) til hægri.
Lárus og Lára, börn og tengdab. 056
Á myndinni eru hjónin Lára Kristjánsdóttir og Lárus G. Guðmundsson með börnum sínum og tengdabörnum. Þau hjónin sitja fremst en hitt fólkið er, talið frá vinstri: Sigurður Magnússon, Ingibjörg Lárusdóttir, Jörgen Berndsen, Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir, Guðmundur Lárusson, Erla Valdimarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson og Soffía S. Lárusdóttir.
Magnús B Jónsson006
Einar Hjartarson matar Magnús B. Jónsson félaga sinn á skyri í leik á sjómannadegi á planinu austan við verksmiðjuna. Ingibergur Guðmundsson stjórnar leiknum. Myndin líklega tekin einhverntíma á árunum 1983- 1986.
Guðmundur Guðnason322
Friðrik Björnsson og Erla Hafsteinsdóttir frá Gili í Svartárdal.
Magnús B Jónsson078
Björn Pálsson alþingismaður frá Löngumýri undir stýri á Landrovernum sínum. Myndin sennilega tekin 1982.
Guðmundur Guðnason350
Höfðaberg er nú horfið. Það stóð upp undir Höfðanum norðan við Bankastrætið. Þar bjuggu m.a. Júlíus Árnason (d. 24.3.1985) og Steinunn Guðmundsdóttir (d. ?) kona hans með sínum börnum. Sævar Bjarnason og Eygló Guðbjartsdóttir áttu húsið og bjuggu í því um tíma en bróðir hennar Hjörtur Guðbjartsson og Ingibjörg Skúladóttir kona hans keyptu það og áttu heima í því í nokkur ár með Skúla Tómasi syni sínum.
Jón Jónsson188
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Linda Hafdal er lengst til vinstri en Jóhanna Ólafsdóttir prestsfrú og Friðjón Guðmundsson málari eru í forgrunni.
Jón Jónsson191
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg. Uppvask í eldhúsinu. Frá vinstri: Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka, Særún Jónsdóttir úr Sænska húsinu og Inga Björgvinsdóttir.
Magnús B Jónsson077
Hallveig Ingimarsdóttir og Ingibergur Guðmundsson eiga saman spennandi stund í Kántrýbæ á einhverri uppákomu á vegum Leikklúbbs Skagastrandar.
Jón Jónsson169
Soffía Lárusdóttir spilar á flygil í Fellsborg, líklega á einhverri uppákomu hjá tónlistarskólanum. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Magnús B Jónsson041
Hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd spilar á útisviði í Reykjavík - sennilega á 17. júní. Í hljómsveitinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Ingimar Oddsson, Kristján Blöndal, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir og Sigursteinn Guðmundsson læknir 022
Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir (d. 17.6.1978) á tali við Sigurstein Guðmundsson lækni um borð í Arnari Hu 1. Myndin sennilega tekin árið 1973.
Guðmundur Guðnason193
Réttað í Spákonufellsrétt 1962. Páll Jóhannesson er maðurinn í ljósu úlpunni með svartan kraga. Aðrir eru óþekktir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn033
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum sýnir Bernódusi Ólafssyni (d.18.9.1996) úr Stórholti hvernig vanir menn flaka stórþorsk. Þeir félagar unnu lengi í frystihúsi Hólaness hf við að handflaka fisk sem var of stór fyrir flökunarvélarnar.
Guðmundur Guðnason171
Óþekkt barn að róla sér í útbænum undir stjórn barnapíu . Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson034
Kötturinn sleginn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Maðurinn með trefilinn er Ólafur Bernódusson kennari og maðurinn með yfirskeggið er Hallgrímur Hjaltason. Drengurinn með víkingahjálminn er Þorsteinn Jónsson en aðrir eru óþekktir.
1

34
35
36

167
Leita í myndasafninu
Leita