Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari127
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri þakkar fyrir gjöf sem honum var færð við þetta tækifæri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Magnús B Jónsson062
Magnús B. Jónsson í sveiflu á skíðunum á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Jón Jónsson178
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd á öskudegi sennilega árið 1980. Erfitt er að þekkja börnin en fremst á myndinni í rauð-skræpóttum samfestingi með gula sól á höfðinu er Arnar Ólafur Viggósson. Þórunn Bernódusdóttir er konan með brúnu prjónahúfuna en Bára Þorvaldsdóttir er í bláum jakka með hvíta húfu. Við færibandið sjást Guðrún Sigurðardóttir og Signý Richter.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn015
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) á Blíðfara sínum í Skagastrandarhöfn, sennilega snemma á sjötta áratugnum.
Magnús B Jónsson023
Magnús B. Jónsson með gott forskot í kapphlaupi á sjómannadegi.
Nemendur Barnaskólans á Skagaströnd 069
Á myndinni eru nemendur barnaskólans á Skagaströnd einhverntíma um 1940 í skólaferðalagi til Hreðavatns. Myndin er á bls. 152 í bókinni Byggðin undir Borginni og samkvæmt henni eru á myndinni: Fjóla Sigurðardóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Andrésson, Unnur Stefánsdóttir, Knútur Berndsen, Soffía S. Lárusdóttir, Birgir Árnason, Ingibjörg Kristmundsdóttir, Þórarinn Björnsson, Jens Jónsson, Sigurjón Jóhannsson kennari, Björn Kristjánsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Hjartarson, Kristjana S. Lárusdóttir og Jóhann Bogason.
Guðmundur Guðnason176
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson Kárastöðum og Sigurður Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason335
Bjarmaland stendur við Skagaveg. Þar bjuggu lengi hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) ásamt dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur.
Jón Jónsson183
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Við borðið sitja, talið frá vinstri: Torfi Sigurðsson frá Mánaskál (d. 9.10.1993), Sigurður Bjarnason Breiðabliki, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og óþekkt kona.
Óþekktur ljósmyndari141
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Guðrún Soffía (Obba) Pétursdóttir verkstjóri.
Guðmundur Guðnason227
Bræður frá Hólanesi. Magnús Sigurðsson til vinstri og Jósef Sigurðsson til hægri.
Jón Jónsson192
<p>Jónína Guðrún Valdimarsdóttir frá Kárastöðum á 100 ára afmæli þann 29. nóvember 2016. Þessi aldna heiðurkona er mannasættir sem talar aldrei illa um nokkurn mann þrátt fyrir oft erfiða æfi. Lengi var hún ráðskona hjá bræðrunum Kára (d.11.12.1990) og Sigurbirni Kristjánssonum (d.10.9.1989) á Kárastöðum og hélt þeim heimili ásamt dóttur sinni. Jónína eignaðist tvö börn, Svavar Bergmann Indriðason 1939, sem lést 1.nóv. 2010, og Kristínu Ragnheiði Sigurðardóttur 1949, sem var með móður sinni á Kárastöðum. Jónína dvelur nú á Sæborg í góðu yfirlæti og og við góða líðan. Myndina af Nínu tók Jón Jónsson árið 1990. </p>
Jón Jónsson171
Elísabet Hallbjörnsdóttir leikur á flygil í Fellsborg, líklega á einhverri uppákomu tónlistarskólans. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Jón Jónsson177
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd á öskudegi. Stúlkan með bláu lambhúshettuna er Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, í hvítri úlpu, snýr baki í myndavélina og Þórunn Bernódusdóttir er með brúna prjónahúfu. Konurnar á færibandinu eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Signý Richter en á milli þeirra sér í Báru Þorvaldsdóttur. Við hlið Signýjar er Líney Jósefsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Sólveig Eiðsdóttir. Myndin var tekin kringum 1980.
Óþekktur ljósmyndari147
Starfsfólk og fyrrverandi starfsfólk Höfðahrepps gerir sér glaðan dag í sumarlok 24. ágúst 2001. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Ragnar Ingvarsson húsvörður íþróttahúss og félagsheimilis, Rósa Björg Högnadóttir vinnuskólaverkstjóri, Þröstur Líndal lögreglumaður og fyrrum starfsmaður Höfðahrepps, María Rós Karlsdóttir vinnuskólaverkstjóri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubilstjóri.
Lúðvík Kristjánsson heiðraður á sjómannadaginn 064
Lúðvík Kristjánsson ( d. 10.2. 2001) heiðraður á sjómannadegi.
Guðmundur Guðnason324
Séra Gunnar Árnason Æsustöðum í Langadal.
03_Skagastrond_vetur
Þessi vetrarmynd af Skagaströnd er tekin ca 1935 - 1937
Texti2_Ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Albertsson
Guðmundur Guðnason376
Þetta fólk var allt í kirkjukórnum. Þarna eru þau að taka þátt í einhvers konar spurningakeppni á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011). Lengst til hægri grillir í Georg Hjartarson (d. 13.9.2001).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn070
Í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - kringum 1950. Töffararnir á myndinni eru Gunnar Helgason ( d. 19.10.2007) til vinstri og Bernódus Ólafsson ( d. 18.9.1996) til hægri.
Magnús B Jónsson052
Lárus Ægir Guðmundsson rennir sér í skíðabrekkunni í suðurhlíðum Spálkonufells. Myndin var tekin ca 1980.
Jón Jónsson206
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni syngur Þorvaldur Skaftason fullum hálsi við undirleik Fannars Viggóssonar. Litli drengurinn á myndinni er Hermann Guðjónsson og á bakvið þá félaga sjást Friðberg Stefánsson, Vigdís Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason407
Þessi jólastúlka er óþekkt. Ef þú veist hvar hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason199
Í Spákonufellsrétt sennilega sumarið 1961. Þá tíðkaðist að smala fé til réttar um mitt sumar til að rýja kindurnar. Feðginin frá Ólafsvöllum, Jón Árnason og Ingiríður Jónsdóttir eru að rýja.
Magnús B Jónsson050
Skíðalyftan í suðurhlíðum Spákonufells. Myndin var sennilega tekin kringum 1980.
Jón Jónsson210
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Frá vinstri á myndinni: Friðberg Stefánsson, Fannar Viggósson, Þorvaldur Skaftason, Ástmar Kári Ástmarsson og Ólafur Bernódusson syngja saman í kvintett.
Magnús B Jónsson075
Hér takast þeir í hendur Framsóknarmennirnir Magnús B. Jónsson, fulltrúi Framsóknar í hreppsnefnd Höfðahrepps og sveitarstjóri á Skagaströnd, til vinstri og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður Framsóknarflokksins frá Löngumýri til hægri. Björn var mikill málafylgjumaður og hikaði ekki við að eiga í málaferlum við mann og annan þegar honum þótti gengið á rétt sinn. Björn var um tíma kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og vinsæll útgerðarmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason158
Tvær vaskar konur í Stafnsrétt 1963. Sigurbjörg Stefánsdóttir til vinstri og Þóra Sigurðardóttir frá Hvammi til hægri.
14_Innbr_af_Hofda
Myndin er tekin 1945-1946. Búið er að byggja helming mjölskemmunnar en austari hluti hennar er í byggingu eins og skorsteinninn. Í vinstra horni myndarinnar sér í hornið á Skálholti. Nær okkur sést svo örlítið í þökin á Dvergasteini og Draumalandi. Niðri í hægra horninu eru svo Kárastaðir sem seinna var byggt ofan á. Húsin sem standa niður með Skagavegi eru svo: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði áður en byggt var við hann, Garður og braggarnir.
Jón Jónsson202
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni eru sitjandi frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum, Lára Kristjánsdóttir frá Kárastöðum (d. 6.9.1993), Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði (d. 9.11.2011), Jóhanna Thorarensen frá Bergi (d. 6.3.2004), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir frá Dagsbrún og Lundi (d. 13.7.2003), María Magnúsdóttir frá Asparlundi, Skafti Fanndal Jónasson frá Dagsbrún og Lundi (d. 2.9.2006) og Kári Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 11.12.1990).
Guðmundur Guðnason118
Willis jeppi líklega í eigu Jósefs Stefánssonar í Reykholti. Myndin er tekin í mynni Hrafndals á gangnadegi 1967.
Magnús B Jónsson008
Kappróður á sjómannadegi. Tvær kvennasveitir keppa á Gusti og Golu. Húsið í baksýn til hægri er Rjúpnafell sem nú er horfið.
Eldri borgarar á Skagaströnd 008
Eldri Skagstrendingar í skemmtiferð á vegum kvenfélagsins Einingar 6. júní 1969. Farið var til Hvammstanga og að Reykjum í Miðfirði. Þessi mynd var tekin í félagsheimilinu á Hvammstanga. Frá vinstri á myndinni eru: Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Tvær óþekktar konur, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981) , Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), óþekktur maður og kona, Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Fremst standa í röð f.v. systkinin: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992). Milli Laufeyjar og Steingríms eru Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987), og Páll Jónson (d. 19.7.1979)(aftar), en Svein Kristófersson (d. 9.5.1991) ber yfir höfuð Steingríms. Konan með svörtu húfuna er Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) og Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) maður hennar við hlið hennar. Konan aftast til hægri er Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), þá koma Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974).
Neyðarfatnaður Dómhildur, María, Soffía Sig. 070
Konurnar í kvenfélaginu Einingin á Skagaströnd prjónuðu og gáfu nærföt, sokka og fleira um borð í skip gerð út frá Skagaströnd. Á myndinni eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. árið 2012), María Konráðsdóttir (d. 9. 8. 2003) og Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) við stafla af prjónlesi við afhendingu þess til togaranna á Skagaströnd
Magnús B Jónsson068
Verðlaunahafar í páska - skíðakeppni á skíðasvæðinu í Spákonufelli ásamt kennaranum sínum. Frá vinstri: Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari.
Magnús B Jónsson080
Allt á kafi í snjó á Skagaströnd. Bogabrautin í forgrunni.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Magnús B Jónsson002
Hreppsnefndarmennirnir Adolf J. Berndsen og Heimir Fjeldsteð mata hvor annan á skyri í þrautahlaupi á sjómannadegi, líklega 1986. Myndin var tekin á planinu austan við verksmiðjuna.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn061
Fermingarsystkin sem fermd voru 18. maí 1958 af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju. Fremsta röð frá vinstri: Harpa Friðjónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Kristinn Lúðvíksson, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir. Önnur röð: Helga Ólafsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir. Þriðja röð: Konráð Guðmundsson, Sævar Bjarnason, Björn Sigurðsson. Aftasta röð: Sigurjón Magnússon, Birgir Þórbjarnarson. Myndin var tekin í gömlu kirkjunni á Skagaströnd.
Jón Jónsson194
Guðný Hjartardóttir (f. 28.6.1918 - d. 14.3.2011) frá Blálandi var ein af systkinunum frá Vík, lengi heimilismaður á Sæborg.
Magnús B Jónsson044
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Ágúst Jónsson, Ólafur Bernódusson, Katrín Sigurjónsdóttir, Jón Pálsson, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur leiðbeinandi og Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason116
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Maðurinn í lopapeysunni til vinstri er Ólafur Guðmundsson, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) er við rútuhornið með húfu, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) er með eitthvað í fanginu og konan með slæðuna til vinstri á myndinni er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason157
Fólkið á kóræfingunni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson065
<p>Ólafur Bernódusson rennir sér á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin tekin ca 1980. </p>
Stella (Kristjana Sigurbjörg) Lárusdóttir 086
<P>Kristjana Sigurbjörg (Stella) Lárusdóttir (f. 12.6.1926) frá Skagaströnd</P>
Jón Jónsson207
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Fannar Viggósson syngur og spilar.
Jón Jónsson224
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson hvílir lúin bein á bekk á hafnarsvæðinu.
Lilja Andrésdóttir 061
Lilja Andrésdóttir dóttir Andrésar Guðjónssonar kaupmanns á Skagaströnd og Sigurborgar Hallbjarnardóttur. Lilja flutti til Bandaríkjanna.
Hallgrímur, Mundi og Snorri Gísla 027
<P>Frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) á góðri stund.</P>
Magnús B Jónsson001
Leikur á sjómannadegi líklega 1983 á planinu við verksmiðjuna. Kjartan Birgisson og Þórunn Óladóttir keppa í þrautahlaupi. Áhorfendur skemmta sér vel.
Jón Jónsson211
<P> Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Söngvararnir á myndinni eru frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Kristín Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. </P>
Jón Jónsson197
Dagný Guðmundsdóttir (f. 24.7.1907 - d. 22.4.2004)
Guðmundur Guðnason225
<P>Verðlaun afhent á hestamannamóti. Maðurinn sem er að taka við verðlaunabikarnum er Friðgeir Jóhannsson frá Ósi á Skaga (bróðir Kristinn Jóhannssonar á Skagaströnd). Maðurinn sem afhendir bikarinn er Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1963 -1965 á skeiðvellinum við Húnaver. </P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason180
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Ljóshærði drengurinn í lopapeysunni er Kjartan Bjarnason frá Holti. Maðurinn með hendur í vösum er Sigmar Jóhannesson. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson212
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni er Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) sem lengi bjó í Höfðatúni.
Jón Jónsson204
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni syngur Kristín Jónsdóttir gamanvísur og dansar. Kór félaga úr Leikklúbbnum tekur undir með Kristínu.
Þórarinn Björnsson 094
Þórarinn Björnsson (Lilli Björns) (d. 24.5.1985) Bankastræti 9, Skagaströnd
Jón Jónsson219
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadegi, eru frá vinstri: Níels Grímsson, María Magnúsdóttir, Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og maður hennar Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991).
Óþekktur ljósmyndari121
Bærinn Brautarholt var reistur 1914 af Ólafi Jóni Guðmundsyni utan í hólnum sem stendur á milli Fellsbrautar 9 og Fellsbrautar 13. Ólafur bjó þarna með móður sinni sem hét Elísabet Karólína Ferdínantsdóttir. Ólafur giftist Þuríði Jakobsdóttur og eftir það bjuggu þau þrjú í Brautarholti. Elísabet dó 1958, Þuríður 1965 og Ólafur 1985 þá orðinn blindur. Brautarholt var rifið árið 1987. Þessi mynd var tekin 1977.
1
…
35
36
37
…
167
Leita í myndasafninu
Leita