Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson032
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni eru: Viggó Magnússon bassaleikari og söngvari, Ægir Jónsson trommuleikari og Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Lára Kristjánsdóttir 1981 053
Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Myndin var tekin 1981
Helga Þorbergsdóttir 027
Helga Þorbergsdóttir frá Garði (f. 30.4.1884 - d. 30.9.1970). Helga var gift Jóhannesi Pálssyni skósmið í 68 ár og eignuðust þau hjónin fjölda barna.
Magnús B Jónsson046
<p>Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Hrönn Árnadóttir, Ólafur Ingibjörnsson, Bernódus Ólafsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Anna H. Aspar, Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Erna Hreinsdóttir með barn í fanginu. </p>
Magnús B Jónsson051
Skíðalyftan í suðurhlíðum Spákonufells. Óþekktur maður afgreiðir stafi út af lyftunni en Magnús B. Jónsson ber áburð á skíðin sín utan við lyftuskúrinn. Fyrir kom að það var svo mikill snjór á skíðasvæðinu að skúrinn fór á kaf ásamt lyftunni. Örlög skúrsins urðu síðan þau að hann splundraðist í ofsaveðri og dreifðist um nágrennið.
Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason197
Karlar á spjalli við Spákonufellsrétt 1962. Bíllinn til hægri var af gerðinni Unimog og þótti sérkennilegt farartæki. Bíllinn var í eigu Jóhanns Péturssonar (d.13.1.1999) frá Lækjarbakka.
45_Helga_Dan_sidari_madur_hennar_Einar
Helga Daníelsdóttir frá Syðri-ey og maður hennar Einar Soderholm
img077
Gunnar Sveinsson skipstjóri og útgerðamaður fæddur 1939 um borð í Húna HU-1.
IMG_3287
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum. Neðst á myndinni er Röðulfell og Fellsborg til vinstri við það. Út frá þeim húsum má átta sig á breytingunum sem orðið hafa.
Óþekktur ljósmyndari124
Kántrýhátíð 2002, sú síðasta, undirbúin. Óþekktur, Magnús B. Jónsson og Ólafur Bernódusson (lengst til hægri) koma fyrir borða til að bjóða fólk velkomið við pípuhliðið á heimkeyrslunni til Skagastrandar uppi á Kerlingarholti
Magnús B Jónsson010
Sjómannadagur 1983. Skemmtiatriði í undirbúningi. Þessir herramenn klæddu sig upp og stjórnuðu leikfimi áhorfenda. á planinu fyrir austan verksmiðjuna. Mennirnir á landganginum eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Pétur Eggertsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Magnús B Jónsson088
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Hér eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Fannar Viggósson, Kolbrún Viggósdóttir, Birna Blöndal og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
16_Ker_i_byggingu
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
Jörgen Berndsen 043
Jörgen Berndsen (f. 4.12.1922 - d. 25.11.2012) smiður frá Stóra Bergi á Skagaströnd.
Haddi, Sigga, Binna, Gunna, Jonna 024
Hluti systkinanna frá Garði, barna Jóhannesar Pálssonar (d. 9.3.1972) skósmiðs og Helgu Þorbergsdóttur (30.9.1970) konu hans, en þau voru gift í 68 ár. Systkinin eru frá vinstri: Hartmann Jóhannesson, Sigríður Jóhannesdóttir, Birna Jóhannesdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir og Jóhanna Jóhannesdóttir.
Magnús B Jónsson076
Á þessari mynd eru þau Þorvaldur Skaftason og Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir að leika einhverjar persónur á einhverri uppákomu í Kántrýbæ (eldri) á vegum Leikklúbbsins.
GunnarSveinsson_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Sveinsson í stýrishúsinu á Stíganda Hu 9.
TraustiBertelsson_ljosm_GunnarAlbertsson
<P>Stígandi Hu 9 á stími í land með góðan afla á línu. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi í brúnni. Ásmundur Bjarni Helgason fæddist 30. nóvember 1903 að Eyri í Norður Ísafjarðarsýslu og dó 30. desember 1983. Hann var sjómaður allt sitt líf og lengst af skipstjóri. Hann flutti til Skagastrandar 1947 og gerði Stíganda, sem var 22 tonn að stærð, út þaðan í 30 ár. Eftir að hann seldi Stíganda gerði hann svo út á grásleppu á lítilli trillu. Margir sjómenn á Skagaströnd byrjuðu sína sjómennsku sem hásetar hjá Bjarna. Hann þótti afburða sjómaður og vílaði ekki fyrir sér að leggja einn í langferðir á Stíganda sínum. Þannig fór hann einn á honum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja í febrúarmánuði (1960?) til að róa þar á vetrarvertíð. Kom hann við á Ísafirði og Reykjavík til að sofa. Bjarni var giftur Lilju Ásmundsdóttur (d. 2.4.1990) og gerðu þau sér heimili að Eyri (Holti) á Skagaströnd. Saman áttu þau fimm börn: Maríu, Helga, Skúla, Kjartan og Birnu. María og Helgi eru nú látin. Margar sögur eru sagðar af Bjarna á Stíganda en sennilega lýsir honum best það sem einn af hásetunum hans sagði um hann: " Bjarni er alltaf bestur þegar veðrið er verst". (Heimild: Skipstjórnarmenn 1. bindi eftir Þorstein Jónsson) </P><br><P> </P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason436
Þessar tvær vinkonur sem eru að drekka kaffisopa eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir og Helga Berndsen.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn034
Starfsfólk Hólaness hf í skemmtriferð til Reykjavíkur ásamt mökum. Mikið fjör var yfir kvöldverðinum í Þórskaffi 21. mars 1987 eins og sjá má. Frá vinstri eru á þessari mynd: Þorvaldur Skaftason, Erna Sigurbjörnsdóttir kona hans, Amy Eymudsdóttir, Bernódus Ólafsson, Anna H. Aspar konan hans, Þór Arason, Fjóla Jónsdóttir kona hans, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir kona hans. Fyrir aftan þau, við næsta borð, sér í Árna Jón Guðmundsson og Guðbjart Sævarsson.
Jón Jónsson189
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Hjartardóttir úr Blálandi, Hrefna Björnsdóttir starfsstúlka og Hallbjörg Jónsdóttir frá Leikklúbbnum.
Ólafur Bernódusson062
Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður fiskvinnslufyrirtækisins Hólanes hf afhendir Ingibjörgu Kristinsdóttur fjárstyrk til umf Fram árið 1984.
Jón Jónsson176
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd. Konurnar eru frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Þórunn Bernódusdóttir. Erfitt er að þekkja börnin en fyrir miðri mynd með bláa lambhúshettu er Elísabet Eik Guðmundsdóttir. Til hægri með rauða lambhúshettur og í rauðum pollabuxum og úlpu er systir hennar Auður Eva Guðmundsdóttir. Myndin var sennilega tekin í kringum 1980.
Magnús B Jónsson072
Hvílt á milli ferða á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells. Frá vinstri eru: Guðrún Pálsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir stúlkuna lengst til hægri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason367
Steinunn Berndsen leikur á flygil á sviðinu í Fellsborg.
Magnús B Jónsson045
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Róbert Þórðarson, Guðný Sigurðardóttir, Diðrik ? leiðbeinandi, sem nú býr í Lúxemborg, Magnús B. Jónsson, Björk Axelsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Karl Lúðvíksson og Kjartan Birgisson.
Guðmundur Guðnason132
<P>Hluti fjölskyldunnar í Réttarholti á ferð um Vantsdal. Hjónin Már Hall Sveinsson og Elísabet Árnadóttir (Bebbý) með dætur sínar Vilborgu og Erlu. Með þeim er líka systir Elísabetar, Guðrún Árnadóttir lengst til hægri.</P>
Guðmundur Guðnason379
Systkinin Óskar Óskarsson og Gígja Óskarsdóttir í Ásholti.
Guðmundur Guðnason189
<P>Sorg ríkti á Skagaströnd í september 1962 eftir að Íris Jónsdóttir drukknaði í Skagastrandarhöfn. Hafði hún ekið bíl sínum í höfnina og komst ekki út úr honum. Á þessari mynd er verið að bera kistu Írisar til kirkju eftir húskveðju á heimili hennar. Líkmennirnir eru frá vinstri: Gunnlaugur Árnason, Sigurjón Magnússon, Sigmundur Magnússon, Jón Jónsson, Bjarni Loftssson og Gunnar Albertsson. Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjalddsson.</P>
Guðmundur Guðnason301
Vilhjálmur Skaftason, til vinstri, og Ástmar Ingvarsson (Addi) (d. 10.10.1977) kíkja á lesefnið utan á séneverflösku. Bíllinn var í eigu Ástmars, sem stundaði farþegaflutninga á honum.
Hverjar eru þetta 030
Elísabet Frímannsdóttir - Beta á Jaðri (d. 1.9.1990) með litla stúlku. Ef þú þekkir stúlkuna , vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason414
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna) á Hólanesi.
Guðjón, Mundi, Gunna, Palli, Jonna, Hrefna, Sigga 017
Hluti systkinanna frá Garði, sem voru alls sextán. Frá vinstri: Guðjón Jóhannesson, Guðmundur Jóhannesson, Páll Jóhannesson, Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Sigríður jóhannesdóttir.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Magnús B Jónsson070
Ungir verðlaunahafar á páskamóti á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd með kennaranum sínum. Myndin var tekin ca 1980. Drengirnir með páskaeggin eru óþekktir nema sá í miðið er Brynjar Pétursson og kennarinn er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) frá Ísafirði. Ef þú þekkir hina drengina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Lúðvíksdóttir 049
Kristín Lúðvíksdóttir. Myndin var tekin kringum 1965.
Guðmundur Guðnason433
Jón Þorsteinsson (d. 17.9.1994) alþingismaður til vinstri spjallar við óþekktan mann (gæti verið Rósberg G. Snædal frá Ægissíðu) á Skúffugarðinum.
Guðmundur Guðnason147
Ungu mennirnir á réttarveggnum í Hofsrétt sumarið 1965 eru Bergur Jón Þórðarson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Magnús B Jónsson030
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jóney Gylfadóttir syngur en Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
32_Litla-Berg_1945
Litla-berg 1945
Óþekktur ljósmyndari142
Undirbúningur Kátrýhátíðar árið 2000. Myndin var tekin 2. ágúst 2000 af starfsfólki Höfðahrepps við að koma fyrir samkomutjaldi á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Óþekkt, Gígja Óskarsdóttir og Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
Ólafur Bernódusson019
Hópmynd að lokinni verðlaunaafhendingu á golfmóti á Hágerðisvelli á góðviðrisdegi um hásumar. Myndin er tekin einhverntíma í kringum 1990 en golfklúbburinn var stofnaður 1985. Á fyrstu árum klúbbsins voru golfmót afar algeng og fjöldi manns tók þátt í þeim. Á myndinni eru, talið frá vinstri:Viggó Magnússon, Halldór Gunnar Ólafsson, Ingibergur Guðmundsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir situr með dóttur sína Elínu Ósk Ómarsdóttur, Guðmundur E. Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Lilja Kristinsdóttir, Jónas Þorvaldsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Oliver Oliversson, Guðrún Pálsdóttir, Vilhelm Jónsson, Adolf J. Berndsen, Gunnar Jónsson, óþekktur drengur, óþekkt kona með barn. Standandi hægra meginn við bílinn eru: Adolf H. Berndsen, Fritz Hendrik Berndsen, Ragnar Jónsson, Ragnar Ingvarsson, óþekkt kona, Þórarinn Ingvarsson og Jóhannes Sveinsson. Krjúpandi fyrir fram þá eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Ómar Jakobsson og Vilhjálmur Skaftason. Ef þú þekkir þá sem eru óþekktir á þessari mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson013
Kaldranalegur leikur á sjómannadegi 1983. Keppendur urðu að fara upp í kar, fullt af köldu vatni, finna hamar og nagla á botninum og negla síðan í spýtuna áður en halda mátti áfram að markinu. Á myndinni eru Þorvaldur Skaftason nær okkur en Guðmundur Guðmundsson fjær. Gylfi Sigurðsson sér um að allt fari rétt fram.
Guðmundur Guðnason427
Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) ( Benni sterki) frá Skálholti, lengst til vinstri, spjallar við tvo óþekkta menn. Ef þú veist hverjir þeir eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Er maðurinn með gleraugun e.t.v. Ingvar Jónsson úr Sólheimum?
Guðmundur Guðnason334
Blönduóskirkja eldri.
Magnús B Jónsson005
Keppni í hjólböruakstri á sjómannadegi á planinu við verksmiðjuna. Þátttakendur eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson ekur Þór Arasyni en þeir voru fulltrúar Alþýðubandalagsins, Heimir Fjeldsteð ekur Adolf J. Berndsen frá Sjálfstæðisflokknum, Magnús B. Jónsson ekur Einari Hjartarsyni báðir frá Framsóknarflokknum og Axel Hallgrímsson ekur Herborgu Þorláksdóttur sem voru fulltrúar Alþýðuflokksins.
Magnús B Jónsson054
Árni Geir Ingvarsson lítur eftir skíðalyftunni á Skagaströnd. Alltaf þurfti að vera maður á lyftunni til að skammta út stafina/diskana fyrir þá sem vildu fara upp með henni. Í baksýn grillir í Lárus Ægi Guðmundsson.
Magnús B Jónsson059
Stefán Ægir Lárusson kemur í mark í svigbraut á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason329
Útbærinn að vetri til séð af Höfðanum. Margt hefur breyst síðan þessi mynd var tekin. Tankarnir lengst til hægri tilheyrðu síldarverksmiðjunni en hafa nú verið rifnir. Frystihúsið aftan við tankana var endurbyggt og breytt. Kaupfélagshúsið (verslunarstjórahúsið) til vinstri við sundlaugina hefur verið rifið. Nýir búningsklefar eru komnir við sundlaugina. Við Bankastrætið, sem er næst okkur á myndinni, er búið að rífa bæði Flankastaði (annað hús frá hægri við götuna) og Kárastaði (þriðja hús frá hægri). Nýtt hús hefur þó verið byggt á Flankastöðum. Húsið næst okkur til vinstri, Höfðaberg, er horfið og líka Höfðakot, sem er hægra megin við Höfðaberg, með fjárhúsum og hlöðu. Ef horft er niður eftir Skagavegi sér ofan á þakið á Steinholti næst okkur til vinstri. Þá koma Skálholt og Þórhamar en næstu þrjú hús, Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður eru öll löngu horfin. Braggarnir tveir sem grillir í norðan við stóru síldarverksmiðju-skemmuna eru báðir horfnir. Í öllum þessum húsum bjuggu góðir og gegnir Skagstrendingar með fjölskyldum sínum og lögðu sitt af mörkum til að gera Skagaströnd að því sem hún er í dag.
Guðmundur Guðnason170
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Óskar Jóhannesson, Kári Lárusson frá Ási, Frits M.Bjarnason Bjargi og bak við hann grillir í Jóhannes Hinriksson frá Ásholti.
Magnús B Jónsson028
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Á myndinni er verið að raða fiskinum upp en aftast fer Vigdís Viggósdóttir með sporðinn á bakinu.
Magnús B Jónsson038
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til vinstri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn079
Bak við jólasveinagrímuna leynist Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) en drengurinn sem hjá honum stendur er Ólafur Bernódusson. Myndin er tekin einhverntíma árunum 1955 - 1960 heima í stofunni í Stórholti þar sem Bernódus bjó með fjölskyldu sinni.
Magnús B Jónsson022
Guðbjörg Viggósdóttir á sólríkum sjómannadegi með litla frænku sér við hlið.
Jón Jónsson195
Laufey Sigurvinsdóttir frá Bergi (d. 21.12.1994) lengi heimilismaður á Sæborg.
Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson í Hólaneskirkju 082
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur talar í Hólaneskirkju (eldri).
Jón Jónsson221
Rjúpnafell. Þarna var heimili Guðbergs Stefánssonar (d. 15.9.1991). Húsið stóð við víkina milli Hólanessins og Hrafnár.
Guðmundur Guðnason276
Þessi mynd er líklega tekin um 1980. Hálfa húsið lengst til vinstri eru Sólheimar eldri. Gula húsið sömu megin við götuna er Bjarmaland þar sem lengi bjuggu Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3. 1996) með dóttur sinni, Áslaugu. Gula húsið með brúna þakinu er Steinholt þar sem bjuggu Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) og Sigríður Frímannsdóttir (d. í júlíbyrjun, 1962) með fjórum börnum sínum. Skálholt er næsta hús við Steinholt, sömu megin götunnar. Þar bjó eitt sinn Jói norski, Jóhann Baldvinsson (d. 9.4.1990) ásamt konu sinni Core Sofie Poulsen (d. 1987) og börnum. Þá kemur Þórshamar þar sem ýmsir hafa búið en fyrst Kristján Sigurðsson (d. 3.11.1966) verslunarmaður og Unnur Björnsdóttir (d. ?) með sínum börnum á efri hæðinni en Baldur Árnason (d. 14.11.2009) og kona hans Esther Olsen (d. 17.4.2003) á neðri hæðinni með sínum börnum. Í hvarfi við Þórshamar er Þórsmörk en litli kofinn með rauða þakinu á miðri mynd eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Þórsmörk. Í Þórsmörk bjuggu Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1980) og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) með börnum sínum. Héðinshöfði er næstur í göturöðinni. Þar bjuggu lengst af Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) og börn þeirra í norðurendanum en í suðurendanum voru lengi Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Finnsdóttir kona hans með börnum sínum fjórum. Næst okkur á myndinni með grænu þaki er Höfðaberg. Þar hafa ýmsir búið sér heimili, m.a. Júlíus Árnason (d. ?) með konu sinni Steinunni ?? (d. ?). Næst við Höfðaberg kemur Höfðakot með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu. Þar áttu heima hjónin Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992)og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) ásamt bróður Halldóru, Guðmundi Péturssyni (d. 30.6.1987). Steingrímur og Halldóra eignuðust mörg börn og ólu líka upp tvö barnabörn sín. Stórholt ber yfir Höfðakot en í Stórholti var þríbýli. Á helmingi efr
Magnús B Jónsson066
Áð fyrir utan lyftuskúrinn á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells eftir góðan skíðadag. Frá vinstri á myndinni eru: Baldur Magnússon, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Ragnar Jónsson, Guðrún Pálsdóttir og Vilhelm Jónsson. Myndin var tekin ca 1980.
1
…
37
38
39
…
167
Leita í myndasafninu
Leita