Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson019
Sjómannadagur á planinu hjá Hafnarhúsinu. Þrautakapphlaup í gangi. Ein þrautin er greinilega að drekka pilsner eins hratt og kostur er. Fjær okkur á myndinni er Ólafur Ingibjörnsson en hinn keppandinn er óþekktur.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn072
Í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - kringum 1950. Standandi frá vinstri: Helga Berndsen, Elísbet G. Kristjánsdóttir (Elsa) (d. 21.3.1991) og Vilborg Jónsdóttir Stóra Bergi. Fyrir framan er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007).
Guðmundur Guðnason218
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Maðurinn lengst til hægri er Ólafur Ólafsson (d. 4.8.2001) frá Kambakoti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason442
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
kaldal001
Þessir menn voru samferðamenn héðan að norðan til sjóróðra á Suðurnesjum veturinn 1903. Þeir fóru saman á ljósmyndastofu Jóns Kaldal sem tók þessa merkilegu mynd. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Jónatan Guðmundsson frá Víkum, Ásgeir Klemensson frá Höfðahólum, Jóhannes Jóhannesson Iðavöllum í Nesjum ( = Kálfshamarsvík - húsið seinna flutt inn á Skagaströnd og stendur þar enn 2022) og Símon Klemensson frá Kambakoti. Miðröð: Jón Bjarnason frá Brúarlandi, Guðlaugur Jóhannesson, Guðmundur Guðjónsson frá Háagerði. Efsta röð: Frímann Lárusson frá Höfðakoti, Sigurður Jónsson frá Mánaskál, Pétur Stefánsson frá Lækjarbakka, Jónas Þorvaldsson frá Fjalli og Jón Sigurðsson frá Bráðræði. Flestir þessa manna eiga enn afkomendur Skagaströnd.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 090
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Í fremstu röð frá vinstri eru: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Undir glugganum sitja talið frá hægri: Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974), Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Myndin er tekin 1945 eða 1946 því sjá má að skorsteinn verksmiðjunnar er í byggingu. Sundlaugin er komin en enn vantar kyndihúsið við hana.
Jón Jónsson215
Kántrýhátíðin 1985. Hér sést yfir hátíðasvæðið upp við Hólabergin.
Súsanna Pálmadóttir 088
Súsanna Pálmadóttir, dóttir Pálma Sigurðssonar og Hólmfríðar Hjartardóttur Pálmalundi (Hólabraut 27) á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason192
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason185
<p>Fyrirtæki á Skagaströnd tóku þátt í sýningu í Reykjavík þar sem þau kynntu starfssemi sína og framleiðsluvörur. Á þessari mynd er Vigdís Finnbogadóttir forseti að smakka á framleiðsluvörum Marska. Adolf Berndsen er í baksýn í köflóttri peysu innan undir jakkanum. </p>
Magnús B Jónsson067
Verðlaunahafar í einhverri skíðakeppni um páska. Verðlaunin voru páskaegg eins og sjá má. Myndin var tekin ca 1980. Verðlaunahafarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Magnús B Jónsson027
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Á þessari mynd er gangan rétt lögð af stað. Haus fisksins er fremstur, uggar á víð og dreif um gönguna og svo var sporður aftast.
Magnús B Jónsson042
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1969 . Í fremstu röð eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson. Röð tvö f.v.: Pálína Harðardóttir, Hulda Magnúsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir. Þriðja röð f.v.: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Arnar Erlingsson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aftasta röð f.v.: Ingvi Sveinn Eðvarson, Ólafur Bernódusson kennari, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hjalti Magnússon og Hjalti Reynisson.
Guðmundur Guðnason382
Fermingarárgangur 1977 (Fædd 1963) í Hólneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni. Aftasta röð frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Ragnar Jónsson, Kristján Ólafsson, Árni Geir Ingvarsson, Fannar Viggósson, Björn Ingi Óskarsson og Kristján Blöndal. Miðröð frá vinstri: Þorlákur Jónsson, Steinunn Berndsen, Elín Jónasdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Valdís Valdimarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Erna Högnadóttir, Kenny Hallbjörnsdóttir, séra Pétur, Sigríður Sigurðardóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir.
Guðmundur Guðnason344
Aðalheiður Guðmundsdóttir til vinstri og Guðrún Sigurðardóttir til hægri við kaffiborð. Í baksýn sér í Sævar Bjarnason en konan lengst til vinstri er óþekkt.
43_Sera_Petur
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson nýlega orðinn prestur.
HuniHU1_a_linu_a_Skagastrond_SM
Húni Hu1 kemur með góðan afla úr línuróðri.
Kristín Björnsdóttir007
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri heldur við sonarson sinn Björn Hallbjörnsson um borð í Sigurði.
Magnús B Jónsson033
Kennaragrín á árshátíð Höfðaskóla. Kennarar flytja ræður um eigið ágæti. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir, Inga Matthíasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Ólafur Bernódusson, Björk Axelsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir og Jón Pálsson skólastjóri.
Guðmundur Guðnason198
Fjársafnið rennur til réttar í Stafnsrétt 1969. Maðurinn er óþekktur.
Guðmundur Guðnason460
Þessir sparibúnu mennn í óþekktri veislu eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson, óþekktur, Sveinn Ingi Grímsson og mágur hans Rúnar Jósefsson.
HuniHU2_Verid_ad_hafa_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
Mundi og Tóti heiðraðir á Sjómannadewgi 1987 068
Guðmundur Jóhannesson (Mundi Jó) og Þórbjörn Jónsson (Tóti Flankur) heiðraðir á sjómannadegi 1987.
Guðmundur Guðnason363
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) og Guðrún Sigurðardóttir eru hér með blómvendi sem þau fengu afhenta á samkomu hjá kirkjukórnum í Fellsborg. Blómin fengu þau fyrir dygga og góða þjónustu í kórnum.
Jón Jónsson213
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Kári Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 11.12.1990) var heimilismaður á Sæborg mörg síðustu ár sín.
Óþekktur ljósmyndari121
Starfsfólk og stjórn Skagstrendings hf gerir sér glaðan dag í Þórskaffi 1977. Frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), María Konráðsdóttir, Ragna Friðriksdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekkt, Halldóra Þorláksdóttir, Guðjón Guðjónsson, Óskar Þór Kristinsson, óþekkt, Gylfi Guðjónsson, Ólafur Ingibjörnsson, Högni Jensson, Jón Þorgeirsson, Már Hall Sveinsson og Kristján Hjartarson
Kristín Björnsdóttir012
Feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Sigurður Björnsson frá Jaðri draga línu um borð í Sigurði. Drengurinn með lambhúshettuna er Björn Hallbjörnsson, afabarn Björns. Stúlkan er óþekkt. Björn og Sigurður smíðuðu bátinn sjálfir.
Guðmundur Guðnason321
Heiðar Elvan Friðriksson (Teni).
Magnús B Jónsson056
Viggó Magnússon á fullri ferð eftir að hafa lokið við að renna sér gegnum svigbrautina á skíðsvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason354
Kappróður í blíðviðri á sjómannadegi. Myndin var líklega tekin um miðjan sjöunda áratuginn.
Adolf H Berndsen - safn013
Hér sitja þær saman vinkonurnar Dagný Guðmundsdóttir og Jóhanna Thorarensen. Dagný er til vinstri.
Guðmundur Guðnason328
<p>Aftan á þessari mynd stendur skrifað <em>:" Þessi mynd er tekin af Ingva og er af Birni Karlssyni á fótfúna skjóna 28. Á. 35" . Myndin virðist vera tekin í Laxárdal.
12_Skemman_Hofdinn
Verksmiðjan til vinstri og Hafnarhúsið til hægri. Myndin tekin 1945 - 1946.
Guðmundur Guðnason410
Sigrún Guðlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason448
Hér sitja að kaffiborði á hótel Dagsbrún þeir Guðmundur Guðnason til vinstri og óþekktur maður til hægri. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson071
Verðlaunahafar í sínum flokki á páska - skíðamóti á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Guðmundur Guðnason404
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti.
Guðmundur Guðnason445
Kári Kristjánsson (d. 11.,12.1990) frá Kárastöðum ríðandi á Bjargs-Grána.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 089
Vígsla nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Á myndinni má þekkja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Huldu Pálsdóttur fremst. Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) er konan sem situr vinstra megin með röndóttann trefil en konan aftan við Pétur, með krosslagðar hendur, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22.4.1998). Lengst til vinstri er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) með myndavél. Milli Péturs og Huldu sjást Elsa Axelsdóttir Schiöth (d.14.7.1966) til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) til hægri. Aðrir eru óþekktir.
IMG_2532
Gleðskapur í Fellsborg. Frá vinstri: Jakob Kasper starfsmaður BioPol og kona hans Andrea Cheatham Kasper spalla við Ástralann Andrew Rewald sem dvaldi á Skagaströnd í nokkra mánuði hjá Nes listamiðstöð.
Guðmundur Guðnason204
Hjónin Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg bíða komu Kristjáns Eldjárn forseta Íslands í opinbera heimsókn til Blönduóss 1969. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Soffía S. Lárusdóttir 081
Soffía S. Lárusdóttir (F. 23.6.1925 - d. 31.3.2010) atorkukona á Skagaströnd. Myndin tekin á fimmta áratugnum.
IMG_3297
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Guðmundur Guðnason343
Hildigunnur Jóhannsdóttir til vinstri og Bára Þorvaldsdóttir til hægri drekka kaffi við borð með óþekktum konum.
Jón Jónsson218
Hallbjörn Hjartarson skemmtir með söng á sviðinu í Fellsborg á Kántrýhátíð 1985
Guðmundur Guðnason327
Óþekkt kona í pokahlaupi á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.
Jón Jónsson205
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Hér er verið að kynna næsta atriði.. Frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Þorvaldur Skaftason (við hljómborðið), Friðberg Stefánsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Vigdís Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
10_Holnes_til_Hofda
Á myndinni sést að tankar verksmiðjunnar eru í byggingu. Myndin er því tekin 1945 eða 1946. Sjá má tjöld verkamannanna á túninu neðan við Tjaldklaufina á Höfðanum. Á myndinni sést líka vel staðsetning "Hólsnefsbryggju" sem var fram af fiskvinnsluhúsi kaupfélagsins (seinna Hólaness hf).
Guðmundur Guðnason325
Edda Sigurðardóttir, dóttir Helgu Haraldsdóttur frá Jaðri.
Guðmundur Guðnason362
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund æfir sig á orgelinu í Hólaneskirkju eldri. Þar var Kristján organisti og kórstjórnandi um árabil.
HuniHU2_3_SM
<P>Síld landað úr Húna ll Hu 2 einhversstaðar á austfjörðum.</P>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn083
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson(d. 25.12.2010) fréttaritara blaðsins á Skagaströnd á þessum tíma, sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndin er skönnuð úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd eru karlarnir um borð að reyna að stjaka ísnum frá svo þeir komist á miðin. Það var mikilvægt að komast í netin því bæði fiskaðist vel og svo var líka mikil hætta á að ísinn sliti baujurnar af netatrossunum eða hreinlega tæki þær með sér þannig að þær fundust aldrei aftur.
30_Spakonufell
Bærinn að Spákonufelli sem stóð u.þ.b. þar sem kirkjugarður Skagstrendinga er í dag.
Magnús B Jónsson003
Ingibergur Guðmundsson stjórnar einhverjum leik fyrir börn á sjómannadegi. Vigdís Viggósdóttir aðstoðar dóttur sína Valrúnu Vilhelmsdóttur í hringjakasti. Myndin var tekin 1981-1983.
Guðjón Andrésson 016
Guðjón Andrésson smiður og kaupmaður á Skagaströnd (f. 24.10.1920 - d. 20.6.1012)
Guðmundur Guðnason323
Þetta eru Einar Þór Ásgeirsson frá Litla- Felli til vinstri og Kristján Karlsson til hægri.
18_Sildarverksm
Myndin tekin 1945 eða 1946. Greinilega byrjuð síldarbræðsla í verksmiðjunni þótt byggingarframkvæmdum sé ekki lokið.
Karla, Jörgen, Hans, Elísabet 045
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Karla Berndsen, Jörgen Berndsen (f. 4.12.1922 - d. 25.11.2012), Hans Berndsen og Elísabet Berndsen
Guðmundur Guðnason435
Lúðvík R. Kemp í Jórvík til vinstri og Jón Sölvason (d. 17.8.1969) frá Réttarholti á spjalli í einhverju samkvæmi.
1
…
38
39
40
…
167
Leita í myndasafninu
Leita