Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason355

Ægissíða, heimili ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og foreldra hans Guðna Sveinssonar (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur (d.12.6.1966). Húsið er nú löngu horfið en mun að stofni til hafa verið flutt utan úr Kálfshamarsvík. Þar bjuggu í því Sigurður Júlíusson og Guðbjörg Guðjónsdóttir kona hans, líklega til 1943. Þá keyptu Björn Jóhannesson og Ragnheiður Jónsdóttir húsið og bjuggu í því til 1948, er þau fóru að Bergstöðum. Guðni Sveinsson og Klemensína Klemensdóttir bjuggu í húsinu eftir það, en líklega keypti Pálmi sonur þeirra húsið af Birni.

Guðmundur Guðnason464

Anna Grímsdóttir frá Ljótshólum, fegurðardrottning Austur Húnavatnssýslu. Því miður er ártalið óþekkt en ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason406
Guðný Kristjánsdóttir
Magnús B Jónsson063
Magnús B. Jónsson á fullri ferð á skíðunum á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason395
Jónína Valdimarsdóttir sem lengi var ráðskona á Kárastöðum hjá bræðrunum Kára og Sigurbirni Kristjánssonum
75 ára fermingarafmæli
Guðmundur Jóhannesson átti 75 ára fermingarafmæli frá Glaumbæjarkirkju í Skagafirði vorið 2009. Af því tilefni skrapp hann í kirkjuna og þar var tekin þessi mynd af honum með séra Gísla Gunnarssyni sóknarpresti þar.
Magnús B Jónsson009
Keppni í "Kassahlaupi" á sjómannadegi snemma á níunda ártugnum. Keppendur eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sævar Bjarnason og Haraldur Árnason.
Jón Jónsson200
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Við kaffiborðið sitja frá vinstri: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) og María Magnúsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn010
Á þessari mynd eru heiðurs- og sjómennirnir, Ernst G. Berndsen Karlsskála (d. 21.8.1983) til vinstri og Gísli Einarsson Viðvík (d. 27.10.1969) til hægri, á réttum stað í fjörunni innan um báta í nausti. Ernst var hafnarstjóri á Skagaströnd og lóðs á Húnaflóa um áratuga skeið.
Starfsfólk Hólaness 083

Þetta er mynd af starfsfólki Kaupfélagsins, tekin 1941. Til hægri sést verslunarhús Kaupfélagsins. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Sigríður Guðlaugsdóttir Grafarholti, óþekktur, Matthildur Jóhannsdóttir Dvergasteini, Hallgrímur Jónsson Iðavöllum, Sigríður Helgadóttir Skálholti, Sigríður Björnsdóttir Ásgarði, Lára Kristjánsdóttir Herðubreið, Bjarni Jóhannsson Bjargi, Helga Þorbergsdóttir Garði, Margrét Pétursdóttir Lækjarbakka, Pétur Stefánsson Lækjarbakka, Guðmunda Árnadóttir Flankastöðum, Helga Sigurðardóttir Móum, Ingunn Gísladóttir Sæbóli, Gunnar Helgason Lundi, Knútur Berndsen Brimnesi, Jónína Hafsteinsdóttir Sævarlandi, Hörður Ásgeirsson verkstjóri og Margrét Jóhannesdóttir Lundi. Myndina er að finna í bókinni "Byggðin undir Borginni" á bls 221.

Guðmundur Guðnason383
Heiðdís Sigurðardóttir frá Sviðningi.
Guðmundur Guðnason417
Elsa Þorvaldsdóttir.
Magnús B Jónsson057
Guðrún Pálsdóttir rennir sér í nýsnævi á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca. 1980
Guðmundur Guðnason380
Gamli bærinn að Höfðahólum. Þarna er í dag minningarskjöldur um bæinn.
41_GudmundaPetursd_med_sonm_Margret_Peturs_med_syni
Guðmunda Pétursdóttir með son sinn og Margrét Pétursdóttir með syni sína. Myndin tekin um1946
Guðmundur Guðnason365
Þessi mynd var tekin á pósthúsinu af starfsstúlkum Pósts og síma. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Pálína Freyja Harðardóttir, Ása Jóhannsdóttir, Ragnheiður Hafsteinsdóttir (Bibba), Elín Njálsdóttir, Margrét Haraldsdóttir, Líney Jósefsdóttir og Helga Jóhannesdóttir.
Magnús B Jónsson083
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni leika, Fannar Viggósson til vinstri með Baldur Magnússon á bakinu og Magnús Blöndal með óþekkt barn á bakinu, einhverjar persónur skapaðar af Jónasi Árnasyni.
Guðmundur Guðnason338
Messa í Hólaneskirkju eldri. Organisti er Jane Sillar (nú Jane Grose) en presturinn í stólnum er séra Ægir Fr. Sigurgeirsson. Hinn presturinn er séra Guðni Ólafsson á Melstað. Kirkjugestir eru óþekktir nema konan sem situr vinstra megin framan við hvíthærðu konuna er Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Guðmundur Guðnason385
Fermingarbörn 1981 (fædd 1967) með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju á fermingardaginn sinn. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson. Miðröð frá vinstri: Óafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Fremsta röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason581
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason556
Ásólfur Guðlaugsson, Birgir Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) Æsustöðum og Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) Brandsstöðum í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason332
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn004
Guðrún Helgadóttir á Karlsskála með börnin sín þrjú. Frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen, Guðrún, Adolf Jakob Berndsen og Hega Berndsen. Myndin var tekin upp úr 1940.
Guðmundur Guðnason582
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Ole Aamundsen - Óli norski -(d.?) fer með gamanmál og Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3.1972) fylgist með.
Guðmundur Guðnason425
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum.
Guðmundur Guðnason446
Myndin var líklega tekin í brúðkaupi Ómars Jakobssonar og Bjarnhildar Sigurðardóttur. Frá vinstri: Sigurbjörg Björnsdóttir (d. 3.4.1981) frá Grund, móðir Ómars, Ómar Jakobsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), Ragnhildur Þórarinsdóttir og Bjarni Frímannsson (d. 10.11.1987) fósturforeldrar Bjarnhildar.
Guðmundur Guðnason408
Þetta eru systurnar Margrét og Sigrún Guðlaugsdætur.
Jón Jónsson226
Örvar Hu 21 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason422

Þessi lögreglumaður er Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal. Þarna er hann 22 - 23 ára gamall og myndin var líklega tekin á sjómannadegi annað hvort árið 1956 eða 1957.

Guðmundur Guðnason206
Handtak á fjöllum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin og mennirnir á henni eru líklega Konráð Guðmundsson í Garðhúsum til vinstri og Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) úr Miðnesi til hægri.
Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Guðmundur Guðnason432
Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) og Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) eru hér hjá frystum fiskafurðum sem bíða útflutnings.
Magnús B Jónsson079
Þessir krakkar fóru í gönguferð frá Höfðaskóla á góðviðrisdegi með kennaranum sínum. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1980 í Hólabergjunum. Á myndinni eru, frá vinstri: Óþekkt, Ragna Gunnarsdóttir, óþekkt, Jóney Gylfadóttir, Þröstur Árnason, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hallgrímur Oddsson (með tunguna út úr sér), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekktur, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson, óþekktur, Óli Hjörvar Kristmundsson, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, óþekktur, óþekktur, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Rósa Sigurðardóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Baldur Magnússon, Theódór Karlsson og Atli Þórsson. Ef þú þekkir einhvern sem er óþekktur á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið:
[email protected]
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 080
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935. Þá var bryggjan, sem saltað er á, nýbyggð.
Huni_HU1_3_SM
Guðmundur Rafnsson og Knútur Berndsen við járnavinnu við karaslippinn neðan við Bjarmanes
Adolf H Berndsen - safn005
Þessir duglegu menn unnu allir hjá Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd. Karl Þórólfur Berndsen (f. 12.10.1933 - d. 12.2.1995), sem er lengst til vinstri, var vélvirki og vann lengi á verkstæðinu hjá verksmiðjunni. Sama gerði Þórarinn Hafsteinn Björnsson - Lilli Björns (f. 29.6.1926 - d. 24.5.1985) - sem er á miðri myndinni. Ásmundur Magnússon (f. 4.8.1918 - d. 2.2.1996), lengst til hægri, var vélstjóri og var svo verksmiðjustjóri á árunum 1946 - 1965. Þá flutti hann sig um set og gerðist verksmiðjustjóri á Reyðarfirði í mörg ár. Kalli og Lilli stofnuðu saman Vélaverkstæði Karls og Þórarins 1964 og unnu saman í því fyrirtæki til 1978 er Lilli seldi Kalla sinn hlut og flutti til Akureyrar vegna heilsubrests. Karl hélt starfseminni áfram, undir nafninu Vélaverkstæði Karls Berndsen, til dauðadags. Karl var alltaf mikill íþróttaáhugamaður og seinustu árin stundaði hann golf af ástríðu. Má segja um hann að Hágerðisvöllur væri líklega ekki það sem hann er í dag ef ekki hefði notið gríðalegrar sjálfboðavinnu Kalla við völlinn. Lilli Björns var dverghagur maður sem gat lagfært jafnt vörubíla og minnstu armbandsúr. Saman mynduðu þessir þrír menn öflugt teimi sem hafði áhrif til góðs í samfélaginu
Ahofn_Huna1_mynd_ur_eigu_GunnarsAlbertssonar
Áhöfn Húna 1 prúðbúin á góðri stund. Aftari röð frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson, Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Sitjandi frá vinstri: Gunnar Albertsson, Guðmundur Lárusson og Hákon Magnússon. Hákon og Gunnar voru meðal eigenda Húna og var Hákon farsæll skipstjóri en Gunnar var vélstjóri um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún kemur úr safni Gunnars Albertssonar.
Kristín Björnsdóttir003
Hallbjörn Björnsson landar fiski úr Sigurði við Litlu bryggju. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var Sigurður þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns.
Guðmundur Guðnason542
Systur í Miðnesi 1. Til vinstri er Málfríður Jóhannsdóttir (Mallý) en Rósa Björg Högnadóttir (Badda) til hægri. Myndin var tekin kringum 1960.
Magnús B Jónsson029
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Bassaleikarinn og söngvarinn á myndinni er Viggó Magnússon. Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
Jón Jónsson203
Við borðið sitja, frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði (d. 9.11.2011), Lára Kristjánsdóttir frá Kárastöðum (d. 6.9.1993), Kári Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 11.12.1990). Standandi fyrir aftan þau er Jóhanna Thorarensen frá Bergi (d. 6.3.2004). Allt var þetta fólk heimilisfólk á Sæborg síðustu ár sín.
Guðmundur Guðnason399
Á myndinni dansar Guðmundur Guðnason við Sigríði Helgadóttur á sjómannadags-dansleik. Í forgrunni er Erla Ingvarsdóttir.
Guðmundur Guðnason419
Þórunn Sigurðardóttir frá Hólanesi
Guðmundur Guðnason234
Þetta eru hjónin Einar Karlsson og Sigurlaug Haraldsdóttir sem bjuggu í Káraneskoti í Kjós. Sigurlaug var dóttir hjónanna Haralds Eyjólfssonar (d. 31.7.1979) og Sigurbjargar Jónsdóttir (d. 28.11.1970) frá Gautsdal.
Guðmundur Guðnason409
Margrét Guðlaugsdóttir.
Magnús B Jónsson025
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Myndin er tekin þegar gangan er að leggja af stað frá kaupfélaginu.
Guðmundur Guðnason437
Helga Ólafsdóttir í sparikjólnum, sennilega á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason391
Gömlu bæjarhúsin og útihúsin á Litla Felli. Bæjarhúsið stóð áður á Hólanesi en var flutt að Felli og endurreist þar. Börnin eru að leik sunnan við húsin. Til vinstri er nýja íbúðarhúsið í byggingu.
Guðmundur Guðnason389
Börn Sigurðar Magnússonar (f. 18.11.1920 - d. 2.8.2002) frá Hólanesi og tveggja eiginkvenna hans, Sigurbjargar Björnsdóttur (d. 6.1.1956) og Dórotheu Hallgrímsdóttur. Aftari röð frá vinstri: Björn, sem heldur á yngstu systur sinni, Hugrúnu, Jósef, Þórunn og Árni, Fremri röð frá vinstri: Sigríður, Hjörtur, Magnús Elías, Rósa Dröfn og Kolbeinn Vopni
Jón Jónsson185
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Hjónin Magnús Sigurðsson vélstjóri og Charlotta Traustadóttir með dóttur sína Svövu Magnúsdóttur.
Guðmundur Guðnason494
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var tekin áður en ný búningsaðstaða var byggð en húsið til vinstri á myndinni var kyndiklefi/hús fyrir sundlaugina. Hér er verið að bera saman tímana eftir eitt kappsundið. Aðrir keppendur bíða í ofvæni eftir að röðin komi að þeim.
Magnús B Jónsson058
Baldur Magnússon á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd ca 1980.
Guðmundur Guðnason476
Kaffisamsæti í Höfðaskóla 1958 þegar byggingin var tekin í notkun. Maðurinn á miðri mynd er Sveinn Kristófersson frá litla Bergi (d. 9.5.1991). Aðrir eru óþekktir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn073
Helga Berndsen frá Karlsskála
Guðmundur Guðnason387
Rósa Sigurðardóttir með Sigurði Magnússyni (d. 2.8. 2002) föður sínum frá Hólanesi.
Guðmundur Guðnason352

Bernódus Ólafsson kynnir atriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.

img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason458
Konan til vinmstri er óþekkt en sú til hægri er Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn015

Þetta heyskaparfólk er talið frá vinstri: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Adolf J. Berndsen, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995) öll frá Karlsskála, Magdalena Helgadóttir (d. ?) systir Guðrúnar og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) úr Árnesi.

Magnús B Jónsson016
Leikfimiæfingar á sjómannadegi 1983. Frá vinstri sýna æfingar: Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
1

39
40
41

167
Leita í myndasafninu
Leita