Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason337
Vala Rós Ingvarsdóttir stendur milli föður síns Ingvars Sigtryggssonar og séra Péturs Þ. Ingjaldssonar á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn068
Myndin er tekin í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - í kringum 1950. Á myndinni eru Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Adolf H Berndsen - safn015

Þetta heyskaparfólk er talið frá vinstri: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Adolf J. Berndsen, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995) öll frá Karlsskála, Magdalena Helgadóttir (d. ?) systir Guðrúnar og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) úr Árnesi.

Guðmundur Guðnason535
Baldur Eðvarðsson
Guðmundur Guðnason368
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) skáld, organisti og kórstjórnandi frá Grund á sviðinu í Fellsborg.
Adolf H Berndsen - safn009

Unnið í heyskap á góðviðrisdegi á Skagaströnd. Frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) með foreldrum sínum Guðrúnu Helgadóttur (d. 15.4.1987) og Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála

Magnús B Jónsson087
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni syngja félagar í Leikklúbbnum einhvern af fjölmörgum söngtextum Jónasar. Frá vinstri: Óafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Erna Hreinsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Hermannsdóttir, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Þorvaldur Skaftason, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason621
Andrés Árni Baldursson ólst upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn066
Hjónin Anna H. Aspar og Bernódus Ólafsson í lystisiglingu á bát Bernódusar, Blíðfara, inn á Vækilvíkinni í Höfðanum. Litla stúlkan fremst í bátnum er Þórunn Bernódusdóttir og aftast er systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir. Stúlkan í miðjunni er Selma Þórarinsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn074
Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa) ( d. 21.3.1991).
Magnús B Jónsson018
Kassahlaup á sjómannadegi 1983. Tilbúnir að leggja af stað eru frá vinstri: Jón Jónsson, Sigurjón Guðbjartsson og Kristján Karlsson. Lengst til hægri er ræsirinn Jón Ingi Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason504
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007) og Edda Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason507
Leikarar í óþekktri leiksýningu (Klerkar í klípu ?) í Tunnunni. Frá vinstri: Ari Ólafsson frá Sævarlandi, Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík, Hörður Ragnarsson, Edda Pálsdóttir, Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007), Guðný Sigurðardóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) frá Suður Skála og Helgi Gunnarsson. Fremst situr leikstjórinn Birna Blöndal.
Guðmundur Guðnason213
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Ágúst Jakobsson frá Blálandi til vinstri og Henry Kristjánsson frá Kárastöðum herða að gærunni eftir að hafa saltað hana og brotið saman á ákveðinn hátt. Gærurnar voru geymdar saltaðar og seldar þannig til fullvinnslu.
Guðmundur Guðnason345
Frá vinstri: Sævar Bjarnason, Helga Hermannsdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Guðmundur Guðnason394
Kirkjukór Hólaneskirkju á einhverjum tímapunkti 1965 -1970. Á myndinni eru frá vinstri: Dórothea Hallgrímsdóttir Hólanesi, Kristján Hjartarson Grund, Elísabet Frímannsdóttir Jaðri, óþekkt, Jóhanna Thorarensen Litla Bergi, Georg Hjartarson frá Vík, óþekkt, óþekkt, Kristín Björnsdóttir Jaðri, Björgvin Jónsson Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð, Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Þórey Jónsdóttir Norður Skála og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason471

Sitjandi við kaffiborð í Höfðaskóla, af óþekktu tilefni, eru frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson Reykholti (d. 18.5.1974), Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Erla Lárusdóttir, Edda Pálsdóttir, Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996), Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Páll Jóhannesson frá Garði (d. 29.1.1989) og Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3.1964).

Guðmundur Guðnason439
Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka
Magnús B Jónsson031
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason517
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) hressir sig á einum snapsi í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason457
Eiður Hilmarsson frá Hofi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason351
Sólheimar standa við Skagaveg. Húsið byggðu Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) og Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979) og bjuggu þar með börnum sínum þremur: Jóni Inga, Árna Birni og Elínborgu.
Guðmundur Guðnason401
Stúlkurnar á myndinni voru nágrannar í útbænum þegar þær voru að alast upp. Lengst til vinstri er
Matthildur Fossdal Hafsteinsdóttir í Dvergasteini. Dvergasteinn er horfinn fyrir löngu en hann stóð milli Skálholts og Bankastrætis. Í miðið er svo Sóley Benjamínsdóttir í Skálholti, sem enn stendur við Skagaveg. Lengst til Hægri er Áslaug Hrólfsdóttir úr Bjarmalandi sem stendur í skakkhorn við Skálholt hinum megin við Skagaveginn en þar hefur engin búið í mörg ár. Matthildur átti þrjá bræður en tveir þeirra eru nú látnir. Sóley átti tvær systur og er önnur þeirra látin. Áslaug var einbirni. Allar fluttu þessar blómarósir ungar burt frá Skagaströnd. Myndina tók Guðmundur Guðnason líklega kringum 1960.
Guðmundur Guðnason340
Guðrún Guðbjörnsdóttir, fyrir miðri mynd, drekkur kaffi með Georg Hjartarsyni (d. 13.9.2001) (lengt til vinstri) og Einari Helgasyni í Sólvangi og óþekktri konu .
Guðmundur Guðnason373
Hægra megin við borðið, fremst,má sjá Bernódus Ólafsson og konu hans Önnu H. Aspar klappa fyrir einhverju í Fellsborg. Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir009
Elísabet S. Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) frá Jaðri.
Guðmundur Guðnason466
Kirkjukór Hólaneskirkju. Myndin var tekin í skólanum. Efri röð frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016).
Guðmundur Guðnason551
Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) og María Steingrímsdóttir, hjón á Brandsstöðum í Blöndudal, í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason572

Hér hefur Guðmundur ljósmyndari annað hvort verið að gera tilraunir eða myndavélin hefur bilað og og ekki fært filmuna. A.m.k. hefur Guðmundur tekið mynd ofan á aðra mynd löngu fyrir tilkomu Photoshop og annarra tölvuforrita sem gera fólki mögulegt að breyta myndum sínum á alla kanta. Því miður þekkjum við ekki konurnar í forgrunni myndarinnar en Spákonufellið er auðþekkt í baksýn.

Guðmundur Guðnason347
Asparlundur eða Bogabraut 24. Þar bjuggu lengst Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og María Magnúsdóttir ásamt börnum sínum: Fjólu, Magnúsi Birni og Gunnari Jóni.
Guðmundur Guðnason298
Séra Árni Sigurðsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergastaðakirkju 1983.
Magnús B Jónsson016
Leikfimiæfingar á sjómannadegi 1983. Frá vinstri sýna æfingar: Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Guðnason422

Þessi lögreglumaður er Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal. Þarna er hann 22 - 23 ára gamall og myndin var líklega tekin á sjómannadegi annað hvort árið 1956 eða 1957.

Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Guðmundur Guðnason402
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin var tekin kringum 1960.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 091
Vígsla nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Skólabörn og foreldrar þeirra hlusta á vígsluræður.
Óþekktur ljósmyndari131
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri klippir á borða í Áhaldahúsinu í september 1998.
Guðmundur Guðnason341
Bræðurnir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) til hægri drekka kaffi með Ágústu Ágústsdóttur söngkonu og úlpuklæddum manni sem mun vera Einar Helgason sem bjó í Sólvangi um tíma.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
Guðmundur Guðnason479
Jón Ísberg sýslumaður (d. 24.6.2009) með konu sinni Þórhildi Guðjónsdóttur Ísberg. Maðurinn til hægri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason195
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum og óþekkt stúlka á hestbaki við Spákonufellsrétt 1962.
Guðmundur Guðnason411
Margrét Guðlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason426
Helga Bachmann.
Guðmundur Guðnason326
Þessi maður er Rósberg G. Snædal (d. jan. 1983) skáld með Hún Snædal son sinn í fanginu. Þeir sitja á hlaðinu á Hvammi í Laxárdal en þar bjuggu foreldra Rósbergs fram til ársins 1948 er þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Rósberg var bróðir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988).
Guðmundur Guðnason554

Lionklúbbur Skagastrandar var lagður niður fyrir allmörgum árum eftir að hafa starfað með myndarbrag í mörg ár. Var hann þá eini Lionklúbbur landsins sem lagður var niður. Klúbburinn var síðan endurreistur fyrir nokkrum árum með nýjum félögum, enda margir félagar úr eldri klúbbnum látnir. Þessi mynd er af einhverri samkomu hjá eldri Lionklúbbi Skagastrandar. Sennilega var myndin tekin á heimili Valdimars Núma Valdimarssonar, sem líklega var formaður á þeim tíma, því konan hans og dóttir eru með á myndinni en eins og vitað er þá eru Lionklúbbar karlaklúbbar. Tilefni veislunnar var gestakoma því á myndinni eru tveir ókunnir gestir að öllum líkindum hátt settir menn innan Lionhreyfingarinnar á Íslandi. Aðrir á myndinni eru félagar í Lionklúbbnum.

Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Þorfinnur Bjarnason (d. 16.11.2005) oddviti Höfðahrepps og starfaði sem framkvæmdastjóri hreppsins. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri Höfðahrepps frá Brúarlandi (bjó í Norður Skála). Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd sem hann þjónaði í 40 ár. Ókunnur gestur. Margét Valdimarsdóttir (dóttir V. Núma). Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3. 1972) flutningabílstjóri með áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Skagastrandar í mörg ár. Ókunnur gestur. Unnur Ingvarsdóttir eiginkona V. Núma. Jón Pálsson kennari, sem seinna fór í fótspor föður síns og gerðist skólastjóri Höfðaskóla. Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið lengi. Þá starfaði hann líka sem ómenntaður rakari og klippti fólk. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Violu, sem var til húsa á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Sveinn S. Ingólfsson kennari og seinna oddviti Höfðahrepps og fyrsti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til fjölda ára. Lengst til hægri er svo Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) rafvirki .

Magnús B Jónsson084
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Mikið var sungið á skemmtuninni og hér syngur Jónas með félögum úr Leikklúbbnum. Þeir eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Helga Hermannsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Ólafur Bernódusson, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason461
Þessar prúðbúnu konur í óþekktri veislu eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Elín Njálsdóttir, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d. 26.8.2008), Jóninna Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir er með myndavélina
Guðmundur Guðnason462
Þetta prúðbúna fólk er í einhverri veislu, sennilega á heimili Harðar Ragnarssonar og Aðalbjargar Hafsteinsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri: Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d. 26.8.2008), Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994), Jökulrós Grímsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir með myndavélina, Sigurjón Ástmarsson, Súsanna Þórhallsdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Kristín Björnsdóttir018

Frá vinstri: Sigurður Björnsson og Engilráð Guðmundsdóttir frá Jaðri. Engilráð var uppeldisdóttir hjónanna á Jaðri þeirra Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) og Elísabetar Frímannsdóttur (d. 1.9. 1990) en Sigurður er sonur þeirra.

Guðmundur Guðnason361
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur á sviðinu í Fellsborg undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar. Frá vinstri í kórnum: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðnason, Aðalheiður Guðmundsdóttir og tvö óþekkt.
Guðmundur Guðnason420
Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) frá Akurgerð - Hólabraut 9.
Guðmundur Guðnason349
Ægissíða. Ásholt og Ás í baksýn.
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason366
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar á sviðinu í Fellsborg. Konurnar eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir eða Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir (Bebbý). Maðurinn í gráu jakkafötunum er Georg Hjartarson.
img006
Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (snýr baki í ljósmyndara), Guðmundur Jóhannesson og Birgir Árnason við vinnu sína í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar.
Guðmundur Guðnason423
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Björnsdóttir002
Hjónin Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Elísabet Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) með börnin sín fyrir utan heimili þeirra að Jaðri (Neðra Jaðri). Börnin eru frá vinstri: Kristín Björnsdóttir (Dídí), Guðmundur Jón Björnsson, Hallbjörn Björnsson og Sigurður Björnsson.
Guðmundur Guðnason468
Myndin var tekin í Höfðaskóla á óþekktum tíma (sennilega kringum 1960). Hallbjörn Hjartarson leikur á orgelið en Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6. 2002), Ásmundur Magnússon (d. 2.2. 1996) maður hennar og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) hlusta á.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn078
Halla Björg Bernódusdóttir á mynd sem var sennilega tekin einhverntíma á árunum1950 - 1955.
Guðmundur Guðnason463

Þessar stúlkur tóku þátt í keppninni: Fegurðardrottning Austur Húnavatnssýslu. Ártalið er óþekkt en gæti verið 1969?. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Sóley Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum í Svartárdal, Anna Grímsdóttir frá Ljótshólum sem var kosin sem fegurðardrottning, Kristín H. Guðmundsdóttir frá Hvammstanga, Jónína G. Jósafatsdóttir og María Svavarsdóttir frá Flögu

1

40
41
42

167
Leita í myndasafninu
Leita