Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason447
Á árum áður þótti ekki tiltökumál að reykja innan dyra og innan um fólk sem ekki reykti. Öllum þótti þetta eðlilegt þó reykurinn færi stundum í þá sem ekki reyktu. Hér er fólk í hliðarsalnum í Fellsborg á einhverri samkomu og meirihlutinn reykir. Frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Páll Þorfinnsson ( d.1.9.1993), Bjarney Valdimarsdóttir og Friðbjörg Oddsdóttir
Guðmundur Guðnason392
Árbakki. Nýhafnar framkvæmdir við fjós og hlöðu norðan við bæinn.
Guðmundur Guðnason396
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur frá Ægissíðu til vinstri og Páll Jónsson ( . 19.7.1979) skólastjóri til hægri. Myndin var tekin í skólanum við orgel sem þar var. Báðir voru þeir Guðmundur og Páll organistar meðfram störfum sínum.
Magnús B Jónsson043
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1972. Fremri röð frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Soffía Jónasdóttir, Gunnar Ásgeirsson og Óskar Óskarsson. Aftari röð: Svava Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Stefán Sveinsson og Þorlákur Sigurður Sveinsson. Aftast er kennarinn, Karl Lúðvíksson.
Guðmundur Guðnason371
Þessi mynd var tekin á einhverri uppákomu á vegum kirkjukórsins í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi, Jóhanna Thorarensen Litla Bergi og Elísabet Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) frá Jaðri. Þau þrjú voru gerð að heiðursfélögum í kirkjukórnum á þessari samkomu.
Magnús B Jónsson040
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist á árshátíðardansleiknum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru: Davíð Reynisson frá Harrastöðum í rauðri peysu, Viggó Magnússon í grænni skyrtu og Kristján Karlsson í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason364
Þær eru kátar stúlkurnar á myndinni. Frá hægri: Elín Njálsdóttir með blóm, Líney Jósefsdóttir og svo sér í Helgu Jóhannesdóttur.
Guðmundur Guðnason398
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka á góðri stund.
Guðmundur Guðnason348
Bogabraut 20. Húsið byggðu Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir og bjuggu þar með sonum sínum tveimur: Gunnari og Ólafi.
Magnús B Jónsson048
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekktur með barn, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen, Guðmundur Jóhannesson, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, baksvipur Jónínu Valdimarsdóttur, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn Ingólfsson og óþekktur.
Guðmundur Guðnason397
Myndin var tekin á heimleið úr Skrapatungurétt. Frá vinstri: Ingþór Þorfinnsson, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) og Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988).
Guðmundur Guðnason358
Sóllundur - Hólabraut 8. Í þessu húsi bjuggu Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1997) og Sigríður Björnsdóttir (d. 17.6.1979) og bjuggu í því með dóttur sinni Sylvíu. Húsið var rifið og nýtt byggt á lóðinni af Ástmari Kára Ástmarssyni og Jóhönnu Harðardóttur.
Guðmundur Guðnason469
Hér sitja við hlaðið kaffiborð í Höfðaskóla af óþekktu tilefni, talið frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi, Guðmundur Guðnason ( d. 21.11.1988) Ægissíðu, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Hrólfur Jónsson ( d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Þórey Jónsdóttir ( 29.12.1966) Norður Skála, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður Skála og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höfða.
Guðmundur Guðnason487
Jólasveinninn kemur í heimsókn á jólatrésskemmtun á Sturluhóli. Konan með gleraugun er Dómhildur Jónsdóttir prestsfrú frá Skagaströnd. Drengurinn fremst á myndinni til vinstri er Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi og hægra megin sést bróðir hans, Valgarður Jökulsson til hálfs. Hægra megin við Dómhildi er svo Halla Jökulsdóttir systir þeirra. Stúlkan sem sést í fremst í horninu til hægri er Halldóra Ingimundardóttir frá Enni. Myndin var tekin milli jóla og nýárs 1967. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason369
Jón Pálsson í ræðustól á sviðinu í Fellsborg. Við borðið í salnum má þekkja hjónin Þorvald Skaftason og Ernu Sigurbjörnsdóttur vinstra megin en hjónin Sigurð Bjarnason og Sigrúnu Lárusdóttur hægra megin við borðið.
38_Skemmtun_i_Vatnsdalnum
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum.
Guðmundur Guðnason421
<p>Kristín Helgadóttir eiginkona Hjálmars Eyþórssonar lögreglumanns.</p>
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Guðmundur Guðnason378
Myndin var tekin í Ásholti. Hjónin Þorgerður Guðlaugsdóttir og Óskar Axelsson sitja hjá syni sínum Birni Inga Óskarssyni og móður Óskars, Sveinbjörgu Björnsdóttur. Myndin er sennilega tekin á fermingardegi Björns Inga.
Guðmundur Guðnason386
Rósa Sigurðardóttir frá Hólanesi með vini sínum Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1989) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason514
Réttastörf í Vindhælisrétt. Frá vinstri: Ingvi Guðnason Valhöll (d. 31.12.1991), Ólafur Jónasson Syðri Ey (d. 8.9.1980) og Þorkell Magnússon úr Goðhól ( d. 30.8.1968).
Magnús B Jónsson073
Maðurinn í dökku úlpunni er William Sillar sem er að prófa skíði í fyrsta sinn. Næst yst til hægri fylgist Guðrún Pálsdóttir spennt með. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason509
þórður Jónsson (d.25.12.2009), lengst til vinstri, stjórnar verðlaunaafhendingum á grímuballi í Tunnunni. Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir016
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri situr glaðbeittur á vörubílspalli.
Magnús B Jónsson069
Hér er handagangur í öskjunni. Verið er að afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun á skíðamóti. Eins og sjá má voru margir þátttakendur enda skíðaiðkun vinsæl á Skagaströnd á þessum árum. Myndin var tekin ca 1980. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson og konan í ljósa jakkanum er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Guðmundur Guðnason668
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Að áti loknu voru borðin færð til svo pláss myndaðist til að dansa á miðju gólfi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn067
Þetta fólk virðist vera að bíða eftir einhverju. Eftir hverju veit enginn. Á myndinni eru frá vinstri: Unnur G. Björnsdóttir (d. 14.12.1990), Þórshamri, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) Karlsskála, Pálína Árnadóttir, Anný Jóhannsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991). Myndina tók Helga Bendsen líklega á bryggjunni á Blönduósi en þangað flutti Ernst konurnar á bát sínum, Litla Gul, því þær fóru á einhverja hannyrðasýningu þar.
HuniHU2_1963_2_SM
Húni ll HU-2 á síldarmiðunum við Jan Mayen 1966 með fullfermi 170-80 tonn sem komst ekki allt í land vegna brælu.
Guðmundur Guðnason441
Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Guðmundur Guðnason562
Börn frá Ártúnum leika sér á og með einhvers konar fleytitæki. Drengurinn til vinstri er Ingi Heiðmar Jónsson og hægra megin er Tryggvi Jónsson. Milli sín draga þeir Klöru Sólveigu Jónsdóttur, systur sína.
Guðmundur Guðnason552
Hjónin Sigurjón Ólafsson (13.1.1971) og María Steingrímsdóttir í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason642
Framsólknarvist spiluð á Hótel Blönduósi. Guðmundur Jónasson (d. 6.2.1988) frá Ási er á miðri mynd en aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason599
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri en hjá honum situr Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) skipstjóri.
Guðmundur Guðnason501
Frá vinstri, í leikritinu Klerkar í klípu í Tunnunni, eru í hlutverkum: Guðný Sigurðardóttir, Björg Ólafsdóttir (d.1.4.2007), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001).
Guðmundur Guðnason444
Þessi litli strákur heitir Þórður en ekki vitum við föðurnafnið. Móðir hans er Margrét þórðardóttir.
Guðmundur Guðnason330
Þessi mynd sýnir réttarstörf í Mjóadalsrétt en sennilega var hún tekin um mitt sumar þegar verið er að rýja féð. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason601
Gengið eftir fjörukambinum með kistu eftir húskveðju í Kálfshamarsvík árið 1961. Líklega er verið að kveðja Jóhannes Einarsson (F. 24.7.1888) frá Hátúni í Kálfshamarsvík..
Guðmundur Guðnason393
Þessar konur voru búsettar í Vatnsdalnum. Frá vinstri: Fjóla ? frá Hvammi, Elín Sigurtryggvadóttir frá Kornsá, Ragnheiður Blöndal frá Brúsastöðum, Lilja Halldórsdóttir Steinsen (d. 29.9.1997) frá Haukagili, Guðlaug Ólafsdóttir frá Snæringsstöðum og Sigrún Grímsdóttir frá Saurbæ.
Guðmundur Guðnason440
Valgerður Kristjánsdóttir frá Núpi í Laxárdal (Gerða frá Núpi).
Guðmundur Guðnason405
Kennarar við Höfðaskóla í kringum 1960. Standandi frá vinstri eru: Ingólfur Ármannsson og Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) en sitjandi eru Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri.
Guðmundur Guðnason418
Steinunn M. Ellertsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn028
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á myndinni hellir Steindór sjávarrétta áleggi sem hann útbjó á pizzubotninn. Tveir kokkar úr kokkalandsliði Íslands hjálpa til við að dreifa úr álegginu á pizzabotninn. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Kristín Björnsdóttir029
Sigurður Björnsson fylgist með ungum frænda sínum Birni Hallbjörnssyni skríða á hlaðinu á Jaðri. Myndin var sennilega tekin 1968.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn084
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Oft fiskaðist vel í ísnum ef hægt var að athafna sig. Hér eru við vinnu sína um borð í Vísi, frá vinstri: Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson og Bernódus Ólafsson. Auk þeirra var um borð skipstjórinn Sigurður Árnason.
Guðmundur Guðnason400
Matthildur Fossdal til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir leika sér á sumardegi á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason465
Lionsfundur í Lionsklúbbi Skagatrandar með gestum. Þessi Lionsfundur hefur verið sérstakur því yfirleitt voru konur ekki á fundum klúbbsins. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11. 2005), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), óþekktur, Margrét Valdimarsdóttir, Valdimar Númi Guðmundsson ( d. 14.3.1972), óþekktur, Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6. 1977), Jón Pálsson, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Sveinn Ingólfsson og Páll Þorfinnsson.
Magnús B Jónsson047
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Viggó Magnússon, tveir óþekktir, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, óþekktur, Ægir Jónsson.
Guðmundur Guðnason511
Fjársafnið kemur af fjalli í Spákonufellsrétt á gangnasunnudegi 1958.
Guðmundur Guðnason522
Þorkell Magnússon úr Goðhól (d. 30.8.1968) dregur lamb í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason527
Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19)(d. 7.12.1973) með hrút.
Guðmundur Guðnason505
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri : Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík, óþekktur, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) frá Suður Skála, Ari Ólafsson frá Sævarlandir, Helgi Gunnarsson, Hörður Ragnarsson og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001).
Guðmundur Guðnason506
<P>Guðbjartur Guðjónsson frá Vík leikur í leikritinu "Klerkar í klípu" í Tunnunni. </P>
Guðmundur Guðnason178
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðni Sveinsson Ægissíðu (d.15.11.1971), Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d. 2.6.1987) og óþekktur maður.
Guðmundur Guðnason454
Hér syngja saman, á hótel Dagsbrún, hjónin Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir ásamt dætrum sínum Svövu og Ingu Láru. Tilefnið var þegar eldri borgurum frá Hvammstanga var boðið í heimsókn til Skagastrandar í félagsstarf aldraðra þar. Frá vinstri: Svava Sigurðardóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason430
Myndin er tekin í óþekktri kirkju. Fremst á myndinni er séra Ragnar Fjalar Lárusson. Maðurinn til vinstri aftan við Ragnar er líklega séra Bjarni Jónsson vígslubiskup. Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir annað hvort þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn032
Þessir upprennandi fótboltakappar kepptu undir merki umf. FRAM á Skagaströnd. Hér eru þeir í blá-hvítu búningunum sínum merktir styrktaraðilanum Marska. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Gunnar Guðmundsson, Sigurgeir Árni Ægisson, Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes Grétarsson, Gunnar Borg Jónsson og Sigurður Berndsen. Krjúpandi frá vinstri: Birkir Rafn Gíslason, Jón Örn Stefánsson og Gunnar Dór Karlsson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn071
<P>Hjónin Sigríður Helgadóttir og Engilbert Óskarsson með dóttur sína Ingibjörgu Engilbertsdóttur. Fjölskyldan bjó í Skálholti þangað til þau fluttu til Reykjavíkur á árunum kringum 1960. Engilbert var vörubílstjóri og flutti vörur og fólk milli Skagastrandar og Reykjavíkur á eigin bíl.</P>
Guðmundur Guðnason538
Þessi litla stúlka er óþekkt. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason710
Vilhjálmur Skaftason
Guðmundur Guðnason545
Eyrún Birgisdóttir frá Straumnesi
1
…
41
42
43
…
167
Leita í myndasafninu
Leita