Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Adolf H Berndsen - safn002
Hér er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) að koma úr róðri á Svaninum. Gulli Árna er og var sjómaður af lífi og sál og kom víða við á sínum farsæla sjómennskuferli.
Guðmundur Guðnason453
Tilefni þessarar myndar er óþekkt. Frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn063
Á þessari mynd eru ungar konur frá Skagaströnd í skemmtiferð, sennilega í Listigarðinum á Akureyri ca 1950. Frá vinstri: Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa)(d. 21.3.1991), Guðný Pálsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Vilborg Jónsdóttir Stóra Bergi og Ásdís Pálsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn033
Ungir knattspyrnumenn ásamt þjálfara og liðsstjóra frá umf. FRAM á Skagaströnd til í að mæta hvaða andstæðingi sem er. Aðal styrktaraðili liðsins var Marska á Skagaströnd. Myndin var tekin á Hvammstanga sennilega á árunum 1985 - 1987 af Vigdísi Þorsteinsdóttur. Standandi frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Jón Heiðar Jónsson, Friðrik Gunnlaugsson, Björn Sigurðsson, Vilhjálmur Jónsson, Atli Þórsson, Baldur Magnússon, Einar Guðjónsson, Róbert Freyr Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Krjúpandi frá vinstri: Jósef Ægir Stefánsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson, Börkur Árnason, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Viktor Pétursson, Leifur Guðjónsson (frá Grindavík) Svanur Árnason og Jónas Þorvaldsson.
Kristín Björnsdóttir014
Jaðar - Neðri Jaðar. Byggður af hjónunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) og Elísabetu Frímannsdóttur (d.1.9.1990) á stríðsárunum. Börnin á myndinni eru Engilráð Guðmundsdóttir ca 8 ára og Sigurður Björnsson ca 2 ára.
Guðmundur Guðnason746
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Kristján Hjartarson(d. 2.8.2003) harmonikuleikari frá Vík (Grund) er þó auðþekktur á sviðinu.
Guðmundur Guðnason459
Frá vinstri: Vilhelm Harðarson, Eiður Hilmarsson og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) (Mundi póstur).
Guðmundur Guðnason467
Þessar stúlkur voru félagar í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Myndin var tekin kringum 1960 þegar skátafélagið starfaði af sem mestum krafti. Efri röð frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Magdalena Axelsdóttir (d. 2015) Læk og Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti. Fermri röð frá vinstri: Ester Axelsdóttir Læk, María Bjarnadóttir (d. 1984) Holti/Eyri, Sigríður Ágústsdóttir Blálandi og Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý) Skála. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Guðmundur Guðnason564
Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum rær á heimatilbúnum bát. Til hliðar standa systkini hans Tryggvi Jónsson og Klara Sólveig Jónsdóttir og bíða eftir að röðin komi að þeim.
Guðmundur Guðnason416
Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý) frá Sólvangi.
Guðmundur Guðnason639
Pétur Guðlaugsson (d. 19.5.2006) frá Brandsstöðum.
Kristín Björnsdóttir019
Systkinin frá Jaðri á myndinni eru, talið frá vinstri: Pálína Sigríður Frímannsdóttir (d. 5.7.1962) sem seinna bjó í Steinholti, Finnur Frímannsson (d. 18.3.1968) og Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990).
Guðmundur Guðnason381
Hafsteinn Pálsson á fermingardaginn sinn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni sem fermdi hann í Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason490
<p>Ókunnur maður talar á framboðsfundi í Fellsborg. Þorfinnur Bjarnason oddviti Höfðahrepps situr við borðið en hann sjórnaði fundinum.</p>
Guðmundur Guðnason497
Leikarar í óþekktri leiksýningu. Frá hægri: Ingvar Jónsson Sólheimum (d. 18.1.2003), Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka (d. 11.12.2006), Guðmunda Árnadóttir Flankastöðum , Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík og líklega Þórbjörn Jónsson (d. 22.11.1996).
Guðmundur Guðnason472
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson flytur ræðu í kaffisamsæti í Höfðaskóla af óþekktu tilefni. Sitjandi við borðið eru frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson frá Vík, Ingólfur Ármannsson, Sigurjón Jóhannsson Baldursheimi (d. 20.11.1967), og Elínborg Jónsdóttir Röðulfelli (d. 7.1.2007).
Guðmundur Guðnason557
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) er til vinstri í fremri röð og við hlið hans er Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971)frá Brandssstöðum. Í aftari röðinni er Ásólfur Guðlaugsson til vinstri og séra Birgir Snæbjörnsson á Æsustöðum til hægri. Myndin var tekin í Húnaveri 1959.
Adolf H Berndsen - safn019
<p>Þetta fólk stillir sér upp fyrir myndatöku á hlaðinu á Karlsskála.Frá vinstri: Carl Berndsen kaupmaður Karlskála, Sigurður Jónsson hreppstjóri, Björg Berndsen Karlskála, tvær óþekktar konur, sem eru sennilega eiginkona og dóttir Björns Kristjánssonar kaupmanns frá Sauðárkróki, sem er með staf á myndinni og lengst til hægri er Ólafur Lárusson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. </p>
Guðmundur Guðnason339
Fermingarbörn vorið 1980 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju eldri. Fremsta röð frá vinstri: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, séra Pétur, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason692
Réttað í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt. Þó er líklegt að baksvipurinn sé af Hartmann Jóhannessyni frá Garði því hann var oft með bláan "bát" á höfðinu.
Guðmundur Guðnason574
Þessi fjárhús og hlaða stóðu þar sem sumarhús Snorrabergs er í dag. Takið eftir kartöflugörðunum fyrir aftan húsin.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn081
<p>Þessi úrklippa úr Tímanum er frá árinu 1973 af Skagstrendingum sem eru að leggja í langferð til Japan til að sækja Arnar Hu 1, sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf. Á myndinni, sem sýnir hluta áhafnarinnar sem fór, eru frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Guðjónsson, Birgir Þórbjarnarson, Gunnlaugur Árnason, Gylfi Sigurðsson og Óskar Þór Kristinsson. Í bókinni: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um Arnar HU 1: </p><p><em>" ....Togarinn var smíðaður úr stáli í Muroan í Japan árið 1973 fyrir Skagstrending h/f sem gerði hann út til ársins 1995. Hann var 462 brl. með 2000 ha Niigata vél. Togarinn kom til heimahafnar á Skagaströnd 15. október 1973 og var tekið á móti honum með mikilli viðhöfn enda merk tímamót og viðburður í litlu byggðarlagi. Mikil vinna, erfiði og barátta lá að baki svo mikilli fjáfestingu sem þessi kaup voru. Flestir bæjarbúar, sem og fjölmargir aðkomumenn úr hérði og lengra að, mættu á bryggjuna og hlustuðu á ræðuhöld og síðan voru veitingar um borð í glæstu fleyi. Það var mikil hátíð í bæ og á bryggjunni var strengdur stór borði sem á stóð "Velkominn Arnar". Við móttökuna töluðu Jón Jónsson formaður stjórnar Skagstrendings h/f, Sveinn Ingólfsson framkv.stj. Skagstrendings h/f, Jón Ísberg sýslumaður, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri og alþingismennirnir Pálmi Jónsson og Ragnar Arnalds. Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson flutti hugleiðingu og blessaði skipið.</em></p><p><em> Frá desember 1992 til ágúst 1994 hét skipið <strong>Arnar HU 101</strong> svo tók við nafnið <strong>Arnar II HU 101</strong> og svo í maí 1995 nefndist það <strong>Arnar gamli HU 101</strong> og var þá bæði ís- og saltfiskskip. Árið 1993 var skipið selt dótturfélagi Skagstrendings h/f á Kýpur og fékk nafnið <strong>REX </strong>og var þetta fyrirkomulag til að uppfylla lagakröfur um úreldingu rúmmáls skipa vegna kaupa á nýjum Arnari. Rex var seldur Samherja h/f á Akureyri í sep
Adolf H Berndsen - safn026
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Hér er Steindór, lengst til hægri, að hella álegginu á pizzuna og dreifa því um pizzubotninn með aðstoðarmönnum sínum sem voru félagar í kokkalandsliði Íslands.
Adolf H Berndsen - safn016
Þessir herramenn eru í lautarferð á Kaupfélagstúninu. Þeir fá sér í staupinu og hlusta á tónlist úr grammófón. Frá vinstri: Gísli Ísleifsson (d.?) sýslumaður, Carl Berndsen (d.15.12.1954) kaupmaður, Ewald Hemmert (d.15.7.1943) verslunarstjóri og ljósmyndari og Jón Árnason (d. ?) sýsluskrifari.
Adolf H Berndsen - safn029
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á þessari mynd er Örnólfur Thorlasíus að smakka á pizzunnu ásamt konu sinni. Á myndinni má þekkja, meðal áhorfenda, Albert Guðmundsson alþingismann og ráðherra, Guðmund Hallvarðsson alþingismann og aftast upp við vegg hússins stendur Guðrún Kristjánsdóttir kennari á Skagaströnd og þáverandi eiginkona Heimis Fjeldsteð framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf.
Guðmundur Guðnason519
Konan á miðri mynd er líklega Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir frá Reykholti (Sævarlandi) (d. 24.11. 1994) að sinna réttarstörfum í Spákonufellsrétt. Til hægri við hana, aftar, er Jóhannes Hinriksson frá Ásholti (d. 27.10.1973) með gleraugu og ljósa derhúfu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason722
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Guðmundur Guðnason904
Hjallholt. Sennilega var myndin tekin 1965.
Adolf H Berndsen - safn011
Guðmundur Guðnason eða Mundi póstur (d. 21.11.1988) með einkennishúfuna og reiðhjólið sem fylgdi starfi hans sem bæjarpóstur á Skagaströnd. Hér er Mundi fyrir utan heimili sitt Ægissíðu þar sem hann bjó með foreldrum sínum meðan þau lifðu.
Adolf H Berndsen - safn020
Fritz H. Berndsen stendur í gættinni á heimili sínu í Árnesi, sem hann byggði 1899. Árnes er safn í dag um gamalt heimilishald. Á rekkunum kringum Fritz er hann að þurrka saltfisk.
Guðmundur Guðnason424
Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) frá Stóra Bergi.
Guðmundur Guðnason486
Guðmundur Guðnason frá Ægissíðu (d. 28.11.1988) er fyrir miðri mynd með þverslaufu um hálsinn. Aðrir eru óþekktir eins og tilefni myndatökunnar.
Guðmundur Guðnason452
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Í fremstu röð sitja, frá hægri: Eðvarð Hallgrímsson sem byggði dvalarheimilið, Helga Guðmundsdóttir kona hans, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Guðmundur Bjarnason þáverandi heilbrigðisráðherra og tvær óþekktar konur. Næst okkur á öðrum bekk eru séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og Pétur Eggertsson sem var fyrsti forstöðumaður Sæborgar. Í þriðju röðinni næst okkur situr Páll Þorfinnsson rafvirki sem sá um raflagnir í húsinu
Guðmundur Guðnason696
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum. Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti er maðurinn fremst á myndinni með skíðagleraugun. Aftan við hann er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Aðrir eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn001
Skrúðganga á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er sennilega tekin á árunum; 1940-1945 en fyrst var haldið upp á daginn á Skagaströnd 1939 (samkv. "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár", höf. Lárus Ægir Guðmundsson). Eins og sést á myndinni hefur snemma verið byrjað á að ganga í skrúðgöngu frá höfninni að kirkju á sjómannadegi. Myndin er sennilega tekin af tröppunum á Karlsskála.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason500
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri leikur hér á móti Ingvari Jónssyni Norður Skála (d. 29.7.1978)í óþekktu leikriti í Tunnunni.
Guðmundur Guðnason577
Þessi stúlka og barnið eru óþekkt. Ef þú þekkir stúlkuna eða barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason526
Réttað í Spákonufellsrétt. Drengurinn í köflóttu úlpunni er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði (Hólabraut 9). Maðurinn í svörtu peysunni er óþekktur (?Sigurjón Magnússon frá Sólvangi?). Sigurður Guðmonsson frá Þórsmörk (d. 5.8.1981) er maðurinn með ljósu húfuna en Hrólfur Jakobsson Sóllundi (Hólabraut 8) (d. 27.12.1996) er lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason455
Hér spjalla saman, frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Sigurjón Ástmarsson og Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996).
Guðmundur Guðnason377
Hildigunnur Jóhannsdóttir í ræðustól á sviði Fellsborgar.
Guðmundur Guðnason429
Þessir þrír menn, sem standa og spjalla fyrir utan gömlu Tunnuna, eru frá vinstri: Rósberg G. Snædal (d. 3.1.1983), Lárus Valdimarsson frá Grund og óþekktur. Líklegt er þó að maðurinn sé Einar Kristjánsson (1911 - 1996) frá Hermundarfelli en hann var rithöfundur og útvarpsmaður og þeir Rósberg voru samtíða á Akureyri og hafa mjög líklega þekkst vel.
Adolf H Berndsen - safn031
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Mikill mannfjöldi fylgdist með þegar heimsmetið var sett. Hér er aldeilis handagangur í öskjunni við að gefa öllum að smakka á pizzunni því eins og allir vita þá kunna íslendingar ekki að fara í biðröð.
Adolf H Berndsen - safn006
Þessir ungu athafnamenn eru frændurnir: Birkir Rafn Gíslason til vinstri, Sverrir Berndsen í miðjunni og Sigurður Berndsen til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1985.
Guðmundur Guðnason560
Ólöf Una Jónsdóttir í Ártúnum var greinileg óhrædd við dýr sem voru stærri en hún.
Guðmundur Guðnason657
Gangnahestur með reiðtygjum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn064
Hér eru menn að koma úr kappróðri á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt. Húsið fyrir miðri mynd er Karlsminni þannig að mennirnir eru að fara í land á grótfyllingu austanvert á Skúffugarðinum. Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason627
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og bróðir hans og ferðafélagi , Rósberg G. Snædal, áð við Hrútatjarnarstein. Steinninn stendur við litla tjörn sem heitir Hrútatjörn. Að sögn kunnugra sást oft ljós í steininum á síðkvöldum og var það almenn trú að þar byggju álfar.
Adolf H Berndsen - safn007
Ánægðir með góðan afla úr Skagaheiðinni. Frá vinstri: Stefán Stefánsson frá Kambakoti (d.2.1.1988), Kristján Hjartarson; frá Grund (d. 2.8.2003) og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem var fjórði veiðifélaginn í túrnum.
Guðmundur Guðnason585
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Hallbjörn Hjartarson syngur við harmónikuundirleik Kristjáns Hjartarsonar (d. 2.8.2003) bróður síns.
Guðmundur Guðnason473
Hér áður fyrr þegar bílaeign var ekki orðin jafn algeng og hún er í dag voru menn gjarnan fluttir til vinnu á vörubílspalli. Sennilega er þessi mynd af einum slíkum vinnuflokki á leið til eða frá vinnu. Frá vinstri: Tveir óþekktir menn (?Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) frá Litla Felli og Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) frá Vindhæli ?), Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi (d. 17.5.1996), Bjarni Jóhannsson frá Bjargi (d. 12.9.1971), Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 10.9.1989, Finnur Frímannsson frá Jaðri (d. 18.3.1969) og Jóhannes Björnsson Guðmundarhúsi (d. 14.6.1977). Drengurinn er óþekktur. Maðurinn lengst til hægri er líklega Sigurður Magnússon bílstjóri frá Brekku (Siggi pípa). Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Björnsdóttir015
Hjónin á Jaðri með systur húsbóndans á pallinum hjá Jaðri. Frá vinstri: Elíasbet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) húsfrú að Jaðri, Sigurbjörg Sigurðardóttir og Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) bróðir hennar og húsbóndi á Jaðri.
Guðmundur Guðnason342
Ágústa Ágústdóttir söngkona og prestsfrú hallar sér að Guðmundi Guðnasyni. Guðrún Guðbjörnsdóttir fylgist með.
Guðmundur Guðnason655
Valdimar Guðmundsson (d. 4.4.2015) myndin líklega tekin kringum 1965.
Guðmundur Guðnason550
Margrét og Sigrún Guðlaugsdætur í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason443
Marías Bjarni Viggósson frá Gunnarshólma.
Guðmundur Guðnason375
Hér syngja í kvartett, við undirleik Steinunnar Berndsen, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sævar Bjarnason, Sigmar Jóhannesson og óþekktur. Myndin var tekin á einhverri uppákomu á vegum kirkjukórsins í Fellsborg. Ef þú veist hver fjórði maðurinn í kvartettinum er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason413
Alda Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason512
Bergur Jón Þórðarson er drengurinn sem er að leita lamba í Spákonufellsrétt 1958 þá 7 - 8 ára gamall. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason499
Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum (d. 16.6.1982) talar á þorrablóti í Húnaveri.
1
…
42
43
44
…
167
Leita í myndasafninu
Leita