Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason563
Klara Sólveig Jónsdóttir frá Ártúnum æfir áralagið á heimagerðu fleytitæki.
Guðmundur Guðnason588
Myndin er tekin framan við Víðimýrarkirkju í Skagafirði. Lengst til vinstri er Andrés Árni Baldursson, fullorðni maðurinn er óþekktur en drengurinn til hægri er líklega Ari Ólafsson. Ef þú þekkir fullorðna manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason534
Ingvi Sveinn Eðvarðsson
Guðmundur Guðnason571

Klara Sólveig Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1952 með köttinn Klóa.

Guðmundur Guðnason537
Guðmundur Guðnason sem tók þessa mynd tók töluvert mikið af myndum af sjónvarpsskjánum. Einkum tók hann myndir af prestum, biskupum og messum sem voru sérstakt áhugamál hjá Guðmundi. Hér er sýnishorn af einni slíkri "sjónvarpsmynd" en hún er, eins og sjá má, af séra Gunnari Árnasyni.
Guðmundur Guðnason481
Hér dansar Jón Sölvason frá Réttarholti (d. 17.8.1969) við ókunna konu við harmónikuundirleik á Hótel Blönduósi. Fyrir miðri mynd situr Bergþóra Kristjánsdóttir (Búlla Péturs). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn447
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var í einhverri heimsókn fólks frá Skagaströnd til vinabæjar á norðurlöndum - líklega Aabenraa. Á henni eru frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Adolf H. Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir og Magnús B. Jónsson. Hermennirnir eru óþekktir en þeir eru danskir miðað við fánann sem er á öxl eins þeirra.
Guðmundur Guðnason357
Akurgerði - Hólabraut 9. Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) og Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) bjuggu þarna og eignuðust fjölda barna. Seinna bjuggu í Akurgerði Hjalti Eðvaldsson (d. 31.3.1985) og konan hans Hólmfríður Rögnvaldsson (d. 13.10.2000). Húsið hefur verið rifið og nýtt hús byggt á lóðinni.
Skagaströnd - safn452
Fjórða hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1950 - 1954.
Guðmundur Guðnason575
Vormynd af Spákonufellinu. Í forgrunni eru nokkrar kindur með lömb en Guðmundur ljósmyndari hafði gaman af kindum og tók mikið af myndum af þeim.
Guðmundur Guðnason682
Skagfirðingar á dansleik á Siglufirði 15. júní 1968. Fólkið er á myndinni er Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður Skagfirðinga og frú.
Guðmundur Guðnason493
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var tekin áður en ný búningsaðstaða var byggð en húsið til vinstri á myndinni var kyndiklefi/hús fyrir sundlaugina. Frá vinstri á myndinni eru: Vilhelm Þórarinsson, Kristófer Árnason (með hatt)(d. 10.5.2000), Karl Berndsen (d. 12.2.1995), óþekktur keppandi, Jón Ingvar Valdimarsson, óþekktir keppendur, Steindór R. Haraldsson (í jakkaföturm), Fjóla Sigurðardóttir (með sundhettu), Árni Másson ( í peysu, hallar sér upp að húsinu), óþekktir keppendur, Lárus Ægir Guðmundsson og Unnur Gunnarsdóttir keppandi. Aðrir eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn012
Hér leiðir séra Pétur Þ. Ingjaldsson, vin sinn til 40 ára, Ólaf Guðmundsson frá Brautarholti á kjörstað í Fellsborg til að kjósa. Óli í Brautarholti var á þessum tíma orðinn blindur og þurfti því aðstoð við að kjósa.
Guðmundur Guðnason412
Kristín Jónsdóttir frá Gautsdal.
Skagaströnd - safn456
Áttunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1966 - 1970.
Guðmundur Guðnason635
Jón S. Baldurs (d.1.8.1971), kaupfélagsstjóri KH, dansar við Ölmu ? konu Sveins ? mjólkurbússtjóra á Hótel Blönduósi.
Guðmundur Guðnason664
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Steindór R. Haraldsson frá Höfðakoti til vinstri og Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni til hægri líklega að taka þátt í einhverju skemmtiatriði á sviðinu.
Guðmundur Guðnason513
Hér eru þeir Hartmann Jóhannesson frá Garði (d. 1976) til vinstri og Þorkell Magnússon frá Goðhól (d. 30.8.1968) að draga sundur fé í Vindhælisrétt.
Adolf H Bernsden - safn024
Hér er Anna Bjarnadóttir blaðamaður að bíða eftir að fá að smakka sjávarrétta Crepes framleitt hjá Marska úr höndum kokks á hótel Loftleiðum. Næstur í röðinni er svo Haukur Alfreðsson verkfræðingur.
Guðmundur Guðnason788
Frænkurnar Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir kringum 1960.
Guðmundur Guðnason708
Bergdís Sigmarsdóttir á sviðinu í Tunnunni upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason518
Maðurinn fremst á myndinni er Jónatan Jónsson (17.7.1971) , kenndur við Hólagerði. Hann er við réttarstörf í Spákonufellsrétt. Til hægri sér í Jóhann Jakobsson Blálandi (d. 24.3.1987) að fanga lamb.
Guðmundur Guðnason589
Víðimýrarkirkja í Skagafirði.
Guðmundur Guðnason595
Jólaball í Tunnunni sennilega á sjöunda áratugnum. Hægra megin má sjá dansa með börnunum: Gunnar Albertsson (d.27.7.2019), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Laufey Ingimundardóttur (d.31.12.1992) og Jón Inga Ingvarsson. Konan fremst á myndinni með svarta húfu er Dómhildur Jónsdóttir(d. 18.10.2012). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason680
Dansað á Siglufirði 15. júní 1968. Til hægri sér í Björgvin Jónsson frá Höfðabrekku dansa við óþekkta konu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason603
Myndin var tekin í Kálfshamarsvík 1961. Á henni er séra Pétur Þ. Ingjaldsson að lesa Guðsorð yfir einhverjum sem verið er að kveðja. Sennilega hefur viðkomandi átt bátinn sem kistan stendur í og því hefur þótt við hæfi að halda húskveðju við bátinn. Kistan var síðan flutt til greftrunar eins og venja er til. Líklegt er að Jóhannes Einarsson (F.24.7.1888) frá Hátúni í Kálfshamarsvík hvíli í kistunni en hann var síðasti útvegsbóndinn í Kálfshamarsvík.
Guðmundur Guðnason022
Hulda Pálsdóttir 1937 stendur aftan á þessari mynd. Ef þú veist nánari deili á Huldu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason794
Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002). Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason669
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Hjalti Skaftason sonur hans, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi.
Guðmundur Guðnason622
Systkinin Jónína Baldursdóttir og Andrés Árni Baldursson frá Þórshamri með Hörð Baldursson bróður sinn á milli sín einhverntíma upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason609
Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Bræðurnir, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.14.12.2015), Jón Geir Jónatansson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020)(stendur aftan við Jón Geir) í Höfðabrekku (Bankastræti 10) með þeim er frændi þeirra, Rúnar Hartmannsson úr Höfðatúni (Strandgata 6).
Guðmundur Guðnason438
Birna Guðjónsdóttir, sennilega á fermingardaginn sinn því myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri.
Guðmundur Guðnason774
Höfðakot kringum 1970. Þá bjuggu þar Hjónin Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) ásamt bróður Halldóru, Guðmundi Péturssyni (d. 30.6.1987) . Systkinin Steindór Haraldsson og Fjóla Sigurðardóttir, barnabörn Steingríms og Halldóru, ólust upp hjá þeim.
Guðmundur Guðnason415
Þórunn Sigurðardóttir (Lilla) frá Sólvöllum.
Guðmundur Guðnason570
Margrét Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1954.
Guðmundur Guðnason592
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), ljósmyndari þessarar myndar, var póstur á Skagaströnd í áratugi. Það er þess vegna ekkert skrítið þó hann tæki mynd af hillunum/hólfunum þar sem hann flokkaði póstinn áður en hann raðaði honum rétt í póstburðartöskuna og lagði af stað á hjólinu eða gangandi hús úr húsi.
Guðmundur Guðnason484
Þessi mynd var tekin á yfir dansgólfið á dansleik á Hótel Blönduós. Framarlega á myndinni til vinstri eru hjónin Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) og Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977). Fyrir aftan Ástmar sér í hjónin Gunnar Sveinsson og Báru Þorvaldsdóttur. Næst okkur á myndinni, með gleraugu, er Sveinn Ásmundsson byggingameistari frá Ásbúðum og Siglufirði. Hann byggði Héraðshælið og félagsheimilið á Blönduósi. Aðeins vinstra megin við miðja mynd eru hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir og Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) frá Akurgerði. Sigurður Kr. Jónsson Blönduósi horfir í átt að ljósmyndaranum á miðri mynd og konan hans Guðrún Ingimarsdóttir honum til hægri handar. Hægra megin við hann á myndinni má þekkja Zopanías Zopanísson Blönduósi og lengst til hægri á myndinni eru hjónin Sigurður og Guðrún frá Hnjúki. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason529
Slegist við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason477
Sigurður Magnússon og Carlotta ? Ef þú veist deili á þessu fólki og hvers dóttir Carlotta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason744
Ólöf Pálmadóttir frá Holti.
Guðmundur Guðnason587
Kindin í forgrunni er þrílembd og var sjálfsagt tilefni myndatökunnar. Í baksýn má aftur á móti sjá útbæinn, sennilega seint á sjöunda áratugnum. Enn standa tankarnir tveir undir Höfðanum til vinstri á myndinni. Braggarnir standa, Garður og gamla húsið á Flankastöðum. Kárastaðir, Höfðakot og Höfðaberg eru líka öll horfin ásamt Gunnarshólma (Grafarbakka). Aftur á móti hafa nú verið byggð hús við Mánabraut og fleiri hús við Bankastræti.
Kristín Björnsdóttir001
Efri Jaðar er gamla húsið til hægri en Neðri Jaðar er til vinstri. Hjónin Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Elísabet Frímannsdóttir ( d. 1.9.1990) byggðu Neðri Jaðar, sem enn stendur. Búið er að rífa Efri Jaðar. Barnið fremst á myndinni er Sigurður Björnsson sem átti heima á Jaðri (Neðra Jaðri). Hitt barnið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason492
Hér talar Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) frá Grund á einhverri útihátíð. Líklega er hann að tala á hátíð í Kirkjuhvammi við Hvammstanga þegar Húnvetningar héldu upp á 1100 ára afmæli Íslandabyggðar 1974.
Guðmundur Guðnason528

Í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Elínborg Árnadóttir Sólheimum (d. 7.4.1979), Kristín Björnsdóttir Jaðri, óþekkt, Ólafur Guðmundsson Brautarholti (d. 6.10.1985), Már Hall Sveinsson Réttarholti (d. 1.3.2008), óþekktur, Kári Kristjánsson Kárastöðum (d. 11.12.1990), Steingrímur Jónsson Höfðakoti (d. 15.1.1992), óþekktur, Sigurlaug Jónsdóttir Ási (d. 15.8.2011) og óþekktur.

Kristín Björnsdóttir028
Elísabet Frímannasdóttir (d. 1.9.1990) heima á Jaðri með tvö ömmubörn, Björn Sigurðsson og Elísabetu Eik Guðmundsdóttur í fanginu. Myndin var tekin kringum 1975-1976.
Guðmundur Guðnason714

Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru líklega Skúli Pálsson (d. 3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.11978) en ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Adolf H Berndsen - safn022
Starfsstúlkur hjá Marska pakka framleiðsluvörum fyrirtækisins, rækju- og saltfisksrúllum og sjávarréttapizzum. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Guðmundur Guðnason660
Systurnar í Skálholti dætur Benjamíns Sigurðssonar (d.30.9.2004) og Láru Loftsdóttur (21.4.2010). Frá vinstri: Sóley Benjamínsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10.6.1999) og Pálfríður Benjamínsdóttir. Myndin var líklega tekin 1960 í tilefni fermingar Pálfríðar.
Guðmundur Guðnason597
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri á myndinni en hjá honum situr Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) úr Höfðabrekku.
Guðmundur Guðnason483
Fólkið sem hér dansar er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason653

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri líklega kringum 1965. Birgir Ingólfsson þekkir mennina sem eftirfarandi:

1. Röð frá vinstri: Hannes Guðmundsson Auðkúlu, Þórður Þorsteinsson Grund, Guðmundur Sigfússon Eiríksstöðum, Jósef Sigfússon Torfustöðum, Jón Tryggvason Ártúnum, Haraldur Karlsson Litla-Dal, Friðrik Björnsson Gili, Halldór Eyþórsson Syðri-Löngumýri, Björn Jónsson Gili, (?Guðmundur Sigurjónsson Rútsstöðum ?)

2. Röð frá vinstri: Sigmar Ólafsson Brandsstöðum, Pétur Guðmundsson Eiríksstöðum,? Árni Sigurjónsson Rútsstöðum? Sigurður Sigurðsson Leifsstöðum, Sigurjón Ólafsson Brandsstöðum, Pétur Sigurðsson Skeggstöðum, Sigvaldi Sigurjónsson Rútsstöðum, Ingólfur Bjarnason Bollastöðum, Bjarni Sigurðsson Barkarstöðum, Auðunn Guðmundsson Austurhlíð

3. Röð frá vinstri : Runólfur Aðalbjörnsson Hvammi, Jón Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurjón Stefánsson Steiná, Aðalsteinn Sigurðsson Leifsstöðum, Guðmundur Halldórsson Bergsstöðum, Guðmundur Tryggvason Finnstungu, Grímur Eiríksson Ljótshólum, Ingvar Þorleifsson Sólheimum, Georg Sigurvaldason Eldjárnsstöðum, Sigurgeir Hannesson Stekkjardal.

umf Fram147
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd bíða þrír knáir keppendur í fullorðinsflokki eftir að verða kallaðir upp og skipað á ráslínuna. Lengst til vinstri sér í Sigríði Gestsdóttur en svo koma þeir Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson og Fannar Viggósson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason555

Systkinin Sigmar Ólafsson (d. 30.10.1991), María Ólafsdóttir og Sigurjón Ólafsson ( d. 13.1.1971) í Húnaveri 1959.

Guðmundur Guðnason520
Drengurinn á myndinni er Árni Björn Birgisson Streumnesi. Aðrir sem eru þarna í Spákonufellsrétt eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason605
Andrés Árni Baldursson sem alinn var upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason470
Myndin var tekin í Höfðaskóla af fólki sem er að bíða eftir kvikmyndasýningu. Frá vinstri á myndinni: Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966), Ingvar Jónsson Norður Skála (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson Höfða (d. 1.6.1996), Björgvin Jónsson Höfðabrekku (d. 4.5.1992), Þórey Jónsdóttir Norður Skála (d. 29.12.1966), Hrólfur Jónsson Bjarmalandi (d. 1.8.1989), Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3. 1964), Kristinn Pálsson Breiðabliki (d. 21.10.2008) og Margrét Konráðsdóttir versluninni Borg (d. 17.9.1974).
Guðmundur Guðnason872
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason615
Þessi mynd var tekin í fermingarveislu Ómars Þorbjörnssonar í Akurgerði í maí 1960. Standandi frá vinstri eru: Reynir Sigurðson frá Þórsmörk, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði, Hrefna Þorbjarnardóttir Akurgerði, Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) Akurgerði, Ísleifur Þorbjörnsson Akurgerði. Sitjandi frá vinstri: Guðbjörg Þorbjarnardóttir Akurgerði, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi, Hallbjörn Þorbjörnsson Akurgerði, Gunnar Jónsson Asparlundi og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) Asparlundi.
Guðmundur Guðnason694
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn með húfuna fyrir miðri mynd er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10. 1973) frá Ásholti (ber í manninn sem er að klifra yfir hiðið). Næst lengst til hægri er svo Baldvin Jóhannsson (d. 1.1.1981) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram171
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru þrír íþróttakappar úr umf Fram. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hjörtur Guðmundsson og Karl Lúðvíksson. Allir kepptu þeir í mörg ár á íþróttamótum undir merki Fram á Skagaströnd.
1

44
45
46

167
Leita í myndasafninu
Leita