Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason802
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, orgelleikari, ljósmyndari og félagsmálamaður.
Guðmundur Guðnason828
Árni Hall Másson frá Réttarholti með systur sína Vilborgu Másdóttur. Myndin var tekin 1964 eða 1965.
Guðmundur Guðnason579
Gengið kringum jólatré á jólaballi í Tunnunni. Til hægri á myndinni má þekkja Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d. 13.7.2003) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Nær miðri mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) með gleraugu og dökka húfu. Stúlkan fremst á myndinni í köflóttum kjól er Málfríður Jóhannsdóttir. Aðra er ekki hægt að þekkja með vissu. Takið eftir litlu gluggunum á stafninum vinstra megin við dyrnar. Fyrir innan þá voru kvikmyndavélar Skagastrandarbíós sem starfaði í Tunnunni um árabil.
Guðmundur Guðnason609
Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Bræðurnir, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.14.12.2015), Jón Geir Jónatansson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020)(stendur aftan við Jón Geir) í Höfðabrekku (Bankastræti 10) með þeim er frændi þeirra, Rúnar Hartmannsson úr Höfðatúni (Strandgata 6).
Guðmundur Guðnason886
Þessar stúlkur eru óþekktar. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram168
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd má sjá tímaverði tilbúna með skeiðklukkurnar. Efst í tröppunni er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) næstur er Gunnar Sveinsson þá Guðmundur Kristinsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), óþekktur og Ingvi Sveinn Eðvarðsson. Drengurinn í grænu buxunum er óþekktur og líka drengurinn fyrir aftan Ingva Svein. Frakkaklæddi áhorfandinn er Þórarinn Kári Þórsson (Diddi) og stúlkan í bláa jakkanum er Vala Rós Ingvarsdóttir, Kristín Jónsdóttir er rauðklædd og Birna Sveinsdóttir í svörtu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason024
Þessi mynd var líklega tekin í Laxárdal og fólkið á myndinni er líklega Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) og sonur hennar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Klemensína og Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) maður hennar voru síðustu ábúendur á Vesturá í Laxárdal með sonum sínum en þau fluttu þaðan 1939.
Guðmundur Guðnason596
Þessi mynd var sennilega tekin á prestastefnu að Hólum í Hjaltadal árið 1962. Frá vinstri á myndinni eru: óþekktur, Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) kaupmaður í versluninni Borg og Andrés Árni Baldursson. Óþekkti drengurinn var barnabarn Margrétar og Sigurðar manns hennar.
Guðmundur Guðnason720
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Jóhanna Ásmundsdóttir Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin upp úr 1960 en ekki er vitað hvaða leikrit er um að ræða. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason617
Myndin var tekin í fermingarveislu Ómars Þorbjörnssonar frá Akurgerði í maí 1960. Frá vinstri eru: María Magnúsdóttir Asparlundi, hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún og Viggó Brynjólfsson.
Guðmundur Guðnason738
Anna Bjarnadóttir til vinstri og systir hennar Hjálmfríður Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðmundur Guðnason818
Laufás. Fremst á myndinni er brunnur.
umf Fram204
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd sjást nokkrir veislugestir. Neðst í vinstra horninu sér í andlit Elínar Njálsdóttur. Hinum megin við borðið sitja, talið frá vinstri: óþekktur, Gunnar Sveinsson, Helga Ottósdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Halldóra Þorláksdóttir.
Guðmundur Guðnason670
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) í Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason810
Þetta par er óþekkt en myndin var tekin á Höfðanum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram289
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er startið í undanrás í 100 metra hlaupi. Frá vinstri: Jóhannes Sigurbjörnsson, Karl Lúðvíksson, Ingibergur Guðmundsson, Björn Friðriksson og Pétur Pétursson.
Guðmundur Guðnason804
Þröstur Þorbjarnarson með systur sinni Heiðrúnu Þorbjarnardóttur. Þau voru alin upp í Akugerði.
Guðmundur Guðnason834
Þessi mynd var tekin í Lundi af heimilisfólkinu þar og gestum þeirra. Frá vinstri: Sigurlaug Friðgeirsdóttir, Alma Ellertsson (d. 6.10.2000) (fædd Steinhaug) frá Alvadal í Österdal í Noregi , Margrét Jóhannesdóttir(d. ?), Ole Aamundsen (Óli norski) (d. ?), Anne Grete Gravningen, sem kenndi við Kvennaskólann á Blönduósi 1962 - 63 og Gurid Björnsson (d. 26.4.2007) frá Hlíð. Ole og Margrét voru hjón sem bjuggu í Lundi og Sigurlaug var vinnustúlka þeirra í mörg ár. Alma var eiginkona Sveins Ellertssonar mjólkurbússtjóra á Blönduósi. Myndin hefur líklega verið tekin 1962 eða 1963.
Skagaströnd - safn459
Ellefta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1978 - 1982. Elín Njálsdóttir var fyrsta konan sem kjörin var í nefndina.
umf Fram224
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd skemmtir kvartett frá Skagaströnd í lokahófinu. Frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Jón Pálsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
Guðmundur Guðnason539
Systurnar Ólína Bjarnadóttir til vinstri og Pálfríður Bjarnadóttir til hægri. Systurnar áttu heima í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Myndin var tekin einhvertíma kringum 1960.
Adolf H Berndsen - safn003
Stefán Stefánsson (d.2.1.1988) stýrir bát sínum Ósk til lands eftir gráslepputúr. Óskin dregur tvo minni báta sem notaðir voru til að vitja um netin þegar komið var á miðin. Með Stefáni um borð voru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og fóru þeir um borð í skekturnar, vitjuðu um trossurnar og svo kom Stefán á Óskinni, sótti aflann og dró skektuna að næstu trossu. Grásleppan var svo skorin um borð í Óskinni þegar tóm gafst til milli trossa og/eða á landleiðinni.
Guðmundur Guðnason688
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn í ljósa jakkanum til vinstri er sennilega Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórmörk á tali við Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram200
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd er Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) og Lára Bylgja Guðmundsdóttir í forgrunni. í baksýn má m.a. sjá Elísabetu Árnadóttur (Bebbý) og Jón Pálsson. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn455
Sjöunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1962 - 1966.
Guðmundur Guðnason604
Tvær konur ganga eftir fjöruborðinu í Kálfshamarsvík 1961 eftir húskveðju þar. Siglingamerkið sem sést á myndinni er nú horfið.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn075
Myndin var sennilega tekin við Skálholt einhverntíma í kringum 1950. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar nema stúlkan þriðja frá vinstri í köflóttri kápu er Þórunn Bernódusdóttir og systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir er í köflóttri kápu lengst til hægri. Þær systur áttu þá heima á neðri hæðinni í Skálholti. Birgir Þórbjarnarson frá Flankastöðum er á miðri mynd með húfu og heldur sennilega utan um systur sína Guðrúnu Þórbjarnardóttur. Við hlið hans, einnig með húfu er Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) við hlið hennar með slaufu í hárinu. Líklega er stúlkan lengst til vinstri Helga Haraldsdóttir frá Jaðri. Ef þú þekkir einhverjar hinna stúlknanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason650
Kristinn Guðmundsson frá Bræðraborg með syni sína. Strákarnir eru frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) og Sigurður Kristinsson.
Guðmundur Guðnason502
Leiksýning í Tunnunni. Leikritið sem var verið að sýna var Klerkar í klípu. Leikarar eru frá vinstri: Guðbjartur Guðjónsson (d 23.9.1992) frá Vík, Gunnar Benónýsson ( d. 29.7.2003) úr Suður Skála, Guðný Sigurðardóttir,Helgi Gunnarsson, Ari Ólafsson frá Sævarlandi, Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007), Hörður Ragnarsson, Edda Pálsdóttir og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) úr Lækjarhvammi.
Guðmundur Guðnason641
Framsóknarvist spiluð á Hótel Blönduósi. Konan fremst á myndinni er Anna Tryggvadóttir (d. 31.8. 2007) frá Blönduósi og Finnstungu. Gamli maðurinn með skeggið er ?Jónas Bjarnason? Ef þú þekkir einhvern annan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason503
Hér er verið að leika óþekkt leikrit. Því miður eru leikararnir þrír óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason630
<p>Bræðurnir frá Bræðraborg, frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) og Sigurður Kristinsson. Myndin var tekin upp úr 1960.</p>
Guðmundur Guðnason906
Þessi mynd var tekin af fjölmenni á hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason532
Hér eru Húnvetnskir bændur með hrúta sína.Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þorleifsson í Sólheimum og Auðunn Guðjónsson frá Marðanúpi síðan Árni Karlsson frá Víkum á Skaga (d. 19.7.2011) og Njáll Þórðarson á Blönduósi. Þá kemur Sigþór Sigurðsson í Brekkukoti, Reynir Hallgrímsson frá Kringlu, Heiðar Kristjánsson frá Hæli og óþekktur drengur. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason718
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason726
Jól á Karlsskála. Guðrún Einarsdóttir dáist að skreyttu jólatré heimilisins.
umf Fram164
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd svífur Karl Lúðvíksson yfir rána í stangarstökki.
Guðmundur Guðnason768
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, stígur inn í bíl sinn eftir móttöku í félagsheimilinu á Blönduósi er hann kom í opinbera heimsókn í Húnaþing árið 1969. Við hlið hans er Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og lengra til hægri er Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) frá Geitaskarði. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason752
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu. Guðmundur Viðar Guðmundsson til vinstri getur ekki stillt sig um að dansa með þó hann sé ekki grímubúinn.
Guðmundur Guðnason880
<P>Bragi Steingrímsson frá Eyvindarstöðum í Blöndudal. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.</P>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn065
Á myndinni er fólk á glaðri stund. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999), Jón Sölvason (d. 17.8.1969) og Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966). Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason573
Þetta eru fjárhús sem Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) í Reykholti átti og standa á Kerlingarholti . Á þessari mynd er hlaðan hálfbyggð en var síðan kláruð talsvert löngu síðar.
Guðmundur Guðnason559
<p>Guðrún Sigurjónsdóttir frá Brandsstöðum.</p>
Guðmundur Guðnason618
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir fermingarbarn í Hólaneskirkju eldri fyrir fullri kirkju af fólki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason042
Þessi mynd var tekin við aðaldyrnar að Reykholtsskóla í Borgarfirði. Ekki er vitað hvenær, hvaða fólk er á henni né hvert tilefnið var. Ef þú veist svörin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason591
Félagsheimilið Fellsborg á lokastigum byggingarferilsins.
Guðmundur Guðnason675
Áð einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar 15. júní 1968. Frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku.
Guðmundur Guðnason598
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri á myndinni en hjá honum situr Sigurður Sölvason (d. 24.9.1978) kaupmaður í versluninni Borg.
Ólafur Bernódusson295
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Boðið var upp á grill á svæðinu og höfðu kokkarnir nóg að gera við að grilla lambakjöt ofan í svanga gesti. Kokkarnir eru frá vinstri: Steindór Haraldsson, Gunnar Reynisson og Sigurbjörn Björgvinsson. Erlingur Ottósson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Stefán Ægir Lárusson, Róbert Gunnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og feliri bíða eftir bita.
umf Fram158
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd kastar ?Guðbjörg Gylfadóttir? spjóti. Starfsmenn og áhorfendur eru frá vinstri: Pétur Arnar Pétursson, Gunnar Sveinsson, Ingibergur Guðmundsson, Stefán Jósefsson, Eðvarð Hallgrímsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Kristinn Jóhannssson, Guðmundur Kristinsson, óþekktur, Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Erlingur Ottósson. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn467
Nítjánda hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd (áður Höfðahreppur) frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2010 - 2014. Magnús Jónsson ekki kjörinn fulltrúi í nefndinni heldur ráðinn sveitarstjóri.
Guðmundur Guðnason584
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Helgi Jónatansson (d.22.8.2020) í Höfðabrekku les yfir Stefáni Ingólfssyni (d.21.10.2004) í Náttbrún, Jóhönnu Valdimars- (Núma)dóttur og Árna Birni Birgissyni úr Straumnesi (til hægri) í einhvers konar spurningaleik.
umf Fram245
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd hafa þær Guðrún Berndsen til vinstri og Þórdís Sigurðardóttir tekið við verðlaunaskjölum sínum.
Guðmundur Guðnason878
<P>Heimir Guðmundsson frá Finnstungu</P>
Guðmundur Guðnason558
Guðmundur Guðnason er hér til hægri með Sigurjóni Ólafssyni frá Brandsstöðum, vini sínum. Myndin var tekin í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason610
Stúlka á myndinni er sennilega ?Ingibjörg Hartmannsdóttir? úr Höfðatúni (Strandgötu 6). Hún lést um 10 ára aldur úr bráða hvítblæði.Til vinstri fylgist frændi hennar, Helgi Jónatansson úr Höfðabrekku (Bankastræti 10), spenntur með. Ef þú þekkir stúlkuna með vissu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason651
Guðmundur Kristinsson (Lilli) frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason742
Klara Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðmundur Guðnason531
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Kenny Hallbjörnsdóttir, Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d.2.6.1987), óþekktir og Guðmann Magnússon frá Vindhæli (d.22.11.2000).
Guðmundur Guðnason508
Leikkonur í leikritinu Klerkar í klípu ásamt leikstjóranum. Frá vinstri: Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007), Guðný Sigurðardóttir, Edda Pálsdóttir og Birna Blöndal sem var leikstjóri.
1
…
45
46
47
…
167
Leita í myndasafninu
Leita