Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram149

Á árum áður stóð umf. Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum með viku millibili og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hafa elstu keppendurnir lokið hlaupinu og raða sér upp í skjóli við Volvo vörubíl Harðar Ragnarssonar fyrir utan pósthúsið (Tónlistarskólann). Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Ómar Jakobsson, Jón Jósefsson, Jón Indriðason, Magnús B. Jónsson, Þórarinn Ingvarsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Fannar Viggósson, Vilhjálmur Skaftason, Gunnar Stefánsson og Ársæll Ottósson. Aðrir eru óþekktir.

umf Fram208
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson frá Hnjúki í Vatnsdal, Þorlákur Rúnar Loftsson, Sveinn Ingi Grímsson og Sigurjón Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason866
Akur (Hólabraut 13) til hægri og Asparlaundur (Bogabraut 24) til vinstri. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason855
Fermingarbörn ársins 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri á myndinni: óþekkt, Jóhanna Ásmundsdóttir, Alda Jónsdóttir úr Hjallholti , Sólveig Georgsdóttir, Signý Ástmarsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason549
María Sigurjónsdóttir Brandsstöðum og Soffía Ólafsdóttir (d. 30.8.1985) frá Mjóadal, í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason643

Björn Jónsson (d. 18.2.1991) frá Gili í Svartárdal sópar dansgólfið í Húnaveri.

Guðmundur Guðnason662
Dansað á þorrablóti í gömlu Tunnunni um miðjan sjöunda áratuginn. Gunnar Sveinsson er lengst til vinstr, þá Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Sigurður Pálmason úr Pálmalundi. Örn Berg Guðmundsson (Assi) frá Höfðabrekku er rétt vinstra megin við miðja mynd og Ísleifur Haraldsson frá Jaðri er rétt hægra megin við miðja mynd. Dansparið til hægri eru þau Karl Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála og konan hans Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Guðmundur Guðnason028
Ekki er víst hver drengurinn á hestinum er en sennilega er hann annar bræðranna: Húnn Snædal eða Hólmsteinn Snædal en þeir eru synir Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) bróður Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Ef þú þekkir drenginn á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason475
Eggert Skarphéðinsson í Sólheimum (d. 2.6.1987) að snúast við fjárhúsin sín. Í baksýn má sjá Sólheima (nýrri) til hægri og fjárhús og hlöðu sem tilheyrðu Ingvari Jónssyni (d. 18.1.2003) sem átti heima þar. Þeir sem muna Eggert þekkja baksvip hans eins og myndin sýnir.
Guðmundur Guðnason684

Agnes Sævarsdóttir

Ólafur Bernódusson104
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd tekur Hugrún Sigurðardóttir víti. Aðrar stúlkur á vellinum eru frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Hugrún Pálsdóttir og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason796
Maðurinn á myndinni er Magnús Hálfdánarson og með honum er kona hans Halldóra Þorsteinsdóttir á lítilli mynd. Sonur þeirra var Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) sem lengi var verksmiðjustjóri á Skagaströnd. Magnús bjó hjá fjölsyldu Ásmundar á Bogabraut 9.
Guðmundur Guðnason645
Tiltekt í Húnaveri. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram232
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d.?) frá Höfðabrekku, óþekktur, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson065
Haldið var körfuboltamót á Húnavöllum um jólin 1982. Þar kepptu að gamni sínu lið frá Hvöt, Fram og Geislum. Á þessari mynd er hart barist í leik Hvatar og Fram. Fannar Viggósson úr Fram hoppar hæst en Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989) Framari bíður átekta til hægri (með hvítan kraga). Til vinstri í hvítri treyju er Pétur Pétursson úr Geislum með dómaraflautuna en maðurinn sem grillir í fyrir aftan hann er Adolf H. Berndsen úr Fram. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason648
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) til hægri með dætur sínar. Líklega er Guðrún með dóttur sína, Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur en Sigurbjörg með sína dóttur, Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur.
Skagaströnd - safn451
Á þessari mynd er þriðja hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1946 - 1950.
umf Fram253
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru þrjár stúlkur úr Fram á veðlaunapallinum. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Kolbrún Viggósdóttir.
Guðmundur Guðnason590
Túnbraut 7 í byggingu. Húsið byggðu og bjuggu í Jón Pálsson og kona hans Björk Axelsdóttir með sínum börnum ásamt föður Jóns og systur, Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) og Eddu Pálsdóttur. Jón tók við sem skólastjóri Höfðaskóla af föður sínum Páli þegar hann lét af störfum.
Guðmundur Guðnason776
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson095
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu. Nær okkur sitja Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri við lestrarborðið. Stúlkan sem er með þeim við borðið er óþekkt. Við borðið fjær eru Ása Ósk Ásgeirsdóttir og Atli Þórsson upp við vegginn en aðrir eru óþekktir. Þau eru að vinna við íslensku-verkefna borðið.
umf Fram281
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í kringlukasti. Frá vinstri: Ari Arason, Helgi Björnsson og Ingibergur Guðmundsson.
Skagaströnd - safn469
Steindór Rúniberg Haraldsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018.
Skagaströnd - safn454
Sjötta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni voru í nefndinni 1958 - 1862.
Guðmundur Guðnason540
Mynd af Málfríði Jóhannsdóttur (Mallý) í Miðnesi 1 í jólakjólnum sínum. Myndin var tekin kringum 1960.
Ólafur Bernódusson098
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Myndin sýnir leik milli Blönduósinga og Skastrendinga og áhorfendur sem raða sér á hliðarlínuna.
umf Fram251
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru standandi frá vinstri Skagstrendingarnir: Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Ingibergur Guðmundsson fararstjóri, Sólveig Gunnarsdóttir og Soffía Guðmundsdóttir. Bergþór Þórisson frá Blönduósi krýpur fyrir framan.
umf Fram159
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd mælir Gunnar Sveinsson og Stefán Jósefsson ritar mælinguna. Aðrir á myndinni eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson á rauðum bol, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) í brúnni skyrtu. Pétur Arnar Pétursson er með hendurnar fyrir aftan bak og lengst til hægri er Guðmundur Kristinsson. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram210
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, tveir óþekktir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og maður hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Guðfinna Þorgeirsdóttir og maður hennar Kristinn Ágústsson og Guðmundur Jóhannesson.
Guðmundur Guðnason730
Systurnar frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir, Ólína Bjarnadóttir, Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir.
Guðmundur Guðnason608
Barnið er óþekkt en gæti verið Heimir Sigmarsson? Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason830

Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum

umf Fram157
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru frá vinstri: Stefán Jósefsson, Adolf H. Berndsen, Guðmundur Haukur Sigurðsson með gjallarhorn og Gunnar Sveinsson.
Guðmundur Guðnason740
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðmundur Guðnason890
Þessi mynd af Unni Sólveigu Björnsdóttur var tekin 1963.
Guðmundur Guðnason857
Fermingarsystur árið 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri: Árný Viggósdóttir frá Gunnarshólma, sem var alin upp í Höfðabergi af Júlíusi Árnasyni og Steinunni Guðmundsdóttur. Til hægri er Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum.
umf Fram275
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 3000 metra hlaup. Frá vinstri: Óskar Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson og Sigurður Ingi Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason884
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi árið 1963. Verksmiðjan er nú horfin og komin íbúðabyggð í staðin á svæðinu.
Guðmundur Guðnason616
Myndin var tekin í fermingarveislu Ómars Þorbjörnssonar frá Akurgerði í maí 1960. Standandi frá vinstri: Ómar Þorbjörnsson og Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk. Sitjandi frá vinstri: Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórsmörk, Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) Þórsmörk, Óli Albertsson frá Keldulandi (þá í Akurgerði) og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) frá Akri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn025
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á myndinni er kynningarstandur fyrir utan Laugardagshöllina.
Skagaströnd - safn465
Sautjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2002 - 2006.
Guðmundur Guðnason840
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason018
Þessir tveir garpar eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason908
Kynnir á hestamannmóti í Húnaveri 1964 les upp og fólk fylgist grannt með. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bydg[1]

Hér sjást húsin í útbænum. Ljósmyndarinn er óþekktur en myndin var sennilega tekin á árunum fyrir 1960. Eftirtektarvert er að á myndinni er ekki bíll við hvert hús eins og er í dag. Bankastræti sést lengst til vinstri og húsin nær Höfðanum eru, talið frá vinstri: Fjárhús sem tilheyrðu Flankastöðum, Höfðabrekka, Bjarnarhöfn og fjær (með grænu þaki) Höfðakot með sambyggðri hlöðu og yst er svo Höfðaberg. Hinum megin við Bankasrætið þ.e. nær okkur á myndinni eru frá vinstri: Höfðaborg, Flankastaðir, Kárastaðir og Stórholt. Fjær okkur á myndinni, við núverandi Skagaveg eru, talið frá hægri: Héðinshöfði, en yfir enda þess sér í Gunnarshólma (Grafarbakka), Þórsmörk er norðan við Héðinshöfða en yfir Þórsmörk sér í Bjarmaland. Fjárhús og hjallur tilheyrandi Þórsmörk ber svo í Þórshamar sem er með grænu þaki en Skálholt kemur síðast með ryðrauðu þaki. Langt í burtu sést svo Ásholt hjá Ásholtshólnum.

umf Fram235
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á námskeiðinu hjá þeim. Frá vinstri: Guðrún Berndsen, Ástmar Kári Ástmarsson, óþekktur, Kristinn Guðmundsson og Grétar Smári Hallbjörnsson.
Skagaströnd - safn458
Tíunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann var stofnaður 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1974 - 1978.
Guðmundur Guðnason002
Þetta er Klemensína Karitas Klemensdóttir (d.12.6.1966) húsfreyja á Vesturá og Hvammi í Laxárdal en síðast í Ægissíðu á Skagaströnd.
umf Fram259
Lára Guðmundsdóttir og Axel Jóhann Hallgrímsson voru stigahæstu einstaklingar Fram á héraðsmóti í sundi 13. ágúst (1976?). Lið Fram vann bikarinn, sem þau halda á milli sín, á mótinu.
Guðmundur Guðnason716
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti.
umf Fram183
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), ræðu í afmælinu.
Guðmundur Guðnason667
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Þröngt setinn bekkurinn. Að áti loknu voru borðin færð til svo pláss myndaðist til að dansa á miðju gólfi.
Guðmundur Guðnason924

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni. Ef myndin er skoðuð vel sést einn keppandi vera að ljúka stökki sínu og næsti keppandi er tilbúinn efst í brekkunni. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

umf Fram192
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd búast til brottfarar að afmælishófinu loknu, frá vinstri: Jón Pálsson, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Björk Axelsdóttir. Aftan við Önnu sér í mann hennar, Bernódus Ólafsson.
Ólafur Bernódusson211
Á myndinni er verið að leggja bundið slitlag á veginn milli Skagastrandar og Blönduóss 1987. Vegagerðin ætlaði ekki að leggja á veginn alla en Skagstrendingur hf lánaði peninga til framkvæmdarinnar svo hægt væri að leggja á alla leið. Á myndinn sést brúin yfir Hrafná.
Guðmundur Guðnason607

Þetta fólk er óþekkt en stúlkan gæti verið ?Bergdís Sigmarsdóttir með Heimi Sigmarsson? bróður sinn í fanginu. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason822
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
umf Fram285
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd keppir Hafþór Gylfason í hástökki. Áhorfendur fylgjst spenntir með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 159
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með Silfá Sjöfn Árnadóttur í fanginu á stéttinni við Fellsbraut 5. Fjær er móðir Silfár, Herdís Jakobsdóttir, að bauka við grillið.
Skagaströnd - safn457
Níunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann varð til 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1970 - 1974.
1

47
48
49

167
Leita í myndasafninu
Leita