Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram184
<P>Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri ræðu í afmælishófinu.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 159
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með Silfá Sjöfn Árnadóttur í fanginu á stéttinni við Fellsbraut 5. Fjær er móðir Silfár, Herdís Jakobsdóttir, að bauka við grillið.
umf Fram159
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd mælir Gunnar Sveinsson og Stefán Jósefsson ritar mælinguna. Aðrir á myndinni eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson á rauðum bol, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) í brúnni skyrtu. Pétur Arnar Pétursson er með hendurnar fyrir aftan bak og lengst til hægri er Guðmundur Kristinsson. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn471
Adolf H. Berndsen sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd um árabil þar á meðal kjörtímabilið 2014 - 2018 og þá sem oddviti.
Guðmundur Guðnason561
Ólöf Una Jónsdóttir með dýrum í Ártúnum. Hólahornið og Svartárbrú í baksýn. Veiðikofi var á þessum tíma í norðan við túnið í Ártúnum (til hægri á myndinni).
Guðmundur Guðnason780
Óþekktur drengur (?Guðjón Árnason í Ásgarði?). Myndin var sennilega tekin 1969. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram209
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru í forgrunni, frá vinstri: óþekkt, Elín Njálsdóttir, óþekkt, Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir. Við háborðið má þekkja Pál Jónsson (d. 19.7.1979) og Unni Gunnarsdóttur. Við borðið til vinstri sitja Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), inn í horni með gleraugu, og Bjarney Valdimarsdóttir, sem horfir í átt að myndavélinni.
Ólafur Bernódusson084
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Höskuldur Bragi Bragason, Jóhanna Sveinsdóttir, Erlingur Ottósson, Atli Þórsson, Björn Hallbjörnsson (með derhúfu), Jón Arnarson, óþekktur, Bylgja Bára Bragadóttir, tveir óþekktir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Arnar Arnarsson, óþekktur, Gunnar Ásgeirsson og Katrín Sigurjónsdóttir.
umf Fram172
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd er Hjörtur Guðmundsson að stökkva þrístökk. Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) heldur í málbandið tilbúinn að mæla stökklengdina hjá Hirti. Guðmundur Haukur Sigurðsson, lengst til vinstri, fylgist með hvernig gengur. Sama gerir Kristjana Jónsdóttir sitjandi í horninu til vinstri.
Guðmundur Guðnason782
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd 1969. Gömlu búningsklefarnir eru enn í notkun og byggingin til vinstri var stór kyndiklefi. Maðurinn lengt til vinstri, með hattinn, er Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) frá Sunnuhvoli að taka tíma. Næst honum er Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála einnig í tímatöku. Stúlkan næst Karli er Sesselja Guðmundsdóttir. Maðurinn fyrir miðri mynd með bindi er Steindór Haraldsson úr Höfðakoti og Lárus Ægir Guðmundsson sundkennari með meiru er í hvítri skyrtu við tímatökuna. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson071
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á myndinni kynnir Valdimar Númi Hjaltason skemmtiatriði bekkjarins sem hann var í.
umf Fram144
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd þjóta af stað frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Kolbrún Ragnarsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, óþekkt, Salóme Rúnarsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Íris Jóna Gunnarsdóttir. Lárus Ægir sést í baksýn með dökk gleraugu.
Skagaströnd - safn453
Fimmta hreppsnenfd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1954 - 1958.
Guðmundur Guðnason548
Systkynin í Straumnesi. Frá vinstri: Búi Þór Birgisson (d. 18.9.2009), Eyrún Birgisdóttir og Árni Björn Birgisson.
umf Fram173
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru fræknar íþróttakonur úr umf Fram. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Þórhildur Jakobsdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Birna Sveinsdóttir.
umf Fram179
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari mynd, sem tekin var fyrir utan Kántrýbæ að móti loknu, eru keppendur og starfsmenn. Talið frá vinstri: Karl Lúðvíksson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), óþekkt, hollenskur íþróttaþjálfari - nafn óþekkt, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), Gunnar Sveinsson, Ingibergur Guðmundsson, Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008), Þorleifur Arason (d. 11.11.1991), Sveinn Ingólfsson, ?Jón Bjarnason frá Ási?, Ingibjörg Kristinsdóttir (framar), Helga Guðmundsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Anna Skaftadóttir, Jón Arason, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) (framar), Pálmi Jónsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Sigurður Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason772
Sólheimar kringum 1970. Þá bjuggu þar Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) og Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979) og þar ólust upp börn þeirra Jón Ingi, Árni Björn og Elínborg.
Guðmundur Guðnason914
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd má sjá stökkpallinn sem sennilega mundi ekki standast kröfur dagsins í dag um slík mannvirki. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
Guðmundur Guðnason910
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
umf Fram256
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd kastar Soffía Guðmundsdóttir úr Fram á Skagaströnd kúlu.
umf Fram261
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd stekkur Lára Guðmundsdóttir langstökk. Hinrik Jóhannesson heldur í málbandið og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bíður tilbúinn að skrá árangurinn. Maðurinn í brúnu buxunum með derhúfuna er Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) frá Kárastöðum, Axel Jóhann Hallgrímsson heldur á málbandinu fyrir aftan bak og lengst til hægri er Eðvarð Hallgrímsson með hrífu tilbúinn að slétta sandinn eftir stökkið. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram188
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd flytur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) félaginu frumsamið ljóð.
Guðmundur Guðnason044
Þessir tveir vinir eru óþekktir. Ef þú veist hverjir þeir eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram225
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi. Í fremstu röð eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ólafur Bernódusson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Björk Axelsdóttir, Jón Pálsson og Elísabet Árnadóttir (Bebbý). Milli Bjarkar og Jóns sér í Soffíu Lárusdóttur og til hægri við Soffíu á myndinni er Þórdís Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason576
Þessi Jarðýta þótti valda byltingu í jarðvinnslu þegar hún kom til Skagastrandar. Viggó Brynjólfsson átti ýtuna en löngu seinna eignaðist Gunnar Albertsson hana og síðan endaði hún lífdaga sína hjá Jakob Guðmundssyni á Árbakka. Í baksýn á myndinni eru fjárhús og hlaða undir Hólabergjunum til vinstri en yfir tönn ýtunanar sér í sænska húsið og til hægri er Röðulfell og einhver útihús.
Guðmundur Guðnason672
Óþekktur bær einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar. Myndin var tekin 15. júní 1968. Ef þú veist hvaða staður þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram219
Unglingamót USAH var haldið 7. og 8. ágúst 1976 á Blönduósi. Á þessari mynd eru afreksunglingar mótsins. Standandi frá vinsri: Kristinn Guðmundsson, Guðrún Berndsen, Sigríður Friðriksdóttir og Þórður Daði Njálsson. Krjúpandi frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir og Axel Gígjar Ásgeirsson.
Guðmundur Guðnason637
Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum spilar á harmoniku í Húnaveri. Hinn maðurinn er Haraldur Karlsson bóndi og smiður frá Litladal. Þeir félagar gætu verið að skemmta með gamanvísnasöng.
umf Fram282
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er verið að afhenda verðlaun fyrir langstökk. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Einar Einarsson og Karl Lúðvíksson.
Ólafur Bernódusson082
Grímubúnir drengir á öskudaginn 1983 fyrir utan Bogabraut 24 (Asparlund). Frá vinstri: Óþekktur, Ægir Jónsson, Viggó Magnússon og Halldór Gunnar Ólafsson.
Skagaströnd - safn466
Átjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2006 - 2010. Árið 2007 var nafni sveitarfélagsins breytt í: Sveitarfélagið Skagaströnd. Magnús Jónsson var ekki kjörinn fulltrúi heldur ráðinn sveitarstjóri.
Guðmundur Guðnason030
Engu er líkara en þessi óþekkti knapi sé að spjalla við folaldið á myndinni. Ef þú veist hver knapinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason734
Þorvaldur Skaftason frá Dagsbrún á fermingardeginum sínum 1963.
Guðmundur Guðnason832
<P>Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum.</P>
Guðmundur Guðnason888
Allmiklar breytingar hafa orðið á Skólavörðuholtinu síðan þessi mynd var tekin árið 1963. Hún sýnir styttuna af Leifi Eiríkssyni - Leifi heppna en í baksýn er Hallgrímskirkja að rísa.
Guðmundur Guðnason661
Bræður frá Vík spila sennilega á þorrablóti í gömlu Tunnunni. Hallbjörn Hjartarson til vinstri leikur á trommur og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri spilar á harmoniku.
Guðmundur Guðnason634
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason016
Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) frá Ægissíðu með sonarson sinn, Hún Snædal. Myndin var líklega tekin þegar Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983), sonur Klemensínu, giftist Hólmfríði Magnúsdóttur (d. 6.7.2013) frá Syðra-Hóli.
Guðmundur Guðnason690
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn til hægri, sem snýr baki í myndavélina, er Lárus Árnason (d.21.5.2011) frá Ási. Aðrir eru óþekktir en konan lengst til vinstri gæti verið ? Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti.
Guðmundur Guðnason748
<P>Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálfsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu. Gaman getur verið fyrir Skagstredninga að stækka þessa mynd eins og hægt er og reyna að átta sig á andlitunum í áhorfendahópnum. Hver veit nema þeir finni sjálfan sig í hópnum eða einhvern sér nákominn?</P><br><P> </P>
Skagaströnd - safn461
Þrettánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1986 - 1990.
umf Fram153
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd eru stúlkur um það bil að leggja af stað. Stelpurnar eru frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason543
Þrjár systur úr Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) dætur Bjarna Loftssonar og Fanneyjar Jónsdóttur. Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir , Anna Bjarnadóttir og Ólína Bjarnadóttir
umf Fram215
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spilar Kristján Blöndal á flygil.
Guðmundur Guðnason619
Ægissíða var heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Þar bjó hann ásamt foreldrum sínum. Húsið er nú horfið en það stóð rétt sunnan við Réttarholt, neðan við götuna.
Skagaströnd - safn464
Sextánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1998 - 2002.
Guðmundur Guðnason671
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún til vinstri heilsar upp á óþekktan vin sinn Hermann frá Móum í Fljótum einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar 15. júní 1968.
Guðmundur Guðnason704
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, tveir óþekktir leikarar, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, óþekktur, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti og Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka. Þeir sem krjúpa fyrir framan eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á óþekktan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason014
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir nema maðurinn hægra megin uppi í bátnum er Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) fá Holti. Sjá má einkennisstafina ST á bátnum sem nær lengst til vinstri. Ef þú þekkir mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason800
Kristján Arinbjörn Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Vík oft kenndur við Grund sem hann átti og þar sem hann bjó mjög lengi.
Ólafur Bernódusson180
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Þórunn Óladóttir, óþekkt, Sylvía Hrólfsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, óþekkt, Guðbjörg Kristinsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, þrjár óþekktar, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Björn Ingi Óskarsson.
umf Fram194
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þrír miklir unmennafélagsmenn sem komnir eru á efri ár. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) frá Breiðabliki, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti og bróðir hans Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Norður Skála.
umf Fram139
Stefán Ægir Lárusson stekkur hástökk á íþróttamóti á Blönduósi seint á áttunda áratugnum. Frakkaklæddi starfsmaðurinn er Ragnar Jónsson frá Asparlundi.
Guðmundur Guðnason010
Ekkert er vitað um þessa mynd né næstu mynd (nr. 3915) sem tekin er á sama stað en af öðrum mönnum. Ef þú veist hvar myndin er tekin eða hverjir eru á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Fótabúnaður mannanna bendir til að myndin tengist sjómennsku á einhvern hátt.
Guðmundur Guðnason600
Þessi mynd er sennilega tekin 1961. Myndin er úr Kálfshamarsvík og sýnir flota síldarbáta sem eru í vari við Kálfshamarsnesið.
Adolf H Berndsen - safn027
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlacius fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6.800 manns. Steindór R. Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á þessarri mynd sér í bakið á Ragnari frá Ragnarsbakaríi en hann bjó til botninn í pizzuna og forbakaði hann. Steindór fylgist með aðstoðarmönnum sínum úr kokkalandsliðinu dreifa álegginu jafnt yfir botninn. Rækja og skelfiskur voru uppistaðan í álegginu ásamt sósu og fleiru sem Steindór útbjó. Eftir því sem best er vitað er þetta eina heimsmetið sem Skagstrendingar eiga.
Ólafur Bernódusson137
Sundlaugin á Skagaströnd var endurvígð 31. ágúst 1986 eftir gagngerar endurbætur við mikinn fögnum - einkum yngri kynslóðarinnar. Drengurinn með sundgleraugun er Jósef Stefánsson en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson132
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn462
Fjórtánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1990 - 1994.
Guðmundur Guðnason798
Guðmundur Guðnason (21.11.1988) frá Ægissíðu til vinstri og Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) frá Akurgerði til hægri.
1
…
48
49
50
…
167
Leita í myndasafninu
Leita