Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram279
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), stökkstjóri mótsins, niðursokkinn í pappírana sína.
Guðmundur Guðnason636
Guðrún Sigurjónsdóttir frá Brandsstöðum með brúðuna sína.
Guðmundur Guðnason894
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir bara hluta söngmannanna.
Ólafur Bernódusson264
Báturinn á myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Þórir var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffæran. Mennirnir á myndinni eru Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar til vinstri og eigandi bátsins Matthías Ingibergsson til hægri.
Guðmundur Guðnason859
Snjór í útbænum. Húsin eru frá vinstri: Þórshamar, Skálholt, Höfðaberg, Steinholt, Valhöll, Sólheimar (eldri) og fjárhúshlaða. Höfðaberg, Valhöll, Sólheimar og fjárhúshlaðan hafa nú öll verið rifin.
umf Fram161
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd kastar Ingibergur Guðmundsson kringlu.
Guðmundur Guðnason666
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Allir eru að fylgjast með einhverju skemmtiatriði á sviðinu. Lengst til vinstri er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í Stórholti (Bankastræti 3). Fyrir miðri mynd situr Júlía Hrefna Viggósdóttir frá Gunnarhólma (Grafarbakka) og styður hægri hönd undir kinn. Sigurður Kristjánsson frá Björgum er næstur ásamt systur sinni ?. Fremst á myndinni til hægri er Jóna Guðjónsdóttir og lengst til hægri er Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) frá Hólanesi. Aftast, næst dyrunum, stendur Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012) frá Harrastöðum Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram218
Unglingamót USAH var haldið 7. og 8. ágúst 1976 á Blönduósi. Á þessari mynd eru þeir keppendur frá umf. Fram sem stóðu sig best á mótinu. Frá vinstri: Guðrún Berndsen, Kristinn Guðmundsson, Soffía Guðmundsdóttir systir hans og Sólveig Gunnarsdóttir.
umf Fram140
Gunnar Halldór Hallbjörnsson stekkur hástökk á íþróttamóti á Blönduósi seint á áttunda áratugnum. Frakkaklæddi maðurinn er Ragnar Jónsson frá Asparlundi. Hinn maðurnn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson214
Að lokinni slysavarnaæfingu hjá Björgunarsveitinni í nóvember 1987. Hér hafa félagar í sveitinni stillt sér upp til myndatöku utan við Bjarnaborg, sem þá var hús sveitarinnar. Á myndinni eru frá vinstri: Davíð Reynisson, Sigurjón Ástmarsson, Árni Geir Ingvarsson, Gísli Snorrason, Ástmar Kári Ásmarsson, Frits Hendrik Berndsen, Helgi Gunnarsson, Margrét Ólafsdóttir, Birna Sveinsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Magnús Sigurðsson og Jóhannes Sveinsson. Helgi, Margrét, Birna og Magnús klæðast "Hannes original" sem var appelsínugulur anorak með góðum vasa framan á nefndur eftir Hannesi Þ. Hafstein sem lengi var framkvæmdastjóri og forstjóri Slysavarnafélags Íslands. Árni Geir, Gísli, Kári og Hendrik eru í þurr-björgunarbúningum sem notaðir voru af þeim sem voru um borð í Þórdísi, sem var björgunarbátur sveitarinnar.
Guðmundur Guðnason851
Baldursheimur er fremst á myndinni, Vinaminni (Hólabraut 16 ) til hægri og Goðhóll til vinstri.
umf Fram207
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru í forgrunni, frá vinstri: Guðrún Ágústsdóttir, Jóna Björg Jónasdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Elín Jónasdóttir. Í baksýn má sjá Óskar Axelsson (með dökkt skegg) Ernst Berndsen (í blárri úlpu, horfir til hægri), Þorgerði Guðlaugsdóttur og Jón Hall Pétursson lengst til hægri. Aðrir eru óþekkir.
Ólafur Bernódusson157
<p>Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 kemur Jónas Fanndal Þorvaldsson fyrstur í mark í sínum flokki.</p>
Ólafur Bernódusson066
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Páll Jónsson frá Brandaskarði, Ársæll Ottósson og sennilega Guðmundur Óskarsson bakvið Ársæl. Lengst til hægri er Ingimar Oddsson.
Guðmundur Guðnason012
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en ef grannt er skoðað má sjá stafina EA á bógnum á bátnum en ekki er hægt að lesa töluna á eftir. Það bendir til að þessi mynd gæti verið tekin einhversstaðar í Eyjafirði. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari163
<p>Á þessari mynd er fjölskyldan frá Mánaskál í Laxárdal ásamt vinnumanni sínum. Frá vinstri: Jón Sigurðsson (d.20.9.1990), Lára Sigurðardóttir (d. 9.12.2008), óþekkt, Óskar Eiríksson (vinnumaður) (d. ?), Sigurður Jónsson, Sigurður Valdemarsson og systir hans Guðrún Áslaug Valdemarsdóttir (börn Sigurbjargar Sigurðardóttur og Valdemars Guðbjartssonar), Sigurbjörg Sigurðardóttir (d. ?), Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og Sigurður Jónsson (d. 11.1. 1968). Myndin var tekin í ágúst 1946 en þá dó amma þeirra systkinanna, Sigurðarbarna, Guðrún Björnsdóttir (d. 28.8.1946)</p>
umf Fram238
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á því námskeiði af Þórdísi Sigurðardóttur í ræðustól.
umf Fram217
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd tekur Guðmundur Haukur Sigurðsson þáverandi formaður Fram, til vinstri, við gjöf úr höndum Magnúsar Ólafssonar frá Sveinsstöðum, þáverandi formanns USAH.
Ólafur Bernódusson191
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er slökkviliðið komið á staðinn og byrjað að berjast við eldinn. Til hægri sér í stafninn á Barnabóli.
Óþekktur ljósmyndari149
Kántrýbær eftir endurbyggingu í kjölfar bruna. Útvarp Kántrýbær er á hluta efri hæðarinnar en veitingasala og samkomusalur á neðri hæðinni.
Óþekktur ljósmyndari161
Á þessari mynd er hluti af fjölskyldunni frá Mánaskál í Laxárdal. Frá vinstri: Óskar Eiríksson (kaupamaður)(d. ?), Jón Sigurðsson(d. 20.9.1990), Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Valdemar Guðbjartsson (maður Sigurbjargar Sigurðardóttur) , Sigurður Jónsson, Sigurður Valdemarsson, Guðrún Áslaug Valdemarsdóttir (nær), Lára Sigurðardóttir (d. 9.12.2008) (fjær), Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968) og Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002). Myndina tók Sigurbjörg Sigurðardóttir í ágúst 1946.
Guðmundur Guðnason732
Guðmundur Jón Björnsson frá Jaðri á fermingardeginum sínum 1963. Myndin var tekin í gömlu Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason004
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu hefur brugðið sér á ókunna ljósmyndastofu með bestu "vinkonu" sína í fanginu einhverntíma kringum 1945.
umf Fram254
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd er Sólveig Gunnarsdóttir úr Fram á efsta palli. Hinar stúlkurnar veru óþekktar.
umf Fram214
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spila systkinin Rannveig Jónsdóttir og Þorlákur Axel Jónsson fjórhent á flygilinn.
umf Fram193
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spjalla saman þeir Jón Pálsson til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frammi í andyri Fellsborgar. Milli þeirra má sjá Karl Guðmundsson.
umf Fram255
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd býr Guðbjörg Gylfadóttir úr Fram á Skagaströnd sig undir að varpa kúlu. Guðbjörg varð síðar margfaldur Íslandmeistari í kúluvarpi kvenna og átti Íslandsmet í greininni í mörg ár.
Óþekktur ljósmyndari153
Hópur eldri borgara frá Gerðubergi heimsótti Skagaströnd 5. júní 2000. Kórinn þeirra söng meðal annars afmælissönginn fyrir Hallbjörn Hjartarson við Kántrýbæ en Hallbjörn átti einmitt afmæli þennan dag. Á myndinni er Hallbjörn til hægri, með blómvönd, að hlíða á sönginn.
Ólafur Bernódusson109
Hér æfir Fritz Hendrik Berndsen sig á seglbretti í höfninni á Skagaströnd árið 1986.
Guðmundur Guðnason040
Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) frá Ægissíðu. Myndina tók Jón Kaldal en Pálmi sendi Guðmundi bróður sínum hana heim að Vesturá í Laxárdal með eftirfarandi áletrun: "Kaldal er ekki búinn með skólaspjaldið ennþá. Ég sendi þér þessa mynd. Pálmi Guðnason".
Guðmundur Guðnason848
Þessi götumynd er orðin mikið breytt vegna bygginga sem risið hafa eftir að myndin var sennilega tekin um miðjan sjöunda áratuginn. Lengst til vinstri er Bræðraborg (Sólarvegur 16) þá kemur Sólarvegur 14 og til hægri er Sunnuhvoll ( Sunnuvegur 1). Lengi bjuggu í Bræðraborg systkini frá Kambakoti þau Stefán (d. 2.1.1988), Jón (d. 3.8.1991), Margrét og Þórunn Stefánsbörn. Þórunn bjó á neðri hæðinni með manni sínum Kristni Guðmundssyni (1.12.1986) og fjórum börnum þeirra. Á Sólarvegi 14 bjuggu Viggó Brynjólfsson og Ardís Ólöf Arelíusdóttir ásamt sínum sjö börnum en seinna fluttu í húsið Ólafur Guðmundsson og Guðmunda Sigurbrandsdóttir með fjögur börn. Sunnuhvol byggðu hjónin Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) og Jóninna Pálsdóttir og bjuggu þar með dóttur sinni. Seinna bjuggu þar Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir með þremur sonum sínum.
Guðmundur Guðnason032
Óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason896
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason900
Myndin var tekin inni í Hólaneskirkju eldri. Fyrir dyrum er útför óþekkts einstaklings.
umf Fram274
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd stillir Eðvarð Hallgrímsson rána fyrir stangarstökkskeppnina. Hinrik Jóhannesson hjálpar til en Karl Lúðvíksson, keppandi, bíður eftir að röðin komi að honum.
Guðmundur Guðnason806
Hofskirkja í Skagabyggð.
Guðmundur Guðnason918
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Óþekkti keppandinn á myndinni svífur fram af pallinum og leggur sig allan fram um að ná sem lengstu stökki. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
umf Fram269
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í hástökki. Frá vinstri: Hulda Agnarsdóttir, Guðrún Berndsen og Sólveig Gunnarsdóttir.
umf Fram182
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd er þáverandi formaður félagsins Guðmundur Haukur Sigurðsson með afmælisskjöld sem félaginu var færður við þetta tækifæri.
Guðmundur Guðnason756
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup predikar í Akureyrarkirkju í október 1969.
Guðmundur Guðnason758
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum árið 1969.
umf Fram152
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd eru stúlkur að gera sig tilbúnar að hjóla af stað. Frá vinstri á ráslínunni eru: Guðný Finnsdóttir, Írena Rúnarsdóttir, ?Sandra Ómarsdóttir?, tvær óþekktar stúlkur, Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekkt og óþekktur strákur. Aftan við hjólastúlkurnar til vinstri standa og spjalla, frá vinstri: Arnar Arnarsson, Sigurjón Karlsson, Sigurbjörn Kristjánsson, óþekktur, Jón Arnarson og Stefán Jósefsson.
umf Fram155
Verðlaunahafa eftir íþróttamót á Blönduósi. Frá vinstri: Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Guðmundur Ragnarsson (Muggi) og Þröstur Ingvason.
Guðmundur Guðnason902
Klemensína K. Klemensdóttir (d. 12.6.1966), móðir Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988), sem tók þessa mynd á heimili þeirra í Ægissíðu.
Ólafur Bernódusson114
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) reri stundum til fiskjar að gamni sínu og til að ná sér í fisk í soðið. Almennt voru þorskarnir sem hann dró ekki eins stórir og þessi sem mældist 140 cm á lengd og vó 38 kg. Þorskinn fékk Skafti í róðri vorið 1986. Jónas Fanndal Þorvaldsson, sem stendur vinstra megin við þorskinn, er afabarn Skafta og á myndinni er hann 10 ára gamall. Stúlkan hægra megin er Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) en hún var 11 ára þegar myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson193
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er Guðmundur Ólafsson slökkviliðsmaður að kanna hvort einhversstaðar leynist glóð. Guðmundur veður vatn í ökla á gólfinu.
Ólafur Bernódusson250
Óskar Þór Óskarsson í febrúar 1988.
umf Fram195
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) í afmælishófinu.
umf Fram294
Dagana 4. og 5. september 1976 var haldið Norðurlandsmót í frjálsum íþróttum á Akureyri. USAH sendi sína sterkustu íþróttamenn á mótið. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson á verðlaunapalli en hann náði 3. sætinu í spjótkasti. Maðurinn í fyrsta sæti var Sigfús ? frá HSÞ.
Guðmundur Guðnason862
Læknisbústaðurinn (Bogabraut 7) í byggingu,. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65. Húsið átti að þjóna sem íbúð fyrir lækni og sem heilsugæsla.
Guðmundur Guðnason034
Þessi knapi er óþekktur en myndin var tekin norðan við bæinn Hvamm í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason916
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd sýnir óþekktur keppandi góðan stíl í skíðastökkinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
Ólafur Bernódusson099
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd býr Björn Sigurðsson sig undir að skjóta á markið hjá andstæðingunum frá Blönduósi. Skagstrendingarnir auglýstu Casita fellihýsi á búningum sínum en þau flutti Hallbjörn Hjartarson inn og var þannig einn af frumkvöðlunum í að kynna fellihýsi fyrir Íslendingum.
Ólafur Bernódusson063
Haldið var körfuboltamót á Húnavöllum um jólin 1982. Þar kepptu að gamni sínu lið frá Hvöt, Fram og Geislum. Þessi mynd var tekin í leik Fram og Hvatar. Fannar Viggósson Fram hefur tekið skot á körfuna og Hvatarmenn fylgjast spenntir og tilbúnir með.
Guðmundur Guðnason792
Hjónin Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002) og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) verksmiðjustjóri, sem bjuggu að Bogabraut 9.
umf Fram272
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd sjást tímaverðir að störfum ásamt fleira fólki. Frá vinstr: tveir óþekktir, Valgerður Guðmundsdóttir, í rauðri úlpu, svo koma þrír óþekktir, þá Sigurður Guðmundsson, Adolf H. Berndsen, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), sem krýpur, Rúnar Loftsson, óþekkt, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Guðmundur Haukur Sigurðsson og þrír óþekktir.
umf Fram180
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari mynd, þar sem Gunnar Sveinsson stekkur langstökk, sést vel hinn létti andi sem var á mótinu. Fólkið á myndinni er talið frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson (krjúpandi), Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur drengur, Sigríður Gestsdóttir, Gunnar, Valgerður Guðmundsdóttir, Jón Gunnar Jósefsson (aftar), Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000), óþekktur, Karl Lúðvíksson, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988), óþekktur, Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Pálmi Jónsson, óþekktur og Hjörtur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram292
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Ingibergur Guðmundsson spjóti en hann sigraði í spjótkastskeppninni á mótinu. Ernst Berndsen til vinstri og Sigurjón Ingólfsson fylgjast með.
Ólafur Bernódusson128
Sumarið 1986 dældi dæluskipið Hákur sandi úr höfninni til að dýpka hana. Sandinum var dælt vestur fyrir verksmiðju og þannig búin til uppfylling. Hvítu rörin lágu frá höfninni upp í olíutankana við og á Höfðanum.
Ólafur Bernódusson074
Dansað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Ungu mennirnir fyrir miðri mynd eru Ægir Jónsson til vinstri og Óskar Hjaltason til hægri. Aðrir eru óþekktir.
1
…
50
51
52
…
167
Leita í myndasafninu
Leita