Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson077
Mynd frá diskóteki í Höfðaskóla 1983. Þarna er verið að dansa "ásadans" en þá er dansgólfinu skipt í fjóra reiti og þeir merktir ásunum fjórum. Síðan fara allir út á gólfið en tónlistin er stöðvuð óvænt og þá verður fólk að vera kyrrt í þeim reit sem það er í þegar tónlistin stoppar. Þá er dreginn út einn ás og þeir sem eru í viðkomandi hólfi eru dæmdir úr leik. Síðan er þetta endurtekið þar til einungis eitt par stendur uppi sem sigurvegari. Krakkarnir á myndinni eru greinilega úr leik og verða að draga sig til hliðar. Frá vinstri: Gunnar Ásgeirsson, Hólmgeir Kristmundsson, Hólmfríður Oddsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Sveinsson, óþekkt, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Anna Þóra Birgisdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
umf Fram203
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd sést háborðið í afmælishófinu. Frá vinstri á myndinni eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigurður Guðmundsson, Sigríður Gestsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og konan hans Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992).
Ólafur Bernódusson075
Hressir ungir menn á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Sá með húfuna er Björn Hallbjörnsson en hinn er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason870
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason026
Myndin sýnir reiðskjóta tvegga tíma, hestinn og vélhjólið. Hjá reiðskjótunum stendur Ólafur Bjarnason (d. 6.10.1959) frá Stafni sem var hagyrðingur og skemmtikraftur. Róbert Snædal gerir Ólafi góð skil í bókum sínum.
umf Fram177
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd stekkur óþekktur keppandi (?Hafþór Gylfason?) þrístökk. Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) heldur í málbandið. fjær standa hjónin Anna Bára Sigurjónsdóttir og Karl Lúðvíksson (á stuttbuxum), Fannar Viggósson er í hvítri peysu og svo sér í Guðmund Hauk Sigurðsson með sólgleraugu til vinstri. Hægra megin bíður Hjörtur Guðmundsson eftir að röðin komi að honum.
umf Fram268
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd verið að veita verðlaun fyrir 400 metra hlaup. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Hulda Agnarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason778
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu tók þessa mynd af frægum íþróttafréttamanni, Sigurði Sigurðssyni í sjónvarpinu árið 1969. Guðmundur tók allmikið af myndum af fólki á sjónvarpsskjánum á þessum fyrstu árum sjónvarps á Íslandi. Þessi mynd er sýnishorn af slíkum myndum eftir hann.
Ólafur Bernódusson321
Pétur Eggertsson hafði forgöngu að stofnun Rauða kross deildar á Skagaströnd. Bíllinn á myndinni er fyrsti sjúkrabíllinn sem deildin eignaðist 1989. Pétur fjármagnaði kaupin á honum sjálfur.
Ólafur Bernódusson283
Í júlí 1989 slasaðist Heimir Guðmundsson við vinnu sína úti á sjó. Lítill bátur var fenginn til að sækja Heimi og á þessari mynd er hann að stíga í land með umbúðir á andlitinu. Á myndinni eru auk Heimis, Jóhannes Sveinsson til vinstri í bátnum og Hendrik Berndsen til hægri. Árni Geir Ingvarsson fylgist með á bryggjunni ásamt Þórdísi Sigurðardóttur konu Heimis. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
umf Fram239
Haldin var sýslukeppni þriggja héraðssambanda, Þristurinn, í frjálsum íþróttum, milli USAH, USVH og UMSS, við Reykjaskóla í Hrútafirði 29 ágúst (1976?). Á þessari mynd stekkur Ingibergur Guðmundsson úr USAH langstökk.
umf Fram199
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum í forgrunni. Aftan við þau má sjá Kristinn Guðmundsson sem snýr baki í myndavélina, Ástmar Kára Ásmarsson, Þórdísi Sigurðardóttur og Sólveigu Gunnarsdóttur. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram170
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd Kastar Sigríður Gestsdóttir kringlu. Guðmundur Haukur Sigurðsson í hvítri blússu, Vilhelm Jónsson í rauðum galla og Þorleifur Arason (d. 11.11.1991) fylgjast með.
Ólafur Bernódusson266
Báturinn á miðri myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 þ.e. bara skelin ófrágengin. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Á þessari mynd er verkinu um það bil lokið og báturinn að verða tilbúinn til að hefja veiðar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 41
Á myndinni eru systkinin Bára Þórðardóttir og Hafsteinn Þórðarson, börn Pálínu Hafsteinsdóttur (d.22.7.2008) frá Reykholti og Þórðar Kristjánssonar (d.30.6.1991). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson307
Skólastjórnendur Höfðaskóla á óformlegum fundi í nóvember 1989. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til hægri.
umf Fram160
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd tekur Adolf H. Berndsen þátt í kringlukasti. Yfir höfuð Adolfs grillir í Stefán Jósefsson.
Ólafur Bernódusson158
Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 eru stúlkur að fá verðlaun sín. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson, óþekktur, Ragna Gunnarsdóttir, Þóra Ásgeirsdóttir, óþekkt, Viktor Pétursson, Árni Max Haraldsson, Guðbjörg Ólafsdóttir sem snýr baki í myndavélina, Þóra Ásgeirsdóttir og Berglind Karlsdóttir.
umf Fram198
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) Litla Bergi í forgrunni. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason702
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, tveir óþekktir leikarar og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9). Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari160
Á þessari mynd er hluti fjölskyldunnar frá Mánaskál í Laxárdal. Frá vinstri: Sigurbjörg Sigurðardóttir(d. ?), Jón Sigurðsson (d. 20.9.1990), Lára Sigurðardóttir (d. ?), Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002), Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og svo faðir þeirra Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968).
umf Fram273
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru tímaverðir að bera saman klukkurnar og skrá tíma. Drengurinn lengst til vinstri er Hendrik Berndsen en yfir hann sést Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012). Maðurinn í ljósa jakkanum er Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) og í miðjum hópnum er Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Til vinstri við höfuð hans sér í Birgir Þórbjarnarson en til hægri sér í Lárus Jónsson. Rauðhærði maðurinn til hægri er Ingibergur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson089
Starfsmenn og gestir í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83 samankomnir í tilefni skírnar á nýsmíðinni Laxdal NS 110. Lengst til vinstri eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) sem flytur ræðu af blaði.
Ólafur Bernódusson411
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér fá nemendur 4. bekkjar afhenta vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Jón Haukdal Þorgeirsson, Jóhannes Villiam Grétarsson, Bryndís Axelsdóttir, Eiður Örn Þórsson, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson, Linda Hafdal og Gunnar Borg Jónsson.
umf Fram211
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru fremst tvær óþekktar konur. Við borðið sitja, frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Þorlákur Axel Jónsson, Georg Ottó Georgsson, óþekktur, Páll Jónsson, Jósef Sigurðsson og óþekktur (?Grétar Smári Hallbjörnsson?). Aftan við Georg stendur Lára Guðmundsdóttir. Fjær má sjá, frá vinstri: Skafta Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristinn Ágústsson og Guðmund Jóhannesson.
umf Fram257
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd tekur Sólveig Gunnarsdóttir úr Fram á Skagaströnd þátt í kúluvarpi.
umf Fram222
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Björk Axelsdóttir í ræðustól en til hliðar situr leiðbeinandinn á námskeiðinu Ólafur Oddsson.
Ólafur Bernódusson141
<P>Sýslað með nýsmíði frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf líklega 1986. Bátarnir í kring eru óþekktir.</P>
umf Fram237
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á því námskeiði. Frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, óþekktur, Stefán Þór Árnason, Sigurður Guðmundsson og Grétar Smári Hallbjörnsson.
umf Fram229
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd sést hluti þátttakendanna á Skagaströnd. Fremst frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Rúnar Loftsson, Elísabet Árnadóttir (Bebbý) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Í næstu röð eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Kristinn Guðmundsson og Jón Pálsson. Aftast eru svo: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), óþekkt, María Konráðsdóttir og Sigurður Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson299
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Meðal annars var rekið útvarp í kjallara Fellsborgar helgina sem afmælishátíðin stóð. Þessi mynd er úr útsendingarstofunni þar sem nóg er að gera. Frá vinstri á myndinni eru: Guðmundur Ólafsson, Ragnar Jónsson, Viggó Magnússon, Magnús B. Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson.
umf Fram150
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson (í hvítum jakka) að fara yfir reglurnar og hjólaleiðina með keppendum áður en þeir leggja af stað. Á myndinni eru frá vinstri: Bryndís Ingimarsdóttir, Jón Indriðason, Þráinn Bessi Gunnarsson, óþekktur, Sigurbjörn Kristjánsson, óþekkt barn, Páll Jónsson, Kristjana Jónsdóttir, Jón Arnarson, Hilmar Eðvarðsson, Ingibergur, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, óþekkt barn, Elísabet Hallbjörnsdóttir, fjögur óþekkt, Jóhanna Sveinsdóttir (í rauðum íþróttafötum), Brynjar Pétursson, óþekkt, Björn Sigurðsson, Atli Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Stefán Jósefsson, óþekkt, Þórarinn Ingvarsson, baksvipur Sigríðar Gestsdóttur, Arnar Arnarsson og Friðrik Gunnlaugsson.
umf Fram278
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru hvorki meira né minna en fimm smiðir við að setja hástökksrána lárétta í réttri hæð. Frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson, Helgi Gunnarsson, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) og Hinrik Jóhannesson,
umf Fram264
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Sigríður Gestsdóttir að keppa í kúluvarpi. Heimir Sigmarsson, Sólveig Gunnarsdóttir og Guðrún Berndsen fylgjast með.
Ólafur Bernódusson351
Ný flæðilína var mikil framför í fiskvinnslunni í frystihúsi Hólaness hf. Þessi mynd var tekin í janúar 1989 þar sem konurnar eru að vinna við nýju flæðilínuna í sal frystihússins. Næstar okkur á myndinni eru Fjóla Jónsdóttir til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri.
umf Fram246
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Berndsen, Þórdís Sigurðardóttir, Gestur Arnarson, Sigurður Guðmundsson og Kristinn Guðmundsson. Húsin í baksýn eru frá vinstri: Hólaneshúsið, gamla Útibúið, Miðnes, gamli Kántrýbær og Höfði (áður en kvistir voru settir á húsið).
Ólafur Bernódusson179
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), óþekkt, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Grétar Haraldsson, Björn Ingi Óskarsson, óþekktur, Guðmundur Jóhannesson og Heimir Fjeldsteð.
umf Fram167
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd, sem tekin var af kepni í 100 eða 200 metra hlaupi, er Ingibergur Guðmundsson Fram lengst til vinstri, þá Hjörtur Guðmundsson Fram og síðan óþekktur en fremstur er Kári Einarsson úr Hvöt á Blönduósi.
umf Fram228
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd skemmtir Þorgerður Guðmundsdóttir (d. ?) frá Höfðabrekku í lokahófinu.
Ólafur Bernódusson116
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd sést hluti starfsmannanna hlusta á einhvern óþekktan leiðbeinanda. Frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Líney Jósefsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), óþekkt, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason, tveir óþekktir, Guðmundur Jóhannesson, óþekkt, óþekktur, Eygló Gunnarsdóttir, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Ólafur Bernódusson111
Norðurlandsmót vestra í Bridge var haldið í Fellsborg 1986. Á þessari mynd eru sigurvegararnir. Þau fjögur talin frá vinstri eru systkini frá Siglufirði.
Ólafur Bernódusson127
Slysavarnanámskeið sjómanna var haldið á Skagaströnd vorið 1986 á vegum Skagstrendings hf. Á þessari mynd svamlar Hjörtur Guðbjartsson í sjónum í flotgalla.
Ólafur Bernódusson258
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir og Hallveig Ingimarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari164
Þessi mynd er af fólki sem átti heimili á Harrastöðum. Í öftustu röð eru frá vinstri: hjónin Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) og Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) (seinna í Háagerði), Eiríkur Gíslason og hjónin Anna Gísladóttir (d. 22.7.1998) og Davíð Sigtryggson (d. 3.7.1971). Börnin eru frá vinstri: Reynir Davíðsson, Jóhanna Davíðsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Guðmundur Kristjánsson (fjær), Aðalheiður Davíðsdóttir, Jónína Davíðsdóttir og Gunnar Davíðsson. <br><br>
Óþekktur ljósmyndari154
Eldri borgara úr Gerðubergi heimsóttu Skagaströnd 5. júní 2000. Hópurinn skoðaði meðal annars dvalarheimilið Sæborg. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjálmar Th. Ingimundarson leiðbeinandi, Sólveig G. Ólafsdóttir leiðbeinandi, Sigurlaug Eðvarðsdóttir frá Ásholti sem þá bjó á Sæborg, Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður félagsstarfs í Gerðubergi og Pétur Eggertsson forstöðumaður Sæborgar.
Ólafur Bernódusson255
<p>Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, William Sillar og Björk Sveinsdóttir.</p>
umf Fram295
Dagana 4. og 5. september 1976 var haldið Norðurlandsmót í frjálsum íþróttum á Akureyri. USAH sendi sína sterkustu íþróttamenn á mótið. Hér slaka á þær, Guðrún Berndsen til vinstri og Sólveig Gunnarsdóttir til hægri, á milli greina. Þær stöllur voru um árabil einhverjar öflugstu íþróttakonur USAH.
Ólafur Bernódusson284
Rækju landað úr Arnarborg Hu 11 í júlí 1989 í Skagastrandarhöfn. Arnarborginni var fargað og hún tekin af skipaskrá 11. maí 1992.
umf Fram142
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hefur stúlknahópur lokið hlaupinu en frá vinstri á myndinni eru: Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Salóme Rúnarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, ?Bergþóra Guðjónsdóttir, Ólína Sveinsdóttir og Kolbrún Ragnarsdóttir
Ólafur Bernódusson208
Þessir tveir öldnu heiðursmenn settu svip sinn á Skagaströnd um langt árabil. Jóhann Frímann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík til hægri.
umf Fram231
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Eðvarð Hallgrímsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
umf Fram220
Unglingamót USAH var haldið 7. og 8. ágúst 1976 á Blönduósi. Þessi mynd sýnir hópinn sem keppti á mótinu. Myndin var tekin utan við félagsheimilið á Blönduósi að móti loknu.
Guðmundur Guðnason673
Haganesvík í Fljótum. Myndin var tekin 15. júní 1968 .
Ólafur Bernódusson301
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Meðal annars var komið fyrir útitafli á Hnappsstaðatúninu. Hér fylgist Þórarinn Grétarsson, til hægri, með ungum skákmönnum reyna sig. Konan með barnið í fanginu er Sólveig Róarsdóttir.
Ólafur Bernódusson136
Sundlaugin á Skagaströnd var endurvígð 31. ágúst 1986 eftir gagngerar endurbætur við mikinn fögnum - einkum yngri kynslóðarinnar. Á þessari mynd, úr heita pottinum, eru frá vinstri: Jóhann Sveinsdóttir, óþekkt, Guðmundur Henry Stefánsson, Jón Örn Stefánsson, óþekkt, Brynjar Pétursson og Skúli Tómas Hjartarson.
Ólafur Bernódusson173
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á þessari mynd eru krakkarnir sem syntu að loknu sundinu og velheppnaðri fjáröflun. Fremri röð frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Brynjar Pétursson, Inga Stefánsdóttir íþrótta- og sundkennari, Hugrún Sigurðardóttir, Helga Kristmundsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir og Árný Elfa Helgadóttir. Aftari röð: Róbert Gunnarsson, Skúli Tómas Hjartarson, Inga Rós Sævarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Hugrún Lind Pálsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson.
umf Fram213
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Ástmar Kári Ástmarsson, Þórdís Sigurðardóttir og Sólveig Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson070
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Ottósson, Guðmundur Óskarsson, Ingimar Oddsson, Þórarinn B. Ingvarsson, Ingunn Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Kristín Karlsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson275
Dvalarheimilið Sæborg var vígt formlega 22. október 1988. Á þessari mynd rekur Eðvarð Hallgrímsson, byggingameistari og verktaki, byggingasögu hússins fyrir gesti við vígsluathöfnina.
umf Fram196
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson (baksvipur), Adolf Hjörvar Berndsen og faðir hans Adolf Jakob Berndsen.
1
…
51
52
53
…
167
Leita í myndasafninu
Leita