Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson126
Slysavarnanámskeið sjómanna var haldið á Skagaströnd vorið 1986 á vegum Skagstrendings hf. Á þessari mynd æfa sjómenn sig í að snúa við gúmmíbát sem lenti á hvolfi.
Ólafur Bernódusson153
Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 sést hluti keppenda njóta veitinga að loknu hlaupi. Frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Atli Þórsson á verðlaunapalli en aðrir eru óþekktir.
umf Fram280
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 200 metra hlaupi. Frá vinstri: Einar Einarsson, Ingibergur Guðmundsson og Þórður Daði Njálsson.
Ólafur Bernódusson249
Hallgrímur Oddsson í febrúar 1988.
umf Fram291
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Helgi Björnsson frá Læk kúlunni. Stefán Kristinsson í úlpu með gleraugu og Adolf H. Berndsen, sem skrifar árangur keppenda, fylgjast með. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson280
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Á þessari mynd frá júní 1989, er Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), formaður sjúkrasjóðs kvenfélagsins, að afhenda Guðmundi Sigvaldasyni þáverandi sveitarstjóra gjafabréf til staðfestingar á tækjagjöf Einingarinnar til heilsugæslunnar á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson160
Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 kemur Þóra Ásgeirsdóttir fyrst í mark í sínum flokki.
Ólafur Bernódusson112
Norðurlandsmót vestra í Bridge var haldið í Fellsborg 1986. Á myndinni afhendir Ingibergur Guðmundsson sigurvegurunum verðlaun sín.
umf Fram156
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd svífur Karl Lúðvíksson í langstökki. Í baksýn sést Magnús Ólafsson með möppu og bak við hann er Eðvarð Hallgrímsson. Maðurinn með málbandið er óþekktur.
Ólafur Bernódusson210
Vorið 1987 héldu eldri borgara sýningu í Höfðaskóla á handavinnu sinn sem þau höfðu unnið yfir veturinn undir leiðsögn Guðrúnar Guðmundsdóttur sem þá sá um félagsstarf aldraðra á Skagaströnd. Í gegnum árin hefur reynst erfitt að fá karlmenn inni í félagsstarfið og þess vegna eru einungis konur á myndinni. Lengst til vinstri á myndinni er Guðrún Guðmundsdóttir leiðbeinandi og kaupkona þá Jóhann Thorarensen ( d. 6.3.2004) frá Litla Bergi, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) frá Dagsbrún, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) frá Garði, Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011) frá Ási, Laufey Sigurvinsdóttir ( 21.12.1994) frá Litla Bergi og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Allar bjuggu þessar konur á Skagaströnd með fjölskyldum sínum mestan hluta ævinnar og settu mark sitt á bæinn. Hrefna var nýlega orðin 100 ára þegar hún lést.
umf Fram250
<P>Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru, með verðlaunaskjöl sín, fremst: Bergþór Þórisson frá Blönduósi. Standandi frá vinstri: Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Soffía Guðmundsdóttir. Stelpurnar voru allar úr Fram á Skagaströnd en Bergþór var í Hvöt á Blönduósi. </P>
Ólafur Bernódusson244
Jane Sillar tónlistarkennari og kórstjóri við Hólaneskirkju. Myndin var tekin í febrúar 1988. Jane býr nú í Ástralíu.
umf Fram277
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru yngismeyjarnar sem afhentu verðlaun á mótinu. Frá vinstri: Laufey K. Berndsen, Gréta Ingvarsdóttir og Unnur Gunnarsdóttir.
umf Fram284
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 1500 metra hlaupi. Frá vinstri: Óskar Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson og Sigurður Ingi Guðmundsson.
umf Fram165
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd reynir Ingibergur Guðmundsson sig í stangarstökki. Guðmundur ? og Pétur Pétursson til hægri fylgjast með.
Ólafur Bernódusson150
Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) frá Steinholti. Myndin var tekin 1987.
Óþekktur ljósmyndari158
Mynd frá lokahófi vinabæjarheimsóknar 2004 í Fellsborg. Steindór Haraldsson frá Norræna félags deildinni á Skagaströnd til vinstri og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til hægri.
Ólafur Bernódusson235
Þessir krakkar stóðu fyrir tombólu, fyrir einhvert gott málefni, eftir að hafa gengið í hús og safnað munum til að selja á tombólunni sinni. Frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Bjarney Gunnarsdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson277
Hólaneskirkja í byggingu í október 1988. Gamla kirkjan í baksýn.
Guðmundur Guðnason008
Ekki er vitað hvaða fólk þetta er. Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram148
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hleypur elsti riðillinn af stað. Þar hlaupa saman konur og karlar. Á myndinni hlaupa af stað, frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Karl Lúðvíksson, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Indriðason, Magnús B. Jónsson, Fannar Viggósson, Þórarinn Ingvarsson, Ómar Jakobsson, Vilhjálmur Skaftason, Jón Jósefsson og Gunnar Stefánsson. Lengst til hægri sér í Lárus Ægi og Bjarney Valdimarsdóttur. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson200
Ólafur Bernódusson 1987.
Ólafur Bernódusson226
Þessir nemendur, staddir í bókasafni Höfðaskóla í febrúar 1988, eru að fylgjast með kennslu til pungaprófs eða 30 tonna skipstjórnarréttinda. Frá vinstri: Herborg Þorláksdóttir, Ásmar Kári Ástmarsson (fjær), Árni Björn Ingvarsson, Axel Jóhann Hallgrímsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Vilhelm Jónsson, Björgvin Karlsson, Guðmundur J. Björnsson, Jakob Guðmundsson (fjær), Þorvaldur Skaftason, Magnús Sigurðsson og Gunnar Hafdal.
Ólafur Bernódusson140
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður Hólanes hf í ræðustól. Í forgrunni má sjá Jóhann Ásgeirsson og Óla Hjörvar Kristmundsson starfsmenn frystihússins.
Ólafur Bernódusson096
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu og Jón Heiðar Jónsson og tvö óþekkt börn vinna við stærðfræðiborðið. Til hægri vinnur Baldur Magnússon við frjálst-val borðið.
Ólafur Bernódusson206
Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Á þessari mynd spila saman á blokkflautur Jane Sillar tónlistarkennari og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) nemandi hennar.
umf Fram145
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd er vaskur hópur drengja. Þeir eru, talið frá vinstri: Óþekktur, Jósef Stefánsson, Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason, ?Viggó Bjarnason?, Svanur Árnason, Jónas Þorvaldsson, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Theódór Karlsson, Jóhannes Indriðason, Jón Örn Stefánsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari155
Forystumenn koma af fundi í Bjarmanesi á vinabæjarmóti á Skagaströnd sumarið 2004. Aftasta röð frá vinstri: Rejo Siltasari frá Lojo í Finnlandi, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Ágúst Þór Bragason starfsmaður Höfðahrepps. Miðröð: Birna Sveinsdóttir hreppsnefndarkona, Jan Berg frá Hönefoss í Noregi og Adolf H. Berndsen oddviti. Konurnar tvær fremst á myndinni eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson317
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Mikið um að vera í eldhúsinu. Frá vinstri: Vignir Hafþórsson, Julian Hewlet og Rosemary Hewlet. Drengurinn sem veifar er Hinrik Þór Oliversson? Aðrir eru óþekktir.
umf Fram216
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd má sjá baksvipinn á Bernódusi Ólafssyni (d. 18.9.1996), Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) konu hans og séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) kona Péturs er í horninu en hinum megin við borðið situr Bjarney Valdimarsdóttir. Við háborðið sitja frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992), Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson og lengst til hægri sér í Guðmund Hauk Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson101
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd eru Skagastrandarstúlkur í sókn að marki Blönduósinga. Frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, óþekkt, Hugrún Pálsdóttir (með boltann) og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson218
Örvar Hu 21 leggur að bryggju á Skagaströnd í apríl 1988. Páll Valgeirsson fylgist með og bíður spenntur eftir að komast í land eftir langan túr.
Ólafur Bernódusson369
Árið 1992 fóru þessir 14 og 15 ára krakkar í þriggja daga gönguferð með leikfimikennaranum sínum. Ferðin hófst við Blöndulón og gengu krakkarnir að Hveravöllum fyrsta daginn og gistu þar. Annan daginn gengu þau upp að rótum Langjökuls og gistu í skála sem þar er, en komið var myrkur þegar þau loks fundu skálann. Síðasta daginn gengu þau svo niður í Vatnsdal þangað sem þau voru sótt um kvöldið. Báru þau með sér nesti fyrir ferðina og svefnpoka en vegalengdin sem þau gengu var um 100 kílómetrar. Margir höfðu vantrú á að krakkarnir mundu endast ferðina, því þau þurftu að ganga 25 - 30 km á dag, en ferðin gekk upp og var góð lífsreynsla fyrir krakkana. Þessi mynd var tekin fyrir utan Höfðaskóla áður en lagt var af stað í bíl upp á Kjalveg. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Gunnþór Óskar Sæþórsson, Jón Örn Stefánsson, Magnús Helgason, Þorlákur Guðjónsson, Guðrún Björg Elísdóttir, Viktor Pétursson, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Carl Erik Jakobsen kennari og leiðangursstjóri og Árni Max Haraldsson.
umf Fram205
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Sigurður Guðmundsson.
umf Fram276
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í spjótkasti. Frá vinstri: Ari Arason, Ingibergur Guðmundsson og Karl Lúðvíksson.
Ólafur Bernódusson168
Veturinn 1994 -1995 var sérlega snjóþungur og illviðrasamur. Einkum átti þetta við um tímann frá jólum og fram í maí. Snjóþyngslin voru svo mikil að erfitt var að moka göturnar og á sumum þeirra var snjórinn látinn eiga sig og hann troðinn með snjótroðara og síðan óku bílarnir á ca tveggja metra þykkum sköflum. Í einu norð-austan óveðrinu í febrúar hlóðst svo mikil ísing á báta í höfninni að menn urðu að standa vaktina og moka af þeim. Í tilviki Hafrúnar Hu 12 tókst ekki að moka og berja ísinguna af nógu hratt þannig að hún sökk í höfninni. Hafrún var í eigu bræðranna Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir brugðust fljótt við og fengu sérfræðinga til að aðstoða sig við að ná Hafrúnu úr kafi. Myndin var einmitt tekin þegar báturnn var að koma upp eftir að lofthylkjum hafð verið raðað á hann til að lyfta honum upp í yfirborðið. Þá var hafist handa við að dæla sjó úr bátnum þar til hann fór að fljóta sjálfur. Þeir bræður voru ekki á því að gefa Hafrúnina upp á bátinn heldur endurbyggðu þeir og breyttu henni með glæsibrag og skiptu um vél og annað sem þurfti. Nokkrum árum seinna seldu þeir bátinn í burtu en nokkrum árum þar á eftir keyptu þeir Hafrúnina aftur og er hún enn gerð út frá Skagaströnd af Sigurjóni Guðbjartssyni eftir því sem kvótinn leyfir.
umf Fram185
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd flytur Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), einn af fyrri formönnum félagsins ræðu.
umf Fram283
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 400 metra hlaupi. Frá vinstri: Einar Einarsson, Ingibergur Guðmundsson og Óskar Guðmundsson.
umf Fram267
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 200 metra hlaupi kvenna. Frá vinstri: Gróa Lárusdóttir, Lára Guðmundsdóttir og Hulda Agnarsdóttir.
umf Fram290
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Karl Berndsen (d. 12.2.1995) kúlunni. Meðal áhorfenda eru Ari Arason í rauðum buxum og blárri treyju. Guðmundur Jónsson sést á milli hans og Karls en maðurinn í svarta leðurjakkanum er Magnús Blöndal (d. 7.9.2001). Stefán Kristinsson er í úlpu og með gleraugu, Ingibergur Guðmundsson grúfir yfir skráningum en Adolf H. Berndsen í blárri úlpu fylgist með kastinu. Þrándur Baldursson er í brúnum leðurjakka og rauðum bol og lengst til hægri í svartri úlpu og ljósum buxum er Snorri Kárason.
Ólafur Bernódusson072
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal og sungið: "Svona gerum við er við skúrum okkar gólf...." Frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir kennari, Jón Arnarson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Jón Pálsson skólastjóri og Eiríkur Lýðsson.
Ólafur Bernódusson236
17. júní 1988 var haldið kaffisamsæti til að fagna 60 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju - eldri. Við það tækifæri sungu þessir tveir heiðursmenn dúetta við píanóundirleik Jane Sillar. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) til hægri.
umf Fram266
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Gróa Lárusdóttir að koma fyrst í mark í 200 metra hlaupi. Fólkið á hliðarlínunni er, frá vinstri: óþekkt fólk, Valgerður Guðmundsdóttir í rauðri úlpu, óþekktur og Adolf H. Berndsen. Tímatökumenn eru: Ólafur Bernódusson næst brautinni, síðan kemur Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) og þá Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Skeggjaði maðurinn er Gunnar Sveinsson. Þórdís Guðmundsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson fylgjast með en maðurinn lengst til hægri er óþekktur.
Ólafur Bernódusson124
Slysavarnanámskeið sjómanna var haldið á Skagaströnd vorið 1986 á vegum Skagstrendings hf. Á þessari mynd eru togarasjómenn að búa sig undir að stökkva í sjóinn í flotbúningum sínum. Erfitt er að þekkja menn í þessum búningum en svartskeggjaði maðurinn hægra megin á myndinni er Árni Ólafur Sigurðsson og framan við hann til vinstri er Sævar Hallgrímsson. Gestur Arnarson stendur á bryggjukantinum og horfir til himins. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson232
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Magnús Sigurðsson og Árni Björn Ingvarsson, til hægri, fikta í tækjunum.
Ólafur Bernódusson152
Þetta skip, Stakkanes, átti Skagstrendingur hf um tíma. Hér er Stakkanesið í höfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1987.
Ólafur Bernódusson323
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Steindóri var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson166
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna í lauginni þótti gott að slaka á í heita pottinum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Brynjar Pétursson situr á brúninni í íþróttajakka, María Rós Karlsdóttir, Róbert Gunnarsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir. Stúlkurnar sem snúa baki í myndvélina eru allar óþekktar eins og sloppklæddi drengurinn? til hægri.
umf Fram242
<P>Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd eru keppendurnir frá vinsri: Jóhannes K. Sveinsson, Hendrik Berndsen, Þórarinn Ingvarsson, ?Hafsteinn Pálsson? og óþekktur. Maðurinn í bláu úlpunni til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson. Í baksýn sést gamla útibúið sem var verslunarútibú á vegum kaupfélagsins. Húsið er nú löngu horfið eins og gamli Kántýbær (rauða húsið á myndinni) sem brann á sínum tíma. </P>
Ólafur Bernódusson171
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna þótti gott að bregða sér í heita pottinn. Á þessari mynd eru þær Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir til vinstri og Inga Rós Sævarsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson320
Höfðaskóli 1989
Ólafur Bernódusson181
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd hefur starfsfólkið raðað sér upp fyrir ljósmyndarann með viðurkenningarskjöl sín ásamt Vilhjálmi Egilssyni frá atvinnurekendum, fremst til vinstri, og Sævari Bjarnasyni formanni Verkalýðsfélags Skagastrandar, fremst til hægri. Aðrir á myndinni eru ef byrjað er efst til vinstri: Líney Jósefsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Kristín Jónsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), óþekkt, Gunnar Þór Gunnarsson, Ingvar Þór Jónsson, Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Grétar Haraldsson (horfir til hægri), Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, óþekkt og Guðmundur Jóhannesson.
umf Fram263
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd stekkur Soffía Guðmundsdóttir hástökk.
Ólafur Bernódusson076
<p>Fjör á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Til hægri dansar Jón Indriðason við Katrínu Sigurjónsdóttur en vinstra megin dansa þær Anna Þóra Birgisdóttir, í buxum og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Í horninu standa Stefán Sveinsson lengst til vinstri óþekkt og Svava Magnúsdóttir. </p>
Guðmundur Guðnason762
Þessi fallega stúlka bar sigur úr bítum í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969, sem haldin var í Húnaveri. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkan á myndinni er Anna Grímsdóttir frá Ljótshólum sem bar sigur úr bítum í keppninni.
Ólafur Bernódusson290
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá kaffisamsæti í Fellsborg í tilefni afmælisins. Á myndinni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri í ræðustól.
Ólafur Bernódusson123
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd er séra Oddur Einarsson, þáverandi sóknarprestur, lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson273
Myndin var tekin þegar verið var að grafa sjónvarpskapal Sjónvarpsfélags Skagastrandar í jörðu í bænum í október 1988. Á myndinni er Þorgeir Jónsson til vinstri með Rúnari??.
umf Fram244
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd bíða keppendur eftir ræsingunni. Stúlkan í rauðu peysunni með hvítum rennilás er Soffía Guðmundsdóttir og til vinstri við hana er Guðrún Berndsen. Drengurinn sem er fjórði frá hægri er Skafti Fanndal Jónasson, en annar frá hægri er Árni Geir Ingvarsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson125
Slysavarnanámskeið sjómanna var haldið á Skagaströnd vorið 1986 á vegum Skagstrendings hf. Á þessari mynd eru sjómenn að æfa sig í að komast um borð í gúmmíbát.
1
…
52
53
54
…
167
Leita í myndasafninu
Leita