Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson090
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson blessar nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson133
Sumarið 1986 voru kofasmíðar barna á lóð sunnan við Höfðaskóla. Kofasmíðarnar voru einn þáttur í leikjanámskeiði barnanna og var þátttaka þeirra mjög góð. Var þetta með fyrstu árunum sem boðið var upp á leikjanámskeið fyrir börn að sumri á Skagaströnd. Börnin á myndinni eru því miður óþekkt.
Ólafur Bernódusson331
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Julian var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Árni Geir Ingvarsson- safn
Þessi mynd var tekin á Skúffugarðinum eftir mikið rok sem gekk yfir Skagaströnd. Svo mikið var rokið að tómur 40 feta gámur sem stóð á Skúffugarðinum fauk út í höfnina og endaði inn í krikanum hinum megin í höfninni þar sem hann sökk.Gámurinn hafði viðkomu á bryggjukantinum sem brotnaði eins og sjá má á myndinni. Hann fauk yfir bátinn Sigurð sem sést á myndinni án þess að snerta hann og olli engum skaða með flugferð sinni. Gámurinn til hægri fór líka af stað en stöðvaðist áður en hann fór í sjóinn.
Kvenfélagið Eining - safn042
Þetta ágæta fólk ræður hér ráðum sínum í eldhúsinu í Fellsborg. Tilefnið og tímasetning er ókunn. Frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003).
Ólafur Bernódusson368
Þessi unga stúlka Anna María Magnúsdóttir er hér við piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból í desember 1989.
Ólafur Bernódusson270
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er verið að hífa kranabílinn aftur upp úr kafinu með öflugum krana sem fengin var til verksins.
Ólafur Bernódusson189
<p>1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd eru slökkviliðsmenn að störfum. Hallbjörn Björnsson er í röndóttu peysunni, og Þorvaldur Skaftason er sá með skeggið. Aðrir eru óþekktir á myndinni.</p><p> </p>
Ólafur Bernódusson285
Á þessari mynd frá því í júlí 1989 sjást byrjunarframkvæmdir við byggingu smágarðs við Skúffugarðinn. Verið er að reka niður bryggjustaur með loft/vökvahamri.
Ólafur Bernódusson257
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006).
Ólafur Bernódusson472
Þessi mynd var tekin 1991 sennilega á aðventukvöldi í desember. Krakkar syngja við undirleik flautu- og klarinet leikara. Presturinn er séra Egill Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson187
<p>1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd eru slökkviliðsmenn að rjúfa þak hússins til að komast að eldinum. Frá vinstri: Hallbjörn Björnsson, óþekktur, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson og tveir óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson379
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Vigdís Viggósdóttir og Bergþór Gunnarsson. Ekki er ólíklegt að í þessu atriði sé verið að gera grín að heimsókn frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta til Skagastrandar sumarið 1988..
Ólafur Bernódusson303
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun og vaðreldi sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á myndinni er í gangi hjólböruaksturskeppni.
Ólafur Bernódusson291
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Stúlkurnar sem eru að syngja eru frá vinstri: Bergþóra Guðjónsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir og Salóme Ýr Rúnarsdóttir. Til vinstri bíður Jón Örn Stefánsson eftir að röðin komi að honum. Sama gera stúlkurnar til hægri sem eru frá vinstri: Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Erla María Lárusdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Ólafur Bernódusson219
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 21 eftir góðan túr í apríl 1988.
Óskar Kristinsson - safn178
Myndin var tekin á einhverri árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg. Á henni eru stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins að taka þátt í léttu gríni. Mennirnir eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson veislustjóri, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigurðsson og Hallbjörn Björnsson.
Ólafur Bernódusson 509
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri áhöfn og gesti. Lengst til hægri er Gunnar Sveinsson þá Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og dóttir hans Elva Dröfn Árnadóttir. Aðrir eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson416
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Ingibergur Guðmundsson nemendum í 9. bekk vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Jóhanna Guðrún Karlsdóttir, Aðalheiður M. Steindórsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Guðný Kristín Finnsdóttir, Baldur Magnússon, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Atli Þór Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Björn Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson405
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Páll Leó Jónsson skólastjóri í ræðustól.
Ólafur Bernódusson332
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Þórdísi var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson358
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Dagbjörtu Bæringsdóttur lyklana að nýrri leiguíbúð að Skagavegi 12.
Ólafur Bernódusson433
Skagastrandarhöfn full af bátum og togurum í október 1990.
Ólafur Bernódusson438
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon að keppa í þrautabraut með níðþungar skjalatöskur í höndunum. Jónas Fanndal Þorvaldsson hvetur hann áfram og Milan Djurica íþróttakennari tekur tímann. Uppi á sviðinu í baksýn eru Helgi Marínó Magnússon kennari og Páll Leó Jónsson skólastjóri (í röndóttri peysu) að fylgjast með.
Ólafur Bernódusson377
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Fannar Viggósson og Ingibergur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson281
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Á þessari mynd frá júní 1989 standa stjórnarkonur Sjúkrasjóðs Einingar við ný tæki sem kvenfélagið færði heilsugæslunni að gjöf. Frá vinstri: Birna Blöndal, Ása Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir( d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson442
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á myndinni er Karen Peta Karlsdóttir að keppa í pokahlaupi undir hvatningarópum bekkjarfélaga sinna.
Ólafur Bernódusson409
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á myndinni er Jóhanna Jónsdóttir kennari að afhenda nemendum 2. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir er frá vinstri: Bæring Jón Skarphéðinsson, Álfheiður Guðmundsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hallgrímur Þór Axelsson,Trausti Magnússon , Birna Ágústsdóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Inga Valdís Heimisdóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Kristrún Linda Jónasdóttir og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson476
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremst eru Gunnlaugur Sigmarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd. Næst koma Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Fjóla Jónsdóttir úr byggingarnefnd kirkjunnar. Stefán Jósefsson og Hallbjörn Hjartarson eru næstir en séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur er fremstur prestanna til hægri. Séra Oddur Einarsson er til vinstri í annarri röð prestanna. Aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson315
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Yngstu börnin að perla eitthvað fallegt. Frá vinstri: Heiðrún Ósk Níelsdóttir, óþekkt, karen Petrea Karlsdóttir, óþekkt(við gluggann), Gunnar Helgason, óþekktur, þrjú óþekkt börn, Birkir Rafn Gíslason og Ólafur Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson380
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Vigdís Viggósdóttir. Þau eru að leika sauðsvartan almúgann sem er að reyna að koma auga á frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta í heimsókn hennar til Skagastrandar sumarið 1988.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
Kvenfélagið Eining - safn058
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fremst á myndinni næst okkur er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) er í baksýn í bláum kjól við hlið manns síns Sveins Kristóferssonar (d. 9.5.1991). Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson337
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Hallbjörgu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson339
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Hjördís Gestsdóttir, Þórdís Skúladóttir, Elín Njálsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Herborg Þorláksdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn037
Kvenfélaskonur úr Einingu funda í herbergi sínu í Fellsborg. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Una Dagbjört Kristjánsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir, Steinunn Grímsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba).
Ólafur Bernódusson421
Þessi fríski hópur vann að þökulagningu í ágústlok 1990 í hallanum sunnan við Stóra Berg, sem sést í baksýn, en það stóð sunnan við Fellsbraut nálægt kirkjunni. Á myndinni eru frá vinstri: Þóra Ásgeirsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Magnús Helgason, Milan Djurica, Kristín Þórðardóttir, Bryndís Ingimarsdóttir (aftast), Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Þröstur Árnason, Jóhannes Indriðason, Jósef Stefánsson og Hjörtur Jónas Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson329
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Óla Hjörvari var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson396
Þessi mynd var tekin af Magnúsi B. Jónssyni við störf sín í Búnaðarbanka Íslands, útibúinu á Skagaströnd, í maí 1990 skömmu áður en hann tók við starfi sveitarstjóra Höfðahrepps.
Ólafur Bernódusson113
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) reri stundum til fiskjar að gamni sínu og til að ná sér í fisk í soðið. Almennt voru þorskarnir sem hann dró ekki eins stórir og þessi sem mældist 140 cm á lengd og vó 38 kg. Þorskinn fékk Skafti í róðri vorið 1986.
Ólafur Bernódusson334
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Bóel var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson176
Björgunarsveitin Strönd keypti hraðskreiðan björgunarbát frá Noregi 1987. Bátnum var gefið nafnið Þórdís og hér sést hann í einni af fyrstu prufusiglingunum. Um borð er Ástmar Kári Ástmarsson lengst til hægri en hinir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson327
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Einari Hauk var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson387
Skákþing Norðurlands var haldið í Fellsborg á Skagaströnd dagana 2.-5. mars 1989. Á þessair mynd teflir Björn Björnsson frá Ytra Hóli við Einar ?? sem þá var kennari á Blönduósi. Ef þú manst hvers son Einar er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson393
<p>Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Baldur Magnússon og Aðalheiður Árnadóttir í hlutverkum sínum í einhverjum leikþætti. </p>
Ólafur Bernódusson488
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Þessi mynd er af kokkunum sem grilluðu ofan í mannskapinn. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Björgvin karlsson, Sigríður Gestsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson348
Ársþing USAH 1989 var haldið á Skagaströnd. Þingstörfin fóru fram í kaffistofu Hólaness hf en síðan var haldið hóf í Fellsborg. Á þessari mynd taka hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson við viðurkenningu fyrir hönd Guðbjargar dóttur sinnar úr höndum Sigurlaugar Hermannsdóttur formanns USAH.
Ólafur Bernódusson410
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Sigríður Laufey Einarsdóttir kennari afhendir nemendum 3. bekkjar vitnisburði sína.Nemendurnir eru talið frá vinstri: Arnór Haukdal Rúnarsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Kristinn Björgvinsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, Sigurður Haukur Grétarsson, Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Ástmar Sigurjónsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir.
Ólafur Bernódusson388
Veturinn 1990 smíðaði Helgi Gunnarsson sumarhús fyrir Verkalýðsfélag Skagastrandar. Var húsið smíðað inni á verkstæði Helga en síðan dregið út nánast fullbúið í júní 1990 og síðan flutt burtu og komið fyrir á sínum stað. Á myndinni er verið að draga húsið út. Helgi Gunnarsson er lengst til vinstri og faðir hans Gunnar Helgason er sá með húfuna. Hinir tveir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson288
Frá afhjúpun minnisvarða um Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) fræðimann frá Syðra-Hóli. Á þessari mynd, sem tekin var í ágúst 1989, flytur Elínborg Jónsdóttir ( d. 7.1.2007) ræðu en hún var ein af forgöngumönnunum um að minnisvarðinn var reistur.
Ólafur Bernódusson279
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Þessi mynd var tekin í júní 1989 í læknisbústaðnum/heilsugæslunni af nokkrum Einingarkonum eftir að þær höfðu fært stofnuninni ný tæki. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Særún Jónsdóttir, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Þórunn Þorláksdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Lísebet Gestsdóttir, Birna Blöndal, Hjördís Sigurðardóttir og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson376
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í desember 1989.
Ólafur Bernódusson403
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg . Á þessari mynd eru nemendur 1. bekkjar. Frá vinstri: Andri Þór Ómarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Ólafur Guðmundsson, Karen Peta Karlsdóttir, Erla Björgheim Pálsdóttir, Hafsteinn Auðunn Björnsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Kvenfélagið Eining - safn003
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Jón Pálsson og Guðmunda Sigurbrandsdóttir.
Ólafur Bernódusson224
Séð yfir salinn í saumastofu Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélagshúsinu í nóvember 1987. Konurnar eru óþekktar nema Guðný Finnsdóttir er lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson424
Elva Ösp Gunnarsdóttir í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson343
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Steindór Haraldsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Ólafur Bernódusson484
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tilbúinn við teig eitt á Háagerðisvelli í júní 1992.
Ólafur Bernódusson392
Myndin er frá árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Krakkarnir á myndinni eru óþekkt nema Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir sem stendur lengst til hægri og Atli Þórsson sem er annar frá vinstri. Ef þú þekkir fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson312
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Á þessari mynd eru Arnar Ólafur Viggósson til vinstri og Sigurður Berndsen í góðum gír í smíðahópi.
1
…
56
57
58
…
167
Leita í myndasafninu
Leita