Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Kvenfélagið Eining - safn097
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004).
Kvenfélagið Eining - safn053
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngur fjölskyldan frá Breiðabliki. Frá vinstri: Svava Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir. Við píanóið situr Jane Sillar (d.2017) og hlustar.
Ólafur Bernódusson426
Guðbjartur Guðjónsson við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson371
Kristján Kristjánsson (d. 10.10. 2007) frá Steinnýjarstöðum, sóknarnefndarformaður í Hofssókn og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð, oddviti Skagahrepps, á tröppum Hofskirkju eftir að endurbyggingu hennar var lokið í desember 1989. Kristján er til vinstri á myndinni.
Kvenfélagið Eining - safn035
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Ása Jóhannsdóttir
Ólafur Bernódusson359
Leiguíbúðirnar að Skagavegi 10 - 12 teknar í notkun í september 1989.
Ólafur Bernódusson 506
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson282
Hofskirkja í endurbyggingu í júlí 1989.
Kvenfélagið Eining - safn041
Kvenfélagið Eining hefur alltaf borið hag eldri borgara fyrir brjósti. Oft hafa kvenfélagskonur boðið eldra fólki í einhverja dagsferð að sumri. Þessi mynd var tekin í einu slíku ferðalagi sumarið 1986. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011).
Ólafur Bernódusson386
Skákþing Norðurlands var haldið í Fellsborg á Skagaströnd dagana 2.-5. mars 1989. Á þessari mynd spjalla saman þeir Lárus Ægir Guðmundsson, þáverandi formaður Skákklúbbs Skagastrandar, til vinstri og Jóhann Guðmundsson frá Holti í Svínadal. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn056
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fremst á myndinni næst okkur er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson470
Lárus Ægir Guðmundsson talar til Hallgríms Kristmundssonar (D. 9.10.1998) á sjómannadegi 1991 þegar sjómannadagsráð heiðraði Hallgrím fyrir farsæla sjómennsku í áratugi.
Ólafur Bernódusson234
<p>Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun hafnarinnar í júní 1988.</p>
Ólafur Bernódusson540
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér færir Halla Kristín Árnadóttir kennara sínum einhverja gjöf með þakklæti fyrir veturinn. Fyrir aftan Höllu eru, frá vinstri: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson407
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er á fremsta bekk hluti af kennaraliði skólans þennan vetur. Frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Vilborg Magnúsdóttir með Báru Kristinsdóttur, dóttur sína, í fanginu, Jóhanna Jónsdóttir, Sigríður Laufey Einarsdóttir, Erla ?? og Stefán Ægir Lárusson.Ef þú veist hvers dóttir Erla er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson399
Í maí 1990, rétt fyrir skólalok, stóð Höfðaskóli fyrir hreinsunarátaki í nágrenni skólans. Að sjálfsögðu var síðan haldin pylsu-grillveisla í lokin. Á myndinni eru krakkarnir að bíða eftir að röðin komi að þeim að fá pylsu. Strákurinn með derið er Kristján Gunnar Rúnarsson, Rakel Petrea Finnsdóttir stendur utan við röðina enda er hún búin að fá sína pylsu. Þriðji fyrir aftan Kristján er Birkir Rafn Gíslason og fyrir aftan hann er Magnús Helgason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn076
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn023
Kvenfélagskonur úr Einingu á fundi í herbergi félagsins í Fellsborg á níunda áratugnum. Frá vinstri: Una Dagbjört Kristjánsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn055
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) að lesa upp fyrir gesti. Í baksýn eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Svava Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hólmfríður Oddsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Ólafur Bernódusson415
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessum tíma var starfandi lúðrasveit í skólanum og Tónlistarskólanum. Sveitin spilaði á skólaslitunum undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
Kvenfélagið Eining - safn017
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson430
Skógræktarfólk í hlíðum Spákonufells í júlí 1990. Frá vinstri: Ragnheiður Sigurjónsdóttir, óþekkt barn, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), Fjóla Jónsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir með barn, Gunnar Helgason, Guðrún Elsa Helgadóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, María Magnúsdóttir, Guðbjartur Guðjónsson og Jón Jónsson sem lengi var formaður og aðal driffjöður Skógræktarfélags Skagastrandar.
Ólafur Bernódusson373
Magnús B. Jónsson, oddviti Höfðahrepps, þakkar Elínborgu Jónsdóttur (d.7.1.2007), formanni ritnefndar vel unnin störf við útkomu bókarinnar: Byggðin undir Borginni, í desember 1989. Lárus Ægir Guðmundsson (með gleraugu) ritnefndarmaður og Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar fylgjast með.
Ólafur Bernódusson289
Frá afhjúpun minnisvarða um Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) fræðimann frá Syðra-Hóli. Á þessari mynd, sem tekin var 30. júlí 1989, á aldarafmæli fræðimannsins, afhjúpar Magnús Björnsson bóndi á Syðra Hóli, og afabarn hans, skjöld með mynd af afa sínum. Rúnar Kristjánsson fylgist með en hann var einn af forgöngumönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Kvenfélagið Eining - safn119
Á þessari mynd eru konur úr kvenfélaginu Eining á Skagaströnd og úr kvenfélaginu Hekla í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Myndina tók Björn Bergmann árið 1974. Fremsta röð frá vinstri: Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005), Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Miðröð frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), María Kristjánsdóttir, Árný Hjaltadóttir, Guðríður Jónasdóttir (d. 20.4.1982), Alda Friðgeirsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Helga Berndsen. Aftasta röð frá vinstri: Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979), Lísebet Gestsdóttir, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Birna Blöndal, Friðbjörg Oddsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Elísabeth Bjarnason.
Ólafur Bernódusson395
Þessir þrír Bridgespilara voru gerðir að heiðursfélögum í Bridgeklúbbi Skagastrandar á Skagastrandarmóti í maí 1990. Allir höfðu þeir verið stofnfélagar klúbbsins og spiluðu á hans vegum í áratugi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Kristófer Árnason (d. 10.5.2000).
Kvenfélagið Eining - safn014
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Björk Axelsdóttir með mynd sem Guðmundur Haukur Sigurðsson afhenti kvenfélaginu að gjöf frá ungmennafélaginu Fram.
Kvenfélagið Eining - safn065
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn013
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni skemmta kvenfélagskonur með söng. Frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.1018), Guðrún Sigurðardóttir, Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson481
<p>Þessi mynd var tekin í júní 1992 af hópi krakka og leiðbeinenda eftir vel heppnaðan gróðursetningardag í hlíðum Spákonufells. Í fremstu röð frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes V. Grétarsson, Jón Örn Stefánsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og óþekkt. Í annarri röð frá vinstri: Gestur Arnarson, óþekktur, Sigurður Berndsen, Árni Max Haraldsson, Ástmar Sigurjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ragna Gunarsdóttir, óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Ýr Rúnarsdóttir. Aftast eru frá vinstri: Guðjón Magnússon leiðbeinandi og Kristján Gunnar Guðmundsson. Það er gaman fyrir þetta fólk að líta yfir svæðið í dag og sjá góðan árangur starfs síns í plöntum sem nú eru um tveggja metra há tré.</p>
Ólafur Bernódusson367
Þessi mynd var tekin í desember 1989 af piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli. Bryndís Guðjónsdóttir aðstoðar dóttur sína, Tinnu Gunnarsdóttur og Bergþór Gunnarsson aðstoðar sína dóttur, Evu Dögg Bergþórsdóttur en hún snýr baki í myndavélina.
Ólafur Bernódusson455
Í júní 1991 gaf Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) á Lækjarbakka, Höfðahreppi, fánastöng sem reist var þar sem áður hafði verið æskuheimili hennar að Höfðahólum. Við sama tækifæri var afhjúpaður minningarskjöldur um Höfðahóla, sem á öldum áður var eigandi að stórum hluta þess lands sem Skagaströnd stendur á í dag. Á myndinni þakkar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Sigríði gjöfina. Fólkið er frá vinstri: Magnús sveitarstjóri, Helga Jóhannesdóttir, Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) eiginmaður Sigríðar, Sigríður, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ása Jóhannsdóttir, dóttir Sigríðar, Sveinn S. Ingólfsson oddviti Höfðahrepps og Steindór R. Haraldsson
Ólafur Bernódusson417
Bar var opnaður á hótel Dagsbrún í júní 1990. Var það að öllum líkindum fyrsti barinn sem opnaður var frá því að gistihúsið í Viðvík lagði upp laupana. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörn Sigurjónsson, Árni Geir Ingvarsson, Ágúst Ómarsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ólafur Bernódusson382
<p>Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sigrún Jónsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir. Atriðið á myndinni átti að gerast í frystihúsinu þess vegna er flæðilínan á myndinni. </p>
Ólafur Bernódusson298
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Viggó Magnússon, Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson og Kristján Blöndal halda uppi fjöri í rigningarsudda sem var þennan dag.
Ólafur Bernódusson466
Ræðumaður á sjómannadaginn á Skagaströnd 1991 var Guðjón Arnar Kristjánsson (Addi Kidda Gau) sem þá var í forystu fyrir sjómannastéttina á Íslandi.
Ólafur Bernódusson413
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Sigríður Einarsdóttir nemendum 6. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Ólafur Magnússon, Ragna Fanney Gunnarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Jóhannes Heiðmar Indriðason og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson390
Tvær ungar stúlkur spila á þverflautur með kennara sínum Rosemary Hewlet á árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Stúlkurnar eru frá vinstri: Álfheiður Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson446
Skíðadeild Fram starfaði af miklum krafti um árabil, sá um skíðalyftuna í Spákonufelli og byggði skíðaskálann. Eftir nokkur snjólítil ár lagðist starfsemin af og á sama tíma var byggð upp fyrsta flokks aðstaða í Tindastóli. Meðan skíðadeildin var og hét var hún með samning við jólasveinana, um dreifingu á jólapósti á Skagaströnd fyrir jólin. Samningurinn fól einnig í sér að félagar í skíðadeildinni tækju á móti póstinum fyrir sveinana dagana fyrir jólin. Á þessari mynd, sem tekin var á Þorláksmessu 1990, má sjá að jólasveinarnir hafa tekið fjórhjól í þjónustu sína við dreifinguna enda slík hjól tilvalin til fjallaferða og aðdrátta fyrir grýlu gömlu. .
Ólafur Bernódusson342
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Óskar Þór Óskarsson og Þorvaldur Skaftason.
Ólafur Bernódusson397
Ingibjörg Kristinsdóttir við vinnu sína á skrifstofu Skagstrendings hf í maí 1990.
Ólafur Bernódusson435
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd má m.a. sjá Bjarnhildi Níelsdóttur og Elísabet Eik Guðmundsdóttur lengst til vinstri. Elín Ósk Ómarsdóttir er fyrir miðri mynd og við hlið hennar, hægra megin, er Pétur Hinrik Herbertsson. Viðar Guðmundsson er strákurinn í köflóttu skyrtunni hægra megin við Pétur. Aftan við Pétur sitt hvoru megin sjást tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur.
Kvenfélagið Eining - safn040
Kvenfélagið Eining hefur alltaf borið hag eldri borgara fyrir brjósti. Oft hafa kvenfélagskonur boðið eldra fólki í einhverja dagsferð að sumri. Þessi mynd var tekin í einu slíku ferðalagi sumarið 1986. Á þessari mynd er áð á einhverjum ókunnum stað og borðað nesti. Frá vinstri: Jóninna Pálsdóttir?, Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) (liggjandi með bakið í myndavélina), Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Edda Guðmundsdóttir er bláklædd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020)(fjær), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Birna Blöndal (d.26.10.2018), óþekkt fólk en lengst til hægri er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Maðurinn í hvítu skyrtunni er bílstjórinn Valdimar Gunnarsson frá Fremri-Kotum í Skagafirði.
Ólafur Bernódusson482
Guðbjörg Gylfadóttir fær hamingjuóskir frá Magnúsi B. Jónssyni sveitarstjóra á Skagaströnd eftir að hún hafði sett nýtt Íslandsmet í kúluvarpi kvenna. Íslandsmetið, sem var kast upp á 16.33 metra, setti hún 17. maí 1992. Metið stendur enn og er að verða eitt af elstu Íslandsmetunum. Myndin var tekin í júní 1992 á hótel Dagsbrún þar sem haldið var upp á afrek þessarar glæsilegu íþróttakonu með litlu kaffiboði. Í baksýn sér í Guðbjörgu Viggósdóttur en myndina tók Ólafur Bernódusson.
Kvenfélagið Eining - safn050
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000).
Ólafur Bernódusson205
<p>Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Á þessari mynd eru áheyrendur og nemendur Tónlistarskólans að fylgjast með einhverju tónlistaratriði. Nöfn gesta eru ekki nefnd hér heldur verður hver og einn að spreyta sig á hvað hann þekkir marga á myndinni. </p>
Ólafur Bernódusson260
Í júlí 1988 stóð ungmennafélagið Fram fyrir ruslasöfnunarátaki. Gengu félagar Fram meðfram þjóðveginum milli Skagastrandar og Blönduóss og hirtu upp rusl á þeirri leið. Einnig voru gengnar fjörur við Skagaströnd. Að söfnunni lokinni var haldin grillveisla í skíðaskálanum og þar var þessi mynd tekin. Meðal fullorðinn á myndinni eru Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Erna Hreinsdóttir og Elín Njálsdóttir sem er lengst til hægri á myndinni.
Ólafur Bernódusson471
Fermingarbörn 1991. Fremst til vinstri situr meðhjálparinn Steindór R. Haraldsson. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, séra Egill Hallgrímsson, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Elfa Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólaína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson429
Kolbrún Viggósdóttir við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson459
Þetta stykki á myndinni er hluti af hverflum Blönduvirkjunar. Þetta var á sínum tíma þyngsti einstaki hlutur sem farið hafði um Skagastrandarhöfn. Fenginn var sérstakur krani til að lyfta hlutnum úr skipi á flutningavagn og dráttarbíll dró hlutinn að virkjuninni. Myndin var tekin í júlí 1991. Gaman getur verið að telja öll hjólin sem þurfti til að koma hlutnum á áfangastað.
Kvenfélagið Eining - safn051
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Bára þorvaldsdóttir, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Hómfríður Oddsdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson378
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót 1989. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Ingibergur Guðmundsson Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Dagný Sigmarsdóttir,Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Á þorrablótinu var einungis flutt frumsamið efni eftir fólkið á myndinni.
Kvenfélagið Eining - safn028
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bára þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Kvenfélagið Eining - safn024
<p>Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Hér syngja þeir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) til hægri fyrir vistmenn. </p>
Kvenfélagið Eining - safn032
Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) var ein ötulasta konan í kvenfélaginu Eining í fjölda mörg ár. Hér tekur hún til hendinni eftir einhverja uppákomu í Fellsborg.
Kvenfélagið Eining - safn002
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Steinunn Friðriksdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990), Jökulrós Grímsdóttir og Jón Jónsson (d. 9.7.1991)
Óskar Kristinsson safn136
Á myndinni, sem Hjörtur Guðbjartsson tók um borð í frystitogaranum Örvari Hu 2, er verið að sjósetja, eða taka um borð, gúmmítuðruna sem var þar. Uppi í tuðrunni er Ragnar Högnason. Guðmundur Gunnlaugsson er í köflóttri skyrtu við stefni bátsins en aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson452
<p>Þessi mynd var tekin í júní 1991 af vinnu við bát í slippnum. Kári Lárusson er fyrir neðan stigann en hann rak slippinn á þessum tíma. Hinir mennirnir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson425
Jón Atli Magnússon í júlí 1990.
Kvenfélagið Eining - safn020
Kvenfélagið Eining bauð eldri borgurum á Skagaströnd í ferðalag sumarið 1985. Á þessari mynd hefur fólkið stillt sér upp fyrir ljósmyndarann. Frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Rúnar Gíslason bílstjóri, Guðlaugur Guðlaugsson ( d. 8.7.1990), Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988), Guðmundur Guðnason (d. 12.11.1988), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (með harmóniku), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Ása Jóhannsdóttir (fjær), Fanney Halldórsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Helga Guðmundsdóttir (með gítar), Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Fjóla Sigurðardóttir(d. 15.7.1988), Kristín Indriðadóttir (d. 25.10.1987), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991).
1
…
57
58
59
…
167
Leita í myndasafninu
Leita