Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Kvenfélagið Eining - safn014
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Björk Axelsdóttir með mynd sem Guðmundur Haukur Sigurðsson afhenti kvenfélaginu að gjöf frá ungmennafélaginu Fram.
Ólafur Bernódusson452
<p>Þessi mynd var tekin í júní 1991 af vinnu við bát í slippnum. Kári Lárusson er fyrir neðan stigann en hann rak slippinn á þessum tíma. Hinir mennirnir eru óþekktir. </p>
Kvenfélagið Eining - safn020
Kvenfélagið Eining bauð eldri borgurum á Skagaströnd í ferðalag sumarið 1985. Á þessari mynd hefur fólkið stillt sér upp fyrir ljósmyndarann. Frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Rúnar Gíslason bílstjóri, Guðlaugur Guðlaugsson ( d. 8.7.1990), Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988), Guðmundur Guðnason (d. 12.11.1988), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (með harmóniku), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Ása Jóhannsdóttir (fjær), Fanney Halldórsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Helga Guðmundsdóttir (með gítar), Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Fjóla Sigurðardóttir(d. 15.7.1988), Kristín Indriðadóttir (d. 25.10.1987), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991).
Óskar Kristinsson safn135
Sigurbjörn Björgvinsson albúinn að fara um borð í gúmmítuðruna um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Kvenfélagið Eining - safn036
Kvenfélagskonur vaska upp í Fellsborg. Frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Björk Axelsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba).
Ólafur Bernódusson458
Jarðýta kemur með skipi til Skagastrandar í júlí 1991.
Óskar Kristinsson safn133
Þessa mynd af Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra tók Hjörtur Guðbjartsson um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Ebbi var farsæll og fengsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um áratugi.
Ólafur Bernódusson406
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er Vilborg Magnúsdóttir með 0. bekkinn. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Skúli Már Matthíasson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Markovic, Adolf Þór Lúðvíksson, Gunnar Helgason, Marta Kristín Jónsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir og Vignir Örn Hafþórsson. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson365
Á þessari mynd sem tekin var í desember 1989 er Signý Magnúsdóttir að hjálpa drengjunum sínum við piparkökubakstur í leikskólanum Barnabóli. Árni Halldór Eðvaðsson er til vinstri og Hilmar Árdal Eðvarðsson til hægri
Óskar Kristinsson - safn177
Skipsfélagarnir Árni Ólafur Sigurðsson til vinstri og Magnús Sigurðsson til hægri. Myndin var tekin Í Fellsborg, líklega á árshátíð Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær né hver tók myndina.
Ólafur Bernódusson427
Fjóla Jónsdóttir til vinstri og Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) við skógrækt í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Kvenfélagið Eining - safn091
Þessar konur mynduðu stjórn kvenfélagsins Einingar um tíma. Ekki er vitað um tímabilið en í fremri röð frá vinstri eru: Helga Berndsen gjaldkeri, Björk Axelsdóttir formaður og Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017) ritari. Í aftari röð eru meðstjórnendur, frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1511
Ingólfur Björnsson, vinstra megin, hangir með óþekktum vini sínum í leiktæki á skólavellinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir vin Ingólfs vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson402
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á myndinni afhendir Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri verðlaun fyrir góða frammistöðu í skák. Nemendurnir eru frá vinstri: Jósef Stefánsson, Svanur Árnason og Jónas Fanndal Þorvaldsson.
Ólafur Bernódusson462
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af Röstinni á leið í höfn.
Ólafur Bernódusson375
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni, áritar bókina á útgáfudegi í desember 1989.
Kvenfélagið Eining - safn101
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni, sem tekin var í Þingeyrarkirkju eru, frá vinstri: Erna Högnadóttir (nær), Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
Óskar Kristinsson - safn176
Unnið að vírasplæsingu um borð - líklega í isfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Alexandersson, óþekktur, Kristján Alexandersson, Jón Gunnarsson og Ingvar Þór Jónsson.
Kvenfélagið Eining - safn064
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Helga Guðmundsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn059
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn082
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni eru fyrirsæturnar Hulda Magnúsdóttir til vinstri og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir.
Ólafur Bernódusson445
Þessar fjórar konur settu á stofn saumastofu í desember 1990. Þær nefndu fyrirtæki sitt Saumasmiðjan og var hún til húsa á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu þar sem nú er Rannsókasetur Háskólans og Námsstofa. Konurnar eru frá vinstri: María Alexandersdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), Fjóla Jónsdóttir og Ingunn Björnsdóttir.
Ólafur Bernódusson400
<p>Í maí 1990, rétt fyrir skólalok, stóð Höfðaskóli fyrir hreinsunarátaki í nágrenni skólans. Að sjálfsögðu var síðan haldin pylsu-grillveisla í lokin. Á myndinni gæða sér á pylsum og ávaxtasafa þeir: Hermann Freyr Guðjónsson, með hárband, Gunnar Helgason og Loftur Árni Björgvinsson. </p>
Kvenfélagið Eining - safn079
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir
Ólafur Bernódusson460
Myndin var tekin í júlí 1991. Helgi Gunnarsson er með vinnuflokk að steypa gangstétt við Bogabraut. Frá vinstri: Björn Sigurðsson, Helgi Gunnarsson, Jón Heiðar Jónsson, Steinþór Karlsson, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn008
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Myndin var tekin í kaffitíma. Frá vinstri: Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Guðmundur ? fiskmatsmaður, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý) og Inga Kristjánsdóttir.
Ólafur Bernódusson419
Myndin var tekin á fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar Höfðahrepps í júní 1990. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sveinn S. Ingólfsson, Þorvaldur Skaftason, Elín Njálsdóttir og Adolf J. Berndsen.
Ólafur Bernódusson 517
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd leika þær Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Elín Njálsdóttir til hægri. Myndin var tekin á æfingu.
Kvenfélagið Eining - safn062
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er kynnirinn á sýningunni, Gunnar Svanlaugsson skólastjóri í Stykkishólmi.
Ólafur Bernódusson477
<p>Á árum áður gat það verið góð tekjulind fyrir menn að stunda rjúpnaveiði til að selja síðan rjúpurnar fyrir jólin. Veiðitímabilið stóð þá frá 15. október til 20. desember og engin höft voru á sölu á rjúpu. Þessi mynd var tekin af Sveini Inga Grímssyni 23. október 1991 þegar hann var að koma úr 40 rjúpna túr. Hangandi í kringum hann er veiði fyrri rjúpnatúra ársins. </p>
Kvenfélagið Eining - safn002
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Steinunn Friðriksdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990), Jökulrós Grímsdóttir og Jón Jónsson (d. 9.7.1991)
Ólafur Bernódusson480
<p>Börnin í leikskólanum Barnaból leika sér hér í nýjum leikkastala á leikvellinum í desember 1991. Börnin eru óþekkt.</p>
Kvenfélagið Eining - safn008
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru, við borðið nær okkur, frá vinstri: Óþekkt, Jökulrós Grímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir, Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson og Eðvarð Hallgrímsson. Við borðið fjær okkur er Sævar Bjarnason lengst til hægri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d.14.7.1985) við borðsendann.
Kvenfélagið Eining - safn001
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Elíasbet Árnadóttir (Bebbý)(d.16.3.2017) og Birna Blöndal (d.26.10.2018) sem heldur ræðu.
Kvenfélagið Eining - safn034
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: Una Dagbjört Kristjánsdóttir og Anna H. Aspar (d. 1.9. 1999).
Kvenfélagið Eining - safn092
Mynd af hluta þeirra lækningatækja sem kvenfélagið Eining hefur fært heilsugæslunni á Skagaströnd að gjöf.
Ólafur Bernódusson473
Þessi mynd var sennilega tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1991. Á fremsta bekk er Jón Ingi Ragnarsson lengst til vinstri og Heiða Berglind Fannarsdóttir við hlið hans. Á bekk númer tvö er Bæring Skarphéðinsson lengst til hægri, Sverrir Berndsen er næstur, Sonja Berndsen og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), amma þeirra tveggja. Á þriðja bekk eru Jóney Gylfadóttir lengst til hægri, þá Vilborg Magnúsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Guðrún Hrólfsdóttir. Aftar má sjá m.a. Ásu Jóhannsdóttur, Ingunni Björnsdóttur og Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) lengst til vinstri.Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) eru aftarlega fyrir miðri mynd. Aðrir eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn026
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngur söngelsk fjölskylda fyrir vistmenn. Frá vinstri: Svava Steinsdóttir (d.8.12.2001), Svava Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn098
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni eru frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Björgvin Jörgensson (d. 26.2.1999) og Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004) í Þingeyrarkirkju.
Kvenfélagið Eining - safn007
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru hjónin Jökulrós Grímsdóttir og Sigurjón Ástmarsson.
Ólafur Bernódusson310
Stefán Ægir Lárusson reynir að fjarstýra ljósmyndaranum. Myndin var tekin á bókasafni Höfðaskóla í nóvember 1989.
Ólafur Bernódusson436
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Farin var skrúðganga frá skólanum að félagsheimilinu og var þessi mynd tekin af nemendahópnum þegar þau lögðu af stað frá skólanum undir trumbuslætti.
Ólafur Bernódusson338
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af leikstjóranum Guðjóni Inga Sigurðssyni var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson441
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd er óþekktur keppandi í þrautabrautinni. Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri fylgist með og á gólfinu sitja, frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Börkur Hrafn Árnason og Þröstur Árnason. Aðrir eru óþekkktir.
Kvenfélagið Eining - safn054
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngja þeir dúett félagarnir Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) til vinstri og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri. Undirleik á píanó annast Jane Sillar(d. 2017).
Ólafur Bernódusson485
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum.
Ólafur Bernódusson381
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Í þessu atriði er líklega verið að gera grín að nýkeyptum sjúkrabíl til Skagastrandar. Annars voru skemmtiatriðin þetta ár látin gerast í frystihúsinu sem þá var í fullum rekstri og þar hafði nýlega verið tekin í notkun ný flæðilína. Þess vegna eru stúlkurnar á myndinni svona klæddar. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, í hjólbörunum að leika nafna sinn, Bergþór Gunnarsson og Sigrún Jónsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn031
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Jón Arnarson, Sigurður Bjarnason, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000).
Ólafur Bernódusson391
Á þessari mynd frá árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990 eru í hlutverkum sínum: Elísabet Eik Guðmundsdóttir til vinstri og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010) til hægri.
Ólafur Bernódusson465
Á sjómannadeginum 1991 var farin "Karnival - skrúðganga" frá versluninni niður á höfn þar sem hátíðahöld dagsins fóru fram. Á þessari mynd er gangan að fara fram hjá þáverandi slökkvistöð, sem var í bragga, sem stóð við Strandgötu rétt austan við Lækjarbakka.
Kvenfélagið Eining - safn089
Ferðalag eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining. Árið er ekki þekkt né áfangastaðurinn. Á myndinni eru tvær kvenfélagskonur; frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn086
Ferðalag eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining. Árið er ekki þekkt né áfangastaðurinn. Á myndinni eru frá vinstri: Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) frá Mánaskál, Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004), Sigurrós Elín Jóhannesdóttir (2.1.1984) frá Þórshamri (nær), Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) í Holti, Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) frá Vík, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) í Höfðatúni, tveir óþekktir menn aftan við Jóhönnu, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Birna Blöndal, Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) frá Laufási, Kristín Indriðadóttir (d. 25.10.1987) frá Jaðri og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi.
Ólafur Bernódusson 514
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd, sem var tekin á æfingu, eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Guðný Sigurðardóttir, Lovísa Stefánsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn029
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Helga Hermannsdóttir, Steinunn Berndsen, Helga Guðmundsdóttir, og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Kvenfélagið Eining - safn012
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru hjónin frá Höfðabrekku þau Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) og Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992).
Ólafur Bernódusson447
<p>Samningur Skíðadeildarinnar við jólasveinana, um að þeir dreifi jólapósti á Skagaströnd fyrir jólin, fól einnig í sér að félagar í skíðadeildinni tækju á móti póstinum fyrir sveinana dagana fyrir jólin. Á þessari mynd, sem tekin var á Þorláksmessu 1990, má sjá að ekki voru allir sáttir við jólasveinana þó gott væri að fá pakkana frá þeim. </p>
Ólafur Bernódusson 508
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús Schram áhöfn og gesti. Magnús vann lengi að sölumálum á afurðum fyrir skip Skagstrendings hf, fyrst hjá Asiaco og síðar hjá sölufyrirtæki Skagstrendings hf. </p>
Kvenfélagið Eining - safn104
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd er Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) að fletja út laufabrauðsdeig í aðdraganda þorrablóts í febrúar 1996 í eldhúsinu í Fellsborg.
Kvenfélagið Eining - safn074
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d. 26.10.2018).
Ólafur Bernódusson414
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Páll Leó Jónsson nemendum í 8. bekk vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Svanur Árnason, Linda Rós Rúnarsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Jóhannes Óskarsson, Soffía Lárusdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Særún Brynja Níelsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason og Börkur Hrafn Árnason.
1
…
58
59
60
…
167
Leita í myndasafninu
Leita