Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur082
Aðalheiður Guðmundsdóttir með blómavönd í samkvæmi á Hótel Blönduós af óþekktu tilefni. Við borðið sitja frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir Bjargi, Helga Hermannsdóttir Árbakka, óþekkt, óþekkt, Sigurður Bjarnason Bjargi og Jakob Guðmundsson Árbakka.
guðmundur205
<P>Óþekktur drengur. Ef þú þekkir hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Guðmundur102
Elín Njálsdóttir afhendir sr. Oddi Einarssyni gjöf frá söfnuði Hólaneskirkju. Hjá Oddi stendur kona hans Una Dagbjört Kristjánsdóttir
guðmundur020
Fermingarbörn ganag frá skólanum þar sem þau klæðast fermingarkirtlunum og til kirkju. Húsið í baksýn er Ásgarður. Myndin er tekin einhverntíma fyrir 1980.
guðmundur172
Mynd úr óþekktri kirkju
Jón066
Vígsla dráttarbrautarinnar 1985. Ástmar Kári Ástmarsson við spilið í spilhúsinu. Konan er Vigdís Viggósdóttir með dóttur sína Valrúnu Evu Vilhelmsdóttur í fanginu.
guðmundur024
Verslunin Borg. Þarna var ekta krambúð þar sem Sigurður Sölvason og Margrét Konráðsdóttir kona hans versluðu.
guðmundur221
Grímuball í gömlu Tunnunni. Á sviðinu eru Bernódus Ólafsson, Helga Berndsen og óþekkt kona.
Guðmundur110
Yngri börn skemmta á skólaskemmtun í Fellsborg.
Jón107
Spákonufell að vetri til hulin snjóblæju.
Guðmundur085
Örvar Hu 21 skreyttur. Sennilega er myndin tekin 1982 þegar Örvar kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd og fólk hópast um borð til að skoða skipið.
guðmundur168
Þetta er Jón Guðmundsson (d.14.8.1959), sem var bóndi á Núpi, myndin sennilega tekin 1955 eða um það bil.
Guðmundur106
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) fremst, Jóna Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Sigurbjörg Angantýrsdóttir við sama borð. Fyrir aftan Guðmund eru Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011).
guðmundur234
Harpa Friðjónsdóttir leikur á orgel heima hjá sér í Lækjarhvammi
guðmundur229
Húni Hu-1 fánum prýddur við Hafnargarðinn (Útgarð). E.t.v. við fyrstu komu til Skagastrandar?
Guðmundur087
Myndin tekin yfir hluta hafnarsvæðisins á hátíðisdegi - sjómannadagur? Örvar Hu 21 og fleiri bátar skreyttir fánum í tilefni dagsins. Fyrir framan Örvar liggja Helga Björg Hu 7 og Auðbjörg Hu 6.
guðmundur225
<P>Myndin er líklega tekin á sjómannadaginn 1953 eða ´54 . Sæfari, trilla í eigu Þórólfs Sveinssonar liggur við bryggjuna vinstra megin. Þórólfur gerði hana þá út á grásleppu. Svo eru Bjargirnar, Åsbjörg HU 5 og Auðbjörg HU 6 á sínum venjulegu plássum við kranabryggjuna, og fyrir aftan þær eru Aðalbjörgin HU 7 og liklega Stigandi HU 9. Báturinn sem liggur utan á Aðalbjörgu er óþekktur.
guðmundur189
Glaðhlakkalegir á góðviðrisdegi. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) frá Flankastöðum til vinstri og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund (Vík) til hægri. Báðir voru þessir menn fjölskyldumenn sem settu sterkan svip á samfélagið á Skagaströnd á sinni tíð, skemmtilegir og þekktir fyrir gamansemi og frumlegheit.
guðmundur200
<P>1. Röð efst til vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Vera Magnúsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir. 2. röð: Kristinn ?, Sófanías(bílstjórinn) ?, Viðar Bjarnason, Jóhann Bjarnason. 3. röð: Guðmundur Guðnason, Björn Helgason, Úlfar Björnsson, Jón Jónsson. 4. röð: Hörður Ragnarsson, óþekktur og Hallbjörn Hjartarson.</P>
Guðmundur124
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til vinstri (með hatt) er Ágúst Jakobsson sem bjó í Blálandi en fremst á myndinni (með alskegg) er Gunnlaugur Björnsson í Drangey.
Guðmundur053
Kirkjukórinn syngur á sviðinu í Fellsborg undir stjórn Krisstjáns Hjartarsonar. Frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekktur, Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðnason, Aðalheiður Guðmundsdóttir og svo sést aftan á Kirtján Hjartarson stjórnanda.
guðmundur211
Trausti Bertelsson frá Drangey
Óþekkt048
Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri á Skagaströnd í mörg ár.
Óþekkt095
Kjartan Stefánsson listmálari í Bjarmalandi í Spákonufellsrétt 1991
guðmundur158
Willys Overland jeppi H 192 líklega í eigu Ingva Guðnasonar frá Ægissíðu. Myndin var tekin á götunni framan við Ægissíðu.
Óþekkt065
Skarfur hífður upp eftir að hafa sokkið við Skúffugarðinn.
Óþekkt067
Trillubátur í eigu Þorvaldar Skaftasonar sökk þar sem hann lá við Skúffugarðinn. Á myndinni er verið að hífa hana upp úr sjónum.
Guðmundur107
Kaffidrykkja í Fellsborg. Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli og konan hans María Ólafsdóttir (d. 13.5.2006)sitja við borðið lengst til hægri. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) er maðurinn með bindið sem stendur og talar við konu í baksýn. Aðrir eru óþekktir.
hem031
Karl Hemmert ljósmyndari og kaupmaður og frú Jóhanna Hemmert í stofunni heima hjá sér með ungabarn<br>
Jón065
Arnarborgin bíður örlaga sinna í slippnum á Skagaströnd þar sem hún var rifin
guðmundur228
Hólsnefið - syðsti oddi Höfðans.
Guðmundur142
Kaffiveisla í Skátaskálanum snnilega í tilefni af 60 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988) pósts og ljósmyndara. Frá vinstri á myndinni eru: Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006), Jökull Sigtryggsson frá Núpi, Valgerður Kristjánsdóttir kona hans, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Helga Guðmundsdóttir og Eðvarð Hallgrímsson maður hennar.
Guðmundur070
Bygging nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum. Myndin er sennilega tekin á messudegi því flaggað er við gömlu kirkjuna.
Guðmundur065
Fjárhús og heyfúlgur sem tilheyrðu Ægissíðu.
guðmundur181
Efst til vinstri: Húnn Snædal, Hólmsteinn Snædal, Gígja Snædal, Þórgunnur Snædal og neðst og fremst er Magnús Snædal. Myndin er tekin sunnan við húsið að Rauðamýri 17 á Akureyri
Jón063
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður og Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
guðmundur161
<P>Talið er að þetta sé mynd af Jóhanni Gunnari Sigurðssyni skáldi sem dó ungur að árum (24 ára)(d.20.5.1906).
Guðmundur148
<P>Kaffisamsæti í Fellsborg af óþekktu tilefni. Frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Lárus Ægir Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson ?(d.10.9.1989), Hjördís Sigurðardóttir, Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), óþekkt, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Bára Þorvaldsdóttir og óþekkt.
guðmundur213
Valdimar Númi Hjaltason
guðmundur176
Á myndinni eru Jökull Sigtryggsson bóndi á Núpi á Laxárdal og Rósberg G. Sædal rithöfundur fæddur og uppalinn að Kárahlíð í Laxárdal 8. ágúst 1919. Þarna hafa þeir verið að veiða með net í Litlavatnsskarðstjörn.
Elísabet042
Skagaströnd 1943 eða 1944 því þá var unnið að gerð Skúffugarðsins
Guðmundur089
Kappróður á sjómannadegi.
Guðmundur129
Myndin er tekin í Fellsborg á þorrablóti. Fólkið á myndinni fylgist með skemmtiatriðum á sviðinu. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Árdís Indriðadóttir, Þorgeir Haukdal Jónsson, Hlíf Sveinbjörnsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir (snýr baki í myndavélina), óþekkt, Ása Jóhannsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, óþekkt.
guðmundur184
Frá vinstri: Hólmsteinn Snædal, Gígja Snædal og Fjóla Jónsdóttir. Börnin eru systrabörn.
Guðmundur126
Næst kirkjudyrum Hólaneskirkju heilsast þær Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir (til vinstri) í Árnesi og Magnea Þorkelsdóttir (d. 10.4.2006) biskupsfrú (kona herra Sigurbjörns Einarssonar biskups). Maðurinn á myndinni er séra Bernharður Guðmundsson sem síðar varð rektor Skálholtsskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
guðmundur162
Guðmundur Guðnasson (d.21.11.1988) og Ingiríður Jónsdóttir (d.21.10.2011) sem átti heima á Ólafsvöllum (Náttbrún)
Guðmundur135
Messa í gömlu Hólaneskirkjunni.
Guðmundur154
Veisla í Fellsborg af ókunnu tilefni. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Jónsson (d.9.7.1991) Asparlundi, Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) Lækjarbakka, Snorri Gíslason Höfðatúni (d.29.5.1994), Jón Hallur Pétursson, Vilhelm Harðarson, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og maðurinn sem sér aftan á er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Guðmundur146
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) leikur á orgel, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) fyrir aftan og Sigrún Lárusdóttir til hægri á kirkjulofti í óþekktri kirkju.
Guðmundur141
Frá vinstri á myndinni eru: Eðvarð Hallgrímsson, Dóra Eðvaldsdóttir,Tryggvi Ólafsson og Helgi Ólafsson Hvammstanga
guðmundur188
Íþróttamót í gangi á túni. Hinn ungi keppandi er óþekktur.
guðmundur230
Húni Hu 1 fánum prýddur við hafnargarðinn (Útgarð). E.t.v. var myndin tekin þegar Húni kom í fyrsta sinn til heimahafnar?
clip_image002
Þarna stendur Fritz Hendrik Berndsen kaupmaður og seinni kona hans Jónína fyrir framan hús sitt Árnes. Myndin væntanlega frá því um 1900.
óþekkt038
Halldóra Bjarnadóttir á Blönduósi og Frú Hulda Stefánsdóttir Þingeyrum.
Óþekkt035
Útimarkaður við Kántrýbæ eldri.
Guðmundur109
Steinunn Berndsen spilar á flygil í Fellsborg.
Guðmundur061
Ungt folald á túninu við Ægissíðu. Ægissíða og Réttarholt í baksýn og Sólvangur fjær.
óþekkt001
Þarna sést Hafnarhúsið með tunnum hlaðið upp við vesturhlið þess. Auk þess sjást bátar við bryggju sem var suður af frystihúsinu (nú H59). Hafnarhúsið var seinna flutt á þann stað sem það er í dag. Myndin er tekin eftir 1935 því þá var Hafnarhúsið byggt en fyrir 1945 því þá var það flutt á núverandi stað. Bryggjan í forgrunni var byggð 1922 af sjó- og verkamönnum á Skagaströnd sem gáfu vinnu sína í þetta framfaramál en Verslunarfélag Vindhælinga skaffaði efni sem til þurfti. Engin ummerki sjást í dag eftir bryggjuna.
guðmundur164
Þessi ungi knapi á Skagaströnd er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur114
Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) heldur ræðu í Fellsborg
1
…
5
6
7
…
167
Leita í myndasafninu
Leita