Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 517
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd leika þær Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Elín Njálsdóttir til hægri. Myndin var tekin á æfingu.
Kvenfélagið Eining - safn074
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d. 26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn010
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Helga Berndsen.
Kvenfélagið Eining - safn118
Þessi mynd var tekin af konum í kvenfélaginu Eining einhverntíma snemma á áttunda áratugnum. Í fremri röð eru frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4. 1987), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Helga Berndsen. Aftari röð frá vinstri: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Lísbet ?, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981), Birna Blöndal, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir.
Ólafur Bernódusson 512
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Lovísa Stefánsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Jensína Lýðsdóttir. Í gegnum opnar dyr sér í tæknimanninn Óla Hjörvar Kristmundsson. Myndin var tekin á æfingu.
Guðmundur Guðnason124
Þessir óþekktu menn eru óvenjulega fínir við að rifja. Myndin gæti verið tekin í Langadal en mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær hún var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn069
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn088
Ferðalag eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining. Árið er ekki þekkt né áfangastaðurinn. Á myndinni eru: Anna Skaftadóttir og Valdimar Gunnarsson, Fremri-Kotum í Skagafirði, bílstjóri.
Ólafur Bernódusson549
Þessi mynd sýnir stærstan hluta bekkjar í Höfðaskóla með krökkum fæddum 1975. Frá vinstri á myndinni eru: Jóhannes Óskarsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason, Börkur Árnason, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Heiðrún Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Áslaug Jóhannsdóttir. Hugsanlega eru nöfn tvíburanna Áslaugar og Vilborgar ekki rétt þ.e. ekki rétt nafn við rétta stúlku en erfitt var að þekkja þær í sundur. Mynd var sennilega tekin árið 1989 eða 1990.
Kvenfélagið Eining - safn043
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, ókunnugt barn, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991), óþekkt kona, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) með barn, kristján Hjartarsond (d. 2.8.2003) og óþekkt kona.
Kvenfélagið Eining - safn084
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn018
Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990).
Kvenfélagið Eining - safn046
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) og Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011).
Kvenfélagið Eining - safn025
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd spilar Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) á harmónikuna sína fyrir vistmenn. Fremst til vinstri situr Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) frá Vík.
Kvenfélagið Eining - safn052
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er Helga Guðmundsdóttir
Ólafur Bernódusson431
Ardís Ólöf Arelíusdóttir, til vinstri, og Ragnheiður Sigurjónsdóttir við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson474
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremstir á myndinni eru Steindór R. Haraldsson meðhjálpari og Sigurjón Guðbjartsson úr kirkjukórnum. Gylfi Sigurðsson og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) kórfélagar eru næst. Milli þeirra sést Árni Ólafur Sigurðsson og yfir öxlina á Gylfa sést Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý). Lengst til hægri grillir svo í Hallbjörn Hjartarson. </p>
Ólafur Bernódusson 527
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd leika ungir flautuleikarar á hljóðfæri sín við undirleik kennara síns Rosemary Hewlett. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og þrjár óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn543
Þessi mynd tengist Skagaströnd ekki nema á óbeinan hátt. Hún er af Brjefspjaldi frá 1920 og sýnir hvernig fólk var flutt á milli staða ef það var sjúkt og eða var flutt til greftrunar. Ef grannt er skoðað mé sjá að maður með húfu liggur í kassanum milli hestanna. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hún kemur úr póst- og jólakortasafni Elísabetar Árnadóttur (d.16.3.2017) frá Réttarholti.
Séar Pétur og Dómhildur - safn
Bræðurnir Pétur Ingjaldur Pétursson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri á unga aldri.
Kvenfélagið Eining - safn083
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn072
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Ólafur Bernódusson 525
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd eru leiknir ræningjarnir Jesper, Kasper og Jónatan úr Kardimommubænum. Hér atast ræningjarnir í kynni kvöldsins, Lárusi Ægi Guðmundssyni. Lárus er lengst til vinstri en síðan koma: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson og Fannar Viggósson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn001
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd eru Sigfús Sævar Sigurðsson og Sigrún Benediktsdóttir í kaffipásu inni á kaffistofu.
Kvenfélagið Eining - safn006
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson, þáverandi formaður ungmennafélagsins Fram, að færa kvenfélaginu kveðju og gjöf frá Fram.
Ólafur Bernódusson548
Guðrún Pálsdóttir með Spákonufell í baksýn 1996.
Kvenfélagið Eining - safn048
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er hluti gesta á skemmtuninni. Fyrir miðri mynd eru hjónin Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) (í bláum kjól). Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) er til hægri á myndinni í brúnni blússu. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason176
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni og á þessari mynd sér yfir hluta mannfjöldans. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Kvenfélagið Eining - safn011
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er flytur Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017) ræðu í veislunni.
Ólafur Bernódusson477
<p>Á árum áður gat það verið góð tekjulind fyrir menn að stunda rjúpnaveiði til að selja síðan rjúpurnar fyrir jólin. Veiðitímabilið stóð þá frá 15. október til 20. desember og engin höft voru á sölu á rjúpu. Þessi mynd var tekin af Sveini Inga Grímssyni 23. október 1991 þegar hann var að koma úr 40 rjúpna túr. Hangandi í kringum hann er veiði fyrri rjúpnatúra ársins. </p>
Ólafur Bernódusson414
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Páll Leó Jónsson nemendum í 8. bekk vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Svanur Árnason, Linda Rós Rúnarsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Jóhannes Óskarsson, Soffía Lárusdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Særún Brynja Níelsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason og Börkur Hrafn Árnason.
Kvenfélagið Eining - safn009
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni dansa kvenfélagskonurnar Helga Berndsen til vinstri og Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017) til hægri.
Kvenfélagið Eining - safn107
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd fá þær Birna Blöndal (sitjandi) og Fjóla Ævarsdóttir sér kaffibolla í eldhúsi Fellsborgar eftir að hafa lokið laufabrauðsbakstri í aðdaganda þorrablóts í febrúar 1996.
Kvenfélagið Eining - safn039
Kvenfélagið Eining hefur alltaf borið hag eldri borgara fyrir brjósti. Oft hafa kvenfélagskonur boðið eldra fólki í einhverja dagsferð að sumri. Þessi mynd var tekin í einu slíku ferðalagi sumarið 1986. Frá vinstri: Valdimar Gunnarsson Fremri-Kotum Skagafirði bílstjóri, Jóhanna Jónasdóttir(d.7.8.2020), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) (snýr baki í myndavélina), óþekkt, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 19.11.2011), þrjár óþekktar konur, Birna Blöndal (d.26.10.2018), Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994),Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010). Inni í bílnum situr Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992)
Ólafur Bernódusson 491
Þessi mynd var tekin af Sigríði Einarsdóttur - Sissí - við opnun málverkasýningar þar sem hún sýndi verk sín í Gamla Kaupfélaginu í september 1992. Sissí var myndmenntakennari við Höfðaskóla á þessum tíma.
Ólafur Bernódusson423
Gunnar Helgason við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson 515
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd sér yfir troðfullan sal áhorfenda.
Ólafur Bernódusson486
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Á þessari mynd er Jóhanna Harðardóttir með (frá vinstri) Sigrúnu Líndal, Magnúsi Líndal og dóttur sinni Maríönnu Ástmarsdóttur að njóta veitinganna.
Ólafur Bernódusson 499
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. </p>
Kvenfélagið Eining - safn066
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir.
Ólafur Bernódusson 498
Hallbjörn Hjartarson bauð til veislu í veitingastað sínum Kántrýbæ í nóvember 1992 í tilefni af því að hanna var að opna Útvarp Kántrýbæ á efri hæðinni. Á þessari mynd njóta gestir veitinga á básunum sem einkenndu gamla Kántrýbæ. Á básnum næst okkur eru Gunnlaugur Sigmarsson og Magnús B. Jónsson. Á næsta bás þekkist Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) bróðir Hallbjörns og textahöfundur við nokkur laga hans. Aðrir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson374
Ritnefnd og höfundur við útkomu bókarinnar: Byggðin undir Borginni, í desember 1989. Frá vinstri: ritnefndarmaðurinn Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar, Elínborg Jónsdóttir formaður ritnefndar og Ingibergur Guðmundsson ritnefndarmaður.
Ólafur Bernódusson489
<p>Marska tók að sér að pakka og flytja út vatnasilungi úr Skagaheiðinni. Þessi mynd sem tekin var í júní 1992 sýnir starfsstúlkur Marska við vinnu sína við silunginn. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Lilja Kristinsdóttir og Birna Bjarnadóttir.</p>
Ólafur Bernódusson 526
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd les ókunnur maður upp fyrir gesti.
Ólafur Bernódusson 501
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er óþekktur maður að færa Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf blóm í tilefni dagsins. Gestir um borð fylgjast með.</p>
Kvenfélagið Eining - safn116
Þessar prúðbúnu kvenfélagskonur gengu um beina á þorrablóti Einingar í gömlu Tunnunni. Myndin var tekin af þeim á sviðinu og myndin á bakvið þær er hluta leiktjalda sem Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) hafði málað. Ekki er vitað hvenæar myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Helga Berndsen og Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986). Á þessum tíma útbjuggu kvenfélagskonurnar sjálfar allan matinn sem í boði var á blótinu nema harðfiskinn og hákarlinn. Þær sáu samt um að það góðgæti væri í boði með því að fá valinkunna menn til að herða fisk fyrir sig og annan til að verka hákarlinn.
Ólafur Bernódusson483
Á þessari mynd, sem tekin var í júní 1992 á Háagerðisvelli, eru nokkrir áhugasamir golfarar. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Vilhelm Jónsson, Adolf H. Berndsen, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Rolf Árnason (d.3.6.2014), Ingibergur Guðmundsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson 511
Í febrúar 1993 afhentu krakkar í þáverandi 5.og 6. bekk í Höfðaskóla sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni sitt framlag til hjálparstofnunar kirkjunnar. Peningum höfðu krakkarnir meðal annars safnað með velheppnuðu áheitasundi um haustið. Á myndinni tekur séra Egill Hallgrímsson við gjöfinni úr hendi fulltrúa nemenda Kristrúnu Lindu Jónasdóttur.
Ólafur Bernódusson434
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Farin var skrúðganga frá skólanum að félagsheimilinu og var þessi mynd tekin af nemendahópnum þegar þau komu að Fellsborg.
Guðmundur Guðnason149
<p>Aftan á þessari mynd stendur: V. Ingibjörg Daníelsdóttir, Þórunn Steinþórsdóttir, María Steingrímsdóttir Dalvík, Sigrún Ármannsdóttir. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Kvenfélagið Eining - safn093
Hér hefur ein kvenfélagskona úr Einingu klætt sig í sýnishorn af ullar-neyðarfatnaði sem kvenfélagskonurnar bjuggu til og gáfu um borð í skip sem gerð voru út frá Skagaströnd
Guðmundur Guðnason160
Aftan á myndinni stendur: <em>"Bergur Jón Þórðarson á Lækjardalsrauð. Myndin tekin á Laxárdal".</em>
Guðmundur Guðnason140
Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu.
Ólafur Bernódusson 505
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd , sem tekin var í borðsalnum, njóta gestir veitinga. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Þórarinn Grétarsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ófeigur Gestsson. Sitjandi við borðið er Steinunn Berndsen ásamt fleirum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson506
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður S.Ó. Hallgrímsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Ragna Gunnarsdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir eftir að hreinsunarstarfinu var lokið.
Kvenfélagið Eining - safn114
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Helga Berndsen að flytja ræðu. Fyrir framan hana sitja móðir hennar Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) til vinstri og systir Guðrúnar, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) til hægri. Konan sem sér í lengst til vinstri er Björk Axelsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn033
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Hallveig Ingimarsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Steinunn Steinþórsdóttir.
Ólafur Bernódusson 510
Í febrúar 1993 afhentu krakkar í þáverandi 5.og 6. bekk í Höfðaskóla sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni sitt framlag til hjálparstofnunar kirkjunnar. Peningum höfðu krakkarnir meðal annars safnað með velheppnuðu áheitasundi um haustið. frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Ásdís Lýðasdóttir, Sveinþór Ari Arason (fjær), Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir (nær), Andri Þór Ómarsson, Bæring Jón Skarphéðinsson og Hafsteinn Björnsson í fremstu röðinni og Kristrún Linda Jónasdóttir á milli þeirra. Elva Dröfn Árnadóttir er í köflóttri skyrtu en Sigrún Líndal Þrastardóttir og Heiðrún Ósk Níelsdóttir eru hægra megin við hana. Séra Egill Hallgrímsson stendur með gjafabréfið í höndunum og við hlið hans er Unnur Kristjánsdóttir kennari krakkanna. Framan við þau eru frá vinstri: Ólafur Guðmundson, Birna Ágústsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Sverrir Brynjar Berndsen. Í dag, 16. janúar 2014, þegar þessi mynd er birt búa einungis tvö barnanna enn á Skagaströnd. Getur þú áttað þig á hver þau eru?
Ólafur Bernódusson443
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Milan Djurica kenndi leikfimi og var mjög vinsæll meðal nemenda sinn eins og glöggt má sjá á þessari mynd. Frá vinstri: Páll Leó Jónsson skólastjóri, Kjartan Arnþór Þórðarson, Loftur Björgvinsson, Steinþór Karlsson, María Markovic, óþekkt, Marta Kristín Jónsdóttir, þrír óþekktir og Davíð Bragi Björgvinsson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn014
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Frá vinstri: Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Hans Birgir Högnason.
1
…
59
60
61
…
167
Leita í myndasafninu
Leita