Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason168
Þessi unga kona er óþekkt. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari196
Þessi mynd er á bls 289 í Byggðin undir Borginni (1989) og undir henni stendur<em>:" Á skíðum í Tjaldklauf. Árið 1940 festi Umf. Fram kaup á skíðum og leigði út. Á myndinni eru frá vinstri Guðmundur Lárusson, Ægir Einarsson, Jörgen Berndsen og Ingvar Sigtryggsson".</em>
Kvenfélagið Eining - safn110
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd frá afhjúpuninni eru, frá vinstri: Finnur Karlsson Víkum, Árný Hjaltadóttir Steinnýjarstöðum, Karl Árnason (d. 25.12.1995) Víkum, Lilja Karlsdóttir Víkum, Valgeir Karlsson Víkum, Árni Karlsson (d. 19.7.2011)
Ólafur Bernódusson535
Í apríl 1993 var stofnuð Rauðakrossdeild á Skagaströnd. Á þessari mynd, frá stofnfundinum í Fellsborg, er Pétur Eggertsson fyrsti formaður deildarinnar í ræðustól. Pétur var aðal hvatamaður þess að stofna sérstaka deild á Skagaströnd og kaupum á sjúkrabíl til staðarins. Við borðið sitja Ingibergur Guðmundsson sem var fundarstjóri, Ása Jóhannsdóttir fundarritari og Ólafur Oddsson erindreki frá Rauðakrossinum á Íslandi.
Kvenfélagið Eining - safn027
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er hluti hópsins sem fór í heimsóknina. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003)(situr), óþekkt, Ása Jóhannsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Björk Axelsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba).
Guðmundur Guðnason112
Þessi mynd sýnir fjárhús og hlöðu. Ekki er alveg víst hvar þessi skepnuhús voru en líklega tilheyrðu þau Bergsstöðum. Búið er að bera heyið á túninu upp í sátur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson501
Eitt af því sem fylgdi síldaverksmiðjunni voru þessir tveri risastóru tankar. Annar var undir olíu en hinn var undir lýsi. Þegar þessi mynd var tekin 1994 var búið að lækka annan tankinn - olítankinn - um helming en hinn - lýsistankurinn- er að liðast í sundur eftir stórviðri. Tankurinn var fljótlega eftir þetta rifinn og settur í brotajárn.
Ólafur Bernódusson551
Þessi mynd var tekin sumarið 1983 af hvalskurði á bryggjunni í Skagastrandarhöfn. Á þessum árum voru tímabundið gerðir út hrefnuveiðibátar frá Skagaströnd af aðkomumönnum sem áttu hrefnukvóta. Þeir drógu síðan hvalskrokkana til hafnar þar sem þeir voru dregnir á land með vörubíl eða gröfu. Síðan var hvalurinn skorinn á bryggjunni og kjöti og spiki komið fyrir í körum sem síðan voru flutt burt til kaupenda. Beinin, bægslin og annað sem ekki nýttist var síðan tekið með um borð og því fleygt í hafið á Húnaflóa fjarri landi.
Ólafur Bernódusson469
Birgir Þórbjarnarson skipstjóri heldur á heiðursskjali sem Magnús B. Jónsson, kynnir sjómannadagsins 1991, afhenti honum. Milli þeirra sér í Halldór Hermannsson. Ef þú veist fyrir hvað verið var að heiðra Birgi vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari271
Þetta voru leikarar í leikritinu "Bjartur í Djúpadal" sem sýnt var af nemendum Höfðaskóla. Leikararnir eru frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Ari Jónsson, Hallbjörn Björnsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004) og Lárus Ægir Guðmundsson. Myndin var tekin fyrri hluta ársins 1959. <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 257 og Ari E. Jónsson)</font>
Óþekktur ljósmyndari216
Næst okkur á myndinni er Brimnes þá Sólbakki, Ásberg/Ásbyrgi og Bjarg. Hægra megin á myndinni sjást Hnappsstaðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson480
<p>Þetta er annar hvor tvíburanna Vilborg Jóhannsdóttir eða Áslaug Jóhannsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla. Þær systur eru eineggja tvíburar og því afar líkar og erfitt að þekkja þær sundur á myndum. </p>
Guðmundur Guðnason100
<p>Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : <em>"Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði". </em>Gaman er fyrir kunnuga að virða fyrir sér húsin í baksýn enda er götulínan orðin ansi mikið breytt síðan þessi mynd var tekin um eða uppúr 1940. </p><p><em><br></em></p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn012
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Spjall í kaffipásu, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), og Dana ? . Ef þú veist eftirnafn Dönu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason110
Þessi mynd gæti hafa verið tekin á Öxnadalsheiði nánar tiltekið í Giljareitunum. Rútan er frá Norðurleið og fólkið er, talið frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Axel Helgason (d. ?) Læk, Vilborg Jónsdóttir (d. ?) Bergi, óþekkt, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), óþekkt, Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) Iðavöllum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), óþekkt, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Edda Pálsdóttir (í röndóttri peysu). Aðrir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari185
Tveir verkamenn á heimleið úr vinnu eftir fjörunni fyrir víkina. Til vinstri Lárus Guðmundsson og Sveinbjörn Hannesson til hægri. Húsið sem sést á milli þeirra er Viðvík þar sem lengi var rekið veitinga- og gistihús. Húsið til vinstri er Karlsminni. Myndin var líklega tekin í kringum 1940.
Kvenfélagið Eining - safn109
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd afhjúpa systkinin Valgeir Karlsson og Lilja Karlsdóttir frá Víkum minnisvarðann
Ólafur Bernódusson492
Myndin var tekin í desember 1993 þegar fulltrúar frá Verkalýðsfélagi A- Hún afhentu Hallbirni Hjartarsyni styrk til rekstrar Kántrýútvarpsins. Frá vinstri á myndinni: Valdimar Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson, Halla Björg Bernódusdóttir, Ólafur Guðmannsson og Stefanía Garðarsdóttir.
Ólafur Bernódusson554
<p>Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Kardimommubærinn árið 1992 í Fellsborg. Þessi mynd var tekin á einni af lokaæfingunum á verkinu. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Jensína Lýðsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Fannar Viggósson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Þorlákur Guðjónsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Steindór Haraldsson, Elva Árnadóttir og Hildur Inga Rúnarsdóttir. </p>
Ólafur Bernódusson 495
Krakkarnir í 5. og 6. bekk Höfðaskóla 1992 syntu áheitasund í sundlauginni á Skagaströnd í október það ár ásamt kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Ólafur Guðmundsson (nær), Elva Dröfn Árnadóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Karen Peta Karlsdóttir (fjær), óþekktur, Bæring Jón Skarphéðinsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Andri Þór Ómarsson, Sveinþór Ari Arason, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, óþekkt, Birna Ágústsdóttir og ?Þóra Lísebet Gestsdóttir?. Birkir Rafn Gíslason er uppi á bakkanum. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson522
<p>Þessi útihús tilheyrðu Drangey sem stóð sunnan við Höfðaskóla. Húsin brunnu í ágúst 1994 og var talið að kveikt hefði verið í þeim af einhverjum krökkum sem voru að fikta með eldspýtur. </p>
Ólafur Bernódusson489
Guðjón Guðjónsson (Jonni) um borð í Örvari Hu 21, sem hann stýrði farsællega sem skipstjóri. Myndin var tekin 1993.
Guðmundur Guðnason090
Á þessari mynd er verið að koma með fjársafnið til réttar í Spákonufellsrétt. Maðurinn með tvo til reiðar er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Lárus var oft gangnaforingi í göngum frá Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn034
Kaffiveisla af ókunnu tilefni á ókunnum stað. Frá vinstri: Helga Berndsen (Bíbí), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Lárus Ægir Guðmundsson og Vilhelm Harðarson. Myndin var tekin 1983.
Guðmundur Guðnason122
Á sjómannadegi 1971 var sýnd björgun með fluglínutækjum. Helga Björg Hu 7 lagði út á höfninni og síðan var línu skotið út í hana af bryggjunni. Eftir að það voru síðan nokkrir menn dregnir í stól í land. Á myndinni er einn maður á stólnum á leið í land en fer í sjóinn á leiðinni. Mennirnir í forgrunninum eru um borð í Sigurði Hu 18.
Óþekktur ljósmyndari330
Þessi mynd, tekin af sjó einhverntíma á árunum 1965 - 1970, sýnir innbæinn eins og hann var þá. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fyrir framan Bjarmanes á Hólanesinu.
Ólafur Bernódusson539
Fossáin ryðst fram af Króksbjargi í vorleysingum.
Óþekktur ljósmyndari248
Tvær hrefnur skornar á bryggjunni á Skagaströnd. Það voru eingöngu aðkomubátar sem veiddu hrefnur og gerðu að þeim á bryggjunni. Maðurinn sem fylgist með hvalskurðinum með hendur í vösum er sennilega Gunnar Jónsson bílstjóri.
Guðmundur Guðnason072
Þetta glaða fólk er óþekkt. Ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
MBJ001
Líklega er myndin frá aðalfundi Búnaðarsambands A-Hún einhverntíma á árabilinu 1950 - 1960. Í fremri röð eru, frá vinstri: Grímur Gíslason (d.31.3.2007) Saurbæ, Sigurjón Oddsson (d.10.9.1989) Rútsstöðum, Pétur Pétursson (d.7.5.1977) Höllustöðum, Jón S. Pálmason (d.9.11.1976) Þingeyrum, Hafsteinn Pétursson (d.28.8.1961) Gunnsteinsstöðum, Hilmar A. Frímannsson (d.13.6.1980) Fremstagili, Guðmundur Jósafatsson (d.16.6.1982) Brandsstöðum, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti á Skagaströnd, Gísli H. Jónsson (d.7.12.1985) Stóra-Búrfelli og Sigurður Erlendsson (d.28.9.1981) Stóru-Giljá. Aftari röð, frá vinstri: Skúli Jónsson (d.12.7.1999) Þórormstungu, Halldór Jónsson (d.21.1.1983) Leysingjastöðum, Lárus G. Sigurðsson (d.14.10.1983) Tindum, Magnús Björnsson (d.20.7.1963) Syðra-Hóli, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Akri, Kristinn Magnússon (d.26.11.1979) Kleifum, Sigurður Þorfinnsson (d.11.7..1966) Skeggsstöðum, Björn Jónsson (d.21.4.1992) Ytra-Hóli, Bjarni Ó. Frímannsson (d.10.11.1987) Efri-Mýrum, Hilmar Árnason (d.16.3.1988) Hofi, Sigurður Ö. Þorbjarnarson (d.15.3.2002) Geitaskarði, Páll Geirmundsson (d.28.1.1975) Blönduósi, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) Reykholti á Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d.23.8.1991) Sveinsstöðum.
Ólafur Bernódusson516
Á þessari mynd sýnir, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, óþekktum ráðherra frá Namibíu vinnsludekkið í Arnari Hu 1. Myndin var tekin í nóvember 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn001
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) með tvö af börnum sínum og systurdóttur sína. Frá vinstri: Ólöf Jóhanna Smith, Þórunn Bernódusdóttir og Ólafur Bernódusson. Myndin var tekin einhverntíma 1955 - 1957.
Séra Pétur og Dómhildur - safn102
Myndin var tekin af fermingarsystkinum og séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996)í Hólaneskirkju eldri. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Sigríður Laufey Ólafsdóttir, séra Pétur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Hjalti Skaftason. Myndin var sennilega tekin vorið 1954.
Óþekktur ljósmyndari173
Skagaströnd 1947. Byggingaframkvæmdir við síldarverksmiðjuna í fullum gangi.
Guðmundur Guðnason132
Þessi fjölskylda er óþekkt. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 494
Krakkarnir í 5. og 6. bekk Höfðaskóla 1992 syntu áheitasund í sundlauginni á Skagaströnd í október það ár ásamt kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Á þessari mynd fagna krakkarnir að loknu sundi. Frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, óþekktur á bak við hann, Elva Dröfn Árnadóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Unnur Kristjánsdóttir kennnari, Bæring Jón Skarphéðinsson, Andri Þór Ómarsson, Sveinþór Ari Arason, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir,óþekkt, óþekkt, Birna Ágústsdóttir og ?Þóra Lísebet Gestsdóttir?. Drengurinn á bakkanum er Birkir Rafn Gíslason. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason060
Fjölskyldan á Núpi í Laxárdal. Hjónin sem sitja eru Jökull Sigtryggsson og Valgerður Kristjánsdóttir með börnin sín. Milli þeirra situr Halla Jökulsdóttir en Jökull situr með Valgarð Jökulsson og Valgerður með Kristján Jökulsson. Fólkið sem stendur fyrir aftan eru Elísabet Hafliðadóttir og Þorvaldur Jónsson sem bæði voru uppeldissystkin Jökuls .
Ólafur Bernódusson553
Á myndinni sem tekin var 1984 er Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) að afhenda séra Oddi Einarssyni styrk til hjálparstarfs kirkjunnar. Styrkurinn var frá starfsfólki saumastofunnar Violu sem starfrækt var á efstu hæð í gamla kaupfélaginu þar sem nú er Rannsóknasetur Háskóla Íslands og námsstofa.
Kvenfélagið Eining - safn113
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd eru þrír bræður ættaðir frá Víkum. Frá vinstri Lárus Árnason (d. 21.5.2011) Skagaströnd, Karl Árnason (d. 25.12.1995) Víkum og Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) Skeggjastöðum.
Ólafur Bernódusson 493
Fjölmenni við opnun málverkasýningar Sigríðar Einarsdóttur - Sissíar - í Gamla kaupfélaginu í september 1992. Til vinstri eru Jón Ingvar Valdimarsson í ljósri blússu og Sveinn Ingólfsson er stóri maðurinn við dyrnar. Aðrir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson 502
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fer Gylfi Sigurðsson stjórnaformaður Skagstrendings hf yfir byggingarsögu skipsins. Notast var við hátalarakerfi skipsins til að hægt væri að hlusta á Gylfa hvar sem var um borð. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn106
<p>Þessir ungu menn tóku saman prestsvígslu 15. júní 1941. Með myndinni fylgja eftirfarandi upplýsingar: <em>Frá v. Stefán Snævarr f. 22. mars 1914. 1. eink. 105 stig. Vígður að Vallarprestakalli, Svarfaðardal. Prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1967. Pétur Þ. Ingjaldsson f. 28. jan. 1911. 1. eink. 105, 2/3 stig. Vígður að Höskuldsstaðaprestakalli. Prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi 1967, hinu nýja (þ.e. að viðbættu Strandaprófastsdæmi) 1971. Magnús Már Lárusson f. 2. sept. 1917. 1. eink. 135 stig. Vígður að Breiðabólsstað á Skógarströnd. 1944 að Skútustöðum. prófessor við guðfræðideildina 1947. Sigurður Kristjánsson f. 8. jan. 1907. 2. eink. betri 94 stig. Vígður að Hálsprestakalli í Suð. Þing. 1942 Ísafjörður. Prófastur í Ísafjarðarprófastsdæmi 1955.</em></p
Kvenfélagið Eining - safn057
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingvar Ágústsson (d. 13.10.1996) bóndi á Ásum í Svínavatnshreppi, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) frá Skagaströnd, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Skagaströnd og Gerður Aðalbjörnsdóttir (d. 12.6.2007) frá Hólabæ.
Kvenfélagið Eining - safn094
þessar prúðbúnu kvenfélagskonur úr Einingu gengu um beina á þorrablóti í gömlu Tunnunni á sínum tíma. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni hafa konurnar stillt sér upp til myndatöku eftir að allt var orðið klárt til að taka á móti gestum á þorrablótið. Á myndinni eru frá vinstri: Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Helga Berndsen, Sigríður Ásgeisdóttir (d. 11.12.2006), Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999).
Kvenfélagið Eining - safn077
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir
Hjördís Sigurðardóttir - safn011
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd flytur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps ávarp. Hjá honum stendur Lúðvík Jósefsson (d. 18.11.1994) þáverandi formaður bankaráðs Landsbankans. Lúðvík var alþingismaður og ráðherra í sinni tíð.
Ólafur Bernódusson537
Gamla og nýja Hólaneskirkja. Nýja kirkjan var byggð rétt framan við þá gömlu sem seinna var rifin. Myndin var tekin vorið 1993.
Ólafur Bernódusson523
Gunnar Jónsson á Funa Hu 89 dró lax á handfæri í ágúst 1994. Afar sjaldgæft er að lax fáist á handfæri en á myndinni sýnir Gunnar okkur Laxinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn101
Á þessari mynd eru í fremsri röð talið frá vinstri: Elínbjörg Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum, Kristján Sigurðsson Höskuldsstöðum, Helga Guðmundsdóttir Höskuldsstöðum, Anna Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum, Agnes Sigurðardóttir (d. 15.10.2003) Mánaskál, Elínborg Einarsdóttir (d. 9.12.1972) Síðu og Elísabet Hafliðadóttir (d. 25.9.1979) Núpi. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Jóhannsdóttir (d. 7.6.1971) Skúfi, Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) Skagaströnd, Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993)Neðri Lækjardal, Geirlaug Ingvarsdóttir Balaskarði, Filipía Helgadóttir Syðri Ey, Elsa Ingvarsdóttir (d. 11.12.2007) Balaskarði, Ingibjörg Karlsdóttir Neðri Lækjardal, Svanhildur Eysteinsdóttir Miðgili, Jóhanna Erlendsdóttir (d. 20.8.1979) Breiðavaði, Sigrún Jónsdóttir Vatnahverfi, Ingibjörg Elínmundardóttir Björnólfsstöðum, Steinunn Blöndal (d. 4.11.1996) Blöndubakka og Signý Benediktsdóttir (d. 7.1.1991) Balaskarði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né af hvaða tilefni það var gert.
Óþekktur ljósmyndari177
Myndin var tekin ofan af þrónum yfir söltunarplanið á bryggjunni. Hún sýnir söltun í fullum gangi en ártalið er ekki vitað.
Ólafur Bernódusson450
Árið 1990 tóku nokkrir félagar sig saman og keyptu billjardborð af bestu gerð. Var borðinu komið fyrir í Skátaskálanum og var síðan haldið snóker mót í desember 1990. Á þessari mynd mundar Skúli Tómas Hjartarson kjuðann. Jón Sveinsson fylgist með og einnig ókunn stúlka.
Ólafur Bernódusson491
<p>Stúlkurnar á þessari mynd frá árinu 1993 tóku sig til og héldu tombólu til styrktar einhverju góðu málefni. Stúlkurnar eru, frá vinstri: María Guðrún Guðmundsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir og Marta Kristín Jónsdóttir. Ef þú veist hvers dóttir Hrafnhildur er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Guðmundur Guðnason147
<p>Samkvæmt því sem stendur aftan á þessari mynd eru í aftari röð frá vinstri: Lárus Jónsson (frá Haga d. 3.7.1983 ?), Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) Ægissíðu, Jósef Jóhannsson (d. ?) Ósi, Steingrímur Björnsson ( frá Móbergi d. 21.5.2002 ?), Haukur Jóhannsson og Hergeir Albertsson. Konurnar eru frá vinstri: Þóra Sigurgeirsdóttir - kona Snorra - (d. 9.5.1999 ?), Magna Oddsdóttir, Margrét Jónsdóttir (d. 19.6.1988 ?), Helga Bjarnadóttir og Úrsúla frá Þýskalandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né tilefni þess. </p><p><br></p>
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn008
Starfsmenn frystihúss Hólanes hf meðan það var með vinnslu á Hólanesi. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum/Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Árni Max Haraldsson (d. 6.12.1976) Litla Bergi, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) Dagsbrún, Jón Áskelsson (d. 1989) Hólanesi, framkvæmdastjóri Hólaness hf og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) Sólvöllum, verkstjóri í frystihúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson509
Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) var aldursforseti í kvennahlaupinu í júní 1993 á Skagaströnd . Á myndinni klappa aðrir þátttakendur fyrir Jónu.
Ólafur Bernódusson490
Guðlaugur Hjaltason og Kristjana Jóhannsdóttir með dóttur sína Laufey Sunnu Guðlaugsdóttur á tröppunum í Reykholti (Fellsbraut 6). Myndin var tekin 1993 en tilefni myndatökunnar var að þau hjón höfðu þá nýverið stofnað flutningafyrirtækið Alla leið hf.
Óþekktur ljósmyndari266
Fyrsti bíllinn á Skagaströnd. Hjá bílnum stendur Emil Berndsen sem átti bílinn ásamt bróður sínum Ernst Berndsen. Bílinn keyptu þeir upp úr 1920 en hann varð fljótlega ónýtur. Myndin var sem sagt tekin einhverntíma snemma á þriðja áratugnum. <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni bls 154)</font>
Óþekktur ljósmyndari328
Sjómannadagur sennilega 1949. Þá voru hátíðahöld á Hólanesinu. Húsin í baksýn eru Árnes, þar sem menn sitja undir vegg, Miðnes eða Sigurðarhús er stóra húsið. Lengst til hægri er Bláland og lengra frá sér í Þorfinnshúsið (Bogabraut 9).
Hjördís Sigurðardóttir - safn021
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir situr á þessari mynd í góðu yfirlæti hjá tengdaföður sínum, Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983).
Séra Pétur og Dómhildur - safn111
<p>Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað: <em>Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson. Þannig ferðaðist hann til allra prestsverka fyrstu árin. Þá var aðeins vegur... </em>Pétur hafði aðsetur á Höskuldsstöðum en ferðaðist þaðan til annarra kirkna í Höskuldsstaðasókn t.d. á Skagaströnd og úti á Hofi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. </p>
1
…
61
62
63
…
167
Leita í myndasafninu
Leita