Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson518
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd sígur Jón Ólafur Sigurjónsson niður 20 - 30 metra. Calle fylgist með og segir til á brúninni.
Óþekktur ljósmyndari312
Frits H. Berndsen yngri (d. ?) á Bergi, fyrsti símstöðvarstjóri á Skagaströnd 1929 <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni bls 142).</font>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn035
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru undirleikararnir á sýningunni þeir Hjörtur Guðbjartsson á gítar og Viggó Brynjólfsson á harmóniku.
Ólafur Bernódusson474
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Þessir tveir ungu menn koma að sýningunni Skúli Tómas Hjartarson til vinstri og Guðjón Árnason til hægri.
Óþekktur ljósmyndari217
Þórsmörk á kafi í snjó veturinn 1951. Í þórsmörk bjuggu lengi hjónin Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) með börnum sínum.
Óþekktur ljósmyndari329
Akur (Hólabraut 13) árið 1966. Konan á myndinni er Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) sem þar bjó með syni sínum Herbert Ólafssyni (d. 25.4.2007).
Ólafur Bernódusson536
Í apríl 1993 strandaði dýpkunarprammi/flutningaprammi í fjörunni við uppfyllinguna neðan við gamla Hólanes frystihúsið. Pramminn fék tóg í skrúfuna og rak stjórnlaus þarna upp í fjöruna. Strax var settur vír í prammann tilað stöðva ruggið á honum og til að halda honum örugglega á réttum kili. Pramminn var síðan dreginn á flot beyglaður á botninum en ólekur. Engan sakaði við þetta óhapp.
Ólafur Bernódusson535
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Á þessari mynd er verið að reyna að moka snjó í Bankastræti hjá Flankastöðum (Bankastræti 7) þó svo virðist sem jarðýtan sé uppi á þaki hússins.
Hjördís Sigurðardóttir - safn016
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1984 -1986 þegar Sigfús Jónsson, sem er lengst til vinstri á þessari mynd, var sveitarstjóri á Skagaströnd áður en hann tók við embætti bæjarstjóra á Akureyri. Með honum á myndinni eru, frá vinstri, hreppsnefndarmennirnir: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gylfi Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson519
<p> Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum, sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum, var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd bíða krakkarnir eftir að röðin komi að þeim. Næst okkur á myndinni er Gunnar Guðmundsson þá Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir er stúlkan með ljósa hrokkna hárið. Stúlkan í gráu og svörtu peysunni er Hildur Inga Rúnarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.</p>
Óþekktur ljósmyndari197
Eftir messu í Spákonufellskirkju. Þessi kirkja stóð á svipuðum stað og kirkjugarðurinn er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkjan á Hólanesi, sem tók við af þeirri á myndinni, var vígð 1928 þannig að myndin var sennilega tekinn fyrir þann tíma. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson514
Myndin var tekin af skólakrökkum og kennurum úr Höfðaskóla um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Báturinn var á leið með krakkana út að borgarísjaka sem strandaði nokkuð fyrir innan Skagaströnd á 40 metra dýpi. Myndin var tekin í október 1993.
Ólafur Bernódusson484
Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Hjördís Sigurðardóttir - safn042
<p>Sveitarstjórnarmenninrnir Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til vinstri og Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) til hægri eftir einhvern fund fyrir utan félagsheimilið á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. </p>
Adolf H Berndsen - safn038
Líklega er þessi mynd af skólahóp frá Höfðaskóla. Frá vinstri í aftari röð: Guðný Kristjánsdóttir frá Háagerði, Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Laufey Sigríður Ólafsdóttir Sævarlandi, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir Reykholti og Kristinn Pálsson (d.21.10.2008) kennari. Í fremri röð eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson Þórsmörk, Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Valgarður Bertelsson, Ingi Sigurðsson Brekku, Jónas Skaftason Dagsbrún, og Sigurður Björnsson Jaðri.
Óþekktur ljósmyndari180
Síðasta síldarsöltunarsumarið á Skagaströnd 1962. Myndin var tekin á síldarplaninu á bryggjunni.
Ólafur Bernódusson 518
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd syngur fjölskyldan í Breiðabliki. Frá vinstri: Svava Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Ólafur Bernódusson512
Á þessari mynd er einn aldursflokkur stúlkna búinn að hlaupa í víðavangshlaupi Landsbankans í maí 1993. Þarna er verið að afhenda verðlaun fyrir hlaupið. Frá vinstri í röðinni eru: Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Kristrún Linda Jónasdóttir, Birna Ágústsdóttir, óþekkt og Sigrún Líndal á efsta palli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason062
Aftan á þessari mynd stendur: Gerður og Hólmgeir Helga magra stræti 40. Sennilega er um að ræða Gerðu Snædal og Hólmgeir Snædal.
Óþekktur ljósmyndari273
Við færibandið í Rækjuvinnslunni snemma á níunda áratugnum. Frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Signý Ósk Richardsdóttir, Líney Jósefsdóttir og Árdís Indriðadóttir. Til hægri: Sólveig Eiðsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), Dagný Hannesdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 225).</font>
Skagaströnd - safn034
Árnesingur ÁR 75 var einn af síðustu eikarbátunum sem framleiddir voru í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. hér er verið að sjósetja bátinn í fyrsta sinn árið 1976.
Hjördís Sigurðardóttir - safn037
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar sumarið 1988. Henni til heiðurs var haldið kaffisamsæti í Fellsborg þar sem fólkinu í sveitarfélaginu gafst færi á að hitta forseta sinn. Á þessari mynd af háborðinu eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.2018) oddviti Höfðahrepps, frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Jón Ísberg sýslumaður Húnavatnssýslu, Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg sýslumannsfrú og Hjördís Sigurðardóttir oddvitafrú.
Kvenfélagið Eining - safn067
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson551
Fjöltefli í Höfðaskóla líklega veturinn 1990. Páll Leó Jónsson skólastjóri og skákáhugamaður stendur til hægri og skoðar stöðuna. Ekki er vitað hver skákmaðurinn var sem tefldi við nemendurna en frá vinstri eru á myndinni: Linda Rós Rúnarsdóttir, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson, Jón Heiðar Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn081
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir
Magnús B Jónsson089
Einni af nýsmíðum í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf gefið nafn á hefbundinn hátt með því að brjóta flösku á stefninu. Sjá má á myndinni að enn er límt yfir nafnið á kinnungnum. Það er Hjördís Sigurðardóttir sem gefur bátnum nafnið Stakkur RE í október 1983.
Óþekktur ljósmyndari194
Björg Karlsdóttir fyrsti ritari kvenfélagsins Eining 1927.
Skagaströnd - safn145
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á þessari mynd er fólk að fylgjast með skemmtiatriðum á sviðinu.
Óþekktur ljósmyndari195
Steinbryggjan við Hólsnefið. Þessa bryggju byggðu sjómenn í sjálfboðavinnu gegn fjárframlagi frá Verslunarfélagi Vindhælinga árið 1922. Á þessari mynd er aðgerð í gangi á fiski úr fjórum bátum sem sjást á myndinni. Báturinn, sem er nær bryggjunni fyrir miðri mynd, hét Langlíf og var í eigu Axels Helgasonar frá Læk.
Hjördís Sigurðardóttir - safn001
Á þessari mynd eru systkinin frá Karlsskála ásamt mökum sínum. Aftari röð frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995). Fremri röð frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir kona Adolfs, Helga Berndsen kona Gunnlaugs og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir kona Karls. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1990.
Óþekktur ljósmyndari224
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga um 1945. Eftir að þessi mynd var tekin var gluggum hússins breytt en síðan við uppbyggingu kringum 2010 var húsinu aftur breytt til upprunalegs útlits fyrir utan að öðruvísi þakefni voru sett á húsið.
Óþekktur ljósmyndari236
Kalsamur leikur á sjómannadegi - naglaboðhlaup. Viðkomandi eiga að fara upp í kar fullt af ísköldu vatni finna hamar og nagla á botni karsins og reka á kaf í spýtuna sem er fyrir framan þá. Á þessari mynd eru Jóhannes Sveinsson til vinstri og Hendrik Berndsen til hægri. Skeggjaði maðurinn sem stendur hjá þeim og sér til þess að allt fari fram samkvæmt reglum er Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason164
<p>Eki er vitað hvenær eða hvar þessi mynd var tekin. Konan lengst til vinstri í peysufötum er Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002) á Neðri Mýrum. Næst henni er svo Signý Benediktsdóttir (d. 7.1.1991) frá Balaskarði. Þá kemur, með hendur fyrir aftan bak, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Njálsstöðum. Auðbjörg Albertsdóttir (d. 13.9.1994) frá Hafurstöðum, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) sem þá bjó á Höskuldsstöðum. Framan við hana er Björg Benediktsdóttir (d. 20.11.1991) Efri Lækjardal, Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993) sem þá bjó í Neðri Lækjardal er við hlið Dómhildar til hægri og síðan koma þær Magdalena Einarsdóttir (d. 3.3.1985) Síðu og Ingibjörg Karlsdóttir (d. ?) Neðri Lækjardal. Konan með krosslagðar hendur er svo Petrea Jónsdóttir (d. 22.3.1972) frá Skrapatungu. Drengurinn með bindið er líklega annar tvíburanna Ellert eða Jakob Guðmundssonur en ekki er vitað hvor þeirra þetta er. Aðrir á myndinni eru óþekktir. </p>
Óþekktur ljósmyndari255
Um borð í Arnari HU 1 - síðutogaranum - vorið 1969. Mikill afli var þetta hafísvor og stóð á höndunum í aðgerðinni. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Helgason (snýr baki í myndavélina), Árni Petersen, Guðjón Jónsson og Sigurjón Haraldsson fjær.
Óþekktur ljósmyndari262
Rækjuvinnslan nýbyggð 1975 og án síðari tíma viðbygginga.
Óþekktur ljósmyndari193
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) Miðnesi. Björgvin var bóksali, vekalýðsfrömuður og sparisjóðsstjóri með meiru.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn010
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Hjörtur Guðbjartsson, Elín Njálsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Kristín Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 850
Ívan Árni Róbertsson 17. ágúst 2009.
Óþekktur ljósmyndari315
Úr sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Hart í bak. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson, Jón Helgi Eiðsson og Birna Blöndal. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn031
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni - sem var sett saman úr tveimur myndum löngu fyrir tilveru Photoshop - er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í hlutverki sínu sem létt ruglaður írskur herforingi en hesturinn kom ekkert fram í sýningunni. Myndina gerði Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn067
Fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða voru teknar í notkun 1980. Af því tilefni var fólki boðið til kaffidrykkju í Fellsborg og að skoða íbúðirnar. Á þessari mynd er fólk að skoða eina íbúðina. Sigurður Jónsson með húfu á höfðinu, og Páll Þorfinnsson, sem lagði rafmagn í íbúðirnar, standa í andyrinu ásamt fleirum.
Óþekktur ljósmyndari250
Sjaldan voru þrír bátar í dráttarbrautinni á sama tíma en þannig var það þó þegar þessi mynd var tekin árið 1988. Bátarnir eru frá vinstri: Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg Hu 7 og Þórir Jóhannsson GK 116.
Óþekktur ljósmyndari167
Á myndinni er verið að rétta hross í Landsendarétt. Réttin stóð á við Landsenda en nyrsti endi Höfðans er kallaður það. Landsendarétt var því á sjávarbakkanum norðan við Réttarholt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson496
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Á þessari mynd eru frá vinstri: María Magnúsdóttir, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 18.9.1999), óþekktur baksvipur, Guðný Finnsdóttir og Árný Halla Magnúsdóttir (d. 12.5.1996).
Óþekktur ljósmyndari175
Hér er í byggingu hornstólpi undir færiband frá löndunarkrana upp í síldarverksmiðjuna. Myndin mun vera tekin á árunum 1945 - 47.
Óþekktur ljósmyndari288
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn 1977. Aftari báturinn er Ósk HU 21 í eigu Sytefáns Stefánssonar (d 2.1.1988). Hinn báturinn er óþekktur.
Skagaströnd - safn008
Hafnarhúsið var upphaflega byggt 1935 á lóðinni þar sem síldarverksmiðjan var seinna byggð. Hafnarhúsið var því flutt á núverndi stað einhvertíma á árunum 1943 - 1945. Húsið er timburhús sem seinna var klætt með lituðu bárustáli.
Skagaströnd - safn154
Þessi mynd sýnir framkvæmdir við smábátabryggjuna við Skúffugarðinn. Ólafur Guðmundsson snýr baki í myndavélina en Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er úti á horni í köflóttri skyrtu. Ólafur Bernódusson og Guðmundur Björnsson eru að sjósetja bátinn sinn í fjörunni til hægri og vinnsla er í frystihúsi Hólaness hf. Lýsistankurinn stendur enn til hægri og síldarþrærnar einnig bak við flutningaskipið. Myndin var tekin 22. júlí 1989.
Dagný Sigmarsdóttir017
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Jóhanna Karlsdóttir að pakka í neytendaumbúðir til útflutnings - væntanlega upp í samning við verslunarkeðjuna Marks & Spencer í Englandi.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn001
Leikarar í Sumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson á einni af fyrstu æfingunum á leikritinu í kennslustofu í Höfðaskóla. Frá vinstri á myndinni eru: Sigrún Jónsdóttir(standandi), Dagný Sigmarsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Elín Njálsdóttir (nær), og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Leikritið var sýnt leikárið 1984 - 85.
Hjördís Sigurðardóttir - safn031
Þessir tveir heiðursmenn settu svip sinn á lífið á Skagaströnd á sinni tíð. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi er vinstra megin en Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórsmörk er hægra megin.
Óþekktur ljósmyndari203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944 af höfninni á Skagaströnd. Söltunarkassarnir/borðin bíða eftir silfri hafsins og "Litla bryggjan " bíður bátanna. Hún var látin halla fram til að auðveldara væri að landa fiski við hana úr litlum bátum.
Óþekktur ljósmyndari253
Gengið til messu í Hólaneskirkju (eldri) á sjómannadegi. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) skipstjóri og útgerðamaður í Holti heldur á fána og hefur húfu á höfðinu. Hinn fánann ber Hákon Magnússon skipstjóri frá Sólvangi. Lengst til vinstri á myndinni er Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka og fyrir aftan hann eru Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Tvíburarnir Karl Guðmundsson og Ingibergur Guðmundsson úr Skeifunni eru sinn hvoru megin við séra Pétur Þ. Ingjaldsson en yfir hægri öxl hans sér í Elínborgu Árnadóttur (d. 7.4.1979) í Sólheimum og Þorgerður Guðmundsdóttir ( d. 24.4.2008) í Höfðabrekku er konan við vinstri hlið hans. Guðmundur Jóhannesson, faðir þeirra tvíburanna, sést yfir öxl Hákonar en Rúnar Hartmannsson úr Höfðatúni er drengurinn við hlið hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari333
Á árunum kringum 1960 var öflugt skátastarf á Skagaströnd. Skátafélagið hét Sigurfari og voru bæði stúlkna og drengjadeildir innan félagsins. Félagið byrjaði á framkvæmdum við skátaskála í Brandaskarði og var þar steyptur sökkull og plata undir skála. Lengra komst verkið ekki á þeim stað. Seinna byggði félagið sér myndarlegan skála í suð-vestur hlíðum Spákonufellsins, eiginlega beint upp af skíðaskálanum, sem stendur þar nú. Því miður var skálanum valinn staður þar sem mjög snjóþungt er og eftir nokkur ár lagðist skálinn saman undan snjóþunga en hafði verið notaður í tengslum við skátastarfið fram að því. Á þessari mynd, sem tekin var ofarlega í Hrafndal, sýnir hóp kvenskáta sem fóru í gönguferð kringum Borgina. Með þeim fór Bernódus Ólafsson sem "burðarmaður" en hann fylgdi stúlkunum fram Hrafndalinn en sneri við þegar þau voru komin fyrir enda Borgarinnar að austanverðu. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), María Bjarnadóttir (d. 1984), Kristín Lúðvíksdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Hrefna Þorbjörnsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), Ingibjörg Kristinsdóttir (fjær), Jóhanna Valdimarsdóttir (fjær), Guðrún Þórbjarnardóttir (í miðið), Þórunn Bernódusdóttir (nær), Helga Guðmundsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Pálína Benjamínsdóttir.
Ólafur Bernódusson541
Myndin var tekin á vormóti Bridgeklúbbs Skagastrandar vorið 1995 í Fellsborg. Á myndinni spila Ingibergur Guðmundsson (vinstra megin) og Gunnar Sveinsson við óþekkta andstæðinga. Vormót Bridgeklúbbsins nutu nokkurra vinsælda en á þau komu spilarar víða að á svæðinu frá Akureyri til Hvammstanga.
Óþekktur ljósmyndari211
<p>Bærinn Hnappsstaðir. Í baksýn er Þorfinnshús (Bogabraut 9) en það var byggt 1948 þannig að myndin var tekin eftir þann tíma, sennilega kringum 1950.</p>
Ólafur Bernódusson529
Rauðakrossdeildin á Skagaströnd kynnti starfsemi sína utan við Samkaup 10. desember 1994 í tilefni af 75 ára afmæli RKÍ. Fullorðnu mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Þröstur Líndal, Pétur Eggertsson (nær) og Jónas Jónasson.
Guðmundur Guðnason182
<p>Þessi mynd hefur sýnilega verið eigandanum hjartfólgin en ekki er vitað hver konan á myndinni er. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Ólafur Bernódusson495
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 spiluðu eldri borgara bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jóhanna Jónasdóttir og maður hennar Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Hægra megin við borðið eru: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), kona hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og óþekkt kona. Ef þú veist hver óþekkta konan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson024
Þessi mynd er tekin á landamóti skáta á Þingvöllum 1962, Bandalag íslenskra skáta átti 50 ára afmæli. All margar stúlkur frá Skagaströnd fóru á mótið, en aðeins 4 drengir, þeir voru Stefán Ingólfson (d.21.10.2004), sem var foringi. Steindór Haraldsson varaforingi, Helgi Bjarnason ritari og Þórir Ágústson birgðavörður. Á myndinni er Stefán Ingólfsson að fara með ruslið úr tjaldbúðum Sigurfara á Skagaströnd.
1
…
64
65
66
…
167
Leita í myndasafninu
Leita