Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari178
Ludendorf Hu 46 var í eigu Ole Aamundsen. Ole réri honum ekki sjálfur heldur réði til sín áhöfn til að geta gert bátinn út. Reyndar átti Ole annan bát, Hindenburg Hu 45, sem hann gerði út á sama hátt.
Óþekktur ljósmyndari227
Þórður Jónsson (d.25.12.2009) til vinstri og Ingólfur Ármannsson til hægri á skátamóti að Hólum í Hjaltadal sumarið 1964. Þeir tveir voru félagsforingjar, hvor á eftir öðrum, í Sigurfara sem var skátafélagið á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari242
Hluti hljómsveitarinnar Nýung. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Viggó Brynjólfsson og Þorvaldur Skaftason. Myndin var sennilega tekin á jóla - barnaballi í Fellsborg um 1975.
Hjördís Sigurðardóttir - safn017
Á myndinni hafa þau það notalegt frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) maður hennar og Sveinn Ingólfsson. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1984 - 1986.
Ólafur Bernódusson540
Veturinn 1995 héldu krakkarnir í 8. - 10. bekk Höfðaskóla körfuboltamaraþon. Þá voru íþróttir kenndar í Fellsborg því ekki var búið að byggja íþróttahúsið og því fór maraþonið fram þar. Með maraþoninu voru krakkarnir að safna fé til kaupa á ýmsum íþróttaáhöldum. Á þessari mynd grípa í spil á milli leikja þau Guðjón Hall Sigurbjörnsson til vinstri og Guðrún Elsa Helgadóttir til hægri.
Guðmundur Guðnason154
Aftan á þessari mynd stendur: Ferð á Hnjúkshnjúk. Enghlíðingar og Vindhælingar. Annað er ekki vitað um myndina og fólkið er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson102
Nanna Tómasdóttir (d. 25.7.2013) frá Blönduósi
Skagaströnd - safn047
Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum, byggingafulltrúi Höfðahrepps, skoðar frágang á uppslætti við smíði viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Guðmundur Guðnason080
Óþekktur maður uppi á þrónum við verksmiðjuna. Þarna við hliðina var Skagastrandarradíó á síldarárunum.
Skagaströnd - safn029
Hér er verið að koma fyrir niðurfalli á Oddagötu áður en varanlegt slitlag er lagt á hana 1976. Starfsmenn Höfðahrepps þeir Vilhelm Harðarson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri aðstoða ókunnan mann frá Miðfelli hf, sem sá um niðurlagninguna á slitlaginu.
Óþekktur ljósmyndari222
Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) Litla Bergi á mótorhjólinu sínu - H 54 - einhverntíma á sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn249
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að undirbúa að reisa annað þeirra. Frá vinstri: Reynir Lýðsson, óþekktur maður frá þeim sem leigðu út tjaldið og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins.
Kvenfélagið Eining - safn045
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri:Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) í hvarfi við mann sinn, Svein Kristófersson (d. 9.5.1991).
Skagaströnd - safn020
Kálfshamarsvík. Þar var áður töluverð byggð og skemmtilegt er að ganga um svæðið því þar eru öll bæjarstæði vel merkt og saga þeirra sögð í stuttu máli á aðgengilegum skiltum. Þess utan er þarna sérstaklega fallegt stuðlaberg sem gaman er að skoða.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn017
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf.
Skagaströnd - safn081
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd spjalla þeir Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar til vinstri og Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) til hægri, við óþekkta konu.
Óþekktur ljósmyndari256
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 - síðutogaranum - hafísvorið 1969. Verið er að láta trollið fara aftur eftir 20 - 30 tonna hal. Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) er á gilsinum lengst til vinstri og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) er við spili, Guðjón Jónsson er á forhleranum en í aðgerð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Viggó Maríasson (d. 30.7.1973) og Óskar Kristinsson, sem snýr baki í myndavélina. Maðurinn milli Viggós og Óskars er óþekktur.
Halldór004
Myndin var líklega tekin í desember 1998. Á henni er fólk sem vann í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Þau eru, frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Björn Hjálmarsson og Stefán Þór Árnason.
Óþekktur ljósmyndari306
Carl Berndsen (d. 15.12.1954) kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúm fimmtíu ár.
Óþekktur ljósmyndari267
Kennarar og skólastjóri í Höfðaskóla veturinn 1960 - 1961. Aftari röð frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) og Sveinn Ingólfsson. Fremri röð frá vinstri: María Magnúsdóttir og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Ólafur Bernódusson476
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Þórdís Skúladóttir og Einar Haukur Arason, sem eru á þessari mynd, fóru bæði með hlutverk í sýningunni.
Ólafur Bernódusson507
Sunna Gylfadóttir tók þátt í árlegu kvennahlaupi í júní 1993 þó hún væri ekki há í loftinu á þessum tíma. Hlaupið hófst á tjaldsvæðinu og endaði þar aftur eftir að konurnar höfðu farið ákveðinn hring um bæinn.
Skagaströnd - safn147
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Um kvöldið var kveiktur varðeldur og sungið saman. Á myndinni syngja fullum hálsi, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Ólína Gyða Hafsteinsdóttir með Þorvaldi Skaftasyni sem spilar á gítarinn. Börnin í myndinni eru óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari251
Þorvaldur Skaftason fimm ára gamall með Dísu frænku sinni úr Reykjavík fyrir neðan heimili sitt að Dagsbrún.
Óþekktur ljósmyndari183
Þessi mynd var tekin 1934 úti í Spákonufellsey. Karlarnir á myndinni eru að brjóta hana niður en grjótið var notað í uppfyllingu í höfninni ásamt grjóti úr Höfðanum. Eins og sjá má voru vinnubrögðin frumstæð, karlarnir með hamra og meitla við að brjóta grjótið og færanlegur gálgi til að lyfta grjótinu á einhvers konar vagn sem rann eftir teinunum sem sjást á myndinni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn010
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps, Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður og Ólafur Bernódusson fréttaritari Morgunblaðsins.
Ólafur Bernódusson 528
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd er kvartett sem söng fyrir gesti. Við píanóið situr Julian Hewlett en söngvararnir eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Ástmar Kári Ástmarsson og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000).
Hjördís Sigurðardóttir - safn006
Frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Mennirnir á myndinni komu allir að byggingu skálans sem smiðir eða bifreiðastjórar. Frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Sigurjón Ástmarsson og Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011).
Ólafur Bernódusson 532
Togarinn Arnar Hu 1 tók þátt í togararallyi í maí 1993. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar um borð tóku með sér ýmis konar lífverur í land en þær höfðu komið í trollið hjá Arnari. Börnum úr Höfðaskóla, Blönduósskóla og Húnavöllum var boðið að koma og skoða lífverurnar. Eins og sjá má á myndinni þá var áhuginn gríðarlegur hjá krökkunum.
Ólafur Bernódusson513
Stöku sinnum laumast borgarísjakar inn Húnaflóann alla leið frá Grænlandi. Þessi var á ferðinni utan við Skagaströnd í september 1993. Björgunarbáturinn Þórdís er í forgunni.
Óþekktur ljósmyndari334
Þessi mynd var tekin af heiðurfélögum umf Fram á 30 ára afmæli félagsins 1956. Frá vinstri: hjónin Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti, Sigurður Guðlaugsson (d. 19.7.1992 ) frá Hafursstöðum og Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) frá Karlsskála. Ekki er víst að Sigurður hafi verið heiðurfélagi en hann var einn af stofnendum félagsins.
Ólafur Bernódusson 504

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri með konu sinni Halldóru Þorláksdóttur við skipstjórastólinn í brúnni. Lengst til vinstri brosir Adolf H. Berndsen en aðrir eru óþekktir.

Séra Pétur og Dómhildur - safn109
Þessi mynd er frá vígslu Höskuldsstaðakirkju nýrri 31. mars 1963. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur er fremstur með hluti úr gömlu kirkjunni í höndum, Þorsteinn Gíslason (d.18.6.1980) prófastur í Steinnesi er næstur og aftastur er herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup.
Guðmundur Guðnason180
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Á þessari mynd er Þingvallabærinn og kirkjan en hátíðartjöldin eru í baksýn. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Skagaströnd - safn012
Þessi mynd er af húsakosti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli. Vinstra megin er golfskálinn en geymsluhús er til hægri.
Ólafur Bernódusson478
Særún Níelsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Kvenfélagið Eining - safn068
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir.
Ólafur Bernódusson 503

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fylgjast gestir með ræðuflutningi í brú hins nýja skips. Frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Ófeigur Gestsson, Lovísa Kristín Stefánsdóttir og fréttamaður frá útvarpinu að taka upp. Aðrir eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson479

Þetta er annar hvor tvíburanna Vilborg Jóhannsdóttir eða Áslaug Jóhannsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla. Þær systur eru eineggja tvíburar og því afar líkar og erfitt að þekkja þær sundur á myndum.

Óþekktur ljósmyndari207
Þessi mynd var sennilega tekin sumarið 1934 af mönnum við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var síðan notað í uppfyllingu í höfninni. Húsin í baksýn eru Melstaður og Laufás.
Hjördís Sigurðardóttir - safn002
Myndin var tekin á Hótel Blönduós á 17. júní en árið er óþekkt. Líklega hefur það verið kringum 1960. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013), Sigurður Sigurðsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Skagaströnd - safn023
Árbakkasteinn er í raun tvö sker sem standa fram af Hrafnánni. Næst okkur á myndinni er grjótgarður, sem byggður var á fimmta átratugnum, sem upphaf á hafnargerð, sem hugsuð var með varnargarði út í Árbakkastein og síðan þaðan til norðurs að Brúnkollu, sem er blindsker sunnan við enda Útgarðs. Ef þessar hugmyndir hefðu orðið að veruleika væri Skagastrandarhöfn að öllum líkindum lífhöfn í hvaða veðrum sem væri. Þá lá líka fyrir skipulag að Skagaströnd sem 5000 manna byggð sem byggja skyldi á stóriðju - síldarverksmiðjunni - og margfeldiáhrifum hennar. Því miður gleymdist að ræða við síldina til að tryggja hennar þátt í málinu þannig að draumarnir um svo fjölmenna og blómlega byggð runnu út í sandinn.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn003
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Leikarar eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson (fjær), Elín Njálsdóttir og Hjörtur Guðbjartsson í faðmlögum á gólfinu, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Guðný Sigurðardóttir og Birna Blöndal.
Ólafur Bernódusson502
Eyþór Kári Egilsson hjólar hér í gegnum braut sem lögreglan setti upp á skólavellinum á hjóladegi í Höfðaskóla í maí 1994. Brautin gat verið snúin fyrir 7 - 8 ára gutta en enginn fékk að fara hana fyrr en að undangenginni hjólaskoðun lögreglunnar.
Kvenfélagið Eining - safn103
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd eru þær Rósa Högnadóttir til vinstri og Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) til hægri að undirbúa laufabrauðsbakstur í Fellsborg í aðdraganda þorrablóts í febrúar 1996.
Óþekktur ljósmyndari349
Bærinn að Spákonufelli. Hann stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga
Kvenfélagið Eining - safn049
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson498
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Þessi mynd var tekin í kaffihléi. Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jóhanna Jónasdóttir og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Við borðið fjær eru talið frá vinstri: Auður Ágústsdóttir (d. 21.1.1997), óþekkt, Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002), óþekkt, Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994), Guðrún Bjarnadóttir (d. ?), Jón Hall Magnússon (d. ?), Jónína Valdimarsdóttir og Lárus Björnsson (d. 28.4.1995).
Óþekktur ljósmyndari235
Þessi mynd var tekin 1941 af hjónunum frá Brúarlandi með börnum sínum. Hjónin, Jón Bjarnason (d.?) og Ólína Sigurðardóttir (d.mars 1955) ljósmóðir, eru sitjandi. Lengst til vinstri er svo Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) kenndur við Höfðakot, maðurinn fyrir miðju aftast, með þverslaufu, er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri sem bjó í Norður Skála. Milli þeirra er Björn Bergmann Jónsson (d.12.1.1964). Næst lengst til hægri í öftustu röð er Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi og lengst til hægri er Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963) bóndi á Fossi á Skaga. Konan lengst til hægri er Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) frá Reykholti er í íslenskum búningi næst lengst til vinstri í fremri röðinni. Milli þeirra er Steinunn Jónsdóttir (d.?) og á endanum til vinstri er Sigrún Jónsdóttir (d.)
Guðmundur Guðnason116
Varðskipið Óðinn í höfn á Skagaströnd. Myndin var tekin á stríðsárunum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn026
Sjálfstæðismenn funda með alþingismanninum sínum. Frá vinstri: Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Eyjólfur Konráð Jónsson (d. 6.3.1997) alþingismaður sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og Sveinn Ingólfsson.
Skagaströnd - safn002
Húsið var byggt á níunda áratugnum. Þegar það var tekið í notkun voru m.a. skrifstofur Höfðahrepps og Búnaðarbankaútibú á neðstu hæð. Hótel Dagsbrún var á annari hæð en skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni.
Óþekktur ljósmyndari275

Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú á Skagaströnd var fyrsta konan sem kosin var í hreppsnefnd Vindhælishrepps hins forna árið 1910. Um þennan merka atburð má finna eftirfarandi klausu í tímaritinu Norðurland 29. tölublaði (16. 7.1910) 10. árgangi úr grein sem ber fyrirsögnina "Bréf frá Skagaströnd":

"....... Nýmæli eru það, að konur séu kosnar í hreppsnefnd. Á hreppaskilum Vindhælinga nú í vor, var kona kosin í hreppsnefnd. Kona þessi er frú Jóhanna Hemmert á Skagaströnd. Einnig var hún kosin í fræðslunefnd. Það er sómi fyrir hreppsbúa að hafa riðið á vaðið með að kjósa konu í þessar nefndir og ættu sem flestir hreppar að gera hið sama. Einnig á frú J. Hemmert þakkir skilið fyrir að gefa kost á sér til þessara starfa. Vonandi að árlega fjölgi konum í hreppsnefndum víðsvegar um landið og eigi verði langt að bíða þess, að konur fái fult jafnrétti við karlmenn. Ritað í júní 1910. Skagstrendingur ".

Þess má geta í þessu sambandi að konur og vinnuhjú, 40 ára og eldri, á Íslandi fengu ekki almennan kosningarétt fyrr en árið 1915. Á árinu 1882 fengu ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar, kosningarétt til að kjósa til hrepps- og sýslunefnda, bæjarstjórna og á safnaðarfundum ef þær voru orðnar 25 ára gamlar. Þó þessar konur mættu kjósa máttu þær ekki bjóða sig fram nema að uppfylltum ströngum skilyrðum um eignir, aldur og sjálfstæði. Lögunum var svo breytt 1920 þannig að þá fengu konur og vinnuhjú full pólitísk réttindi við 25 ára aldur.

Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn002
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd skemmta þau sér vel í vinnunni Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Sigrún Benediktsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn019
Á myndinni eru samherjarnir og vinirnir Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri í Hólanesi og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn010
Árni Ólafur Sigurðsson togaraskipstjóri frá Þórsmörk á hjólinu sínu ungur maður. Myndin var tekin kringum 1960.
Hjördís Sigurðardóttir - safn012
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Róbert Þórðarson (d. 26.11. 2011) útibússtjóri á tali við Sveinbjörn Egilsson sem sá um yfirtökuna. Fyrir aftan þá til hægri er Kjartan Birgisson starfsmaður í útibúinu.
Guðmundur Guðnason130

Maðurinn á myndinni er Rósberg G. Snædal með elsta son sinn, Hún Snædal, í fanginu. Myndin var sennilega tekin í Aðalstræti 16 á Akureyri 1944, þar sem fjölskyldan bjó.

Óþekktur ljósmyndari286
Á sjávarútvegssýningu 1984. Þá sýningu sóttu nokkur fyrirtæki á Skagaströnd og kynntu starfsemi sína. Á myndinni eru þeir Sigfús Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri á bás Hólaness hf og Vélaverkstæðis Karls Berndsen
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn009

Þessir afslöppuðu menn eru frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri í Norður Skála, Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólanesi og óþekktur maður til hægri. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

1

65
66
67

167
Leita í myndasafninu
Leita