Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn025
Myndin var tekin þegar Ólafsvellir/Náttbrún var rifin. Húsið stóð nokkurn vegin á horninu þar sem nú mætast Oddagata og Túnbraut. Vörubíllinn á myndinni var H 34 í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007), sem situr undir stýri á myndinni. Myndin var tekin einhverntíma rétt fyrir 1990 en Stjórnsýsluhúsið, sem er í baksýn, var tekið í notkun 1987.
Guðmundur Guðnason201
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk var að leika og ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin. Myndin var tekin á sviðinu í gömlu Tunnunni - nú Spákonuhof - og á henni eru frá vinstri í hlutverkum sínum: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994), Guðmunda Árnadóttir, Hallbjörn Hjartarson, óþekkt, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson029

Birgir Júlíusson í Höfðabergi til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri standa hér á tröppunum við Gamla skólann - Bjarmanes. Þegar myndin var tekin var inngangurinn í húsið að austanverðu en nú hefur húsið verið endurbyggt í sinni upprunalegu mynd og því er þessi inngangur horfinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var skólastarfsemin færð í nýja byggingu sem enn er í notkun.

Óþekktur ljósmyndari322

Hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd vann Músiktilraunir árið 1988. Myndin er af félögunum í hljómsveitinni. Frá vinstri í fremri röð: Jón Arnarson og Fannar Viggósson. Aftar frá vinstri: Ingimar Oddsson, Viggó Magnússon og Kristján Blöndal.

Skagaströnd - safn084
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Jónas Skaftason, Gunnlaugur Sigmarsson, Rannveig Jónsdóttir, Sævar Hallgrímsson, Ragnheiður Magnúsdóttir og Sigurjón M. Alexandersson.
Skagaströnd - safn003

Eldri hluti Höfðaskóla var tekinn í notkun 1958 en nýrri hlutinn um 1980. Eldri hlutinn er fjær okkur á myndinni.

Skagaströnd - safn035
Anný Hu 3 var fyrsti plastbáturinn sem smíðaður var í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Báturinn var smíðaður 1977 fyrir Einar Guðmundsson frá Saurum. Anný var síðan seld austur á firði og gerð út þar meðal annars sem ferja/póstbátur milli fjarða. Á þessari mynd liggur Anný Hu 3 framan við Helgu Björg Hu 7 en í forgrunni eru trillurnar Kópur Hu 28 og Sigurður Jónsson Hu 18.
Guðmundur Guðnason205

TF Eir mun vera fyrsta þyrlan sem Landhelgisgæslan eignaðist. Þyrlan var í rekstir á árunum 1965 - 1971. Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin ná hver konan og barnið eru. (Heimild: http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en)

Þórður Jónsson028
Hér bregða þeir á leik, vinirnir Sigurður Bjarnason til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri árið 1963. Báðir eru þeir miklir Skagstrendingar í sér og vilja hag Skagastrandar sem mestan. Þessa mynd af þeim félögum tók Þórður Jónsson (d.25.12.2009) fyrir utan gamla útibúið sem stóð nokkurn vegin þar sem suð- vestur horn skólalóðarinnar er í dag. Útibúið var verslunarútibú frá Kaupfélagi Skagstrendinga.
Skagaströnd - safn010
Hólanesfrystihúsið við Einbúastíg. Húsið var byggt í mörgum áföngum og viðbyggingum. Þar var eitt sinn sláturhús á neðstu hæðinni en seinna var fiskvinnsla í öllu húsinu á vegum Hólaness hf. Með breytingum í útgerðarháttum og tilkomu kvótakerfis lagðist fiskvinnsla af í húsinu. Þar eru nú m.a. rannsóknastofur líftæknifyrirtækisins Biopol.
Séra Pétur og Dómhildur - safn105
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri af kirkjukórnum. Aftan á myndinni stendur:  Kirkjukór Hólaneskirkju. Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Stefán Kristinsson Herðubreið, Hjördís Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson Kaupfél. húsi, Jón Kristinsson síðar rafveitustjóri v/ rafstöðina í Laxá á Ásum. Ingibjörg Bertelsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Páll Jónsson organisti og skólastjóri, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Ingibjörg Sæmundsdóttir Hólanesi, Sigurlaug Björnsdóttir Iðavöllum.
Skagaströnd - safn120
Björn Hallbjörnsson vinnur við járnabindingar í nýbyggingu við Mánabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en íbúðirnar voru afhentar, fullbúnar, í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn125
Þessi mynd var tekin í febrúar 1983 af ungu fólki sem var að eignast sínar fyrstu íbúðir í verkamannabústöðum við Suðurveg. Frá vinstri: Magnús Blöndal, Sigurjón Ingólfsson og Hallbjörg Jónsdóttir. Nær okkur á myndinni sér á hnakkann á Steinunni Berndsen og maðurinn með gleraugun er Gísli Snorrason.
Óþekktur ljósmyndari351
Spákonufellsbærinn 1949. Bærinn stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga.
Ólafur Bernódusson493
Myndin var tekin í desember 1993 af starfsfólki Skagstrendings hf á námskeiði í Fellsborg. Frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Stefán Ægir Lárusson, fjórir óþekktir, Björgvin Karlsson, óþekktur (fjær), Sigurbjörn Björgvinsson, Hjalti Indriðason (næst), Gylfi Guðjónsson, óþekktur (fjærst), Gunnar Jón Jónsson, Ragnar Högnason, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, þrír óþekktir, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (næst), Sveinn Ingólfssonn, óþekktur (fjærst) og Ágúst Ómarsson.
Guðmundur Guðnason297
Séra Birgir Snæbjörnssoní ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Þórður Jónsson043

Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla af umsjónarbekk Elínborgar Jónsdóttur (d. 7.1.2007) líklega 1958 eða 1959. Nemendurnir á myndinni eru fædd 1951 og voru fyrsti hópurinn sem hóf nám sitt í nýbyggðum Höfðaskóla. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021). Miðröð frá vinstri: Sævar Hafsteinsson, Ólafur Bernódusson, Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Rúnar Jósefsson og Óskar Jóhannesson (fæddur 1950). Aftasta röð frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson, Björn Bragi Sigmundson, Reynir Sigurðsson, Fritz Bjarnason, Karl Lúðvíksson og Elínborg kennari.
Skagaströnd - safn062
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður Þorbjarnarson (d 15.3.2002) frá Geitaskarði, Valgerður Ágústsdóttir Geitaskarði, Helena Ottósdóttir (d. 22.11.2007), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Birna Blöndal og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987).
Skagaströnd - safn256
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð.
Óþekktur ljósmyndari320
Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Kambakoti og Reykholti var mikill veiðmaður og góð skytta. Hann skaut margan refinn gegnum tíðina og á þessari mynd, sem tekin var 1969 af Stefáni Jósefssyni, heldur hann á einum þeirra. Hlauplanga haglabyssan, sem hann er með, var af gerðinni Husqvarna en slíkar byssur voru nokkuð algengar á þessum tíma
Leikklúbbur Skagastrandar - safn019
Jónas Árnason (d. 5.4.1998) skrifaði leikritið Skjaldhamrar. Leikklúbbur Skagastrandar sýndi verkið í Fellsborg á leikárinu 1976 - 1977 undir leikstjórn Einars Rafns Haraldssonar. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ólafur Bernódusson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari318
Þessir menn frá vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík unnu að byggingu síldarverksmiðjunnar 1945 - 1947. Eitt af því sem þeir smíðuðu voru tveir risa-tankar upp við Höfðann. Hér hafa þeir stillt sér upp utan á öðrum þeirra til myndatöku.
Óþekktur ljósmyndari310
Karl B. Laxdal (d. ?) hreppsnefndarmaður í Vindhælishrepp hinum forna (fyrir skiptinguna 1939 í þrjá hreppa).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn022
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru Birna Blöndal og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn030
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti, til hægri, skálar hér við Þorgeir Hafsteinsson, einn af starfsmönnum Miðfells hf, eftir að fyrirtækið hafði lokið lagningu varanlegs slitlags á götur á Skagaströnd 1976. Milli þeirra situr Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson546
Helga Björg Hu 7 kemur til heimahafnar á Skagaströnd um mánaðarmótin jan/feb 1996. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um þetta skip: "Helga Björg Hu 7 2266. Árið 1995 keypti Skagstrendingur h/f rækjufrystitogara frá Grænlandi sem hét Betty Belinda. Hann var byggður í Noregi 1976 og var 490 brl. en var lengdur og skipt um aðalvél, spil o.fl. árið 1986. Skipið varð þá 50 metra langt og 9,5, metrar á breidd, 935 brl. að stærð og aðalvélin 1795 ha. Alpha Diesel. Umfangsmiklar endurbætur voru gerðar á skipinu hjá Slippstöðinni á Akureyri eftir að Skagstrendingur h/f eignaðist það og byrjaði togarinn veiðar á árinu 1996. Í byrjun árs 1999 var skipið selt til Laka Ltd., félags í eigu Skagstrendings og fleiri aðila, sem var skrásett í Eistlandi. Skipið var gert út til veiða á Flæmingjagrunni undir nafninu Tahkuna þar til það var selt árið 2000".
Óþekktur ljósmyndari302
Í bókinni Byggðin undir Borginni á bls. 63 segir svo um þessa mynd: " Verslunarstaðurinn árið 1910; fremst er verslunarstjórahúsið, þá assistentastofan, pakkhúsið og búðin. Fjær eru Gamli-Lækur og Jaðar. Á grindurnar í hægra horninu var breiddur fiskur, en Höphnersverslun hafði þá mesta fiskverkun. Spákonufellið gnæfir yfir og til hægri er Einbúinn".
Skagaströnd - safn031
Mynd frá fyrsta 3. deildarleik í knattspyrnu á nýjum íþróttavelli á Skagaströnd sumarið 1976. Lið frá USAH og HSS keppa. Ekki er vitað um úrslit leiksins.
Skagaströnd - safn211
Jónas Hafsteinsson (d. 22.11.1995) frá Njálsstöðum. Jónas var lengi oddviti Vinhælishrepps. Maðurinn við hlið Jónasar, til vinstri, er óþekktur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn041
Myndin var tekin á æfingu á Stalin er ekki hér sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikárið 1980 - 1981 undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson og Bjarnhildur Sigurðardóttir í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson475
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Þessir ungu menn komu að sýningunni en þeir eru Halldór G. Ólafsson til vinstri og Þorlákur S. Sveinsson til hægri.
Ólafur Bernódusson544
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995. Þá var gripið til þess ráðs að í stað þess að moka göturnar var troðin slóð ofan á snjónum og ekið í slóðinni. Á þessari mynd er snjótroðarinn, sem sannarlega nýttist vel þennan vetur, að draga hálfgám sem sorpinu var safnað í. Á myndinni er snjótroðarinn í ca tveggja metra hæð á Bogabrautinni.
Óþekktur ljósmyndari244
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 eða 1946. Næst okkur á myndinni er frysti - og sláturhús Kaupfélags Skagstrendinga en lengst til hægri sér í endan á bryggjunni sem var neðan við (sunnan við) frystihúsið í skjóli við Hólsnefið.
Ólafur Bernódusson482
Ólafur Bernódusson kennari 10. bekkjar veturinn 1990 - 91 í Höfðaskóla
Skagaströnd - safn187
Kjörstjórn Höfðahrepps að störfum í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið um 1970. Frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) Iðavöllum, Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) Ásholti og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri, Norður-Skála.
Óþekktur ljósmyndari316
Síldaverksmiðjan í byggingu árin 1945 - 1947. Myndin hefur líklega verið tekin af efstu hæð vinnupalls sem var utan á stóra verksmiðjuskorsteininum. Þrærnar sem eru lengst frá á myndinni hafa verið brotnar niður og fjarlægðar og sama má segja um rörið sem á myndinni liggur frá verksmiðjunni að mjölskemmunni sem er utan myndar. Eftir þessu röri var mjölinu blásið heim í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt þar til það var selt og sent í burtu. Eins og sjá má á myndinni var hafnargarðurinn - Útgarður- ekki kominn nema að litlu leiti.
Óþekktur ljósmyndari274
Gufuskipið Laura sigldi milli Danmerkur og Íslands í upphafi 20. aldarinnar. Í mars 1910 strandaði Laura á skeri á Bótinni norðan við Höfðann í dimmviðri. Allir björguðust í land og miklu af farmi skipsins var bjargað en Laura náðist ekki á flot aftur og liðaðist hún í sundur á skerinu á skömmum tíma. Skerið sem hún strandaði á hefur síðan verið nefnt eftir skipinu - Láruskerið. Á þessari mynd er verið að dæla sjó úr skipinu og bjarga verðmætum úr því. Utar er gufuskipið Geir í viðbragðsstöðu til að reyna að draga Lauru af skerinu.
Óþekktur ljósmyndari287
Golf leikið á Skagaströnd í fyrsta sinn í júní 1985. Það er Magnús B. Jónsson sem púttar í holu á Hólatúninu (nú tjaldsvæði). Frá vinstri fylgjast með þeir: Stefán Ægir Lárusson, Ólafur Bernódusson, Sigurbjörn Kristjánsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Ólafur Bernódusson486
Hafdís Ásgeirsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Óþekktur ljósmyndari279

Myndin var tekin í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST um 1960. Á henni eru frá vinstri: Bjarni Loftsson (d. ?) frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) fláningsmaður, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) skar fyrir ( = skar fæturna af við "hné" og opnaði gæruna fyrir fláningsmennina), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fláningsmaður og Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum fláningsmaður.

Skagaströnd - safn224
Björn Jónsson (d. 21.4.1992) bóndi að Ytra- Hóli, hreppsnefndarmaður og oddviti Vindhælishrepps og sýslunefndarmaður í Húnavatnssýslu. .
Óþekktur ljósmyndari240
Ómar Jakobsson púttar á golfmóti á Hágerðisvelli. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Kristinsson og Gunnar Sveinsson fylgjast með. Myndin var tekin 1986.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Guðmundur Guðnason128
Gömul mynd af réttastörfum í ókunnri rétt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn034
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru þeir: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Hallbjörn Hjartarson frá vinstri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Óþekktur ljósmyndari308
Andrés Guðjónsson kaupmaður og hreppsnefndarmaður og oddviti í Höfðahrepp 1939 - 1954. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 292 -293).
Óþekktur ljósmyndari325
Sjómannadagur 12. júní 1949. Eitthvað mikið að gerast en börnin sjá ekki neitt fyrir fullorðna fólkinu sem fylgjast spennt með einhverju sem ekki er vitað hvað er.
Guðmundur Guðnason280
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) er til hægri en til vinstri er Bjarni Ó Frímannsson (d. 10.11.1987) oddviti frá Efri Mýrum.
Guðmundur Guðnason213
Óþekktur knapi á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Ef þú þekkir manninni eða einhvern meðal áhorfenda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari317
Þessir vösku menn störfuðu að byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1945 - 1947. Þeir voru flestir - ef ekki allir - starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins í Reykjavík.
Ólafur Bernódusson524
Þessum hestasteini var komið fyrir rétt hjá Kántrýbæ í september 1994.
Óþekktur ljósmyndari246
Bankastræti í júní 1986. Síðan þessi mynd var tekin hafa fjögur af húsunum horfið þó byggt hafi verið nýtt í stað eins þeirra. Í húsaröðinni til vinstri er Höfðaberg, sem er lengst frá okkur, horfið. Höfðakot sem stendur við enda götunnar er horfið og í hægri röðinni eru horfin húsin á Flankastöðum og Kárastöðum en þau eru hús númer tvö og þrjú frá okkur talið. Nýtt hús hefur svo risið að Flankastöðum.
Óþekktur ljósmyndari291
Slitlag lagt á Fellsbraut 1976 í miklu átaki við að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd. Drengurinn við ljósastaurinn til hægri, með hendur í vösum, er líklega Guðmundur Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn118
Bræðurnir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Hallbjörn Hjartarson á spjalli við óþekkta konu. Myndin var sennilega tekin 1977.
Skagaströnd - safn152
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni voru gróðursett nokkur tré á Hnappstaðatúni. Á þessari mynd frá gróðursetningunni eru frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðmundur Björnsson, tvö óþekkt börn, Guðný Björnsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Dagný Sigmarsdóttir018
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Berglind Karlsdóttir að mæta á vaktina en um tíma var verksmiðjan í gangi allan sólarhringinn.
Dagný Sigmarsdóttir022
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd starfsfólkið að njóta góðra veitinga í tilefni Litlu jólanna 1991. Á myndinni eru við borðið hægra megin talið frá vinstri: Steindór Haraldsson, Jóhannes Óskarsson, óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir,óþekkt, Ingólfur Bjarnason og Sigurður Bjarnason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn134
Séra Oddur Einarsson með skírnarbarn í Hólaneskirkju (eldri).
Guðmundur Guðnason209
Óþekkt fólk á kappreiðum 1961 á Hvammsbökkum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson494
Myndin var tekin á námskeiði starfsfólks Skagstrendings hf í desember 1993. Frá vinstri: tveir óþekktir, Sveinn Ingólfsson (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (nær), Ágúst Ómarsson, fjórir óþekktir, Sævar Hallgrímsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) (fjær), tveir óþekktir, Sigurbjörn Ingólfsson, óþekktur, Jóhannes Símonsen, óþekktur, Guðmundur Guðmundsson (nær), Árni Sigurðsson (fjær), fimm óþekktir, Stefán Sveinsson, Steinunn Grímsdóttir (fjær) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (nær).
1

68
69
70

167
Leita í myndasafninu
Leita