Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur159
Sundlaugarbyggingin á Akureyri á góðum degi
fram074

Verðlaunaafhending á Bakkakotsvelli 1999. Óþekktur til vinstri en Eyþór Kári Egilsson til hægri.

guðmundur170
Jóhanna Jónsdóttir kölluð Nanna á Hólanesi, fædd 1948.
Guðmundur112
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) les upp á sviðinu í gömlu Tunnunni.
img123
Óþekktur hermaður í Höfðanum. Nokkrir hermenn voru á Skagaströnd við eftirlitsstörf á stríðsárunum.
Guðmundur115
Á myndinni eru Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) póstur til vinstri og Jón Pálsson skólastjóri til hægri.
fram001
Karl Lúðvíksson heldur ræðu á samkomu umf Fram á Hótel Dagsbrún í júlí 1990. Tilefnið er óþekkt.
Guðmundur101
Séra Oddur Einarsson flytur ræðu í Fellsborg af óþekktu tilefni.
Jón096
Skólaskemtun í Höfðaskóla 1984. Ingvar Þór Jónsson á trommum, Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur og Viggó Magnússon spilar á bassa. Hans Birgir Högnason fylgist með.
guðmundur187

Myndin er tekin á hafnarsvæðinu á sjómannadegi þar sem einhver leikur er í gangi.

fram021
Verðlaunaafhending að loknu víðavangshlaupi Landsbankans á Skagaströnd. Flemming Jessen skólastjóri á Hvammstanga er maðurinn með sólgleraugun, Róbert Þórðarson útibússtjóri í rauðri peysu og þorbjörg Magnúsdóttir starfsmaður bankans heldur á umslaginu og Elín Njálsdóttir starfsmaður bankans er til hægri og fylgist með. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
guðmundur227
Skagaströnd
guðmundur155
Jón Kr. Jónsson (d.21.12.2017) í Laufási með dóttur sína á Grétu Þ. Jónsdóttur í fanginu. Myndin var tekin upp við Höfðann á hlaðinu á Laufási.
Jón106

Nýja Hólaneskirkja í byggingu. Sú gamla er í baksýn. Myndin er sennilega tekin 1982.

fram026
Fjöldi manns kemur til að fylgjast með og/eða taka þátt í víðavangshlaupi. Myndin tekin ca 1985.
guðmundur231

Þessi mynd er tekin við heimkomu Húna HU 1 til Skagastrandar í september 1957. Húni var 75 Brl og með fyrstu stálskipum sem smíðuð voru í Austur Þýskalandi fyrir Íslendinga.
Jón068
Fjölmenni var viðstatt vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Jón040
Spákonufell í kvöldskini
Jón041
Skagatrandarhöfn á sjómannadegi 1985.
Óþekkt066
Um borð í björgunarbátnum Þórdísi eru Þeir Magnús B. Jónsson og Guðmundur Björnsson. Þeir eru að starfa við að ná upp bát sem sökk við Skúffugarðinn.
Image250
Kerjasmíði á Skagaströnd í slippnum neðan við Gamla skólann (Bjarmanes). Myndin var sennilega tekin á árunum 1935 - 1940.
guðmundur209
Hrútasýning. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) Háagerði, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum (Náttbrún), Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi, Sigurjón Jóhannsson (d. 7.12.1973) Sunnuhlíð, Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) Skálholti, Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) Akurgerði og Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Hrútarnir eru óþekktir.
Óþekkt033
Handagangur í öskjunni á útimarkaði við Kántrýbæ.
Guðmundur150
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Til vinstri sér í Báru Þorvaldsdóttur. Myndin var tekin í Fellsborg við óþekkt tilefni.
Jón108
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Sýnd voru föt sem voru til sölu í versluninni. Sviðið er plata sem lögð var ofan á frysti verslunarinnar og eins og sjá má kom fjölmenni til að fylgjast með sýningunni. Verslunastjóri á þessum tíma var Jón Jónsson. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar.
óþekkt003

Lengi framan af öldum var land á núverandi Skagaströnd í eigu tveggja bæja. Bæirnir voru Spákonufell, sem var kirkjustaður, og Höfðahólar. Seinna bættust svo Hágerði og Finnsstaðir við. Þessi mynd er af Höfðahólum sem stóðu á berginu ofan við núverandi tjaldsvæði. Þar er nú fánastöng og minningarskjöldur um bæinn einnig má sjá þar nokkrar rústir ef vel er gáð. Síðustu ábúendur á Höfðahólum voru Axel Ásgeirsson (d. 21.9.1965) seinna á Litla Felli og Sigurbjörg Björnsdóttir ásamt börnum. Jóhannes Björnsson (d. 14.6.1977) og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004)foreldrar bræðranna: Páls, Sigmars, Vilbergs og Óskars nýttu fjárhúsin og túnin undir skepnur sínar en bjuggu ekki að Höfðahólum.

Jón005
Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) ganga frá borði á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1985
Óþekkt094
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
guðmundur180
Aftast vinstra megin á þessari mynd er Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi. Við hlið hennar í köflóttri skyrtu sést í bróður hennar, Sigurð Bjarnason. Lengra til hægri, aftast, með hettu eða húfu er Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka. Lengst til hægri er svo Jóhanna Jónsdóttir (Nanna) frá Hólanesi. Hin börnin á myndinni eru óþekkt. Ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
hem041
Uppboð á eigum Höephnersverslunar 1921. Ewald Hemmert, sem var verslunarstjóri verslunarinnar, flutti inn á Blönduós. Þessi hús stóðu skammt austur af Einbúanum. Ljósa húsið var búðin en hærra húsið var pakkhús. Við horn pakkhússins sér í Assistentastofu sem var heimili versluraþjónsins sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Hægra megin við búðina sér í íbúðarhúsið Sæmundsensbúð.
guðmundur193
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) póstur og ljósmyndari með tvær af kindunum sínum á túninu heima við Ægissíðu.
guðmundur233
1. maí skemmtun í Tunnunni 1957. Mikið um að vera á sviðinu fyrir framan troðfullt hús. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón023
Vörubíllinn á myndinni var í eigu Gunnars Helgasonar sem átti marga slíka, ávallt með númerinu H 34. Bláa Wolksvagen - bjallan var í eigu Bernódusar Ólafssonar. Á myndinni er verið að vinna í fiski á planinu hjá frystihúsi Hólaness hf. Ekki er búið að byggja beinahúsið sem nú er til vinstri við byggingarnar á myndinni.
Jón089
Lárus Björnsson (d.28.4.1995) frá Neðra Nesi, til vinstri, og Hjalti Árnason (d. 4.7.2010)frá Skeggjastöðum ræðast við í Fossárrétt 1984.
Guðmundur066
Hafnarhúsið er til hægri og Rauði frystiklefinn á miðri mynd. Dýpkunarframkvæmdir standa yfir í höfninni
Jón054
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Á myndinni eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Halla Lýðsdóttir og Ari Þórsson með barn í fanginu. Konan til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
guðmundur232
1. maí skemmtun 1957 í Tunnunni. Óþekktir menn skemmta fyrir troðfullu húsi. Líklega eru þeir félagar í einhverjum karlakór sem komið hefur í heimsókn til Skagastrandar.
Guðmundur131
Fjöldasöngur á þorrablóti í Fellsborg. Fjórar konur leiða sönginn við undirleik Þorvaldar Skaftasonar.
Jón050
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Húsbíll úr tveimur mismunandi gerðum af Volkswagen sem hafa verið settir saman á hugvitsamlegan hátt.
Guðmundur063
Fermingarbörn ganga til kirkju með prestinum. Húsið í baksýn er Ásgarður
DSC_1001b
50 ára fermingasystkini úr Hólaneskirkju, á myndin eru 6 af 9 Frá vinstri til hægri: Dagný Hannesdóttir, Kristín Lúvíksdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Jón039
Ernst K. Berndsen skammtar skötu og meðlæti á disk fyrir Fjólu Jónsdóttur í árlegri Þorláksdags-skötuveislu togaraútgerðarinnar á Skagaströnd í Fellsborg. Rúnar Loftsson í baksýn.
guðmundur220
Bernódus Ólafsson stjórnar grímuballi í gömlu Tunnunni.
fram004
Halldór Hermannsson verslunarstjóri sem var í forystu íþróttamála á Skagaströnd í kringum 1990 sem formaður Umf Fram. Á myndinni flytur hann ræðu í samkvæmi á Hótel Dagsbrúna.
fram016
Sigríður Gestsdóttir með bikar í hönd eftir unnin afrek á íþróttavellinum. Myndin var tekin í Fellsborg en ekki er vitað hvenær.
Jón093
Gluggaskraut í vesturgluggum Höfðaskóla jólin 1984.

Guðmundur120
Frá vinstri: Hulda Árnadóttir, Kristján Hjartarson, Ingvar jónsson í Sólheimum, sr. Oddur Einarsson og Guðmundur Guðnason. Bak við Huldu sér í grátt hár Friðjóns Guðmundssonar, manns hennar.
Jón016
Tjaldsvæði sunnan og ofan við íþróttavöllinn á Kántrýhátíð.
Jón006
Á sjómannadegi 1985. Frá vinstri eru: Séra Oddur Einarsson, Gylfi Sigurðsson, Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986), Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og Svanur Árnason. Haraldur og Guðbjartur eru með ný fengin heiðursmerki sjómannadagsins í barminum.
Jón038
Kaffiveisla í Skátaskálanum. Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón037
Sjómannadagur 1983. Guðmundur Haukur Sigurðsson stjórnar leikfimiæfingum nokkurra manna sem eru uppáklæddir í samræmi við tilefnið. Lárus Ægir Guðmundsson kynnir fylgist með úr ræðustól um borð í Örvari Hu 21
Jón091
Friðgeir Eiríksson (d.17.5.1985) frá Sviðningi í Fossárrétt 1984.

guðmundur217
Hátíðahöld á Akureyri af ókunnu tilefni á óþekktum tíma.
Jón025
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í Auðbjörgu Hu 6 í Skagastrandarhöfn
guðmundur173
Þórgunnur Snædal bróðurdóttir Guðmundar ljósmyndara. Myndi er sennilega tekin heima í Ægissíðu, heimili Guðmundar.
guðmundur208
Pétur Andrésson (Pétur makalausi) og Ástríður Ósk Bertelsdóttir (Lillý) dótturdóttir hans
guðmundur166
Á myndinn er Húnn Snædal sem var í sveit hjá afa sínum og ömmu, Guðna og Klemensínu í Ægissíðu á Skagaströnd. þarna er búið að heyja vel og sést til Borgarinnar.
fram069

Ef þú þekkir þessi börn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var tekin á einhverju íþróttamóti.

Óþekkt072
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn.
hem037
Skip og bátar á legunni fyrir utan Kálfshamarvík. Sennilega eru þetta síldarbátar að bíða af sér brælu.
1

6
7
8

167
Leita í myndasafninu
Leita