Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn156
Sigurður Björnsson mundar vibratorinn til að jafna út steypu í efstu plötunni í stjórnsýsluhúsinu.
Óþekktur ljósmyndari223
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 - 46.
Ólafur Bernódusson500
Þessi mynd var tekin í febrúar 1994 á þjóðveginum milli Árbakka og Vindhælis. Sveinn Þórarinsson, sem stendur framan við bílinn, keyrði lengi þennan bíl fyrir kaupfélagið á milli Blönduóss og Skagastrandar. Þennan dag var milkil hálka og hífandi rok þannig að Sveinn stoppaði til að keðja bílinn. Þegar hann var kominn með keðjuna í hendurnar og ætlaði að fara að setja hana á, skipti engum togum að bíllinn fauk á hliðina út í kant. Á þessari mynd er búið að fá aðstoð gröfu við að koma bílnum á fjögur hjól aftur. Bíllinn skemmdist furðu lítið við byltuna og var notaður í mörg ár eftir þetta. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason307
Ingibjörg Engilbertsdóttir í garðinum við Þórshamar. Húsið í baksýn hægra megin var heimili hennar, Skálholt. Til vinstri sjást húsin Höfðaberg, fjærst, Höfðakot, með grænu þaki og Dvergasteinn með tilheyrandi hlöðu. Öll þessi þrjú hús eru horfin fyrir mis löngu síðan.
Ólafur Bernódusson546
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd sést fullur salur Fellsborgar af nemendum, foreldrum og kennurum.
Skagaströnd - safn278
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Á myndinni afhendir Helgi Gunnarsson, yfirsmiður byggingarinnar, Adolf H. Berndsen, oddvita Höfðahrepps, íþróttahúsið formlega með táknrænum lykli að húsinu. Helgi er til hægri á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari296
Guðmundur Guðlaugsson (d. 8.5.1985) frá Árbakka
Skagaströnd - safn080
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd eru frá vinstri: baksvipur Guðmundar Jóhannessonar, Sigurður Georgsson, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) og Pálmi Jónsson Alþingismaður frá Akri. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn104
Þessi mynd sýnir Höfðann (Spákonufellshöfða) fyrir 1934 því á myndinni er hann óskemmdur af grjótnámi, sem hófst þar 1934 þegar sprengt var í Höfðanum til að fá grjót til uppfyllingar í hafnargerð á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason152
Aftan á þessari mynd stendur: <em>Ferð á Hnjúkshnjúk.</em> Annað er ekki vitað um þessa mynd og fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn137
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á myndinni er fólk að gæða sér á grillmat og hefur tillt sér niður á meðan. Frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Halldóra Þorláksdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og á endanum til hægri situr Guðmundur Guðmundsson. Guðrún Guðmundsdóttir (Árnasonar) stendur og spjallar. Aðrir eru óþekktir.
Þórður Jónsson038
Þessi mynd var tekin á skátamóti í Laxárdal. Þangað mættu skátar frá Akureyri, Blönduósi og Skagaströnd. Maðurinn með hattinn er Jón Ísberg (d. 24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi. Standandi, þriðji frá vinstri er Þorleifur Arason (d.11.11.1991) Blönduósi en fimmti maður er Jóhannes Torfason Torfalæk. Standandi fyrir miðri mynd, í doppóttri peysu með skátaklútinn um hálsinn, er Pétur Jóhannsson Lækjarbakka og standandi til hægri frá Pétri eru: Birgir Júlíusson Höfðabergi, Hallbjörn Björnsson Jaðri, Jóhann Ingibjörnsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir Blálandi, óþekkt,?Ester Axelsdóttir? Læk, Frímann Lúðvíksson Steinholti, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og óþekkt. Krjúpandi frá hægri: Fjóla Jónsdóttir Asparlundi, fjórar óþekktar stúlkur og Ólöf Smith. Þriðji frá vinstri í þessari röð er Gissur Jóhannsson Lækjarbakka og Árni Ólafur Sigurðsson Þórsmörk og Helgi Bjarnason (d. 1.3.2007) Holti eru framan við Jóhannes Torfason. Aðrir á mynidnni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn035
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Á myndinni eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, óþekktur strákur, Gunnar Sveinsson, Úlfar Björnsson, óþekktur (?Hjalti Skaftason?), Hörður Ragnarsson, óþekktur (? Vilberg Jóhannesson ?) og óþekktur drengur. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn118
Í þessu húsi, sem stóð á milli Sunnuvegar og Suðurvegar, og var upphaflega fjárhús, var Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) með hænsnabú í nokkur ár. Þegar húsið varð fyrir, vegna nýbygginga við Sunnuveg, var farið fram á það við Friðjón að hann fjarlægði húsið. Friðjón var ekki sáttur við það svo nokkuð drógst að fjarlægja húsið en það var þó gert að lokum í óþökk hans.
Séra Pétur og Dómhildur - safn175
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Konan á myndinni er óþekkt en ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn014
Neistinn ehf er rafmagnsverkstæði við Strandgötu. Á myndinni eru starfsmenn fyrirtækisins. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson, Hjalti Viðar Reynisson, Steinunn Berndsen og eigandinn Hallbjörn Björnsson. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 2000.
Skagaströnd - safn150
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á þessari mynd syngur Hallbjörn Hjartarson fyrir gesti.
Skagaströnd - safn250
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að leggja lokahönd á reisa stærra tjaldið. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir er í Nike peysu og svo má þekkja baksvipinn á Ragnari Ingvarssyni lengst til hægri.
Óþekktur ljósmyndari233
Síldarskip í Skagastrandarhöfn sennilega 1936 eða 1937.
Skagaströnd - safn131
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Jón Ólafur Sigurjónsson og Kristín Jónsdóttir spiluðu göngutakt fremst í göngunni. Lögreglumaðurinn er Þór Gunnlaugsson.
Dagný Sigmarsdóttir023
<p>Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Þessi myn var tekin á Litlu jólum starfsfólks rétt fyrir jólin 1991. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Dagný Hannesdóttir, óþekkt og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Hægra megin við borðið er Kristín Sigurðardóttir innst en aðrir eru óþekktir. Lengst til hægri er svo Jóhannes Óskarsson og Sigríður Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Barnaból - safn014
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni er Sigþrúður Magnúsdóttir vinstra megin við borðið en sonur hennar, Vignir Hafþórsson situr við borðsendann. Birkir Rafn Gíslason er líka vinstra megin við borðið en móðir hans, Steinunn Berndsen situr á móti honum.
Skagaströnd - safn070
Fjölmenni mætti í kveðjuhóf í Fellsborg þegar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) lét af störfum sem sóknarprestur á Skagaströnd eftir 40 ára starf. lengst til vinstri með gleraugu er Sigríður Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006).Til hægri við hana er Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) í gráum jakka en nær okkur, með blátt bindi, er Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og við hlið hans er konan hans, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990). Við hlið hennar eru talið frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011), Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d.13.10.2000), Margrét Sigurðardóttir (d.8.9.1982), Jónína Valdimarsdóttir og Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989). Mili Jónínu og Sigurbjörns sér í Gunnar Albertsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari258
Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:<em> "<strong>Húni</strong> Hu 2 <strong>398</strong>. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1955 og var 17 brl. með 72 ha. June Munktell vél. Árið 1958 var sett í bátinn 162 ha. MWM vél. Hann hét <strong>Helga Guðmundsdóttir ÞH 133</strong> þegar Húnaströnd h/f keypti hann til Skagastrandar í mars 1978 og gerði bátinn út á færi og línu sem og rækju og skel. Húni var seldur í september 1981 til Hafnarfjarðar og fékk þá nafnið <strong>Haftindur HF 123</strong>. Eigendur Húnastrandar h/f voru Þorvaldur Skaftason og Ómar Jakobsson. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1987."</em>
Óþekktur ljósmyndari201
Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) frá Brúarlandi. Ingvar var lengi hreppstjóri á Skagaströnd (fyrir Höfðahrepp).
Séra Pétur og Dómhildur - safn103
Aftan á þessari mynd stendur: <em>Pétur Ingjaldsson er settur inn í embætti sem prestur í Höskuldsstaðaprestakalli 17. júní 1941. 1. ferming. 1. Pétur Þ. Ingjaldsson, 2. Kristinn Pálsson, 3. Jens Jónsson, 4. Sigurlaug Jónsdóttir, 5. Guðný ? Sigurðardóttir Ægissíðu (Gauja), 6. Ingvar Sigtryggsson, 7. Árni Andrésson, 8. Björn Stefánsson prófastur Auðkúlu.</em> Myndin virðist vera tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri og hefur greinilega verið fyrsta ferming sem séra Pétur sá um.
Óþekktur ljósmyndari284
Páll V. G. Kolka (d. 19.7.1971) héraðslæknir á Blönduósi 1934 - 1959.
Óþekktur ljósmyndari340
Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) dælir olíu á jarðýtu sem var mikið notuð við snjómokstur á götum Skagastrandar á sinni tíð - á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Við dæluna stendur Ernst Berndsen ( 21.8.1983) frá Karlsskála umboðsmaður BP á Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn013
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Kristín Björnsdóttir.
Skagaströnd - safn037
Slitlagsframkvæmdir á horni Sólarvegar og Bogabrautar árið 1978. Adolf J. Berndsen sturtar af bíl sínum í útlagningarvélina. Lengst til hægri í ljósum hlífðarslopp er Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) bæjarverkstjóri frá Lækjarbakka.
Þórður Jónsson039
<p>Myndataka á skátafundi. Í fremstu röð fyrir miðju, í stuttbuxum, er Ingólfur Ármannsson en annar frá hægri er Þórður Jónsson (d.25.12.2009) báðir félagsforingjar hjá Sigurfara á Skagaströnd. Ingibjörg Kristinsdóttir er í annarri röð og sést yfir vinstri öxl Ingólfs en þriðja frá vinstri í þeirri röð er Kolbrún Jónsdóttir en sú fjórða er Steinunn Ellertsdóttir. Lengst til hægri er líklega Ástríður Ósk Bertelsdóttir (Lillý) og sú þriðja frá hægri er Magdalena Axelsdóttir. Fjórði frá vinstri í öftustu röð er Hallbjörn Björnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Dagný Sigmarsdóttir039
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvær drottningar, Inga Lára Sigurðardóttir til vinstri og Árný Helgadóttir til hægri. Myndin var tekin sumarið 1993.
Barnaból - safn024
Piparkökubakstur á leikskólanum Barnsból 16. desember 1984. Charlotta Traustadóttir með börnum sínum frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Trausti Magnússon og Sigríður Magnúsdóttir.
Skagaströnd - safn151
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni voru gróðursett nokkur tré á Hnappstaðatúni.Á myndinni er Erla María Lárusdóttir tilbúin að leggja hönd á plóginn. Stellingin á Erlu segir meira en mörg orð hvernig veðrið var.
Óþekktur ljósmyndari309
Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður-Skála
Leikklúbbur Skagastrandar - safn004
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Hallbjörn Hjartarson, Elín Njálsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn172
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Konan til vinstri er Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) en konan til hægri er Hrefna Hákonardóttir (d. 4.12.2005).
Dagný Sigmarsdóttir002
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Hrönn Árnadóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson542
Á þessari mynd frá skólaslitum Höfðaskóla vorið 1995 heldur Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007) á gjöf frá Skagstrendingum, sem Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Höfðaskóla, til vinstri, færði henni í tilefni þess að Elínborg hafði starfað við skólann óslitið í 50 ár. Í baksýn eru stúlkur úr lúðrasveit sem spilaði á skólaslitunum. Elínborg var kennari við Höfðaskóla í áratugi og síðar bókavörður á bókasafni skólans í nokkur ár. Hún var alla tíð vakin og sofin yfir velferð skólans og þeirra sem þar numu og störfuðu.
Skagaströnd - safn146
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Þar mættu þessir þrír heiðursmenn og skemmtu sér. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og Karl Berndsen (d. 12.2.1995).
Barnaból - safn006
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni er Bóel Hallgrímsdóttir með son sinn, Loft Árna Björgvinsson til vinstri og Guðjón Ebba Guðjónsson til hægri, að skera út piparkökur og skreyta þær.
Skagaströnd - safn247
Að lokinni sumarvinnu 1996 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða á hótel Dagsbrún á Skagaströnd. Á þessari mynd er Kristín Þórðardóttir í góðu skapi með pakka.
Dagný Sigmarsdóttir030
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), hjónin Dagný Hannesdóttir og Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) og Berglind Karlsdóttir dóttir þeirra.
Ólafur Bernódusson545
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri með tvo af sonum sínum í brúnni á rækjutogaranum Helga Björg Hu 7 þegar Hjörtur var nýkominn með skipið til Skagastrandar í fyrsta sinn í jan/feb 1996. Strákarnir eru Kristján Ýmir Hjartarson í fangi pabba síns og Ómar Ísak Hjartarson sem stendur hjá þeim. Helga Björg var rækufrystitogari í eigu Skagstrendingas hf á árunum 1995 - 1999 og var gert út til rækjuveiða þessi ár.
Skagaströnd - safn168
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd er Adolf J. Berndsen þáverandi oddviti að halda ræðu en Bjarney Valdimarsdóttir þáverandi eiginkona Lárusar og Magnús Ólafsson hlýða á.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn020
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru leikarar og starfsmenn sýningarinnar: Í aftari röð frá vinstri: Ragnar Jónsson, Árni Geir Ingvarsson, Árni Björn Ingvarsson og Rúnar Loftsson. Fremri röð frá vinstri: Jónas Baldursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Jón Helgi Eiðsson, Lilja Kristinsdóttir, Birna Blöndal, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson, Hallbjörn Hjartarson, Helga Hermannsdóttir og Bjarney Valdimarsdóttir. Myndina tók Jónas Baldursson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn005
Þessi brosmildu börn á myndinni eru: Árni Ólafur Sigurðsson lengst til vinstri með Adolf H. Berndsen systurson sinn í fanginu. Við hlið Árna situr Reynir Sigurðsson, bróðir hans, með Laufey Berndsen á hnjánum. Lengst til hægri er svo Bergur Jón Þórðarson vinur þeirra. Myndin var tekin 1960- 1961. Myndin er úr safni Hjördísar Sigurðardóttur.
Skagaströnd - safn175
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd spilar Sigfús Jónsson, sem tók við sveitarstjórastarfinu af Lárusi, á harmóniku. Guðrún Guðbjörnsdóttir sést vinstra megin við Sigfús.
Þórður Jónsson048
Fjársafnið rekið í almenninginn á Spákonufellsrétt. Maðurinn með ljósu húfuna, annar frá vinstri er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) Steinholti, fjórði frá vinstri er Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fimmti er Baldvin Jóhannesson (d. 1.1.1981) Ásholti og sjötti ?Vilhjálmur Skaftason? Dagsbrún og drengurinn við hlið hans er líklega Kári Lárusson Ási. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson031
Frá vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963. Prestar og leikmenn bera gripi úr gömlu kirkjunni, sem sér í efst í horninu til vinstri, inn í nýju kirkjuna. Fremst á þessari mynd er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) frá Mánaskál. Tveir fremstu prestarnir eru óþekktir en séra Gísli Kolbeins heldur á bakka með bikurum. Yfir vinstri öxl hans sést í séra Jón Kr. Ísfeld (d. 1.12.1991) í Bólstaðarhlíð en yfir þá hægri sér í séra Þorstein Gíslason (d. 8.6.1980) í Steinnesi. Presturinn, sem heldur á höklinum er óþekktur, en vinstra megin við hann er sóknarprestur Höskuldsstaðarsóknar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Á myndinni lítur út eins og séra Pétur sé með biskupshúfu á höfðinu en svo er ekki heldur gengur Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup fyrir aftan Pétur og því kemur þetta svona út.
Guðmundur Guðnason 2 222
Gígja Óskarsdóttir frá Ásholti stígur fyrstu skrefin í organleik undir leiðsögn Guðmundar Guðnasonar á heimili Guðmundar í Ægissíðu. Myndin hefur verið tekin kringum 1980.
Skagaströnd - safn158
Þessi útihús og Ólafsvellir (Náttbrún) - gula húsið á myndinni - voru öll rifin til að rýma til fyrir byggingu stjórnsýsluhússins að Túnbraut 1 - 3. Húsin voru rifin 1985 eða 1986. Þegar þessi mynd var tekin var búið að rífa Dagsbrún sem var vinstra megin við myndina.
Óþekktur ljósmyndari335
Þetta fólk var í stjórn umf Fram á 30 ára afmæli félagsins 1956. Frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d. 6.3.2007), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990), Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Jökull Sigtryggsson, Hrefna Björnsdóttir og Guðmundur Guðnason (d. 21.11 1988).
Skagaströnd - safn228
Þessar prúðbúnu konur eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn170
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) foreldrar Lárusar og Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) hreppsnefndarmaður með meiru.
Guðmundur Guðnason 2 221
Óskar Óskarsson frá Ásholti stígur fyrstu skrefin í organleik undir leiðsögn Guðmundar Guðnasonar á heimili Guðmundar í Ægissíðu. Myndin hefur verið tekin kringum 1980.
Óþekktur ljósmyndari342
Elísabet Knudsen
Guðmundur Guðnason303
Réttir - líklega í Skrapatungurétt. Maðurinn lengst til hægri er Einar Guðlaugsson (d. 1.4.2008). Maðurinn með vindilinn líklega Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal en hann er að tala við hjónin Jökul Sigtryggsson og Valgerði Kristjánsdóttur frá Núpi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason193
Í Stafnsrétt 1970. Ekki er vitað hverju fólkið er svona spennt fyrir en fólkið er óþekkt þannig að ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn061
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Á myndinni eru frá vinstri: Karitas Pálsdóttir (d. 3.5.1989), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007), Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) og Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli.
1
…
70
71
72
…
167
Leita í myndasafninu
Leita