Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn234
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011), Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir. Hægra megin við borðið sitja í röð: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) í rauðri peysu.
Séra Pétur og Dómhildur - safn145
Presturinn til vinstri er séra Jóhann Briem (d. 8.6.1959) prestur á Melstað 1912 - 1954 en sá hægra megin er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Sennilega hefur myndin verið tekin á fimmta áratugnum en ekki er vitað hvar.
Óþekktur ljósmyndari198
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Bernódus var vélstjóri, tollvörður, oddviti og leikari á Skagaströnd um árabil.
Barnaból - safn052
Laufey Sunna Guðlaugsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn040
Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) starfaði hjá Vitamálastofnun sem verkstjóri við hafnargerð víða um land. Hér er hann að stjórna gerð viðlegukants - Ásgarðs - í Skagastrandarhöfn 1978. Aðalsteinn kom síðan aftur til Skagastrandar 1990 - 1991 og stýrði þá gerð - Sæðgarðs - í höfninni.
Séra Pétur og Dómhildur - safn160
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd skemmtir söngflokkur úr línudanshópnum með söng. Drífa Kristjánsdóttir spilar á gítarinn en aftan við hana eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Kristíni Blöndal.
Skagaströnd - safn038
Guðmundur Björnsson mokar á bíl efni í slitlag á götur á Skagaströnd árið 1978.
Guðmundur Guðnason234
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) og Halla Björg Bernódusdóttir voru góðir vinir alla æfi. Hér eru þau saman sennilega einhverntíma kringum 1955.
Jón Jónsson247
Eitt af atriðunum á árshátíð Höfðaskóla 1985 var fimleikasýning undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Á myndinni hafa krakkarnir myndað pýramída en Inga sést lengt til hægri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn117
Þessar prúðbúnu konur eru Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) til vinstri og Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) til hægri. Myndin var sennilega tekin 1977.
Barnaból - safn170
Þorlákur Heiðar Þorgeirsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Þórður Jónsson023
Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn132
<p>Aftan á þessari mynd stendur skrifað: " <em>í Húsmæðraskóla Akureyrar fyrsta veturinn. Handavinnukennarar Jóhanna Jóhannesdóttir Kristín Sigurðardóttir" </em>Ekki er vitað hvar þessar konur eru á myndinni en Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) er þriðja frá vinstri í fremstu röð. Ef þú þekkir einhverja kvennanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Barnaból - safn062
Patrik Snær Bjarnason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Séra Pétur og Dómhildur - safn124
Þessi mynd var tekin sunnan undir vegg við gamla húsið á Höskuldsstöðum. Á henni eru hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) lengst til vinstri en þau bjuggu í húsinu. Þá koma foreldrar Dómhildar þau Kristín Mýrdal Karlsdóttir og Jón Hallur Sigurbjörnsson en maðurinn lengst til hægri er óþekktur.
Skagaströnd - safn198
Dráttarbrautin á Skagaströnd í byggingu. Brautin var vígð 1985 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1984 eða 1985. Í baksýn má sjá breytta götumynd frá því sem nú er. Héðinshöfði, þar sem bíllinn er fyrir utan, er horfinn og Kárastaðir, sem sér í til vinstri við Héðinshöfða, eru líka farnir. Líka eru horfin Höfðaberg og Höfðakot sem eru næst Höfðanum til hægri á myndinni. Þá er ólokið við að byggja spilhúsið við enda dráttarbrautarinnar.
Barnaból - safn157
Kristinn Daníel Guðmundsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Guðmundur Guðnason187
Myndin var tekin árið 1970 sennilega í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en er sennilega úr Svartárdal og Blöndudal að mestu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn268
Vinabæjarmót var haldið í Lohjo í Finnlandi í ágúst 2008. Þangað héldu nokkrir Skagstrendingar til að bera saman bækur sínar með fulltúum norrænna vinabæja sinna. Myndin var tekin utan við Mannerheim höllina en Mannerheim marskálkur er stundum kallaður faðir Finnlands eftir að hafa verið farsæll hershöfðingi og seinna forseti landsins. Í fremstu röðinni eru þau hjónin Adolf H. Berndsen oddviti og Dagný Sigmarsdóttir á sitt hvorum endanum. Í þriðju röðinni eru talið frá hægri: Steindór Haraldsson, Birna Sveinsdóttir, óþekkt og Guðbjörg Viggósdóttir. Uppi á pallinum fyrir aftan Birnu er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og til vinstri við hann er Slavko Velemir. Þriðja frá hægri í sömu röð er Ingibjörg Björgvinsdóttir. Aðrir á myndinni eru fulltrúar frá vinabæunum: Hönefoss í Noregi, Lojho í Finnlandi, Åbenrå í Danmörku og Växjö í Svíþjóð. Margt af þessu fólki hefur sótt vinabæjarmót á Skagaströnd og myndað vinskap við fólk hér.
Skagaströnd - safn227
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri úr Norður-Skála situr lengst til hægri á myndinni. Hinir mennirnir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn122
Þessar glöðu konur eru í eldhúsinu í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt en konurnar eru frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir og mæðgurnar Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d. 26.8.2008) og Líney Jósefsdóttir.
Skagaströnd - safn276
Carl Erik Jakobsen íþróttakennari skoðar íþróttahús í Vogum á Vatnsleysuströnd líklega 1995 eða 1996. Myndin er skemmtileg því Calle sést frá öllum hliðum á henni - í speglunum.
Skagaströnd - safn049
Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) til vinstri og Kristján Blöndal til hægri við fráslátt í viðbyggingu við Höfðaskóla 1978.
Skagaströnd - safn191
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholt. Líklega var myndin tekin þegar Ólafur ávarpaði gesti í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (d. 6.11.2005) oddvita og sveitarstjóra 1968. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Skagaströnd - safn088
Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) frá Dagsbrún vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Einar var oftar en ekki kenndur við Kjalarland þar sem hann bjó um tíma.
Ólafur Bernódusson560
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Barnaból - safn181
Elva Mjöll Þórsdóttir á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Skagaströnd - safn288
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Kirkjukór Hólaneskirkju söng við undirleik Mike Jones organista. Frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson, Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og bak við hana sér í Einar Hauk Arason.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn190
Þessi mynd frá 1961 sýnir verkamenn vinna við að handmoka möl á vörubílspall. Myndin var sennilega tekin í malarkrúsinni ofan við Skagaströnd. Ekki er vitað hverjir mennirnir eru.
Jón Jónsson270
Á þessari mynd eru leikararnir í Saumastofunni sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið undir leikstjórn Halldórs Laxnes veturinn 1984. Myndin var tekin á sýningu og á henni eru, talið frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Sigmarsdóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn218
Myndin var tekin í flökunar- og vélasal frystihúss Hólaness hf 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) handflakari, Guðjón Jóhannesson (d. 11.2.2011) handflakari, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) við roðflettivél og Kjartan Bjarnason líka við roðflettivél.
Séra Pétur og Dómhildur - safn148
Á þessari fjölskyldumynd eru þau hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir með börnum sínum. Börnin eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Hafþór Gylfason og Guðbjörg Gylfadóttir.
Barnaból - safn037
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni er Sólveig Róarsdóttir (Didda) með tvö af börnum sínum, Árna Max Haraldsson vinstra megin og Dagbjört Jóhannsdóttur hægra megin. Beint á móti Sólveigu situr svo Þóra Ágústsdóttir.
Skagaströnd - safn105
Þessi mynd var tekin af framkvæmdum við Skagastrandarhöfn 1934. Búið er að leggja veg á uppfyllingu út í Spákonufellsey en hún hefur verið brotin niður að hluta. Grjótið í uppfyllinguna var sprengt úr Höfðanum eins og þekkt er. Á myndinni er verið að vinna við að steypa varnarvegg vestan við veginn út á fyrirhugað hafnarsvæði. Það er áhugavert að bera þessa mynd saman við hvernig höfnin lítur út í dag. Myndin hefur líklega verið tekin af Einbúanum.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Ólafur Bernódusson505
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir verkstjóri, Ragna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn123
Höskuldsstaðakirkja í byggingu en hún var síðan vígð árið 1963.
Skagaströnd - safn048
Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) stýrir steypusílói við byggingu viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Óþekktur ljósmyndari184
Síldarsöltun á bryggjuplaninu sennilega árið 1936 eða 1937. Húsið í baksýn er Hafnarhúsið en það var byggt 1935 en síðan flutt á núverandi stað á árunum í kringum 1944.Lengra frá má sjá frystihúsið lengst til vinstri og kaupfélagshúsið aftan við Einbúann fyrir miðri mynd.
Óþekktur ljósmyndari298
Fritz Hendrik Berndsen (d. ?) verslunarmaður á Karlsminni
Þórður Jónsson057
Þessir þrír íþróttagarpar úr umf. Fram gerðu garðinn frægan á íþróttamótum á sinni tíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Sigurður G. Sigurðsson og Sigurjón Úlfar Björnsson.
Skagaströnd - safn069
Fjölmenni mætti í kveðjuhóf í Fellsborg þegar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) lét af störfum sem sóknarprestur á Skagaströnd eftir 40 ára starf. Á myndinni eru frá vinstri: María Magnúsdóttir, Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), Hörður Ragnarsson, Sveinn Kristófersson (d.9.5.1991), Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982) (nær), Viggó Brynjólfsson (fjær), Helga Jóhannesdóttir og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003).
Skagaströnd - safn179
<p>Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru tveir Magnúsar. Magnús Ólafsson ( d. 23.7.2012) til vinstri og Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður til hægri. Út frá þessari mynd varð til eftirfarandi vísa hjá Rúnari Kristjánssyni:</p><p> Gleði í huga og gleði í sál</p><p> greitt mun þarna dafna.</p><p> Enda talað Maggamál</p><p> milli tveggja nafna !</p><p><br></p>
Óþekktur ljósmyndari295
Skagaströnd 1935 - 1940. Síldarskipin bíða eftir þjónustu, ker í byggingu í dráttarbrautinni og Hafnarhúsið er risið (1935).
Óþekktur ljósmyndari283
Þessi mynd var líklega tekin á þriðja áratugnum. Á henni njóta lífsins á Höfðanum þau: Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) og systir hennar Magdalena Helgadóttir (d. ?).
Óþekktur ljósmyndari229
Bíllinn er H 8 sem var Ford hálfkassabíll,árgerð 1939, með boddýi og eigandinn Ágúst Jónsson (d. 21.7.1983) á Blönduósi. Hann var með sérleyfisflutninga, póstflutninga og fólksflutninga til Skagastrandar í tvo eða þrjá áratugi. Það er Ágúst sem stendur aftan við bílinn, við hlið mannsins í gráafrakkanum. Ágúst er í uppháum leðurstígvélum, bílstjórastígvélunum. Ágúst notaði bílinn fram í stríðsárin, en 1944 fékk hann H 10 Chefrolett árgerð 43, 28 manna rútu sem hann notaði í Skagastrandarferðum fram yfir 1960. Hér hefur hann áð með farþega sína við Ytri Ey. Maðurinn í ljósa frakkanum er Björn Þorleifsson (d.?). Lílklega var myndin tekin kringum 1940.
Óþekktur ljósmyndari324
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Víólu, í símanum á skrifstofu sinni í Gamla Kaupfélagshúsinu snemma á áttunda áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir024
Jóney Gylfadóttir og Steindór Haraldsson vert á hótel Dagsbrún stilla sér upp á hótelinu.
Guðmundur Guðnason323
Óþekkt kona. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn240
Fólk fylgist með einhverju atriði á sviði á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð 2003. María Rós Karlsdóttir er til vinstri með rauðan trefil, Vigdís Viggósdóttir er með rauða húfu, Ardís Ólöf Arelíusdóttir er ljóshærð með gleraugu, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Vilhelm Þórarinsson. Framan við Heiðu, með dökk gleraugu, er Erna Hreinsdóttir að tala við Söru Rut Fannarsdóttur og Sólrúnu Ágústu. Maðurinn með hattinn er Fannar Viggósson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn032
Stjórn kvenfélagsins Einingar. Aftar frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Hjördís Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017), Björk Axelsdóttir og Helga Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn028
Vilmar Þór Kristinsson tæknifræðingur við vinnu sína við mælingar þegar byrjað var að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd 1976. Vilmar er giftur Unni Gunnarsdóttur frá Skagaströnd og hann teiknaði meðal annars Skíðaskálann.
Skagaströnd - safn310
Um og eftir miðja síðustu öld var algengt að fólk á Skagaströnd ætti nokkrar kindur í kofa einhversstaðar nálægt heimili sínu. Sumir áttu líka eina til tvær kýr fyrir heimilið og jafnvel einhverja hesta. Mörg þessara kofa/útihúsa voru byggðir úr afgöngum og drasli og báru þess glögg merki. Þessi útihús eru á ræktarlandi nr. 24, sem mun vera norðan og austan við Höfðatún og Vík. Húsið stendur enn (sept. 2014).
Skagaströnd - safn162
Sveitarstjóraskipti 1984. Lárus Ægir Guðmundsson, sem var sveitarstjóri á árunum 1972 til 1984, afhendir Sigfúsi Jónssyni lyklavöldi sveitarstjóra en hann tók við af Lárusi og var sveitarstjóri á Skagaströnd í um það bil tvö ár þegar hann tók við sem bæjarstjóri á Akureyri. Hreppsnefndarmennirnir, frá vinstri: Adolf J. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson og Gylfi Sigurðsson fylgjast með.
Guðmundur Guðnason207
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapar og hestar bíða ræsingar. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn235
Margt er sér til gamans gert í félagsstrafi aldraðra í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 spila þrír góðborgara á Skagaströnd. Frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003).
Þórður Jónsson037
Verkamennirnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til vinstri og Valgarð Ásgeirsson (d. 22.4.1996) múrari til hægri fá sér pilsner í pásu í vinnunni.
Skagaströnd - safn272
Hér er unnið að vatnsdælingu í sambandi við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996. Rolf Árnason (d. júní 2014) vinnur við sogbarkann en Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) stjórnar dælunni.
1
…
72
73
74
…
167
Leita í myndasafninu
Leita