Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn305
Skagavegur 11 eða Héðinshöfði. Myndin var tekin 27. desember 2000. í húsinu voru tvær íbúðir en húsið er nú löngu horfið (rifið).
Skagaströnd - safn139
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd eru frá vinstri: Linda Kristjánsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Díana Kristjánsdóttir.
Ólafur Bernódusson 554
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir - Alla á Póshúsinu - vinnur að gróðursetningu í Borginni. Hér er hún að gera plöntnum til góða með áburðargjöf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn045
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgason tæknifræðingur hjá Vitamál til vinstri og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri .
Guðmundur Guðnason327
Þessi kona er Klemensína Klemensdóttir sem lengi bjó í Ægissíðu með Guðna Sveinssyni manni sínum. Þau voru foreldrar Guðmundar, Pálma, Ingva og Rósbergs Snædal.
Barnaból - safn086
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í hesthúsferð í júní 1997. Þar fengu þau meðal annars að klappa folöldum sem virtust álíka forvitin um krakkana eins og þeir voru um folöldin. Á myndinni eru Gunnar Sveinsson standandi, og Rúnar Jóhannsson sem krýpur með börnunum. Barnið næst okkur er Ellen Sigurjónsdóttir en hjá Rúnari er Unnar Leví Sigurbjörnsson og Stefán Velemir sem klappar folaldinu.
Skagaströnd - safn164
Byggingarnefnd vegna viðbyggingar við Höfðaskóla 1982. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf J. Berndsen og Ólafur Bernódusson.
Skagaströnd - safn274
Myndin var tekin 1996 af vinnu við að koma fyrir safntanki vegna vatnsveitu í Hrafndal. Við bílinn standa Rolf Árnason (d. 2014) með rauða húfu og Sigurjón Ástmarsson. Niðri í skurðinum er Páll Jóhannesson í blárri úlpu og tveir óþekktir menn.
Dagný Sigmarsdóttir013
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er starsfólk að njóta sólarinnar í kaffipásu við innganginn í Rækjuvinnsluna. Frá vinstri: Nikola ?, Sandra Ómarsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Svava Sigurðardóttir og Árný Helgadóttir. Fyrir framan eru svo: Jóna Guðjónsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Barnaból - safn199
Kristjana Oddsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Óþekktur ljósmyndari231
Verkamannabústaðurinn Höfðaborg (Bankastræti 9) í byggingu 1949. Höfðabrekka (Bankastræti 10) sést til hægri.
Skagaströnd - safn036
Grettir "hinn nýi" dýpkar í Skagastrandarhöfn árið 1978. Appelsínuguli pramminn við hlið hans var notaður til að flytja sandinn út úr höfninni en báturinn sem sér í aftan við Gretti dró prammann fram og til baka.
Skagaströnd - safn204
Hallbjörn Hjartarson í "gamla" Kántrýbæ það er að segja áður en hann brann og var svo endurbyggður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn169
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu.. Þessir tveir kappar eru Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004) til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir037
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd úr kaffistofunni 1993 eru til vinstri systurnar Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir en hægra megin er Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Barnaból - safn 134
Myndin var tekin á árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból á desember 1991. Á myndinni eru Kristín Þórðardóttir með kökukefli og á móti henni situr dóttir hennar Hanna Rúna Gestsdóttir. Lilja Kristinsdóttir situr líka á móti dóttur sinni Þórunni Júlíönu Guðmundsdóttur og sker út kökur.
Óþekktur ljósmyndari232
Á myndinni, sem tekin var í kringum 1950, er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978), sem þá var bóndi á Efri Harrastöðum, með kerru sína fulla af börnum. Gunnlaugur og fleiri bændur á Skaga seldu bæjarbúum á Skagaströnd mjólk og fluttu hana til kaupenda í mjólkurbrúsum á kerrum sínum eða sleðum aftan í dráttarvél eða hesti. Krakkarnir í hverfinu hópuðust að þegar mjólkurpósturinn kom og fengu að fljóta með smá spöl í því farartæki sem notað var hverju sinni. Á myndinni má þekkja Birgi Þórbjarnarson á Flankastöðum, sem stendur hjá kerrunni. Fyrir aftan hann er Sveinn Torfi Þórólfsson og Árni Þórólfsson (fjær) og aftast er Almar Þórólfsson (dökkhærður) sem allir áttu heima í Höfðaborg. Halla Bernódusdóttir Stórholti er hægra megin við Birgi og hallar sér fram með úlpuhettu yfir höfðinu. Litla ljóshærða stúlkan við hlið Höllu er Elínborg Ingvarsdóttir í Sólheimum. Næst henni hægra megin er Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum með barn í fanginu (Halla Jökulsdóttir ?). Þórunn Bernódusdóttir Stórholti er ljóshærð lengst til hægri og framan við hana er dökkhærð Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin í Bankastræti og húsin sem sjást eru Höfðabrekka til vinstri og Bjarnarhöfn til hægri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn127
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) tollvörður á Skagaströnd. Á sínum tíma var mikið um að flutningaskip kæmu við á Skagaströnd. Stundum voru þau að koma beint frá útlöndum og þá þurfti að tollafgreiða skipið á Skagaströnd af tollverði og sýslumanni og síðan stóð tollvörður eða lögreglumaður vakt um borð meðan skipið stoppaði í höfn. Oftast voru skipin tollafgreidd úti á legunni þ.e. áður en þau lögðust að bryggju. Þurfti þá að innsigla áfengi, tóbak og ýmsan annan varning um borð en áhöfnin fékk ákveðinn skammt af þessum vörum til sinna einkanota. Væru skipin ekki að koma beint frá útlöndum fór tollvörðurinn um borð, rauf innsiglið og síðan fékk áhöfnin sinn vikulega skammt en afgangurinn var síðan insiglaður á ný.
Barnaból - safn138
Á þessu skólaspjaldi frá Barnabóli 2003- 2004 eru börnin sem voru í Lundi á þeim tíma. Hinn helmingur barnanna voru í Sæbóli og voru mynduð sér. Frá vinstri í fremstu röð: Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Guðný Eva Björnsdóttir, Birgitta Bjarnadóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Auður Ísold Guðlaugsdóttir, Daði Snær Stefánsson, óþekkt og Fjóla Jónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Dagur Freyr Róbertsson, Linda Rún Einarsdóttir, óþekkt, Elín Ósk Björnsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, ?? Óskarsdóttir og óþekkt stúlka. Aftasta röð frá vinstri: Ásthildur Guðmundsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Sigríður Sól Indriðadóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Viktoría Óskarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Páll Halldórsson og Sesselja Guðmundsdóttir. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn203
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Pálmi Jónsson alþingismaður og Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011) fyrsti útibússtjórinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn139
<p>Þessi mynd var tekin af fermingarbörnum með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sunnan undir Hofskirkju líklega 1951. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Eiður Hilmarsson frá Hofi, Björn Sigurbjörnsson Hlíð, María Kristjánsdóttir Steinnýjarstöðum (nú Tjörn), Þóra Björg Pálsdóttir Bakka, séra Pétur, Alda Friðgeirsdóttir Sviðningi, Guðbjörg Lárusdóttir Garðshorni, Ásdís Friðgeirsdóttir Sviðningi og Kristinn Thomsen Hólm Skeggjastöðum.</p><p> </p>
Skagaströnd - safn217
Þessi mynd var tekin í flökunarsal frystihúss Hólaness hf 1976. Á henni er handflakararnir, frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) og Guðjón Jóhannesson (d. 11. 2. 2010).
umf Fram301
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru krakkarnir í heimsókn að Brandaskarði. Frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Bergrós Hafsteinsdóttir, Páll Halldórsson, Guðrún Ana Halldórsdóttir, Anton Einarsson og Birkir Gunnarsson.
Þórður Jónsson051
Sigríður Birna Björnsdóttir ólst að hluta upp hjá Páli Jónssyni (d.19.7.1979) skólastjóra og konu hans Sigríði Guðnadóttur (d.4.3.1964) á Breiðabliki.
Skagaströnd - safn053
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Þetta er mynd úr rútunni á leiðinni þangað sem félagar úr umf. Fram tóku við keflinu. Frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Valdís Valdimarsdóttir (fjær), Guðrún Guðbjörnsdóttir (nær), Björk Sveinsdóttir, Erlingur Ottósson og Valdimar Viggósson.
Skagaströnd - safn221
Tilefni þessarar myndatöku og tímasetning eru óþekkt. Myndin var tekin í Húnaveri og frá vinstri í annari röð eru: séra Gísli Kolbeins (d.?), séra Ragnar Fjalar Lárusson (d. 26.6.2005), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), óþekktur, herra Pétur Sigurgeirsson (d. 4.6.2010) biskup og séra Jón Kr. Ísfeld (d. 1.12.1991). Fjórði frá hægri í þriðju röð er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) sjötti frá hægri í sömu röð er Páll Jónsson (d. 19.7.1979). Strákarnir í öftustu röð eru frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson og Reynir Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn 120
Foreldradagur í leikskólanum Barnaból 6. júní 1991. Næst okkur á myndinni eru mæðurnar Herborg Þorláksdóttir til vinstri og Kristín Þórðardóttir til hægri. Guðrún Sigurðardóttir spilar á gítarinn en börnin eru frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, óþekkt, Elva Ösp Gunnarsdóttir (fjær), óþekktur (nær), Daníel Guðmundsson (fjær), Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, óþekktur, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (=Lilja Nótt Sævarsdóttir), Anna María Magnúsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir.
Guðmundur Guðnason215
Knapar og áhorfendur á kappreiðamóti á Hvammsbökkum 1961. Til hægri, með hendur í blússuvösunum, er Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson052
Á leiksviði í gömlu Tunnunni. Ekki er vitað hvert leikritið er né hvenær myndin var tekin. Leikararnir eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Bylgja Angantýsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Kristín Lúðvíksdóttir, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d. 6.3.2007), Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994).
Skagaströnd - safn100
Ólafur Magnússon Hu 54 við Skúffugarðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1990 - 1996.
Skagaströnd - safn007
Vélaverkstæðið er að hluta til starfrækt í gamalli skemmu sem byggð var í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á árunum 1946 - 47. Sá hluti er fjær á myndinni en hlutinn sem er nær er seinni tíma viðbygging.
Guðmundur Guðnason313
Guðmundur Guðnason tók stóran hluta myndanna sem eru í eigu Ljósmyndasafns Skagastrandar. Þær birtast ekki nærri allar á netinu en eru vel geymdar hjá safninu. Ein tegund mynd sem ekki birtast mikið á netinu eru myndir sem Guðmundur tók af sjónvarpsskjánum, sem hann tók mikið af. Þar er um að ræða mikið af kirkju-tengdum myndum og mannamyndum af prestum og fólki. Þessi mynd er sett á netið sem sýnishorn þessara sjónvarpsmynda Guðmundar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - sfn085
Ánægðir veiðimenn með mikinn afla úr Skagaheiðinni. Frá vinstri: Stefán Stefánsson ( d. 2.1.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) en hann var fjórði veiðifélaginn í túrnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn022
Adolf H. Berndsen situr á neðstu tröppunni við Karlsskála en afi hans Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) stendur ofan við hann. Myndin var sennilega tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson554
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni eins og sjá má í hillunum til hægri á myndinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru að sýna, þær: Valrún Eva Vilhelmsdóttir lengst til vinstri, Auðna Ýr Oddsdóttir og Dagbjört Agnarsdóttir lengst til hægri. Í bakgrunninum sést Magnús B. Jónson filma herlegheitin og í áhorfendahópnum eru góðir og gegnir Skagastrendingar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn027
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru þau Magnús B. Jónsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn115
<p>Það ligur vel á mönnunum á þessari mynd. Frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Guðmundur Jóhannesson og Karl Berndsen (d. 12.2.1995).</p>
Barnaból - safn035
Þessi mynd var tekin 26. júlí 1985 í leikskólanum Barnaból, sólin skín og lífið er ljúft. Frá vinstri eru á myndinni: Brynjar Sigurðsson, Erla María Lárusdóttir, óþekkt, Valrún Eva Vilhelmsdóttir og Birna Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn103
<p>Fólk í síldarvinnu sumarið 1935 á nýbyggðu hafnarsvæði Skagastrandarhafnar. Fólkið er óþekkt.</p>
Jón Jónsson351
Skíðaskálinn í Spákonufelli var byggður af skíðaáhugafólki og var vígður 1985. Í vígslukaffi mætti fjöldi manns til að skoða skálann og gleðjast með skíðamönnum. Á þessari mynd, sem tekin var uppi á svefnloftinu, eru frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), Jónína Valdimarsdóttir og Gunnar Sveinsson.
Dagný Sigmarsdóttir003
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Björn Ingi Óskarsson að vinna við pillunarvélarnar.
Skagaströnd - safn052
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Þetta er mynd úr rútunni á leiðinni þangað sem félagar úr umf. Fram tóku við keflinu. Frá vinstri: Þórarinn Ingvarsson, Jóney Gylfadóttir, Jón Pálsson, Kristjana Erlingsdóttir og Kristjana Jónsdóttir.
Barnaból - safn030
Piparkökubakstrur 16. desember 1984 á leikskólanum Barnaból. Sigþrúður Magnúsdóttir hallar sér yfir son sinn Vigni Hafþórsson. Við borðið er líka Hlíf Sigurðardóttir með dætur sínar þrjár. Þær eru frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir og Halla Kristín Árnadóttir.
Barnaból - safn318
Steinar Orri Ólafsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn040
Guðný Sigurðardóttir og Magnús B. Jónsson leika í Stalin er ekki hér á leikárinu 1980 - 1981. Leikklúbbur Skagastrandar stóð fyrir sýningunni undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur í Fellsborg og í nágrannabyggðunum.
Barnaból - safn032
Systurnar Erla María Lárusdóttir til vinstri og Soffía Lárusdóttir að baka piparkökur á leikskólanum Barnaból 14. desember 1985.
Skagaströnd - safn148
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni voru gróðursett nokkur tré á Hnappstaðatúni. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir með barn, Kári Lárusson, baksvipur Bergljótar Óskarsdóttur (d. 22.2.2004), Ingibjörg Kristinsdóttir, óþekkt barn og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Guðmundur Guðnason286
Guðmundur Rúnar Kristjánsson frá Grund máta sig við kvíahelluna að Húsafelli árið 1974.
Barnaból - safn068
Sævar Hlynur Tryggvason.Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996
Guðmundur Guðnason240
Á þessari mynd eru systkinin Anna Skaftadóttir og Þorvaldur Skaftason. Myndin var sennilega tekin upp úr 1955. Aftan við Önnu sér í húshornið á Sólvöllum , sem nú eru löngu horfnir. Önnur hús, sem eru í fókus í baksýn, eru frá vinstri: Rafstöðin, Höfði, Útibúið og Holt (Eyri). Öll þessi hús eru enn á sínum stað nema Útibúið sem er horfið.
Þórður Jónsson033
Unglingadansleikur á Húnavöku í félagsheimilinu á Blönduósi, sennilega kringum 1960. Hljómsveitin gæti verið Gautar frá Siglufirði en það er þó ekki víst. Vonandi getur einhver þekkt sjálfan sig á myndinni, en bjartleiti strákurinn sem ber yfir stúlkuna fremst á myndinni er Vilhjálmur Pálmason frá Holti á Ásum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn178
Á þessari mynd eru krakkar sem sóttu kirjuskólann/sunnudagaskólann á árunum kringum 1965 ásamt leiðbeinendum sínum. Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla sennilega einhverntíma á árunum 1965-1968.Takið eftir að allir eru með biblíumyndina sína í höndunum en slíkum myndum var úthlutað í kirkjuskólanum á hverjum sunnudegi. Fullorðna fólkið til vinstri er: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) með gráa húfu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Páll Jónsson (d. 19.7.1979) stendur aftast með barn í fanginu og til hægri er Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) einnig með barn í fanginu. Við hlið Margrétar, aftast, stendur Guðrún Lárusdóttir og framan við hana er Aðalheiður Másdóttir og hægra megin við hana er Elsa Lára Blöndal með rauða húfu. Framan við Aðalheiði er Ingibergur Guðmundsson og bróðir hans Karl Guðmundsson er rauðhærður á miðri mynd. Hjá Karli, aftar og vinstra megin í brúnni peysu, er Sigurður Þorbjörnsson en Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) er aftan við Karl til hægri í hvítir og brúnni peysu. Aftan og vinstra megin við Guðrúnu Teitsdóttur í svartri úlpu með bleikt um hálsinn er Ólína Bjarnadóttir og beint framan við hana er svo Kjartan Bjarnason. Guðmundur Viðar Guðmundsson er framarlega með rautt hár og heldur utan um minni börn í fremstu röð. Framan við séra Pétur með brúna húfu er Heiðar Elvan Friðriksson og til hægri við hann er Guðbjörg Kristinsdóttir en aftan við hana Árni Geir Ingvarsson. Framan við Heiðar og Guðbjörgu eru Guðbjörg Viggósdóttir í ljósri kápu og Líney Jósefsdóttir í svartri vattúlpu. Í fremstu röð til hægri í rauðri kápu með svarta húfu er Unnur Gunnarsdóttir og aftan við hana er Málfríður Jóhannsdóttir en hægra megin við Unni er Lára Bylgja Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú getur bætt við nöfnum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn258
Á myndinni eru húsin að Ægisgrund 5 til vinstri en bláa húsið er númer 5 við Norðurbraut og er eina húsið við þá götu, sem reyndar nær ennþá bara heima að þessu húsi.
Skagaströnd - safn244
Að lokinni sumarvinnu 1996 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða á hótel Dagsbrún á Skagaströnd. Á þessari mynd eru flokkstjórar sumarsins frá vinstri: Kristín Þórðardóttir, Maríana Þorgrímsdóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Skagaströnd - safn126
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd óskar Hallveigu Ingimarsdóttur til hamingju með nýja íbúð sína við Mánabraut. Myndin var sennilega tekin í febrúar 1983.
Ólafur Bernódusson555
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýnir Viggó Magnússon það nýjasta í unglingatískunni það árið.
Ólafur Bernódusson564
Trillan Benni Ólafs Hu 10 með eiganda sinn Ólaf Bernódusson um borð.
Barnaból - safn061
Hanna María Gylfadóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn012
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Elín Njálsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Barnaból - safn042
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni eru mæðginin Hallbjörg Jónsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson við baksturinn.
1
…
74
75
76
…
167
Leita í myndasafninu
Leita