Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn043
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru á spjalli þeir Gylfi Sigurðsson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson verkstjóri til hægri.
Skagaströnd - safn281
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ernst Berndsen þáverandi formaður starfsmannafélags Arnars í ræðustól en starfsmannafélagið styrkti byggingu hússins með fjárframlagi.
Barnaból - safn040
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni er Herborg Þorláksdóttir með börnum sínum þeim Bryndísi Axelsdóttur vinstra megin við borðið og Hallgrími Axelssyni hægra megin. Fremst er svo Auður Eva Guðmundsdóttir.
Skagaströnd - safn077
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í ófullgerðri brú skipsins af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996), sem flytur bæn, og skipstjóranum Guðjóni Ebba Sigtryggssyni.
Barnaból - safn021
16. desember 1984 voru bakaðar piparkökur á leikskólanum Barnaból. Á þessari mynd eru tvær mæður að aðstoð börn sín við baksturinn. Matthildur Jónsdóttir, í rauðri peysu, aðstoðar dóttur sína Áslaugu Ottósdóttur og Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) hjálpar syni sínum Gunnari Borg Jónssyni.
Barnaból - safn 095
Þessi mynd var tekin 30. maí 2001 af hópi barna á leikskólanum Barnaból. Í fremri röð frá vinstri: Knútur Jensson, Aron Snær Fannarsson, Ægir Jónas Jensson og Ívan Árni Róbertsson. Í aftari röð eru frá vinstri: óþekkt, Saga Lind Víðisdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Huginn Frár Guðlaugsson og Egill Örn Ingibergsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn337
13. september 2001 fóru krakkarnir í leikskólanum Barnaból út á golfvöll - Háagerðisvöll - til að kynna sér golfíþróttina. Á þessari mynd er Adolf H. Berndsen að kenna krökkunum að pútta á flötinni á fyrstu braut. Þórunn Bernódusdóttir er lengst til vinstri, karlmaðurinn í dökka jakkanum er óþekktur Kristín Birna Guðmundsdóttir er í gráum jakka og Herdís Jakobsdóttir er lengst til hægri. Börnin eru óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 363
Willys Overland Station Wagon H 192, sennilega árgerð 1946. Líklega átti Hannes Finnbogason læknir þennan bíl.
Barnaból - safn 120
Foreldradagur í leikskólanum Barnaból 6. júní 1991. Næst okkur á myndinni eru mæðurnar Herborg Þorláksdóttir til vinstri og Kristín Þórðardóttir til hægri. Guðrún Sigurðardóttir spilar á gítarinn en börnin eru frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, óþekkt, Elva Ösp Gunnarsdóttir (fjær), óþekktur (nær), Daníel Guðmundsson (fjær), Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, óþekktur, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (=Lilja Nótt Sævarsdóttir), Anna María Magnúsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir.
Guðmundur Guðnason215
Knapar og áhorfendur á kappreiðamóti á Hvammsbökkum 1961. Til hægri, með hendur í blússuvösunum, er Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson052
Á leiksviði í gömlu Tunnunni. Ekki er vitað hvert leikritið er né hvenær myndin var tekin. Leikararnir eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Bylgja Angantýsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Kristín Lúðvíksdóttir, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d. 6.3.2007), Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994).
Óþekktur ljósmyndari301
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga var byggt 1930 og stendur við Einbúastíg. Margvísleg starfsemi hefur farið fram í húsinu gegnum tíðina en í dag eru þar skrifstofur, aðsetur Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og Námsver.
Barnaból - safn185
Birgitta Jóna Gunnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn177
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd er fólk úti á veröndinni sunnan við heimili Lárusar og syngja saman við undirleik Adolfs J. Berndsen oddvita á harmóniku. Á myndinni eru frá vinstri: Óþekkt, baksvipur Adolfs J. Berndsen, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Jóhann Pétursson (d.13.1.1999), Sigríður Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006), Guðmundur Jóhannesson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Helga Jóhannesdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), María Magnúsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Bjarney Valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Sigfús Jónsson, Gylfi Sigurðsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Jón Jónsson341
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn018
Jónas Árnason (d. 5.4.1998) skrifaði leikritið Skjaldhamrar. Leikklúbbur Skagastrandar sýndi verkið í Fellsborg á leikárinu 1976 - 1977 undir leikstjórn Einars Rafns Haraldssonar. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Magnús B. Jónsson (krýpur), Ólafur Bernódusson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðný Sigurðardóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Kristín Björnsdóttir.
Skagaströnd - safn180
Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981) flytur ræðu á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn016
Allra meina bót eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni var sýnt í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar leikárið 1976 - 1977. Á myndinni leikur Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Andrés oftskorna en Bernódus var janframt leikstjóri sýningarinnar.
Skagaströnd - safn299
Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012) og Guðný Finnsdóttir grúfa sig yfir vinnu sína í félagsstarfi aldraðra 16. nóvember 1998. Sigríður er til vinstri en Guðný (Gýgja) til hægri.
Barnaból - safn 100
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í heimsókn að Steinnýjarstöðum 22. maí 2001. Eitt af ævintýrunum sem krakkarnir upplifðu var ferðalag á vagni sem dregin var af dráttarvél. Á myndinni eru krakkarnir að skríða niður af vagninum fyrir utan fjósið á Steinnýjarstöðum. Þórunn Bernódusdóttir er að búa sig undir að hoppa niður og Erna Hreinsdóttir bíður eftir að röðin komi að henni.
Barnaból - safn 129
Myndin var tekin í nóvember 1991 af nokkrum börnum á leikskólanum Barnabóli. Í miðið er Sindri Njáll Hafþórsson með afmæliskórónu vegn þess að hann á fjögurra ára afmæli. Frá vinstri á myndinni eru: Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Sindri, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Ragnar Einarsson og Jóna Gréta Guðmundsdóttir.
Barnaból - safn 112
Leikskólakrakkarnir í Barnabóli á Skagaströnd heimsóttu leikskólann Barnabæ á Blönduósi 25. janúar 1991 en þá var þessi mynd tekin. Á henni eru frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Jóna Gréta Guðmundsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn014
Allra meina bót eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni var sýnt í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar leikárið 1976 - 1977. Á myndinni, sem var tekin á sýningu, eru frá vinstri í hlutverkum sínum: Þorvaldur Skaftason, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Kristín Björnsdóttir, Elín Njálsdóttir og Hjörtur Guðbjartsson.
Skagaströnd - safn112
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti Höfðahrepps tekur í hönd Guðrúnar Teitsdóttur (d. 17.6.1978) ljósmóður. Tilefnið er óþekkt en myndin var tekin í Höfðaskóla, sennilega kringum 1975.
Skagaströnd - safn042
Árni Björn Ingvarsson gröfumaður, lengst til vinstri, spjallar við Hjalta Hólmar Indriðason í vinnunni við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Fyrir aftan þá sér í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn057
<p>1979 var útbúin byggingarlóð, með uppfyllingu, við Skúffugarðinn fyrir frystiklefa og hugsanlegt frystihús. Allir vörubílar á svæðinu voru kallaðir til enda þurfti að aka miklu efni á svæðið. Á þessari mynd eru bílarnir og eigendur þeirra fyrir framan þá. Frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Jónas Skaftason, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Hörður Ragnarsson, Kristinn Andrésson (d. 12.7.1991), Sigurgeir Jónasson og Hjálmar Pálsson (d. 28.12.2001). Á myndina vantar Adolf J. Berndsen sem var líka með vörubíl í þessari vinnu. </p>
umf Fram297
<p>Á þessari mynd eru íþróttamennirnir Kristinn Guðmundsson til vinstri og Víðir Ólafsson til hægri. Hér lyfta þeir verðlaunagrip sem umf. Fram vann sem stigahæsta félagið á héraðsmóti USAH í frjálsum íþróttum til 24. júní 1990. Þeir félagar voru drýgstir í stigaöflun fyrir félagið á mótinu.
Skagaströnd - safn252
Á kántrýhátíð sennilega sumarið 2000 var reist indíánatjald á tjaldsvæðinu. Tjaldið var fagurlega skreytt eins og sjá má á myndinni en á henni er verið að koma tjaldinu upp. Stúlkan með húfuna lengst til vinstri er Berglind Karlsdóttir og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn160
Eiður Bjarki Þórarinsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn151
<p>Þetta er líklega Jóhanna Ásta Björnsdóttir (d. 28.10.1989) frá Stóru-Giljá, sem lengi kenndi matreiðslu í Húsmæðraskólanum á Löngumýri</p>
Skagaströnd - safn301
Höfðaberg, sem stóð upp undir Höfðanum norðan við núverandi Bankastræti, var rifið í desember árið 2000 eftir að hafa staðið autt um tíma.
Skagaströnd - safn093
Myndin var tekin þegar Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar vekamannabústaða á Skagaströnd afhenti Guðmundi Viðari Guðmundssyni íbúðina að Mánabraut 7 í febrúar 1983. Kona Guðmundar var fjarverandi þegar myndin var tekin.
Barnaból - safn002
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ragnar Stefán Rögnvaldsson, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir, Sveinbjörn Magnússon, óþekkt og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn205
Hallgrímur Axelsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn216
Þessi mynd sýnir horfinn tíma. Hún var tekin í vinnslusal frystihúss Hólaness hf 1976 fyrir tíma flæðilínunnar. Á myndinni eru nær 30 manns að vinna.
Guðmundur Guðnason282
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á kunnuglegum slóðum - við orgelið.
Guðmundur Guðnason217
Fjöldi manns sóttu kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Lögreglan hélt uppi lögum og reglu á svæðinu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn126
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd óskar Hallveigu Ingimarsdóttur til hamingju með nýja íbúð sína við Mánabraut. Myndin var sennilega tekin í febrúar 1983.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn012
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Elín Njálsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Barnaból - safn042
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni eru mæðginin Hallbjörg Jónsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson við baksturinn.
Skagaströnd - safn153
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni var komið fyrir litlu útitafli á Hnappstaðatúni. Á myndinni fylgist Gunnar Sveinsson með tevimur ungum skákmönnum etja kappi. Jón Örn Stefánsson til vinstri og Gunnar Borg Jónsson til hægri.
Skagaströnd - safn303
Bankastræti 8 = Bjarnarhöfn er til hægri og Bankastræti 10 = Höfðabrekka til vinstri. Myndin var tekin 28. desember 2000.
Óþekktur ljósmyndari362
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1945 - 1950. Þá var mikill uppgangstími á Skagaströnd og allmikið byggt af íbúðarhúsnæði. Þessi mynd var tekin af höfðanum yfir Bankastrætið þar sem sjá má fjögur hús í byggingu. Næst okkur til hægri er komin neðri hæðin af Bankastræti 9 en í því húsi eru tvær íbúðir. Svarta húsið næst því, þeim megin við götuna, eru Flankastaðir eða Bankastræti 7. Þetta hús var rifið og nýtt hús byggt á sama stað. Þá koma Kárastaðir - Bankastræti 5 - og þegar myndin var tekin hafði nýlega verið byggt ofan á húsið og það gert tveggja hæða. Kárastaðir voru rifnir fyrir allmörgum árum. Fjórða húsið í þessari röð er svo Stórholt eða Bankastræti 3 orðið fokhelt. Í því húsi eru þrjár íbúðir. Vinstra megin við Bankastrætið, næst okkur, eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Flankastöðum. Þar fyrir aftan er Höfðabrekka - Bankastræti 10 - í byggingu og handan við það er verið að byggja Bjarnarhöfn - Bankastræti 8. Nær höfðanum ofan við Höfðabrekku sér í fjós sem tilheyrði Kárastöðum. Húsið framan við Höfðabrekku er óþekkt og löngu horfið. Höfðakot er húsið sem er lengst frá okkur vinstra megin við götuna ásamt áföstum fjárhúsum. Hægra megin við Stórholt er Skálholt en það hús stendur við Skagaveg. Hin húsin sem standa við Skagaveg eru Þórshamar, Þórsmörk og Héðinshöfði, sem sést bara hálfur á þessari mynd. Hinum megin við Skagaveginn er Bjarmaland. Húsið sem stendur eitt og sér lengst til hægri er Gunnarshólmi sem oft var kallað Grafarbakki því nærri því voru gamlar mógrafir. Húsið sem ber yfir Kárastaði er annað hvort Sólheimar eða Valhöll en þau bæði eru löngu horfin. Götumyndin sem blasir við frá sama stað af höfðanum í dag er gjörbreytt en það getur verið gaman að bera hana saman við þessa gömlu mynd.
Skagaströnd - safn309
Um og eftir miðja síðustu öld var algengt að fólk á Skagaströnd ætti nokkrar kindur í kofa einhversstaðar nálægt heimili sínu. Sumir áttu líka eina til tvær kýr fyrir heimilið og jafnvel einhverja hesta. Mörg þessara kofa/útihúsa voru byggðir úr afgöngum og drasli og báru þess glögg merki. Á þessari mynd eru útihús stóðu á ræktarlandi nr. 212 sem mun vera norðan og austan við Vík.
Dagný Sigmarsdóttir012
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Nikola ? við pillunarvélarnar.
Jón Jónsson298
Þessi mynd var tekin af sigursveit í kappróðri á sjómannadegi líklega 1988. Sveitin keppti fyrir hönd Vélaverkstæðis Karls Berndsen þar sem meirihluti mannanna vann. Frá vinstri: Hendrik Berndsen, William Sillar, Gísli Snorrason, Jóhannes Sveinsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson og Ari Þórsson. Lengst til hægri eru óþekktur drengur og Sigurbjörn Björgvinsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn122
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við afgreiðslu í nýopnuðu bókasafninu í kjallara Fellsborgar kringum 1980. Lengst til vinstri er Hrafnhildur Jóhannsdóttir að skoða bók meðan dóttir hennar Katrín Sigurjónsdóttir fær afgreiðslu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Síðan þessi mynd var tekin hefur bókasafninu heldur betur vaxið fiskur um hrygg með auknum bókakosti.
Ólafur Bernódusson568
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Gist var á tjaldstæði í nokkrum litlum húsum eins og sést í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Elín Anna Konráðsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn234
Hulda María Halldórsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1985.
Skagaströnd - safn275
Árið 1996 var grafið fyrir grunni íþróttahússins. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgi Gunnarsson til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 2014) til hægri að brjóta sig niður í næga dýpt.
Þórður Jónsson055
Þessi mynd var tekin við vígslu nýbyggingar Höfðaskóla 2. nóvember 1958. Í fremstu röð eru frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) er sitjandi til vinstri með köflóttan trefil. Ingunn Júlíusdóttir (d. 22.4.1998) situr með hönd á höku og við hlið hennar hægra megin er Hallbjörn Ágústson í fangi móður sinnar Guðnýjar Hjartardóttur (d. 14.3.2011). Aftan við Ingunni er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990). Aftan við Þorfinn er Lárus Jónsson (d. 3.7.1983). Upp við vegginn standa í röð: Guðrún Sigurðardóttir, Hallbjörn Hjartarson, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) með barn í fanginu, óþekkt kona, Ingólfur Ármannsson kennari, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996), óþekkt kona, Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981), tveir óþekktir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), óþekktur, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999), Guðmundur Jóhannesson, Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973), Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001), óþekktur, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og óþekktur. Framan við Þórbjörn situr Jón Þorgeirsson með Maríu dóttur sína vinstra megin við sig. Maðurinn með gleraugun aftarlega til hægri er Jón Sölvason (d. 17.8.1969) og til vinstri við hann er kona hans Þorbjörg Halldórsdóttir (d. 30.6.1970). Strákurinn sem stendur til hægri er Rúnar Kristjánsson. Framan við hann situr Margrét Valdimarsdóttir og inni í miðjum nemendahópnum sést Harpa Friðjónsdóttir, ljóshærð, á hvíslum við sessunaut sinn. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn194
Dráttarbrautin á Skagaströnd í byggingu. Brautin var vígð 1985 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1984 eða 1985.
Dagný Sigmarsdóttir006
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru frá vinstri við hreinsi-færibandið: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Dagný Hannesdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 226
Fjársafni smalað að Stafnsrétt í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn208
Þorgerður Guðlaugsdóttir Ásholti.
Barnaból - safn154
Stefán Agnar Gunnarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn 096
<p>Flestir hafa gaman af að skoða gamlar myndir. Á þessari mynd, sem tekin var 26. maí 2001, er fólk að skoða gömul myndaalbúm sem innihalda gamlar myndir frá starfi leikskólans Barnaból. Á myndinni eru frá vinstri talið: Adolf J. Berndsen, barn, Fjóla Ævarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir (nær), Þórey Jónsdóttir (fjær) og Erna Berglind Hreinsdóttir.</p>
Skagaströnd - safn286
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Gunnlaugur Sigmarsson þáverandi útibússtjóri Landsbankans á Skagaströnd í ræðustól. Bankinn styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn143
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd skemmta sér yfir einhverjum atriðum, frá vinstri : óþekktur, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Gunnar Albertsson, Guðmundur Björnsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem leiðir litlu systur sína, Kristbjörgu Unu Guðmundsdóttur.
Þórður Jónsson040
Til hægri á þessari mynd er Lárus Jónsson (d. 3.7.1983) sem var síðasti læknirinn með fasta búsetu á Skagaströnd. Hinn maðurinn er Páll Kolka (d. 19.7.1971) héraðslæknir á Blönduósi ásamt konu sinni Guðbjörgu Guðmundsdóttur (d. 11.6.1974).
1
…
75
76
77
…
167
Leita í myndasafninu
Leita