Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn111
Ingibergur Guðmundsson kastar kringlu á héraðsmóti USAH á Skagastrandarvelli einhverntíma á árunum kringum 1980. Stefán Jósefsson skráir mælingar lengst til vinstri en Adolf H. Berndsen og Gunnar Sveinsson fylgjast með. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Dagný Sigmarsdóttir032
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Þessi mynd er af Jóhannesi Óskarssyni við pillunarvélarnar.
Barnaból - safn193
Elvar Arinbjörn Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Skagaströnd - safn266
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson (nær), Marta Kristín Jónsdóttir (fjær), Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Elva Gunnarsdóttir og lengst til hægri sér í Eygló Amalíu Valdimarsdóttur.
umf Fram302
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri í heimsókn að Brandaskarði ásamt fleiri krökkum. Þar var margt að sjá og snerta t.d. þessir litlu kettlingar.
Skagaströnd - safn075
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í kaffistofu Slippstöðvarinnar en þar bauð stöðin upp á molakaffi en síðan til kvöldverðar í Sjallanum um kvöldið. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Elísabet Árnadóttir og Kristinn Jóhannsson.
Barnaból - safn070
<p>Alexander Ragnarsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.</p>
Guðmundur Guðnason247
Þórunn Bernódusdóttir og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Myndin var sennilega tekin kringum 1955.
Barnaból - safn208
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson á leikskólaárum sínum kringum 1985
Leikklúbbur Skagastrandar - safn030
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn Hjartarson, Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir, Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn200
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Pálmi Jónsson alþingismaður, Stefán Guðmundsson (d. 10.12.2011) alþingismaður, Jón Pálsson, Jón Ingi Ingvarsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Bjarney Valdimarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn171
Stella Vigdís Sigurðardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
umf Fram299
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd sem tekin var 20. júlí 2004 er áð fyrir utan sundlaugina. Á myndinni eru frá vinstri: Eydís Einarsdóttir, Bergrós Hafsteinsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Birkir Gunnarsson?, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir?, Sigurjón Elí Eiríksson, Alma Eik Sævarsdóttir, Ívan Árni Róbertsson og Sylvía Ósk Hrólfsdóttir. Ef þú getur staðfest að rétt sé farið með nöfn barnanna, sem spurningamerki er við, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn047
Á þessari mynd, sem var tekin á öskudaginn í febrúar 1982, er ábúðafullur læknir, Halla Kristín Árnadóttir að hlusta sjúklinginn Rakel Söru Gunnarsdóttur.
Guðmundur Guðnason266
Félagarnir og vinirnir Óskar Hjaltason til vinstri og Jón Hilmar Indriðason til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1980.
Skagaströnd 1966 a
<p>Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina en Guðmundur (d. 15.10.2002) er lengst til hægri á myndinni. Næstur honum stendur Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) en hinir mennirnir tveir eru óþekktir.</p>
Skagaströnd - safn220
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær né hvert tilefnið var. Lengst til vinstri er Jón Pálsson, maðurinn með hattinn og klút í brjóstvasanum er Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005). Fyrir aftan hann er Björk Axelsdóttir með slæðu og hvítt veski en aftan við hana til hægri er tengdafaðir hennar Páll Jónsson (d. 19.7.1979). Maðurinn sem er annar frá hægri er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978). Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni, eða veist tilefni myndatökunnar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn273
Þóra Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Skagaströnd - safn094
Elínborg Jónsdóttir formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir Ernu Hreinsdóttur og Fannari Viggóssyni lyklana að íbúð sinni að Mánabraut 11 í febrúar 1983.
Séra Pétur og Dómhildur - safn130
Afinn með dótturson sinn. Jón Hallur Sigurbjörnsson með Jón Hall Pétursson í fanginu. Jón Hallur yngri er sonur Dómhildar sem var dóttir Jóns Halls eldri.
Barnaból - safn 119
Þessi mynd var tekin á foreldradegi í leikskólanum Barnaból 6. júní 1991. Frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, María Halldóra Alexandersdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir (snýr baki að ljósmyndaranum), Lilja Kristinsdóttir (fjærst), Daníel Guðmundsson (í miðið), óþekktur, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d. ?), Herborg Þorláksdóttir (snýr baki að ljósmyndaranum) og Ingibjörg Axelma Axelsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir038
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Svava Sigurðardóttir við vinnu sína við gæðaeftirlit.
Þórður Jónsson045
<p>Helga Ólafsdóttir - myndin sennilega tekin í tilefni af fermingu hennar</p>
Adolf H Berndsen - safn039
Steinunn Berndsen (d.29.10.1953) þvær fisk upp úr vaskafati. Í baksýn sést Spákonufellsey óskemmd en hún var brotin niður að hluta þegar hún var notuð undir höfnina á Skagaströnd meðal annars með uppfyllingu í land úr grjóti sem tekið var í Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1934 því þá hófst hafnargerðin.
Skagaströnd - safn219
Lítið er vitað um þessa mynd. Hvorki tímasetning, tilefni né staðsetning er þekkt. Í fremstu röð til hægri situr Ingólfur Jónsson ráðherra 1959 - 1971 og annar frá hægri í fremstu röð er Ásgeir Ásgeirsson froseti Íslands 1952 - 1968. Því má telja sennilegt að myndin hafi verið tekin einhverntíma á árunum 1959 - 1968. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða veist eitthvað annað um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn072
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 26. ágúst 1996 á fjögurra ára afmæli tvíburanna Þórðar Indriða og Þóris Óskars Björnssona. Þeir sitja við borðsendann, Þórður Indriði er sá sem er hægra megin. Aðrir á myndinni eru, vinstra megin, frá okkur talið: Sævar Hlynur Tryggvason, Helgi Óskarsson, Alexander Ragnarsson og tveir óþekktir. Hægra megin við borðið, frá okkur talið: Hanna María Gylfadóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, óþekkt, Guðjón Örn Arason og þrjú óþekkt börn.
Barnaból - safn264
Vignir Örn Hafþórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn257
Ómar Valur Erlingsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1985.
Ólafur Bernódusson563
Þessi mynd var tekin á götu í London í september 2002. Þá tóku sig til 11 Skagstrendingar og fóru á tónleika með Rolling Stones í borginni. Á myndinni eru frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Día Anna, Ólafur Bernódusson og hjónin Finnur Kristinsson og Guðbjörg Ólafsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir008
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Dagný Hannesdóttir (Lilla) við vinnu sína í pökkunardeildinni.
Þórður Jónsson053
<p>Bergur Jón Þórðarson eða Bergur Thorberg er listmálari sem þróað hefur sérstaka aðferð í listsköpun sinni. Hann málar með kaffi og málar myndir sínar á hvolfi. Bergur er sonur Þórðar sem tók þessa mynd. </p>
Skagaströnd - safn098
Ludendorf Hu 46 með fána á sjómannadegi. Bátinn átti Ole Aamundsen í Lundi.
Skagaströnd - safn248
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er annað þeirra risið - til hægri - og verið að vinna að uppsetningu hins síðara. Berglind Karlsdóttir er stúlkan í rauðu peysunni en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd 1966 d
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er búið að slá frá og karið bíður þess að vera sett á flot.
Skagaströnd - safn225
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn270
Leitað að vatni sumarið 1996 á Hrafndal. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Sigurjón Ástmarsson, Rolf Árnason (d. júní 2014), Páll Jóhannesson og Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011).
Barnaból - safn015
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Birna Ágústsdóttir horfir á ljósmyndarann en faðir hennar, Ágúst Jónsson sker út kökur. Elinóra Rafnsdóttir er konan í bláu peysunn með barn sitt, Guðrúnu Fanney Einarsdóttur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn119
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) spjallar hér við Brigittu Vilhelmsdóttir (d. 6.1.1995) yfir kaffibolla. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn285
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Jóel Kristjánsson, þáverandi framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, í ræðustól en félagið styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Barnaból - safn144
Þessi mynd var tekin í Lundi í leikskólanum Barnaból fyrir hádegi í apríl 2001. Fremri röð frá vinstri: Freyja Sif Einarsdóttir, Ernst Guðni Hólmgeirsson, Kristmar Ingi Ragnarsson, Heba Líf Jónsdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir, Sæþór Bragi Ágústsson og Einar Ari Einarsson. Aftari röð frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Erna hreinsdóttir, Jón Margeir Vilhjálmsson, Ólafur Þór Víðisson, Aron Snær Fannarsson, Ísak Karl Tryggvason, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Ásdís Rán Kristjánsdóttir og Fjóla Ævarsdóttir. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
Barnaból - safn151
Elva Ösp Gunnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn310
Sóley Linda Egilsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn 113
Stefán Gunnarsson á leikskólanum Barnaból 1991.
Árni Geir Ingvarsson - safn 451
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg HU 7 og Þórir GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason305
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn í bláu peysunni rétt vinstra megin við miðja mynd er Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta-Gili og Skarphéðinn Einarsson frá Blönduósi er í ljósri lopapeysu að skoða mark á lambi. Stelpurnar tvær til hægri á myndinni eru: Helga Sigríður Ævarsdóttir í rauðri peysu og Helga Ólína Aradóttir með flétturnar. Ingibjörg Karlsdóttir (d. sept. 2014) er konan í úlpunni á miðri mynd og Arnar Árnason er drengurinn til hægri í fjólubláu peysunni.
Barnaból - safn048
<p>Þessi mynd var tekin á leikskólanum Barnaból á litlu jólunum 1981. Fremst til vinstri er Jón Ólafur Sigurjónsson, Jón Örn Stefánsson situr hægra megin við hann í rauðleitri peysu og Arnar Ólafur Viggósson er lengra til hægri í bláum smekkbuxum og Gunnar Guðmundsson hægra megin við hann. Við hlið Jóns Ólafs í fölbleikum fötum situr Árný Guðrún Ólafsdóttir. Hildur Inga Rúnarsdóttir stendur með aðra hönd á mjöðm en framan við hana til hægri situr flötum beinum Viktor Pétursson en við hlið hennar í ljósblárri peysu er Jóhannes William Grétarsson. Aftan við Viktor, í brúnleitu vesti, er Þorlákur Guðjónsson og aftan við hann til vinstri er Írena Rúnarsdóttir. Sitt hvoru megin við Írenu eru systkin, Jósep ? og Sara? Aftan við Hildi Ingu til vinstri er Ólafur Magnússon og vinstra megin við hann, í rauðum kjól, er Þóra Ágústsdóttir. Stúlkan í dökk bláa kjólnum sitjandi til vinstri er Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og á endanum til vinstri við Bergþóru sér í Salóme Ýr Rúnarsdóttur. Aftan við Bergþóru, með fingurinn við munninn, er Auðna Ýrr Oddsdóttir. Konan vinstra megin er óþekkt en hún heldur á Björgvin Ragnarssyni. Framan við hana örlítið hægra megin er María Jóna Gunnarsdóttir. Konan hægra megin er Bára Þorvaldsdóttir með Elínu Ósk Ómarsdóttur í fanginu og leggur hönd á höfuð Kolbrúnar Jennýar Ragnarsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Barnaból - safn268
Braga Bragadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd. Móðir hennar var Alda ? sem bjó á Flankastöðum ásamt henni og systkinum hennar, Höskuldi Braga Bragasyni og Bylgju Báru Bragadóttur.
Dagný Sigmarsdóttir020
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er einn af tryggustu starfsmönnum fyrirtækisins, Sigurður Bjarnason við pillunarvélarnar.
Ólafur Bernódusson 555
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. 26 leikarar komu fram í þessari vinsælu leiksýningunni og á þessari mynd eru nokkrir þeirra í hlutverkum sínum. Talið frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Sigrún Jónsdóttir, Rut Jónasdóttir, Herborg Þorlásdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Hamónikuleikarinn sem sér í hægra megin við Vigdísi er Þórhildur Jakobsdóttir. Leikritið var sýnt á Skagaströnd og í nágrannabyggðunum við góðar undirtektir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn131
<p>Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Kennarar Húsmæðraskóla Akureyrar 1. veturinn 1945 - 46" </em>Nöfn kvennanna eru óþekkt en líklega er sú peysufataklædda í fremri röð Helga Kristjánsdóttir (d. 5.6.2002) fyrrum húsfreyja á Silfrastöðum í Skagafirði. Ef þú þekkir hinar konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Skagaströnd - safn292
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fremst á myndinni situr hreppsnefnd Höfðahrepps sem eingöngu var skipuð karlmönnum á þessum tíma. Frá hægri: Adolf H. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Gylfi Guðjónsson, Hallbjörn Björnsson og Steindór Haraldsson. Fjær sitja í sömu röð: Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Guðný Sigurðardóttir
Skagaströnd - safn117
Slippurinn eða dráttarbrautin á Skagaströnd var vígð 1985. Á þessari mynd var verið að dýpka framan við garðana sem bera sleðann. Jafnframt er verið að byggja garðana.
Árni Geir Ingvarsson - safn 383
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og kom til landsins 1973 frá Japan. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Jón Jónsson326
Útgerðarfyrirtækið Skagstrendingur hf var stofnað 1968 eins og sést á borðanum sem hengdur var á sviðstjaldið í Fellsborg. Tilefnið var afmælisfagnaður fyrirtækisins annað hvort 1983 eða 1988. Á myndinni heldur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) ræðu en Jón Ingi Ingvarsson hjálpar til með hljóðnemann. Á sviðsbrúninni sitja frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Óskar Þór Kristinsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta manninn eða veist hvaða ár myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn020
Mæðginin Steinunn Grímsdóttir og sonur hennar Eiður Örn Þórsson við piparkökubakstur á Barnabóli 16. desember 1984.
Jón Jónsson283
<p><br>Þessi mynd var tekin í hófi í Fellsborg í tilefni af að séra Pétur Þ. Ingjaldsson var að láta af prestskap á Skagaströnd 1981. Á myndinni eru hjónin Björg Björnsdóttir (d.11.11.1989) og Björn Jónsson (d. 21.4.1992) frá Ytra - Hóli. </p>
Jón Jónsson296
Þessir ungu drengir hafa raðað sér upp á ráslínu til að taka þátt í víðavangshlaupi á vegum umf. Fram á Skagaströnd í maímánuði einhverntíma á árunum kringum 1985. Frá vinstri á myndinni eru: óþekktur, Jóhannes Indriðason, Jónas Þorvaldsson, Jón Örn Stefánsson, óþekktur, Jósef Stefánsson, Gunnar Borg Jónsson, Reynir Lýðsson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Theódór Karlsson, Jón Arnarson aftan við Þorlák og Theódór, Steinþór Karlsson, Jón Heiðar Jónsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Björn Sigurðsson, Þröstur Árnason, Baldur Magnússon, Atli Þórsson, Svanur Árnason. Lárus Ægir Guðmundsson lýsir leiðinni sem á að hlaupa áður en hann ræsir hlauparana.
Skagaströnd - safn300
Jarðhitaleit í Hrafndal veturinn 1998. Boraðar voru nokkrar holur en árangurinn varð lítill sem enginn. Á myndinni eru Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) fremst til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri. Milli þeirra sér í Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) en maðurinn með gula hjálminn er óþekktur.
Skagaströnd - safn260
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri vinnur hér í áhaldahúsinu að undirbúningi kántrýhátíðar 1996.
Barnaból - safn298
Kristján Pétur Guðjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
1
…
76
77
78
…
167
Leita í myndasafninu
Leita