Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn162
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Þessar tvær heiðurskonur eru: vinstra megin er Helga Daníelsdóttir (d. 17.1.2013) en Anna Jónsdóttir (d. 23.9. 2002) (Stella Trausta) frá Blönduósi er hægra megin.
Baldur Eðvarðsson - safn 1
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin 1966 eða 1967 en á henni eru allmörg hús, sem ekki standa lengur. Næst okkur í hægra horni myndarinnar sér ofan á Höfðaberg og Höfðakot, sem bæði eru horfin. Þar sem vörubíllinn stendur var bílastæði fyrir Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) vörubílstjóra en hann bjó í Stórholti, sem ber yfir Höfðakot, á þessum tíma. Þórsmörk er annað hús, hinum megin við vörubílinn, en það hús er horfið ásamt fjáhúsunum sem standa andspænis því. Næstu tvö hús, Héðinshöfði og Garður eru líka horfin fyrir löngu. Hægra megin við Gamla kaupfélagið stendur Kaupfélagshúsið, sem er enn eitt af húsunum, sem hefur verið rifið. Litli skúrinn sem ber í síldarverksmiðju-skorsteininn var afgreiðsluhús fyrir bensín og ólíur frá Esso olíufélaginu og ef grannt er skoðað má sjá dælurnar við hlið skúrsins. Hinn litli skúrinn, sem er vinstra megin við Esso skúrinn, var hafnarvigtin áður en hún var flutt á núverandi stað við höfnina. Lengra til vinstri upp af stóru skemmunni eru tveir braggar, sem nú eru horfnir. Í bröggunum voru íbúðir en undir það síðasta stóðu þeir tómir. Við enda Skúffugarðsins er ker sem verið er að ganga frá eftir að það var smíðað í slippnum við Bjarmanes. Stóri báturinn við bryggjuna er sennilega Helga Björg HU 7 og enn standa löndunarkraninn og færibandið sem lá frá honum og upp í verksmiðju.
Barnaból - safn242
Eyþór Örn Ernstson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn081
Söngkór í leikskólanum Barnaból æfir söng fyrir öskudaginn 4. febrúar 1997. Frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Laufey Inga Stefánsdóttir (nær), Hafrún Kristjánsdóttir, (fjær), Aðalheiður Ragnarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson, Arnar Freyr Sigurjónsson (nær), Elna Ragnarsdóttir (fjær), Sunna Guðlaugsdóttir, Valþór Vilhelmsson, Guðjón Örn Arason, Þórður Indriði Björnsson, Alexander Ragnarsson, Patrik Snær Bjarnason, tveir óþekktir, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson og Kristján Ýmir Hjartarson.
Barnaból - safn057
Þórir Óskar Björnsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn279
Eydís Inga Sigurjónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Guðmundur Guðnason329
Sumir segja að þetta sé Séra Einar Þór Þorsteinsson. Séra Einar var prestur á Eiðum og giftur Sigríði Zóphóníasardóttir frá Blönduósi. Aðrir sem þekktu vel til á Héraði þvertaka fyrir að þetta sé Einar. Ef þú veist hið sanna í málinu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram307
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, voru krakkarnir í heimsókn að Brandaskarði. Þar fengu þau að gera ýmislegt skemmtilegt meðal annars að gefa kálfi mjólk úr pela. Á myndinni eru frá vinstri: Anton Einarsson, Eydís Einarsdóttir leiðbeinandi, Pálll Halldórsson, Bergrós Hafsteinsdóttir (með rauða húfu), Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi, Sylvía Hrólfsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Birkir Gunnarsson er að gefa kálfinum, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Anna Dís Ragnarsdóttir.
Skagaströnd - safn041
Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) í vinnu við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Maðurinn bak við Magnús er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 380
Hópreið félagsmanna úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né af hvaða tilefni efnt var til hópreiðarinnar. Fremstur í röðinni er Sigurbjörn Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn198
Ívar Logi Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn233
Haraldur Brynjar Sigurðsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Skagaströnd - safn294
Orkudagar voru haldnir í Fellsborg haustið 2000. Þar voru kynntar ýmsar vörur og lausnir í sambandi við orku og orkunotkun. Eitt af fyrirtækjunum sem sýndi vörur sínar á orkudögum var vefnaðarfyrirtækið Árblik á Skagaströnd, sem var rekið í gamla frystihúsi Hólaness við Einbúastíg frá 1999 - 2007. Þeir sýndu meðal annars værðarvoðir sínar og þar var þessi vísa. Ekki er vitað hver er höfundurinn en gaman væri ef hann gæfi sig fram við Ljósmyndasafnið. <br><br>
Barnaból - safn 111
Þessi mynd var tekin í desember 1990 á leikskólanum Barnaból þegar börnin þar bökuðu piparkökur með aðstoð foreldra sinna. Á myndinni er Rúnar Loftsson að skreyta kökur en stúlkan til vinstri, með flétturnar, er Jóna Gréta Guðmundsdóttir. Hin stúlkan er Anna María Magnúsdóttir sem situr hjá mömmu sinni Ernu Högnadóttur.
Skagaströnd - safn169
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) bæjarverkstjóri, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) kona hans, Anna H. Aspar, María Magnúsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn128
Á myndinni er fermingarárgangurinn 1957 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Fremsta röð frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Ævar Axelsson, séra Pétur og Óskar Axelsson. Stúlkurnar eru frá vinstri: Ragna Bjarnadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Margrét Anna Þórðardóttir, Margrét Haraldsdóttir, Áslaug Jónsdóttir og Helga Jóhannesdóttir.
Skagaströnd - safn079
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd eru þau Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Halldóra Þorláksdóttir til hægri á spjalli við Stefán Reykjalín stjórnarformann Slippstöðvarinnar.
Barnaból - safn007
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni hjálpast þeir að feðgarnir Sigurbjörn Björgvinsson til vinstri og Guðjón Hall Sigurbjörnsson við að fletja út deigið og skera út kökur.
Barnaból - safn065
Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Barnaból - safn147
Þessi mynd var tekin af fyrir hádegisdeild í Lundi í leikskólanum Barnaból í febrúar 1998. Fremsta röð frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Saga Lind Víðisdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Megnús Jens Magnússon, Einar Ari Einarsson og Ólöf Hafþórsdóttir stendur til hliðar. Miðröð frá vinstri: Tinna Ósk Agnarsdóttir, Friðberg Rúnar Jóelsson, Halla Björk Víðisdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Ellen Sigurjónsdóttir og Elías Gunnar Hafþórsson. Aftasta röð frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Helga Bergsdóttir, Kristmar Ingi Ragnarsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir og Árný Sif Gestsdóttir.
Barnaból - safn317
Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Skagaströnd - safn184
Myndin var tekin um borð í frystitogaranum Örvari Hu 21 að kvöldi 5. janúar 1991 af almannavarnanefnd Höfðahrepps á fundi. Skagaströnd var þá vatns- og rafmagnslaus eftir mikið óveður sem reif niður raflínur og braut rafmagnsstaura í Skagastrandarlínu. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri og Þór Gunnlaugsson lögreglumaður. Örvar var notaður sem starfsstöð almannavarnanefndar því þar var rafmagn og annað sem nefndin þurfti við störf sín.
umf Fram296
Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu tekur þátt í Norðurlandagöngu á skíðum. Til að taka þátt þurfti að ganga ákveðna vegalengd og því var merkt göngubraut og fólk hvatt til að taka þátt. Á myndinni er Guðni að ganga í slíkri braut undir Hólabergjunum. Hægt var að fá barmmerki eftir að hafa gengið ákveðnar vegalengdir því þetta var samnorrænt verkefni ætlað til heilsueflingar. Gengnir kílómetrar voru síðan lagðir saman og þannig fundið út hvert Norðurlandanna hafði sigur. Í þeim útreikningum var tekið tillit til höfðatölu þannig að Ísland hafði jafna möguleika og önnur Norðurlönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það 1964.
Guðmundur Guðnason276
Þessi mynd var tekin í Almannaskarði við Höfn í Hornafirði á hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974 , árið sem hringvegurinn opnaði. Nær okkur á myndinni er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) en Ómar Jakobsson nýtur útsýnisins.
Guðmundur Guðnason219
Skeiðað eftir vellinum á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knapinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn293
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Á eftir var kaffiveisla í Fellsborg þar sem meðal annars var boðið upp á risatertu sem sést á myndinni. Guðrún Soffía Pétursdóttir skammtar á disk en Guðrún Guðmundsdóttir og Hafþór Sigmundsson bíða eftir að röðin komi að þeim.
Skagaströnd - safn097
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2004) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir hjónunum Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) og Bernódusi Ólafssyni (d. 18.9.1996) íbúð sína að Mánabraut 5 í febrúar 1983.
Jón Jónsson261
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sínum.
Barnaból - safn077
Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í leikskólanum Barnaból 20. desember 1996. Við borðið nær okkur sitja, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, óþekktur, Arnar Freyr Sigurjónsson (fjær), óþekkt (nær), Brynjar Max Ólafsson. Við borðið fjær okkur eru, frá vinstri: Davíð Víðisson, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Hanna María Gylfadóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn222
Álfheiður Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Jón Jónsson280
Þessi mynd var tekin í hófi í Fellsborg í tilefni af að séra Pétur Þ. Ingjaldsson var að láta af prestskap á Skagaströnd 1981. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) Blálandi, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000) Akurgerði, Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) Fjallsminni og Jónína Valdimarsdóttir Kárastöðum
Leikklúbbur Skagastrandar - safn038
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Einar Helgason, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn Hjartarson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Rúnar Loftsson og Magnús B. Jónsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Þórður Jónsson032
Á árum áður skiptist Skagaströnd í útbæ og innbæ. Svo var að minnsta kosti í hugum barna og unglinga og stundum laust saman fylkingum út- og innbæinga. Í dag eru mörkin milli bæjarhlutana ekki eins klár þannig að slíkir bardagar eiga sér ekki stað lengur. Á þessari mynd, af nokkrum innbæingum, sem var tekin á lóðinni við Grund sennilega upp úr 1960, eru frá vinstri: Kristinn Ágústsson Blálandi, Kristófer Einarsson Dagsbrún, Guðbjörg Viggósdóttir (nær), Gunnlaugur Sigmarsson (fjær), Díana Kristjánsdóttir Grund (næst), Gísli Bergsson Hólanesi (fjær), Fritz Bjarnason Bjargi, Linda Kristjánsdóttir Grund (næst), Hallbjörn Ágústsson Blálandi (í miðið), Hjörtur Guðbjartsson (fjærst), Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) (nær), Bogi Ingvar Traustason, Heiðar Elvan Friðriksson (nær) og Ómar Jakobsson Grund (fjær) með heimilisköttinn Klóa.
Skagaströnd - safn095
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir hjónunum Gunnari Benónýssyni (d. 29.7.2003) og Bergljótu Óskarsdóttur (d. 22.2.2004) íbúð sína að Mánabraut 1 í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn129
Guðmundur Kr. Guðnason fæddist 11. mars 1923 og lést 20. nóvember 1988. Hann var alinn upp í Laxárdal á bæjunum Kárahlíð, Vesturá og Hvammi. Hann átti þrjá eldri bræður, Ingva Svein, Rósberg Snædal og Pálma. Fjölskylda hans flutti svo til Skagastrandar 1948 og settist að í Ægissíðu, sem Pálmi hafði þá nýverið keypt. Fljótlega eftir komuna til Skagastrandar varð Guðmundur bæjarpóstur og var hann kallaður Mundi póstur manna á milli eftir það. Mundi var söngelskur og spilaði á orgel og harmóniku meðal annars á böllum í gamla daga. Þá var hann kirkjurækinn svo af bar. Eitt af áhugamálum hans var ljósmyndum. Tók hann gríðarlegt mang af ljósmyndum á filmuvélar þannig að eftir hann liggja þúsundir mynda og filma. Þetta safn mynda Guðmundar Kr. Guðnasonar er einmitt undirstaðan í Ljósmyndasafni Skagastrandar því erfingjar hans afhentu Höfðahreppi (Sveitarfélaginu Skagaströnd) megin hluta mynda hans til afnota á hvern þann hátt er sveitarfélagið vildi.
Skagaströnd - safn174
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd spjalla þeir saman, frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson hreppsnefndarmaður, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Sveinn Ingólfsson fyrrverandi hreppsnefndarmaður.
Guðmundur Guðnason 2 378
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) og Ingiríður Jónsdóttir (d. ?) frá Ólafsvöllum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hafa þau verið í heyskap og húsið, næst í baksýn, er Lækjarhvammur eða Suðurvegur 1.
Guðmundur Guðnason 2 223
Réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og óvíst hvort tekist hefur að bera kennsl á fólk á myndinni. Maðurinn lengst til hægri inni í fjáhópnum er sennilega Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) frá Blálandi og maðurinn sem hallar sér yfir réttarvegginn gæti verið Þorkell Magnússon (d.30.8.1868) frá Goðhól. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn251
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og á þessari mynd er Hávarður Sigurjónsson frá Blönduósi að hjálpa til við að reisa stærra tjaldið.
Barnaból - safn 124
<p>Grillveisla í leikskólanum Barnaból 8. júlí 1991. Á myndinni eru að borða grillaðar pylsur frá vinstri : Sonja Berndsen, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir og Ragnar Stefán Rögnvaldsson.</p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn149
Mæðginin Guðrún Pétursdóttir (d. 24.7.1951) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Á myndinni er Pétur ungur maður en hann fæddist 1911 þannig að myndin gæti hafa verið tekin í kringum 1940.
Þórður Jónsson041
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) organista og skólastjóra. Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir. Aftari röð frá vinstri: Stefán H. Ingólfsson (d. 21.10. 2004), Ómar Þorbjörnsson, Páll, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020).
Jón Jónsson237
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Jóhannes William Grétarsson, Linda Hafdal Gunnarsdóttir og Sigurður Berndsen?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Skagaströnd - safn166
Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) flytur tölu í tilefni af því að kvenfélagið Eining var að gefa lækningatæki á Heilsugæsluna á Skagaströnd einhverntíma á árunum 1974 - 1978.
Barnaból - safn217
Friðrik Arnbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1990.
Skagaströnd - safn138
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á myndinni eru á spjalli þau Helga Jóhannesdóttir og Gylfi Sigurðsson. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Barnaból - safn018
Hér er stóruppvask í gangi á leikskólanum Barnabóli í júlí 1986. Uppvaskararnir eru Andri Þór Ómarsson og Elva Dröfn Árnadóttir.
Skagaströnd - safn161
Þessi mynd var tekin á fundi hreppsnefndar 1984. Tilefni fundarins var meðal annars sveitarstjóraskipti á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson var að hætta, eftir að hafa verið sveitarstjóri frá árinu 1972, og Sigfús Jónsson að taka við. Á myndinni eru hreppsnefndarmenn og sveitarstjórarnir báðir. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Adolf J. Berndsen oddviti, Lárus Ægir Guðmundsson fráfarandi sveitarstjóri, Magnús B. Jónsson, Gylfi Sigurðsson og Sigfús Jónsson nýr sveitarstjóri á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn064
Þekja steypt á Ásgarð 1981. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Hallur Pétursson, Víðir Ólafsson, Bjarni Ottósson og Hafsteinn Pálsson verkamenn hjá Guðmundi Lárussyni sem hafði yfirumsjón með verkinu.
Barnaból - safn004
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd er Vignir Hafþórsson lengst til vinstri og Hermann Freyr Guðjónsson situr við hlið hans. Á móti þeim við borðið sitja Leó Kristberg Einarsson í bláum bol og Björgvin Ragnarsson sem bítur í pylsuna sína. Drengurinn aftan við Leo er óþekktur.
Barnaból - safn166
Sonja Hjördís Berndsen á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd - safn277
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Yfirsmiður hússins var Kristján Helgi Gunnarsson húsasmíðameistari og á myndinni er hann í ræðustóla að lýsa byggingu þess.
Barnaból - safn 121
<p>Krakkarnir í leikskólanum Barnaból voru að líta á hesta í haganum 27. júní 1991 þegar þessi mynd var tekin. Á myndinni eru frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, tvö óþekkt börn, Sigurgeir Árnason, óþekkt barn í fanginu á Sveinbjörgu Dóru Sveinbjörnsdóttur (d. 25.9.2006), Sonja Berndsen, Sindri Hafþórsson (fjærst), tvö óþekkt (nær), Bára þorvaldsdóttir með óþekkt barn í fanginu og síðan er Arnór Gíslason lengst til hægri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn138
Fermingarbörn 1980 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Sitjandi frá vinstri: Þórhildur Björg Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Pétur, Sigurbjörg Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Drengirnir eru frá vinstri: Jóhannes Kristján Sveinsson, Orri Blöndal, Ari Jón Þórsson, Einar Þór Ásgeirsson, Guðjón Árnason (nær), Þröstur Sigurðsson (fjær), Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson (fjær), Kristján Karlsson (nær) og Fritz Hendrik Berndsen.
Skagaströnd - safn210
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni og Ingibergur Guðmundsson, sem var í ritnefnd bókarinnar. Bókin kom út 1989 þannig að sennilega hefur myndin verið tekin á því ári.
Séra Pétur og Dómhildur - safn164
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Næst okkur á myndinni sér aftan á hjónin Theódóru Berndsen (d. 25.1.2007) og Knút Berndsen (d. 31.8.2013) en á móti þeim við borðið sitja Sigurlaug Valdimarsdóttir til vinstri og Guðrún Þorbjarnardóttir (d.30.8.2002) frá Eiríksstöðum til hægri. Aftan við þær eru hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Yfir höfuð Knúts sjást Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004) í bláum jakka og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Við borðið aftan við Hauk og Kristján sitja Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Björgvin Jörgensson (d. 26.2.1999) með bakið að okkur en hinum megin við borðið eru Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) vinstra megin og Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012) til hægri.
Skagaströnd - safn279
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Hér takast í hendur feðgarnir Adolf H. Berndsen, til vinstri, oddviti Höfðahrepps og Adolf J. Berndsen, til hægri, fyrrverandi oddviti og þáverandi umboðsmaður Olís á Skagaströnd. Olís styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Barnaból - safn 104
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er Dagný Sigmasrdóttir að skreyta kökur ásamt börnum sínum þeim Sverri Berndsen til vinstri og Sonju Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason245
Hér sitja að tafli, sposkir á svip með pípurnar sínar, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) og séra Birgir Snæbjörnsson (d. 17.7.2008)
Skagaströnd - safn297
Þessi mynd var tekin 16. nóvember 1998 í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá fólkinu. Vinstra megin við borðið sitja frá vinstri: María Magnúsdóttir, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011)og óþekkt. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011) og Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) .
1
…
77
78
79
…
167
Leita í myndasafninu
Leita