Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason309
Hvílir lúinn fót við réttarvegg.
Ólafur Bernódusson567
<p>Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Gist var á tjaldstæði í nokkrum litlum húsum eins og sést í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ásdís Lýðsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Adolf Lúðvíksson og Sveinn Jóelsson. </p>
Barnaból - safn190
Karen Peta Karlsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988
Skagaströnd - safn207
Sigrún Guðmundsdóttir Litla-Felli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 438
Hilmir ST 1 fer ný málaður úr slippnum
Jón Jónsson322
Þessi mynd var tekin í Skátaskálanum - sennilega á sjómannadaginn 1988. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður frá Ytri- Löngumýri.
Skagaströnd - safn127
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) flytur ræðu í hófi í Fellsborg í febrúar 1983 í tilefni af tilkomu nýrra íbúða verkamannabústaða við Mánabraut en Bernódus var einn þeirra sem keypti sér þar íbúð. Konan í brúna kjólnum er Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) kona hans. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason236
Það var greinilega húsfyllir í gömlu Tunnunni á skemmtun 1. maí 1957. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn023
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru Árni Björn Ingvarsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
16
Hörður Aðils Vilhelmsson með föður sínum Vilhelm Birni Harðarsyni á nýjum sorphreinsunarbíl. Myndin var tekin 1994 þegar þeir feðgar voru nýkomnir til Skagastrandar á þessum nýja bíl.
Skagaströnd - safn128
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d. 26.8.2008) var almennt kölluð Bibba meðal fólks á Skagaströnd og kennd við heimili sitt Reykholt. Hér er Bibba í uppvaski í Fellsborg í febrúar 1983.
Barnaból - safn 130
Fjórar litlar stúlkur í dúkkuleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir,Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sonja Hjördís Berndsen.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn009
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Hjartarson og Guðmundur Haukur Sigurðsson
Guðmundur Guðnason2 344
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: "Bifreiðar á Hólahátíð". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en bílaáhugamenn hafa kannski gaman af að finna út hvaða bílategundir eru á myndinni og út frá því að giska á á hvaða árabili myndin var tekin.
Jón Jónsson240
Þessar stúlkur eru sælar með sælgætisafla dagsins á öskudegi 1985. Af augljósum ástæðum eru nöfn stúlknanna byggð að nokkru á ágiskunum en þær eru taldar vera, frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og óþekkt stúlka.
Guðmundur Guðnason259
Skíðamót var haldið við dráttarvélknúna togbraut í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Þessir kappar mættu til að fylgjast með mótinu. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Jón Ingi Ingvarsson, óþekktur og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn162
Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd 1959 a
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Ef grannt er skoðað má sjá eitt kar í geymslu við Miðgarð í baksýn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn283
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Dagný Sigmarsdóttir umboðsmaður Sjóvá- almennar í ræðustól en félagið styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn135
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Eftir skrúðgöngu og húllumhæ sungu þessi ungu börn á sviði á Hnappstaðatúninu undir stjórn og undirleik Fannars Viggóssonar og Díönu Kristjánsdóttur. Börnin eru frá vinstri: Rakel Petrea Finnsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, María Markovic, óþekkt, óþekkt, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, sex óþekktir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Gunnar Helgason (fjær), óþekkt (nær) og Skúli Jóhannesson. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu börnunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn133
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Félagar í hestamannafélaginu Snarfara tóku þátt í göngunni á fákum sínum.
Guðmundur Guðnason269
Jón Hilmar Indriðason á fermingardaginn sinn vorið 1982 í Hólaneskirkju (eldri) ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni.
Skagaströnd - safn136
Á myndinni er verið að leggja út kjarnann í nýjum viðlegukanti í Skagastrandarhöfn 30. júlí 1991. Stálþil var síðan rekið niður að norðanverðu við kjarnann, fyrir enda hans og ca 20 metra upp með honum að sunnanverðu.
Barnaból - safn297
Íris Ósk Jóhannesdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson252
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Steindór Haraldsson. </p>
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Skagaströnd - safn173
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru þau Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) fyrrverandi oddviti og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í horninu til hægri glittir í Guðmund Jóhannesson.
Jón Jónsson279
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) hélt upp á 50 ára afmæli sitt í Skátaskálanum 1973. Húsfyllir var í afmælinu en á myndinni er afmælisbarnið með hluta gesta sinna. Frá vinstri: Elsa ? frá Efri-Lækjardal, Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Erla Jakobsdóttir Síðu, Ingibjörg Sigurðardóttir Skeggjastöðum, María Hjaltadóttir frá Neðri Harrastöðum, Sigurður Sigurðsson frá Blöndubakka, Guðmundur, Sigurður Pálsson frá Króksseli, Alda Friðgeirsdóttir frá Sviðningi, Kristján Sigurðsson frá Höskuldsstöðum og Elsa Ingvarsdóttir( d. 11.12.2007) frá Balaskarði.
Barnaból - safn059
Guðjón Örn Arason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn049
Myndin er af börnum úr leikskólanum á Blönduósi þegar þau komu í heimsókn í leikskólann Barnaból árið 1980.
Barnaból - safn164
Ragnar Ásmundur Einarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn067
Hafrún Eva Kristjánsdóttir.Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Séra Pétur og Dómhildur - safn146
Fermingarbörn ársins 1971 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Sitjandi frá vinstri: Anna Haukdal Jónsdóttir, Þórfríður Kristín Grímsdóttir, séra Pétur og Guðrún Einarsdóttir. Miðröð frá vinstri : Guðjón Guðjónsson, Axel Jóhann Hallgrímsson, Unnur Gunnarsdóttir, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðrún Björg Friðriksdóttir (d. ?)og Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987). Aftasta röð frá vinstri: Marías Bjarni Viggósson, Vilhelm Þór Þórarinsson, Málfríður Jóhannsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir og Sesselja Guðmundsdóttir.
Barnaból - safn083
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fengu heimsókn leikhóps sem sýndi þeim einhvern leikþátt 17. apríl 1997. Á myndinni fylgjast börnin agndofa með tilburðum leikaranna sem ekki sjást á myndinni.
Barnaból - safn 136
Myndin var tekin á litlu jólum i leikskólanum Barnaból í desember 1991. Krakkarnir ganga syngjandi kringum jólatréð. Stúlkan í hvíta kjónum til vinstri er Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og hún leiðir Önnu Maríu Magnúsdóttur. Stúlkan í bláa kjólnum með blómamynstrinu er Eydís Inga Sigurjónsdóttir en aftan við hana eru, talið frá vinstri; Ragnar Einarsson, Albert Ingi Haraldsson og óþekkt stúlka. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn024
Útgerðarfyritækið Skagstrendingur hf var stofnað 8. desember 1968 af Höfðahreppi og fólkinu í þorpinu. Þar af leiðandi hélt félagið upp á 30 ára afmæli sitt 1998. Þessi mynd af Bjarna Ottóssyni, sem þá var starfsmaður hjá félaginu, að skera sér sneið af afmælistertu, var líklega tekin um borð í Örvari HU 2 sem þá var nýkominn í eigu Skagstrendings hf. Hinn 1. janúar 2005 var félagið síðan sameinað Fiskiðjunni Skagfirðingi hf og nafni hins sameiginlega félags breytt í FISK Seafood hf og megin hluti starfseminnar flutti á Sauðárkrók.
Árni Geir Ingvarsson - safn 443
Á þessari mynd er verið að hífa stýrishúsið af Arnarborginni HU 11 í slippnum 1993 þegar báturinn var rifinn.
Skagaströnd - safn032
Árið 1977 var haldin ráðstefna um félagsheimili á Norðurlandi. Ráðstefnan var haldin í Fellsborg og á hana mættu sveitastjórnarmenn af Norðurlandi ásamt fleirum. Á myndinni spjalla saman, í fundarhléi, hreppsnefndarmenn frá Höfðahreppi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og Adolf J. Berndsen.
Jón Jónsson286
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson558
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Skagaströnd - safn108
Skagaströnd kringum 1950. Í portinu næst okkur, á milli kaupfélagshússins og skemmunnar, er kolabingurinn en kaupfélagið seldi kol eftir vigt. Yfir horn mjölskemmunnar, vinstra megin, sést hið merka hús Viðvík þar sem á árum áður var rekið gisti- og veitingahús. Til vinstri við Viðvík er svo Karlsminni en þar var eitt sinn rekin verslun um tíma. Myndina tók Björn Bergmann.
Barnaból - safn 131
Þrír ungir drengir í bílaleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sigurgeir Snævar Árnason og Leifur Ingi Vilhelmsson.
Skagaströnd - safn113
Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007) heilsugæsluhjúkrunarkona og Sigursteinn Guðmundsson læknir skoða tæki sem heilsugæslunni bárust að gjöf - líklega frá kvenfélaginu Eining. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Skagaströnd - safn142
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd er hjólbörukapphlaup í gangi. Lengst til vinstri ekur einhver óþekktur Ólafi Ingibjörnssyni, Jón Jónsson er í næstu hjólbörum en ökumaður er óþekktur. Þriðju börurnar eru undir stjórn Bóelar Hallgrímsdóttur en farþeginn er óþekktur. Lengst til hægri ekur Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) manni sínum Jóni Inga Ingvarssyni. Ekki fer sögum af hver sigraði í þessum leik.
Skagaströnd - safn308
Íþróttahúsið var vígt 15.3.1998. Þessi mynd var tekin 27. desember 2000.
Jón Jónsson246
1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru krakkarnir í eldhúsinu að baka fyrir hófið sem haldið var í vikulokin. Frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, Baldur Eðvarðsson og Helga Kristmundsdóttir.
Skagaströnd - safn171
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður, Guðbjörg Viggósdóttir kona hans, Guðrún Pálsdóttir starfsstúlka á skrifstofu sveitarfélagsins og Sigfús Jónsson sem tók við sveitarstjórastarfinu af Lárusi.
Barnaból - safn247
Birna Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Séra Pétur og Dómhildur - safn159
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu.. Til vinstri er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) en hjá henni situr Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012).
Barnaból - safn322
Katrín Björk Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Skagaströnd - safn226
Anna Eygló Skaftadóttir
Barnaból - safn274
Halla Kristín Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn311
Arnrún Bára Finnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Barnaból - safn231
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Skagaströnd - safn033
Konurnar í kvenfélaginu Eining sáu um kaffiveitingar á ráðstefnu um félagsheimili á Norðurlandi í Fellsborg 1977. Á myndinni eru þær Hjördís Sigurðardóttir til vinstri og Birna Blöndal til hægri komnar á kaf í að vaska upp.
Barnaból - safn 118
<p>Myndin var tekin 19. apríl 1991 á fimm ára afmæli Harðar Aðils Vilhelmssonar sem á myndinni gengur um með nammipoka og býður skólasystkinum sínum á leikskólanum Barnaból að fá sér mola. Elva Ösp Gunnarsdóttir er að fá sér en Jenný Lind Sigurjónsdóttir, í bláum smekkbuxum og Eydís Inga Sigurjónsdóttir bíða eftir að röðin komi að þeim.</p>
Guðmundur Guðnason 2 395
Sigríður Sveinsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn152
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og vinur hans séra Friðrik Friðriksson ( d. 9.3. 1961).
Barnaból - safn243
Hákon Unnar Þórarinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987.
umf Fram298
Þessi mynd var tekin á fundi hjá umf Fram í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær en líklega hefur það verið kringum 1990. Í ræðustól er Halldór Hermannsson, sem var formaður Fram um tíma. Konurnar, sem sitja við borðið, eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Steinunn Steinþórsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Þær voru allar í stjórn Fram á þessum tíma.
1
…
78
79
80
…
167
Leita í myndasafninu
Leita