Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón008
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Jón048
Á fyrstu Kánatrýhátíðinni 1985. Anna Sjöfn Jónasdóttir hefur samskipti við grímubúinn riddara. Lengst til hægri er Árni Guðbjartsson.
Jón005
Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) ganga frá borði á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1985
fram049
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Fannar Viggósson svífur yfir rána í hástökki.
Óþekkt034
Útimarkaður við Kántrýbæ - eldri.
guðmundur190
Þetta prúðbúna fólk er að mestu óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er fremst á myndinni, hægra megin við miðju, með hvítan vasaklút í jakkavasanum og svarta þverslaufu. Séra Þorsteinn B. Gíslason (d. 8.6.1980) prófastur í Steinnesi er fremst á myndinni, vinstra megin við miðju, með gleraugu og slaufu og hattinn sinn í hendinni. Frakkaklæddi maðurinn lengst til hægri gæti verið Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Skagaströnd. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir tilefni myndatökunnar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekkt032
Á myndinni má þekkja Sigrúnu Lárusdóttur í rauðum kuldagalla lengst til vinstri. Guðrún Pálsdóttir er í grænum anorak með svartan trefil um hálsinn. Sólveig Eiðsdóttir er svo konan í kuldúlpunni með derhúfu á höfðinu
Óþekkt074
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn.
fram029
Helgi Þór Helgason kúluvarpari með verðlaunbikar árið 1990.
guðmundur167

Þessi mynd, þar sem allir eru í sparifötunum sínum, var tekin í 10 ára afmæli Fjólu Jónsdóttur í Asparlundi 10. nóvember árið 1957. í Aftari röð eru frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Ingibjörg Kristinsdóttir úr Héðinshöfða og Helga Guðmundsdóttir Hólabraut 25. Í fremri röð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson úr Asparlundi, bróðir Fjólu, afmælisbarnið sjálft, Fjóla Jónsdóttir, sem situr með bróður þeirra, Gunnar Jónsson. Þá kemur Guðbjörg Þorbjörnsdóttir í Akurgerði og lengst til hægri er Sóley Benjamínsdóttir systir Pálfríðar í efri röðinni.
hem032
Gamla búðin, eða Höphnersverslun er ljósleit á myndinni. Áfast við verslunina er pakkhúsið og aftast til vinstri er Assistentastofan. Í Assistentastofu bjó verslunarþjónn Höphnersverslunar sem aðstoðaði verslunarstjórann. Þessi hús stóðu á svipuðum slóðum og Skátaskálinn er í dag, ekki langt austur af Einbúanum.
guðmundur175
Ole Aamundsen (Óli norski) og Margrét Jóhannesdóttir kona hans sem lengi bjuggu í Lundi.
fram002
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Stúlkan í bláa jakkanum er Soffía Lárusdóttir en fyrir aftan hana sér í Guðný Finnsdóttur. Stúlkan í forgrunninum er Erla María Lárusdóttir, maðurinn í bleiku skyrtunni er Vilhelm Jónsson og á móti honum situr Karl Lúðvíksson. Maðurinn í dökka jakkanum lengst til hægri er Halldór Hermannsson. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt068

Þessi kranabíll, í eigu steypustöðvarinnar á Blönduósi, var að sjósetja plastbát frá Mark h/f, sem sést hér fremst við skúffugarðinn. Þá gaf sig undirstaða á fæti kranans og valt bíllin fram af garðinum ofan á bátinn Skarf HU í eigu Þorvaldar Skaftasonar og sökkti honum. Í kranabílnum voru farþegar, kona ökumans og barn, sem fóru niður með bílnum en björguðust fljótt og vel. Þarna varð mikið tjón á tækjum, bíllinn ónýtur. Markbáturinn skemmdur og Skarfur stórskemmdur.

fram020
Víðavangshlaup Landsbankans haldið á Skagaströnd. Krakkarnir tilbúnir að þjóta af stað. Frá vinstri: Óþekkt, Jónas Þorvaldsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Dia Anna). Aðrir eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
Óþekkt069
Þessi kranabíll fór í sjóinn þegar verið var að hífa upp trillu sem hafði sokkið við Skúffugarðinn. Undirstaða undir kranann gaf sig þegar á reyndi og því fór bílinn í sjóinn. Hér er verið að ná bílnum upp með öflugum krana. Maðurinn með rauðu húfuna er Sigurjón Ástmarsson.
guðmundur204
Hrossarétt í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt.
fram009
Magnús Ólafsson formaður USAH tekur í höndina á Ingibergi Guðmundssyni (til hægri). Þingfulltrúinn Ingibjörg Kristinsdóttir situr til hægri.
hem039

Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Mennirnir í bátnum, sem eru að vinna að hvaladrápinu eru feðgarnir Carl Berndsen og Ernst Berndsen frá Karlsskála, Gisli Einarsson frá Viðvík, Hjörtur Klemensson frá Vík og Steindór Árnason frá Höfðahólum.

Jón021
Fuglager
fram081

Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Garðar Geirfinnsson, Ingvar Björnsson og óþekktur.

guðmundur197
Húni Hu 1, skreyttur af einhverju tilefni, við hafnargarðinn (Útgarð).
fram095

Þátttakendur í einum flokki í víðavangshlaupi umf. Fram. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, óþekktur, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, Steinþór Karlsson og Jónas Þorvaldsson. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum

Jón070
Páll Pétursson (d.23.11.2020) alþingismaður flytur ræðu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Jón083
Hér er Hallgrímur Oddsson kynnir á litlu jólum í Höfðaskóla 1984. Hann er í fínu peysunni sem hann sjálfur saumaði í handavinnu. Þór Arason og Karl Lúðvíksson kennarar sjást til vinstri.
fram018
Lárus Ægir Guðmundsson með verðlaunabikar
Jón024
Mynd frá höfninni. Karlarnir eru um borð í Rósu Hu 294 sem gerð var út á rækjuveiðar frá Hvammstanga
Jón104
Jólapósturinn borinn út 1989. Félagar í Skíðadeild Fram báru út jólapóst fyrir jólasveinana í mörg ár. Síðan tók skólafélagið Rán við keflinu. Ávallt fengu jólasveinarnir mikla hjálp frá yngri kynslóðinni við útburðinn.
Jón007
Myndin sýnir nýbyggð raðhúsin að Ránarbraut 17 - 23. Ekki er búið að byggja raðhúsin við Ránarbraut 18 - 22. Húsið lengst til hægri er Bogabraut 27.
Óþekkt093
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
guðmundur195
Blesóttur hestur á túninu við Ægissíðu.
fram134
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Lára Guðmundsdóttir kastar kringlu eða kúlu.
Óþekkt094
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
hem037
Skip og bátar á legunni fyrir utan Kálfshamarvík. Sennilega eru þetta síldarbátar að bíða af sér brælu.
Guðmundur118
Veisluhöld í Fellsborg. Þekkja má Hörð Ragnarsson á myndinni en aðrir eru óþekktir.
fram082

Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir Fram, Sigríður Gestsdóttir Fram og Jónína Guðbjartsdóttir Hvöt.

hem042
Æðarvarpi sinnt í Spákonufellsey. Í landi sést Einbúinn og verslunarhúsin. Þar á bakvið er Spákonufellshöfði. Á myndin eru Carl Berndsen og Gísli Einarsson á bakvið hann sést í Ernst Berndsen og lengst til hægri er Jóhann Jósepssson.Líklega er myndin tekin 1908-1910. Fremst á myndinni sést í hluta af búnaði ljósmyndarans
Guðmundur128
Fremsta húsið er Ægisíða,heimili ljósmyndarans, til vinstri er Réttarholt, til hægri er Ásholt og við sjóinn er Sólvangur.
Jón014
Tjaldsvæðið á Kántrýhátíð
guðmundur212
Flutningabíll í eigu Valdimars Núma Guðmundssonar en hann stundaði fólks- og vöruflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar um árabil. Myndin er tekin af hlaðinu á Ægissíðu en húsið í baksýn er Melstaður.
fram005
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Ingibergur Guðmundsson heldur ræðu. Systurnar Soffía (í bláum jakka) og Erla María Lárusdætur sitja við borðið framan við Ingiberg. Í baksýn eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Særún Jónsdóttir snýr baki í ljósmyndarann.
Jón026
Á myndinni er verið að hengja upp - eða taka niður - seilaða þorskhausa. Drengirnir á myndinni eru Hendrik Berndsen og Pétur Ingjaldur Pétursson. Ljóshærði maðurinn er Sigurður Björnsson.
Jón022
Sigurjón Ástmarsson staddur niður við verksmiðju. Beinabræðsla í gangi.
guðmundur215
Barnið í kerrunni er óþekkt. Myndin var tekin utan við Tunnuna fyrir eða eftir einhverja samkomu. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Jón062
Ræðuhöld við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Guðmundur122
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, María Magnúsdóttir, óþekkt kona, Helga Guðmundsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson, Jóna Vilhjálmsdóttir og óþekkt kona
fram118
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 800m hlaup stelpna. Birna Sveinsdóttir umf. Fram til vinstri.
Mundi239
Frá vinstri: Þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Andrés Árni Baldursson, Sigurður Bjarnason í hvítri skyrtu með slaufu, Gylfi Jóhannsson, Fritz Bjarnason og Búi Birgisson (d.18.9.2009). Aftast grillir í tvo jólasveina. Aðrir eru óþekktir.
Jón035
Sjómannadagur 1983. Einhver skemmtiatriði í gangi. Fremstur á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr breska fánanum.
Jón033
Hér grillir í Stefán Jósefsson skipstjóra og útgerðarmann í stýrishúsinu á bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54. Drengurinn sem horfir í átt að myndavélinni er Ársæll Ottósson frá Réttarholti. Maðurinn í lopapeysunni er Sigurbjörn Björgvinsson og til hægri við hann er Þórarinn B. Ingvarsson.
Jón046
Kappróður á sjómannadegi 1985
fram053
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Baksund kvenna. Guðrún Pálsdóttir er nær okkur á myndinni.
fram117
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 100m hlaup stelpna. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram í miðjunni.
guðmundur224
Á myndinni eru systurnar Pálfríður Björg Bjarnadóttir til vinstri og Ólína Jóna Bjarnadóttir til hægri. Þær áttu heima í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) á Skagaströnd.
guðmundur198

Núpur í Laxárdal Frá vinstri til hægri: Elísabet Hafliðadóttir, Þorvaldur Jónsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Jón Guðmundsson bóndi á Núpi og Jökull Sigtryggsson. Myndin var tekin sumarið 1940.

fram064
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Hvöt vann mótið og hér tekur Þórður Daði Njálsson við bikarnum úr höndum Ingibergs Guðmundssonar, að auk var hann stigahæstur karla á mótinu.
Jón078
Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) er fremstur á myndinni sem var tekin við vígslu dráttarbrautarinnar 1985.
img015
Guðmundur Þór Hu 17. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Báturinn hét seinna Dagrún ST 12 en er Dagrún Hu 121 í dag.
Jón047
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Eitt af skemmtiatriðunum var að snara kálfa. Hér er Vilhjálmur Skaftason að undirbúa atriðið með því að teyma kálf út úr gerðinu sem þeir voru geymdir í.
Jón080
Grímuball í Höfðaskóla 1984. Barnið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

7
8
9

167
Leita í myndasafninu
Leita