Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn059
Guðjón Örn Arason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Skagaströnd - safn213
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Þessi mynd sýnir eitt af skemmtiatriðunum þar sem "síldarstúlkur" syngja með Hallbirni Hjartarsyni. Á myndinni eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Hallbjörn Hjartarson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Vigdís Viggósdóttir og óþekkt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn154
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, tveir óþekktir, Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir. Aðalbjörg styður hönd á öxl Friðvins Inga Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir027
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Barnaból - safn141
Þessir krakkar voru í Sæbóli, sem er deild á leikskólanum Barnaból, sennilega 2001 eða 2002. Frá vinstri: Sigríður Sól Indriðadóttir, Páll Halldórsson, Þórunn Bernódusdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Huginn Frár Guðlaugsson (nær), Ægir Jónas Jensson (fjær), Sigurbjörg Birta Berndsen, Saga Lind Víðisdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Úlfur Snær Guðmundsson, Egill Örn Ingibergsson, Valgerður Sif Indriðadóttir (fjær), Indriði Theódór Hjaltason (nær), Aldís Embla Björnsdóttir (fjær), Knútur Jensson (nær), Fjóla Ævarsdóttir, Ásdís Rán kristjánsdóttir og Ívan Árni Róbertsson. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
Barnaból - safn010
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Til vinstri er Eygló Gunnarsdóttir að hjálpa syni sínum Ólafi Guðmundssyni en fjær er Signý Magnúsdóttir að hjálpa sínum syni, Árna Halldóri Eðvarðssyni.
Jón Jónsson349
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir skíðakennari.
Séra Pétur og Dómhildur - safn180
Myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri á sunnudegi í kirkjuskólanum. Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) les fyrir börnin. Til vinstri horfir Víkingur Viggósson á ljósmyndarann en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn277
Sigríður Ragna Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1980
Guðmundur Guðnason274
Þessi mynd var tekin í hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974. Á henni er fólk að undirbúa sig undir að tjalda á náttstað við Dynjanda í Hornafirði. Í baksýn sjást Vesturhorn og Stokknes. Næst okkur á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) en aftan við hana sést Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) en aftan við Sigmar sér í Eðvarð Jóhannesson. Næst rútunni og snúa baki í ljósmyndarann eru sennilega Guðmunda Sigurbrandsdóttir og Ólafur Guðmundsson. Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) heldur á rauðri fötu og grænum poka en lengst til hægri, með grænan poka, er Kristinn Guðmundsson.
Barnaból - safn243
Hákon Unnar Þórarinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987.
umf Fram298
Þessi mynd var tekin á fundi hjá umf Fram í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær en líklega hefur það verið kringum 1990. Í ræðustól er Halldór Hermannsson, sem var formaður Fram um tíma. Konurnar, sem sitja við borðið, eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Steinunn Steinþórsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Þær voru allar í stjórn Fram á þessum tíma.
Þórður Jónsson035
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið upp úr 1960. Á myndinni eru félagar í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd í skátaútilegu. Ingólfur Ármannsson félagsforingi stendur teinréttur og stjórnar einhverri uppstillingu. Skátarnir eru óþekktir nema lengst til vinstri, í dökkum jakka, er Árni Björn Birgisson og fremstur í næstu röð við hann til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson. Steinunn Ellertsdóttir er svo í stúlknahópnum hægra megin (dökk yfirlitum) og ber yfir veifuna. Framan við hana er svo Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Jón Jónsson238
<p>Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli með aðstoð bróður síns Ingibergs Guðmundssonar, sem snýr baki í ljósmyndarann. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Árni Max Haraldsson, og María Jóna Gunnarsdóttir. Barnið sem sér í á bak við Ingiberg er Karen Peta Karlsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990. </p>
Ólafur Bernódusson559
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér jakka og húfu/hatt sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Barnaból - safn215
Hildur Inga Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn244
Jón Ingi Ragnarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987
Guðmundur Guðnason 2 366
Þessi mynd er af tveimur leikurum í óþekktu leikverki. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er líklega Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti í hlutverki þínu.
Skagaströnd - safn236
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 eru þær niðursokknar í að mála, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, María Magnúsdóttir og Guðrún Ágústsdóttir.
Skagaströnd - safn304
Skagavegur 14 eða Bjarmaland. Myndin var tekin 27. desember 2000.
Séra Pétur og Dómhildur - safn171
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Fremst á myndinni eru Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999) og Elínborg Guðmundsdóttir (d. 8.4.2005). Aftan við þær heilsar Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) Knúti Berndsen (d. 31.8.2013) með handabandi.
Barnaból - safn246
Jón Haukdal Þorgeirsson á leikskólaárums sínum á Skagaströnd kringum 1985
Guðmundur Guðnason335
Myndin var tekin frá Hótel Blönduós
Barnaból - safn163
Sóley Elsa Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd - safn056
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Á þessari mynd skiptast þeir á keflinu, Jón Pálsson til vinstri og Sigurður Guðmundsson til hægri. Báðir í umf. Fram á Skagaströnd.
104-0436_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að horfa á uppákomu sem leikskólabörnin fluttu fyrir gesti sína.
Jón Jónsson323
Á þessari mynd verslar Ingibjörg Kristinsdóttir, lengst til vinstri, sér grænmeti á grænmetismarkaði utan við Bogabraut 3 - líklega sumarið 1988. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir.
Barnaból - safn155
Hörður Aðils Vilhelmsson á leikskólaárum sínum kringum 1991.
umf Fram 327
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd, frá námskeiðinu á Blönduósi, eru frá vinstri: Magnús Ólafsson, Valgarður Hilmarsson, Jón Jóhannsson og Valdimar Guðmannsson.
Skagaströnd 1966 b
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er verið að gera klárt fyrir að láta karið renna í sjóinn. Bátarnir á myndinni sáu um að koma taug úr karinu yfir í stærri bát sem dró það síðan yfir að hafnargarðinum þar sem karið var gert klárt fyrir ferðalag á endanlegan áfangastað. Stærri báturinn er líklega Ægir Hu 30.
Ólafur Bernódusson562
<p>Þessi mynd var tekin á götu í London í september 2002. Þá tóku sig til 11 Skagstrendingar og fóru á tónleika með Rolling Stones í borginni. Á myndinni eru hjónin Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir.</p><p><br></p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn152
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og vinur hans séra Friðrik Friðriksson ( d. 9.3. 1961).
Barnaból - safn049
Myndin er af börnum úr leikskólanum á Blönduósi þegar þau komu í heimsókn í leikskólann Barnaból árið 1980.
Barnaból - safn203
Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Skagaströnd - safn091
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á þessari mynd slaka þeir á augnablik, frá vinstri: Kristján Karlsson, Sigurður Jónsson og Einar Karlsson þar sem þeir eru við vinnu á Skagavegi.
Séra Pétur og Dómhildur - safn174
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Maðurinn á myndinni er Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum.
Skagaströnd - safn087
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Höfðatúni vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti.
Jón Jónsson305
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni spjallar Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður við Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Í forgrunni myndarinnar er Þóra Ásgeirsdóttir.
Skagaströnd - safn265
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Hákon Þórarinsson rekur út úr sér tunguna framan í ljósmyndarann.
Dagný Sigmarsdóttir028
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir. Maðurinn sem situr við hlið Kristínar er Kári Lárusson.
Barnaból - safn164
Ragnar Ásmundur Einarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Guðmundur Guðnason331
Lúðvík Kemp (d. 30. 7.1971).
Barnaból - safn182
Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Skagaströnd - safn183
Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þessi mynd var tekin 28. júlí 1989. Þá var Jón í forsvari fyrir Skógræktarfélag Skagastrandar og þarna tók hann þátt í að gróðursetja 50 trjáplöntur á Hnappstaðatúninu sunnanverðu í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps.
Þórður Jónsson042
Öflugt skátastarf var á Skagaströnd á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Meirihluti unglinga á Skagaströnd, á þessum árum, tók þátt í skátastarfinu sér til uppbyggingar og ánægju. Þessi mynd var tekinn af hópi skáta úr Sigurfara, sem var nafn skátafélagsins á Skagaströnd, að leggja af stað í gönguferð á Spákonufellsborg í vetrarfærð. Frá vinstri: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) Steinholti, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Jóhann Björn Þórarinsson Höfðaborg, Hrafnhildur Jóhannsdóttir Blálandi og Hallbjörn Björnsson Jaðri. Í baksýn er hluti af útbænum með mörgum húsum sem eru horfin í dag. Myndina, sem sennilega var tekin 1964, tók Þórður Jónsson (d.25.12.2009)sem lengi var félagsforingi Sigurfara.
Dagný Sigmarsdóttir015
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið, frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Dagný Hannesdóttir.
Skagaströnd - safn107
Útbærinn á sjötta áratugnum. Næst Höfðanum eru frá vinstri: fjárhús og hlaða tilheyrandi Flankastöðum, Höfðabrekka, litla húsið aftan við Höfðabrekku var fjós sem tilheyrði Kárastöðum, Bjarnarhöfn, Höfðakot með sambyggðri hlöðu og fjárhúsum en svarta húsið, sem ber yfir hlöðuna við Höfðakot, er Höfðaberg. Hægra megin við Bankastrætið eru frá vinstri: Höfðaborg, Flankastaðir, Kárastaðir og Stórholt. Síðan eru húsin við Skagaveg frá hægri: lengst til hægri sér í hornið á útihúsum sem tilheyrðu Garði, Héðinshöfði, Þórsmörk (nær), Bjarmaland (fjær), hlaða, fjárhús og hjallur sem tilheyrðu Þórsmörk (nær), Þórshamar (fjær) og Skálholt. Við hornið á Héðinshöfða er svo Gunnarshólmi (Grafarbakki) lengra frá. Næst okkur á myndinni er óþekktur skúr þar sem litlar stúlkur eru að leik. Myndina tók Björn Bergmann.
Skagaströnd - safn089
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á myndinni mokar Guðmundur Björnsson olíumöl á bíla en mennirnir eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og hægra megin við gröfuna er Guðbjartur Sævarsson.
Þórður Jónsson047
Dökklædda fólkið fremst á myndinni eru hjónin Hulda Pálsdóttir og Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005). Yfir vinstri öxl Þorfinns sést Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) en milli Huldu og Þorfinns sést Elsa Axelsdóttir Schiöth (d. 14.7.1966) (eiginkona Lárusar Jónssonar (d. 3.7.1983) læknis á Skagaströnd). Við hlið Huldu situr Hallbjörn Ágústsson frá Blálandi fæddur 1954 þannig að myndin hefur sennilega verið tekin þegar Höfðaskóli var vígður 2. nóvember 1958.
Barnaból - safn280
Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn106
Skagastrandarhöfn 1935. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að byggja Hafnarhúsið við höfnina. Húsið var síðar fært á þann stað þar sem það stendur í dag til að rýma til fyrir síldarverksmiðjunni sem reis þarna á árunum kringum 1946.
Jón Jónsson263
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Barnaból - safn294
Rebekka Maren Þórarinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Séra Pétur og Dómhildur - safn121
Þessir áhugasömu lestarahestar sem eru að lesa í bókasafninu í kjallara Fellsborgar eru, frá vinstri: Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir, Pálína Freyja Harðardóttir og Jóney Hrönn Gylfadóttir.
Barnaból - safn306
Arnór Snorri Gíslason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn041
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni er Þórunn Bernódusdóttir með dætrum sínum tveim sem sitja við borðið, Auður Eva Guðmundsdóttir vinstra megin og Elísabet Eik Guðmundsdóttir hægra megin. Birna Ágústdsóttir er í fangi Þórunnar.
Barnaból - safn 115
Notaleg stund með Lego- kubba í leikskólanum Barnabóli. Við borðið sitja frá vinstri: Guðrún Hrólfsdóttir, óþekkt, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (nú Lilja Nótt Sævarsdóttir), Eiður Bjarki Þórarinsson og Hörður Aðils Vilhelmsson. Barnið sem snýr baki í ljósmyndarann er óþekkt. Á gólfinu sér í Önnu Maríu Magnúsdóttur til vinstri og Elvu Ösp Gunnarsdóttur til hægri. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Skagaströnd 1966 c
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Öll steypuvinna fór fram á staðnum með hrærivél og steypan hífð upp með gamla hafnar-kranabílnum.
Skagaströnd - safn149
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á myndinni er sönghópur á sviðinu. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Viggó Magnússon, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Egill Bjarki Gunnarsson, Bára Þorvaldsdóttir, óþekktur, Helga Guðmundsdóttir, Fannar Viggósson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Þorvaldur Skaftason og Bóel Hallgrímsdóttir.
Skagaströnd - safn302
Þessi mynd var tekin 28. desember árið 2000 af Stórholti eða Bankastræti 3. Í húsinu eru þrjár íbúðir.
1
…
79
80
81
…
167
Leita í myndasafninu
Leita