Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari354
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn275
Viktor Pétursson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn025
<p>Á myndinni er Steinunn Steinþórsdóttir með börnum sínum Karen Petu Karlsdóttur til vinstri og Gunnari Dór Karlssyni til hægri, við piparkökubakstur á leikskólanum Barnaból 16. desember 1984. </p>
Barnaból - safn252
Árný Guðrún Ólafsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn076
<p>Útivera hjá krökkunum í leikskólanum Barnaból 27. nóvember 1996. Þarna eru þau ánægð með sjálf sig eftir að hafa búið til myndarlegan snjókarl. </p>
Barnaból - safn 115
Notaleg stund með Lego- kubba í leikskólanum Barnabóli. Við borðið sitja frá vinstri: Guðrún Hrólfsdóttir, óþekkt, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (nú Lilja Nótt Sævarsdóttir), Eiður Bjarki Þórarinsson og Hörður Aðils Vilhelmsson. Barnið sem snýr baki í ljósmyndarann er óþekkt. Á gólfinu sér í Önnu Maríu Magnúsdóttur til vinstri og Elvu Ösp Gunnarsdóttur til hægri. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Jón Jónsson238
<p>Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli með aðstoð bróður síns Ingibergs Guðmundssonar, sem snýr baki í ljósmyndarann. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Árni Max Haraldsson, og María Jóna Gunnarsdóttir. Barnið sem sér í á bak við Ingiberg er Karen Peta Karlsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990. </p>
Skagaströnd - safn183
Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þessi mynd var tekin 28. júlí 1989. Þá var Jón í forsvari fyrir Skógræktarfélag Skagastrandar og þarna tók hann þátt í að gróðursetja 50 trjáplöntur á Hnappstaðatúninu sunnanverðu í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps.
Skagaströnd 1966 c
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Öll steypuvinna fór fram á staðnum með hrærivél og steypan hífð upp með gamla hafnar-kranabílnum.
Skagaströnd - safn149
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Á myndinni er sönghópur á sviðinu. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Viggó Magnússon, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Egill Bjarki Gunnarsson, Bára Þorvaldsdóttir, óþekktur, Helga Guðmundsdóttir, Fannar Viggósson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Þorvaldur Skaftason og Bóel Hallgrímsdóttir.
Barnaból - safn220
Emelía Rós Sigfúsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn 101
Oft er gaman í leikskólanum Barnaból. Á myndinni er Einar Ari Einarsson í leigur-hjóla-aksti með vins sinn ? Jensson í fötu aftan á þríhjólinu. Greinilega eru báðir ánægðir með fyrirkomulagið.
Guðmundur Guðnason 2 452
Þessi dráttarvél Hd 152 hefur örugglega verið mikið þarfaþing á sínum tíma. Vélin er af Hanomag gerð eins og sjá má en ekki er vitað með vissu hver átti vélina en sennilega hefur það verið Jökull Sigtryggsson á Núpi í Laxárdal því þar endaði vélin lífdaga sína. Hræið af henni stóð þar á hlaðinu í mörg ár en hefur nú verið fjarlægt og komið í hendurnar á einhverjum hugsjónamanni sem er með hugmyndir um að endurbyggja slíka vél úr mörgum.
umf Fram303
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru krakkarnir og leiðbeinendurnir í heimsókn að Brandaskarði. Frá vinstri: Eydís Einarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir (fjær), Bergrós Hafsteinsdóttir (nær), Páll Halldórsson (fjær), Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir (nær), Alma Eik Sævarsdóttir, Ívan Árni Róbertsson og Sylvía Hrólfsdóttir.
Jón Jónsson229
17. júní 1988 var haldið upp á 60 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju eldri. Myndin er frá kaffiveislu í Fellsborg af þessu tilefni. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, óþekkt kona við borðsendann, Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001), Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, María Ólafsdóttir (d. 13.5.2006) kona hans, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) maður hennar og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) frá Höfðatúni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn031
Mæðgurnar Guðrún Ásta Guðmundsdóttir og Guðrúna Hrólfsdóttir (fjær) baka piparkökur í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984.
Barnaból - safn276
María Jóna Gunnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Guðmundur Guðnason321
Skarphéðinn Eiríksson frá Vatnshlíð á hestbaki.
Barnaból - safn011
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni er Sverrir Berndsen fyrir miðri mynd og móðir hans, Dagný Sigmarsdóttir til hægri. Hinum megin við borðið er Bóel Hallgrímsdóttir með son sinn Kristinn Björgvinsson.
umf Fram 346
Verðlaunahafar eftir íþróttamót á Skagaströnd 17. júní 1993 á tröppum Fellsborgar. Frá vinstri í aftari röð: Marta Kristín Jónsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Jóhannes William Grétarsson og Elvar Arinbjörn Grétarsson. Fyrir framan standa frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Eiður Bjarki Þórarinsson.
Jón Jónsson232
Þessir krakkar tóku þátt í einu af víðavangshlaupum umf. Fram sem yfirleitt voru haldin í maí á hverju ári. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Linda Hafdal Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Kristinn Björgvinsson, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Jóhannes William Grétarsson, Árni Max Haraldsson, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, Gunnar Guðmundsson og Gunnar Dór Karlsson. Aftan við keppendurna sér í Kristján Gunnar Guðmundsson.
Barnaból - safn283
Ásdís Adda Ólafsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Barnaból - safn189
<p>Hafsteinn Auðunn Björnsson á leikskólaárum sínum fyrir 1990</p>
Skagaströnd - safn114
Þessi mynd var tekin veturinn 1982 þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni á Akureyri. Fólkið á myndinni er stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, skipstjóri og kona hans en hún gaf skipinu nafn. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012)stjórnarmaður, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, Halldóra Þorláksdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) stjórnarformaður, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stjórnarmaður, Jón Ingi Ingvarsson stjórnarmaður og Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður.
Barnaból - safn058
Ólína Selma Þórarinsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn055
Elna Ragnarsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Jón Jónsson258
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru, frá vinstri, í hlutverkum sínum: Hendrik Berndsen, Sigrún Jónsdóttir, Ingimar Oddsson og Þorvaldur Skaftason með gítarinn.
Guðmundur Guðnason255
Tilefni þessarar myndar voru hátíðahöld 1974 í Kirkjuhvammi við Hvammstanga vegna 1100 ára byggðar á Íslandi . Á henni flytur Guðlaugur H. Einarsson ljóð úr ræðustóli en aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Skagaströnd, Grímur Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ, Páll Þórðarson Sauðanesi, Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Jóhannes ??? oddviti á Laugarbakka, Egill Gunnlaugsson Hvammstanga, Sigurbjartur Frimannsson á Sólbakka í Víðidal og Þorbjörg Bergþórsdóttir (d. 7.5.1981) Blönduósi. Allt var þetta fólk fulltrúar í sýslunefndum.
Guðmundur Guðnason315
<p>Myndin var tekin framan við kirkjuna að Holtastöðum í Langadal. Karlarnir eru frá vinstri: Jónatan Líndal á Holtastöðum, Sigurður Þorbjarnarson á Geitaskarði, Hilmar Frímannsson á Fremstagili og óþekktur. Presturinn er séra Gunnar Árnason á Æsustöðum og konan við hlið hans er líklega Sigríður Stefánsdóttir kona hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Barnaból - safn017
Þessi mynd var tekin í júlí 1986 á leikskólalóðinni við Barnaból í blíðskapar veðri. Frá vinstri Vilborg Magnúsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Brynjar Sigurðsson og Erna Hreinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 472
Drangey stóð við Fellsbraut gegnt kirkjunni. Húsið hefur nú verið rifið.
Skagaströnd - safn199
<p>Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) - Bergur sterki eins og hann var gjarnan kallaður.</p>
Barnaból - safn272
Jóhannes William Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Ólafur Bernódusson569
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Á myndinni eru krakkarnir á torginu framan við Amalienborg. Strákurinn í ljósa bolnum til vinstri er Magnús Líndal Þrastarson síðan koma talið frá vinstri: Gunnar Helgason, Geirþrúður Guðmundsdóttir, óþekktur, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, María Markovic, óþekkt, Elín Anna Konráðsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn144
Á myndinni ávarpar Herra Karl Sigurbjörnsson biskup þau séra Pétur Þ. Ingjaldsson (1.6.1996) og Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012) konu hans. Pétur var sóknarprestur á Skagaströnd 1941 - 1981 en þau Dómhildur giftust 1956. Eftir að Pétur lét af prestskap starfaði Dómhildur mikið við Hallgrímskirkju í Reykjavík en Herra Karl biskup var prestur þar áður en hann gerðist biskup. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson317
Þessi tvö ungmenni seldu merki sjómannadagsins 1988 fyrir björgunarsveitina Strönd á Skagaströnd. Atli Þórsson til vinstri og Aðalheiður Árnadóttir til hægri.
Barnaból - safn182
Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Ólafur Bernódusson559
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér jakka og húfu/hatt sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
umf Fram 327
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd, frá námskeiðinu á Blönduósi, eru frá vinstri: Magnús Ólafsson, Valgarður Hilmarsson, Jón Jóhannsson og Valdimar Guðmannsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn163
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Við borðið næst okkur sitja hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Við næsta borð eru frá vinstri: Björgvin Jörgensson (d. 26.2.1999), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012). Maðurinn í bláa jakkanum bak við Björgvin er Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004). Aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn001
Þessi mynd var tekin sumarið 1977 af fyrstu krökkunum og starfsfólkinu sem voru á leikskólanum Barnaból á Skagaströnd. Starfskonurnar eru Guðrún Hrólfsdóttir til vinstri, Bára Þorvaldsdóttir í miðjunni og Lára Bylgja Guðmundsdóttir til hægri en hún var leikskólastjóri á þessum tíma. Í fangi Láru Bylgju er Soffía Lárusdóttir. Krakkarnir eru talið frá vinstri: aftasta röð: Hugrún Pálsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Kolbeinn Sigurðsson, Jóhanna Sveinsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Stefán Sveinsson, Viggó Magnússon, Dagbjört Jóhannsdóttir og Friðrik Birgisson. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Rúnar Árnason, Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Inga Rós Sævarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir og Brynjar Pétursson. Fremsta röð frá vinstri: Bryndís Ingimarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Atli Þórsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Baldur Magnússon, Jóhannes Hinriksson, Aðalheiður Árnadóttir, Björn Sigurðsson og Friðrik Gunnlaugsson.
Jón Jónsson250
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Ólafur Bernódusson í hlutverki sínu í sýningunni.</p>
Barnaból - safn050
Myndin er af börnum úr leikskólanum á Blönduósi þegar þau komu í heimsókn í leikskólann Barnaból árið 1980
Skagaströnd - safn282
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Skarphéðinn Ragnarsson þáverandi svæðisstjóri VÍS í ræðustól en VÍS styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Barnaból - safn143
Þessi mynd var tekin af börnunum í Lundi í leikskólanum Barnabóli eftir hádegi í apríl 2001. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Helga Magnúsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Magnús Jens Magnússon, Ástrós Anna Gestsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Róbert Björn Ingvarsson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir og Rakel Jensína Jónsdóttir í fanginu á Lilju Ingólfsdóttur. Aftari röð frá vinstri: Birkir Bergsson, Þórey Jónsdóttir, Guðmann Einar Magnússon, Margrét Júlía Óladóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Kristný Huld Einarsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Sesselja Karitas Óladóttir og Eik Guðmundsdóttir. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
Barnaból - safn150
Eva Rún Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn202
Sigríður Olga Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn123
Þessi mynd er sennilega frá hófi í febrúar 1983, sem haldið var til að fagna tilkomu verkamannaíbúða við Mánabraut. Á myndinni hlusta þau Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Guðmundur Björnsson á einhvern óþekktan ræðumann.
Barnaból - safn299
Óðinn Örn Sævarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Guðmundur Guðnason 2348
Fossar í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn206
Þetta barn af leikskólanum Barnabóli, sennilega kringum 1985, er óþekkt. Ef þú veist hvert barnið er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 556
Sveinn Ingi Grímsson var refaskytta á Skagaströnd og í Skagabyggð í mörg ár. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann nýkominn úr vel heppnuðum grenjatúr. Hann náði báðu fullorðnu dýrunum og þremur ylfingum þeirra.
Barnaból - safn008
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni er Björgvin Ragnarsson að raða kökum á bökunarpappír en móðir hans Rut Jónasdóttir fylgist með.
Guðmundur Guðnason 2347
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en greinilega hefur ökumaður jeppans lent í vandræðum í drullusvaðinu á veginum út á Skaga og þurft að fá einhvern góðviljaðan á dráttavél til að draga sig upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 444
Hafrún HU 12 fyrir brerytingu. Húsið með rauða þakinu, sem ber í skólann, er Ásbyrgi sem nú hefur verið rifið.
Barnaból - safn053
Sonja Sif Ólafsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn232
Kaffifundur í kaffistofu Hólanes hf 1994, sennilega hluthafafundur í Skagstrendings hf. Við borðið sitja frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Hrönn Árnadóttir skoðar myndirnar á veggnum með son sinn Brynjar Max Ólafsson í fanginu og hjá henni stendur dóttir hennar Rebekka Laufey Ólafsdóttir og skoðar með henni.
Skagaströnd - safn254
Indíánatjald reist á tjaldsvæðinu fyrir síðustu kántrýhátíðina sem var haldin 2002. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Magnús B. Jónsson, Rósa Björg Högnadóttir, Kristín Þórðardóttir (uppi í stiga), Íris Valgeirsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Guðmundur Guðnason272
Jón Jónsson við Hraunfossa sem falla í Hvítá við Húsafell.
Barnaból - safn187
Gunnar Helgason á leikskólaárum sínum kringum 1990.
1
…
80
81
82
…
167
Leita í myndasafninu
Leita