Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2345
Það var virðulegur blær á Skrapatungurétt á þessum réttardegi með tveimur fánum á hliðinu. Líklega hefur réttin verið byggð 1957 en hún er enn notuð á hverju hausti.
Barnaból - safn066
Gunnar Már Sæmundsson. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn192
Leikritið: Klerkar í klípu, var sett up í gömlu Tunnunni undir leikstjórn Birnu Blöndal. Ártalið er óþekkt. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Guðný Sigurðardóttir og Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007). Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Guðmundur Guðnason295
Séra Róbert Jack í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
DX-10

Hér baka mæðgurnar Dagný Úlfarsdóttir og Elín Ósk Björnsdóttir piparkökur á leikskólanum Barnabóli 30. nóvember 2002.

Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn017
Þessi mynd var tekin heima í eldhúsi á Túnbraut 5 efri hæð til vinstri. Á henni má sjá þrjú af börnum Guðrúnar Soffíu Pétursdóttur og Guðjóns Guðjónssonar - Obbu og Jonna. Frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson og Þorlákur Ómar Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Guðjón Ebbi fæddist árið 1983 þannig að myndin gæti hafa verið tekin 1984 eða 1985.
Barnaból - safn045
Þessi mynd var tekin í ágúst 1982 af þeim Viktori Péturssyni, Hildi Ingu Rúnarsdóttur og Ólafi Magnússyni (frá vinstri talið) þar sem þau voru búin að grafa sig djúpt ofan í sandkassa við leikskólann Barnaból.
Skagaströnd - safn185
Þessi mynd, sem er tekin af almanaki, sýnir bæinn Hnappstaði á Skagaströnd. Bærinn stóð á Hnappstaðatúni sem er við Oddagötu niður af Bogabraut. Bærinn er löngu horfinn.
Jón Jónsson306
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru hjónin Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000). Aftan við þau til hægri er tengdsonur þeirra Adolf H. Berndsen.
Skagaströnd - safn230
Erla Lárusdóttir með barn í skírnarkjól.
Barnaból - safn221
Bryndís Axelsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd á tröppunum heima hjá Hallgrími afa sínum að Hólabraut 14 áriðm 1981 eða 1982.
Árni Geir Ingvarsson - safn 421
Slippurinn fullur af trébátum og nóg að gera. Ekki er hægt að koma nema þremur bátum í slippinn í einu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 392
Á Skagaströnd er vinsælt að eiga sér lítið bátshorn til að geta farið og fiskað sér í soðið þegar best er á sumrin eða stundað silungsveiði meðfram landinum. Þennan bát smíðuðu feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður Björnsson sonur hans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 453
Þessi mynd var tekin þegar Ólafur Magnússon HU 54 kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Ragnar Ingvarsson er að koma út um brúardyrnar, Stefán Jósefsson skipstjóri og eigandi bátsins er í brúarglugganum en Hjörtur Guðmundsson stendur með hendur í vösum við brúarhornið.
Ólafur Bernódusson565

Á þessari mynd, frá 2001, æfa presturinn séra Magnús Magnússon og félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju söng til að syngja fyrir söngfélaga sinn úr kórnum, Gylfa Sigurðsson, sem átti 60 ára afmæli nokkrum dögum síðar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson með gítarinn, Einar Haukur Arason, Valdimar Þórðarson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnson, séra Magnús og Ólafur Bernódusson. Ungi aðdáandinn sem situr framan við karlana og hlustar er Páll Halldórsson.

Barnaból - safn084
30. apríl 1997 var þesi mynd tekin af krökkum í hvíldarstund í leikskólanum Barnaból. Frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, óþekktur, Halla Björk Víðisdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ólína Selma Þórarinsdóttir.
Barnaból - safn 102
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir (fjær), Ívar Logi Grétarsson (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Guðmundur Guðnason272
Jón Jónsson við Hraunfossa sem falla í Hvítá við Húsafell.
Barnaból - safn187
Gunnar Helgason á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd - safn363
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1991 í skötuveislu starfsmanna Skagstrendings hf í Fellsborg. Næst okkur á myndinni eru hjónin Gestur Arnarson og Kristín Þórðardóttir með dóttur sinni Hönnu Rúnu Gestsdóttur. Við borðið fjær má þekkja Guðbjörgu Viggósdóttur en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 473
Ferming í Hólaneskirkju árið 2001. Fremri röð frá vinstri: séra Magnús Magnússon, Rósa Björg Einarsdóttir, Linda Bryndísardóttir, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ernstsson og Ásdís Adda Ólafsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson.
Barnaból - safn063
Elías Kristinn Sæmundsson. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Scan10080
Þessi mynd var tekin árið 2000 þegar Sunnuhlíð (Bogabraut 19) var rifin til að rýma fyrir nýju húsi á lóðinni en það var byggt sumarið 2001.
Guðmundur Guðnason 2 380
Þessi mynd var tekin framan við Höskuldsstaðakirkju - líklega á vígsludegi hennar vorið 1963. Lengst til vinstri er Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti og næstur honum, með derhúfu, er Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Árnesi á Skagaströnd. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku á Skagaströnd snýr andlitinu að ljósmyndaranum og ber í dyrnar vinstra megin. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 433
Sjómenn svíður alltaf svolítið í hjartað þegar gamlir bátar eru sagaðir sundur og eyðilagðir. Hér hefur einn báturinn endað lífdaga sína í slippnum á Skagaströnd. Báturinn nefndist Ingólfur þegar þessi mynd var tekin sennilega 1992. Hann var keyptur af Skagstrendingi hf til Skagastrandar til niðurrifs en kvótann hirti félagið fyrir togara sína.
Barnaból - safn071
Jóhann Örn Stefánsson. Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn256
Erla María Lárusdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 365
Amerískir bílar eins og þessi drossía voru algengir á árunum upp úr 1960 á Skagaströnd. Þeir voru með aflmiklar vélar sem eyddu miklu bensíni en í þá tíð var bensínverð mjög viðráðanlegt og fólk ekki farið að hugsa eins mikið um mengunarvarnir og nú. Ekki er vitað hvaða tegund eða árgerð bílinn er en ef einhver bílaáhugamaður sér þessa mynd og veit það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 361
Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983) talar á vormóti í Vaglaskógi 1948.
Skagaströnd - safn165
Soffía Lárusdóttir(d. 31.3.2010) flytur tölu í tilefni af því að kvenfélagið Eining var að gefa lækningatæki á Heilsugæsluna á Skagaströnd einhverntíma á árunum 1974 - 1978.
Guðmundur Guðnason 2 383
Valgarður Bertelsson á fermingardaginn sinn.
DX-2
Hjónin Þröstur Árnason og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir baka hér piparkökur með syni sínum Auðunni Árna Þrastarsyni í Barnabóli 30. nóvember 2002.
umf Fram305
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Eydís Einarsdóttir, leiðbeinandi á námskeiðinu, að strjúka kettlingi í heimsókn að Brandaskarði.
Barnaból - safn 135
"Þegar lægst er á lofti sólin, loksins koma jólin........" Myndin var tekin þegar Gluggagægir kom í heimsókn á leikskólann Barnaból á litlu jólum 1991. Litlu jólin eru mikill hátíðisdagur barnanna því þá koma jólasveinar í heimsókn og allir dansa með þeim kringum skreytt jólatré og þiggja eitthvert góðgæti úr pokanum hjá sveinka. Ljósmyndasafnið óskar öllum gleðilegra jóla og friðs og farsældar á komandi tímum. Um leið þakkar safnið öllum þeim sem sýnt hafa því áhuga og velvilja, til dæmis með að senda inn ábendingar og leiðréttingar vegna mynda safnsins. Einnig þökkum við þeim sem hafa laumað að okkur myndum úr einkasafni sínu. Þannig myndum er öllum skilað aftur til eigenda eftir að hafa verið settar út á netið svo aðrir geti notið þeirra.
Skagaströnd - safn167
Sigursteinn Guðmundsson læknir, til vinstri, tekur við lækningatækjum fyrir Heilsugæsluna á Skagaströnd úr höndum Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) oddvita Höfðahrepps einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Tækin gáfu kvenfélagskonur í Einingu.
Skagaströnd - safn242
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða og í sund í sundlauginni á Skagaströnd. Á myndinni er Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) að gera sig kláran fyrir sundsprett.
Barnaból - safn 125
Myndin var tekin 8. júlí 1991 í grillveislu af leikskólakrökkum sem voru í Barnabóli fyrir hádegi á þeim tíma. Aftasta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Eva Rún Rúnarsdóttir og Ragnar Stefán Rögnvaldsson. Miðröð frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Kristján Pétur Guðjónsson, Ívar Gylfason, Fjóla Dögg Björnsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Berndsen, Sigurgeir Árnason, Arnór Gíslason og óþekkt barn.
Jón Jónsson256
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Þorvaldur Skaftason (fjær), William Sillar (nær), Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og svo sér aftan á Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Barnaból - safn064
Aðalheiður Ragnarsdóttir. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Barnaból - safn039
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni eru Sigríður Gestsdóttir og sonur hennar Jón Örn Stefánsson að skera út kökur úr deiginu og skreyta þær.
Barnaból - safn302
Eydís Ósk Einarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Séra Pétur og Dómhildur - safn166
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru heiðurshjónin Þorbjörg Bergmann Jónasdóttir (d. 11.10.2005) og Hallgrímur Eðvarðsson (d. 18.11.2000) frá Helgavatni í Vatnsdal.
Jón Jónsson320
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri búa sig undir að keppa í að mata hvorn annan á júgúrt í kappi við annað par.
Séra Pétur og Dómhildur - safn137
Myndin er frá skírn Jóhanns Guðbjarts Sigurjónssonar í Hólaneskirkju (eldri). Foreldrarnir Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Sigurjón Guðbjartsson standa hjá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem heldur á Jóhanni í fanginu. Katrín Sigurjónsdóttir systir Jóhanns stendur hjá mömu sinni.
DX-6
Á þesari mynd eru, frá vinstri, mæðgurnar: Drífa Kristjánsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir að baka piparkökur á leikskólanum Barnabóli 30. nóvember 2002.
Ólafur Bernódusson 558
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Guðrúnu Berndsen lyklana að nýrri leiguíbúð Höfðahrepps að Skagavegi 10.
Barnaból - safn173
Birgitta Maggý Valsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn 099

Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í heimsókn að Steinnýjarstöðum 22. maí 2001. Eitt af ævintýrunum sem krakkarnir upplifðu var ferðalag á vagni sem dregin var af dráttarvél. Á myndinni eru börnin og starfsmenn á vagninum en Guðrún Sigurðardóttir gengur með til öryggis.

Guðmundur Guðnason315

Myndin var tekin framan við kirkjuna að Holtastöðum í Langadal. Karlarnir eru frá vinstri: Jónatan Líndal á Holtastöðum, Sigurður Þorbjarnarson á Geitaskarði, Hilmar Frímannsson á Fremstagili og óþekktur. Presturinn er séra Gunnar Árnason á Æsustöðum og konan við hlið hans er líklega Sigríður Stefánsdóttir kona hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Barnaból - safn282
Guðrún Elsa Helgadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Barnaból - safn 107
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Bergþór Gunnarsson og dóttir hans Eva Dögg Bergþórsdóttir.
Jón Jónsson248
Sú hefð hefur skapast á árshátíðum Höfðaskóla að kennararnir koma fram með eitt skemmtiatriði í lokin. Á þessari mynd sýna kennararnir fimleika undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Í neðstu röðinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson. Kennararnir í miðröðinni eru óþekktir en efst trónir skólastjórinn Jón Pálsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn001

Barnaafmæli á Suðuvegi 9 sennilega vegna afmælis Kristjáns Péturs Guðjónssonar. Hann á afmæli í september þannig að myndin hefur sennilega verið tekin í þeim mánuði einhverntíma á árunum 1997 -1999. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Sunna Gylfadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Hanna Gylfadóttir og Arnór Snorri Gíslason.

Barnaból - safn159
Anna María Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn133
Fermingarbörn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Í fremstu röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn Kári Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 360

Á þessari mynd halda í hrúta sína á hrútasýningu á óþekktum stað, frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) Holti Svínadal, Eysteinn Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinakeldu, Leifur Sveinbjörnsson (d. 22.2.2008) í Hnausum, Reynir Steingrímsson (d. 3.11.1989) í Hvammi, Vatnsdal og Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) á Auðkúlu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.

Barnaból - safn213
Viggó Maríasson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn269

Þessi mynd er af gamalli tré- eða koparristu sennilega gerðri af þjóðverja. Aftan á myndinni stendur: Island 19. jahrh. xylographié. Einnig er svohljóðandi stimpill aftan á henni: Karla Krüger. Münaen. Kaupferstiche. Bücker. Gerhoftstr. 2, 2000 Hamburg 36 Tel 34 67 32. Undir myndinni stendur (á gamalli þýsku): Verslunarstaðurinn Skagaströnd á Íslandi.

Annað er ekki vitað um myndina.

Guðmundur Guðnason 2 422
Þessi mynd var tekin á fyrstu kántrýhátíðinni 1984. Þessi fyrsta hátíð var ekki eins fjölsótt og þær sem síðar voru haldnar. Myndin sýnir hluta gesta hlýða á kántrýmessu. Sitjandi frá vinstri: Kristbjörg Antonsdóttir, Una D. Kristjánsdóttir, tvö óþekkt börn, óþekktur maður (nær), Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Erla María Lárusdóttir (stendur), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Soffía Lárusdóttir?, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), óþekkt, Fannar Viggósson og Erna Berglind Hreinsdóttir. Aðrir sem sitja eru óþekktir. Standandi frá vinstri: Jón Helgason, óþekkt, Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) (nær), Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) (fjær), fjórir óþekktir, Guðmundur Jóhannesson og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Aðrir eru óþekktir nema maðurinn við kvikmyndavélina er Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi en hann gerði heimildamynd um kántrýhátíðina 1984 sem hann kallaði: Kúreki norðursins.
Barnaból - safn 132
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir hjálpar ömmubarninu sínu, Herði Aðils Vilhelmssyni, að baka á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból 1991. Sama gerir Ernst Berndsen með syni sínum Friðvin Inga Berndsen.
1

81
82
83

167
Leita í myndasafninu
Leita