Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn250
Sigurður Haukur Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Árni Geir Ingvarsson -safn 483
Arnar HU 1. Þessi bátur var fyrsti bátur Skagstrendings hf. Hann var gerður út á togveiðar og varð upphafið að farsælli útgerðarsögu Skagstrendings hf. Skagstrendingur hf var stofnaður 1968 og myndin er sennilega tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 410
Það getur brimað illa við gömlu Spákonufellsey sem skýlir höfninni á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin á einum þessara brim-daga og sýnir þann ógnarkraft sem býr í haföldunum.
Barnaból - safn183
Sveinþór Ari Arason á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Skagaströnd - safn253
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða og í sund í sundlauginni á Skagaströnd. Á myndinni eru Ragnar Ingvarsson til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) að gera sig klára fyrir sundsprett.
Ólafur Bernódusson566
Ívan Árni Róbertsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir brosmild með banana í eldhúsinu hjá ömmu á Bogabraut 27. Myndin var tekin kringum árið 2000.
Barnaból - safn196
Hinrik Þór Oliversson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin um jólin 1981.
Skagaströnd - safn206
Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Barnaból - safn218
Jón Ólafur Sigurjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980
Jón Jónsson268
Á þessari mynd eru leikarar og starfsfólk sem kom að sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Er þetta ekki mitt líf? veturinn<br>1983. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson, Guðný Sigurðardóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Vilmundur Árnason, Karl Lúðvíksson, Ólafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Guðbjörg Viggósdóttir, Ólöf Ardís Arelíusdóttir (fjær), Ari Þórsson (nær), Ásgeir Sigurvaldason leikstjóri, Guðjón Árnason (nær), Magnús B. Jónsson (fjær), Elín Njálsdóttir, Kristján Blöndal og Ágústa Friðriksdóttir.
Guðmundur Guðnason232
Myndin er frá heimsókn Loinsmanna frá Skagaströnd til Siglufjarðar ásamt mökum. Hér er fólkið að skoða sundlaug Siglufjarðar. Frá vinstri: óþekktur, Jón Pálsson, óþekkt, Edda Pálsdóttir, óþekkt, óþekktur, Björk Axelsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hörður Ragnarsson, ?Sigurður Guðmonsson? (d. 5.8.1981), tveir óþekktir og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978).
Barnaból - safn159
Anna María Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 433
Sjómenn svíður alltaf svolítið í hjartað þegar gamlir bátar eru sagaðir sundur og eyðilagðir. Hér hefur einn báturinn endað lífdaga sína í slippnum á Skagaströnd. Báturinn nefndist Ingólfur þegar þessi mynd var tekin sennilega 1992. Hann var keyptur af Skagstrendingi hf til Skagastrandar til niðurrifs en kvótann hirti félagið fyrir togara sína.
Barnaból - safn071
Jóhann Örn Stefánsson. Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Guðmundur Guðnason 2 351
Þessi mynd sýnir Svartárbrúna og Ártún í baksýn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason288
Þessir þrír herramenn eru að gera sér glaðan dag af óþekktu tilefni. Frá vinstri: óþekktur, Óskar Axelsson Ásholti og Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti
Jón Jónsson282
Þessi mynd var tekin á tröppum Hólaneskirkju (eldri) að lokinni innsetningarmessu þegar séra Oddur Einarsson var settur inn í embætti sem sóknarprestur á Skagaströnd 1981. Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006).
Barnaból - safn191
Erla Björgheim Pálsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Skagaströnd - safn044
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru Sigurður Ingi skrifstofustjóri hjá Vitamál til vinstri og Adolf J. Berndsen til hægri.
Barnaból - safn091
<p>Í tilefni af 20 ára afmælis Barnabóls fengu allir afmælishúfur á kollinn. Á þessari mynd sem tekin var 19. júní 1997 eru frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, óþekkt, Elna Ragnarsdóttir, Sævar Hlynur Tryggvason, Þórir Óskar Björnsson, Hafrún Kristjánsdóttir, Guðjón Örn Arason, Arnar Freyr Sigurjónsson og Kristján Ýmir Hjartarson.</p>
Jón Jónsson293
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Skagaströnd - safn269
<p>Þessi mynd er af gamalli tré- eða koparristu sennilega gerðri af þjóðverja. Aftan á myndinni stendur: <em>Island 19. jahrh. xylographié. </em>Einnig er svohljóðandi stimpill aftan á henni: <em>Karla Krüger. Münaen. Kaupferstiche. Bücker. Gerhoftstr. 2, 2000 Hamburg 36 Tel 34 67 32. </em>Undir myndinni stendur (á gamalli þýsku): Verslunarstaðurinn Skagaströnd á Íslandi. </p><p>Annað er ekki vitað um myndina.</p>
Barnaból - safn235
Sveinbjörn Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Jón Jónsson239
Fröken klukka mætti á grímudansleik Höfðaskóla 1985. Við vitum hvað klukkan er en stúlkan sem ber hana er Valrún Eva Vilhelmsdóttir þá fimm ára.
Jón Jónsson294
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Steindór Gíslason (d. ?), Bjarney Valdimarsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Barnaból - safn056
Guðjón Örn Kristjánsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Guðmundur Guðnason 2 486
(H)eldri borgarar frá Skagaströnd á ferðalagi hafa áð við pípuhliðið á Kerlingarholtinu. Frá vinstir á myndinni eru: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), tvær óþekktar konur, Birna Blöndal, Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), óþekktur bílstjóri, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988)(nær), Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988)(fjær), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmoniku, óþekktur, Helga Guðmundsdóttir með gítar, Jónína Valdimarsdóttir (nær),óþekkt (fjær), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Jóhanna Jónasdóttir, óþekkt, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Ása Jóhannsdóttir, Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í þessari ferð kom fólkið m.a. við í Þingeyrarkirkju og skoðaði hana ásamt fleiri stöðum.
Barnaból - safn226
Sigrún Líndal Þrastardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason317
Hjónin Jökull Sigtryggsson og Valgerður Kristjánsdóttir sem lengi bjuggu að Núpi í Laxárdal.
Barnaból - safn 109
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru mæðginin Málfríður Jóhannsdóttir og Stefán Gunnarsson í óða önn að skreyta kökurnar sínar.
Jón Jónsson227
Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju eldri 17. júní 1988. Þá voru liðin 60 ár frá vígslu kirkjunnar. Til messunnar mættu fjögur fermingarsystkin sem fermd voru á vígsludeginum 17. júní 1928. Þau voru: Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) sem er önnur frá hægri á fremsta bekk og svo á bekknum fyrir aftan frá hægri: Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001), Henryetta Berndsen (d.?) og Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000). Aðrir á myndinni eru: Ása Jóhannsdóttir lengst til hægri á fremsta bekk, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) sem situr við hlið Sigríðar konu sinnar og svo er óþekkt kona lengst til vinstri á fremsta bekk. Aftast til vinstri við Guðmann er Guðrún Angantýsdóttir.
Barnaból - safn140
Skólaspjald frá leikskólanum Barnabóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1985. Fremsta röð frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Kristín Dís Sigurðardóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hinrik Oliversson, Emelía Rós Sigfúsdóttir, Birkir Rafn Gíslason og Vignir Hafþórsson. Næst fremsta röð frá vinstri: Sigríður Oddsdóttir, Fjóla Ómarsdóttir, Kolbrún Eðvarðsdóttir, Áslaug Ottósdóttir, Birna Ágústsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Sveinþór Ari Arason, Hulda ?, Einar Oddsson, Andri Ómarsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir. Öftustu tvær raðirnar frá vinstri: Haraldur Brynjar Sigurðsson, Kristín Kristmundsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Dagný Sigmarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Erla María Lárusdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Magnús Líndal Þrastarson, Sverrir Berndsen, Trausti Magnússon, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Elva Mjöll Þórsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir leikskólastjóri.
Jón Jónsson267
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Vilmundur Árnason, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Guðný Sigurðardóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) í hlutverkum sínum.
Skagaströnd - safn239
Björgvin Halldórsson syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á sviði á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð 2003. Kórfélagarnir sem sjást aftan við Björgvin eru frá vinstri: Aðalheiður Marta Steindórsdóttir (nær), Halla Kristín Árnadóttir (fjær), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, óþekkt (nær), Guðbjörg Ólafsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Gestsdóttir. Óskar Einarsson sjórnandi spilar undir á hljómborð.
Barnaból - safn207
Systurnar Rakel Sara Gunnarsdóttir vinstra megin og Ragna Fanney Gunnarsdóttir til hægri á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 465
Víkingur Viggósson við snjómokstur á veginum norðan við Hafurstaði. Sennilega var myndin tekinn annað hvort árið 1995 eða 1996.
Jón Jónsson254
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir í hlutverki sínu.</p>
Jón Jónsson327
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Skagaströnd - safn134
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Eftir skrúðgöngu sungu ung börn fyrir gesti undir leiðsögn og undirspili Fannars Viggóssonar og Díönu Kristjánsdóttur. Börnin á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, María Markovic, óþekkt, Heiða Berglind Fannarsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn306
Drangey hefur verið rifin. Húsið stóð við Fellsbraut neðan við Ásgarð sem sést til hægri á myndinni.
Jón Jónsson275
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd er fólk að njóta veitinga í tilefni dagsins. Frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Viggó Brynjólfsson, óþekkt, Guðmundur Jóhannesson, Gunnar Sveinsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Viktor Pétursson og Pétur Eggertsson,
Skagaströnd - safn231
Gylfi Sigurðsson í ræðustól á fundi í kaffistofu Hólaness hf 1994. Fundarefnið er ekki þekkt en gæti verið hluthafafundur hjá Skagstrendingi hf þar sem Gylfi var stjórnarformaður um tíma.
Guðmundur Guðnason 2 380
Þessi mynd var tekin framan við Höskuldsstaðakirkju - líklega á vígsludegi hennar vorið 1963. Lengst til vinstri er Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti og næstur honum, með derhúfu, er Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Árnesi á Skagaströnd. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku á Skagaströnd snýr andlitinu að ljósmyndaranum og ber í dyrnar vinstra megin. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn133
Fermingarbörn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Í fremstu röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn Kári Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 360
<p> Á þessari mynd halda í hrúta sína á hrútasýningu á óþekktum stað, frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) Holti Svínadal, Eysteinn Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinakeldu, Leifur Sveinbjörnsson (d. 22.2.2008) í Hnausum, Reynir Steingrímsson (d. 3.11.1989) í Hvammi, Vatnsdal og Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) á Auðkúlu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. </p>
Barnaból - safn213
Viggó Maríasson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn228
Elva Dröfn Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn176
María Markovic á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 401
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er verið að vinna við að koma fyrir frárennslislögn vestur úr fjörunni fyrir neðan sundlaugina. Maðurinn á myndinni er Rolf Árnason (d. ?) tæknifræðingur.
Barnaból - safn288
Rósa Björk Einarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn256
Erla María Lárusdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn259
40 feta gámur, sem stóð á gámasvæðinu norðan við rauða klefann á Skúffugarðinum, tókst á loft í miklu roki og fauk ca fjórar lengdir sínar og var nærri farinn í sjóinn. Eins og sést á myndinni var það níðsterkur bryggjukanturinn sem stöðvaði gáminn. Ef það hefi ekki gerst hefði Sigurður Jónsson Hu 18, sem sést á myndinni, ekki verið á floti lengur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma á árunum 2000 - 2005.
Guðmundur Guðnason 2 370
Gil í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason278
<p>Þetta fólk með Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1988) eru afkomendur séra Gunnars Árnasonar á Æsustöðum. Haraldur Ólafsson, tengdasonur Gunnars er lengt til vinstri og Hólmfríður Gunnarsdóttir kona hans við hlið hans. Séra Gunnar er á miðri mynd við hlið Guðmundar sem er í ljósum buxum. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Skagaströnd - safn280
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla fagnar tilkomu hússins.
Guðmundur Guðnason311
Þessi mynd var tekin utan við gamla bæinn á Höskuldsstöðum af biskupshjónunum þeim: Magneu Þorkelsdóttur (d. 10.4.2006) og herra Sigurbirni Einarssyni (d. 28.8.2008) biskupi. Til hægri á myndinni eru þeir Ingvar Ástmarsson lengst til hægri og Benóný Gunnarsson við hlið hans. Konan í bakgrunninum er Petrea Jónsdóttir (d. 22.3.1972) frá Skrapatungu.
Guðmundur Guðnason 2 413
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað:<em> Konur í Vatnsdal. Sigrún Grímsdóttir í Saurbæ lengst til hægri.</em> Önnur frá vinstri er Elín Sigurtryggvadóttir frá Kornsá þriðja frá vinstri er Ragnheiður Blöndal frá Brúsastöðum og konan í bleiku dragtinni er Lilja Halldórsdóttir (d. 29.9.1997) frá Haukagili. Næst lengst til hægri er líklega Guðlaug Ólafsdóttir frá Snærisstöðum. Konan lengst til vinstri er Fjóla ? frá Hvammi (kona Hallgríms Guðjónssonar).
Ólafur Bernódusson556
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru Valrún Eva Vilhelmsdóttir til vinstri og Dagbjört Agnarsdóttir til hægri.
Barnaból - safn197
Inga Valdís Heimisdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn012
Þessi mynd var tekin á skólaslitum 28. maí 2000. Á henni er árgangur fæddur 1988 að bíða eftir að fá einkunnir sínar afhentar. Frá vinstri: óþekkt, Ómar Ingi Ómarsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Jón Atli Magnússon, Ívar Gylfason, Sigurgeir Snævar Árnason og Sindri Jóelsson.
1
…
82
83
84
…
167
Leita í myndasafninu
Leita