Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2 388
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>"Páll Jónsson fyrrv. skólastjóri organl. til 1965".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er úr Hólaneskirkju eldri. Páll dó 19.7.1979.
Jón Jónsson294
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Steindór Gíslason (d. ?), Bjarney Valdimarsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Barnaból - safn056
Guðjón Örn Kristjánsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Guðmundur Guðnason 2 486
(H)eldri borgarar frá Skagaströnd á ferðalagi hafa áð við pípuhliðið á Kerlingarholtinu. Frá vinstir á myndinni eru: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), tvær óþekktar konur, Birna Blöndal, Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), óþekktur bílstjóri, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988)(nær), Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988)(fjær), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmoniku, óþekktur, Helga Guðmundsdóttir með gítar, Jónína Valdimarsdóttir (nær),óþekkt (fjær), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Jóhanna Jónasdóttir, óþekkt, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Ása Jóhannsdóttir, Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í þessari ferð kom fólkið m.a. við í Þingeyrarkirkju og skoðaði hana ásamt fleiri stöðum.
Barnaból - safn226
Sigrún Líndal Þrastardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn303
Sigurgeir Snævar Árnason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson348
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Jón Jónsson287
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Karl Berndsen (d. 12.2.1995)
Guðmundur Guðnason301
Systkinin Hugrún Gréta Sigurðardóttir og Kolbeinn Vopni Sigurðsson frá Hólanesi. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
umf Fram308
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu.Á þessari mynd, sem sennilega ver tekin sumarið 2004, eru krakkarnir að bíða eftir að fara í heimsókn að Brandaskarði. Á myndinni eru í fremstu röð frá vinstri: Bergrós Hafsteinsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Sylvía Hrólfsdóttir. Miðröð frá vinstri: Anton Einarsson og Birkir Gunnarsson. Aftasta röð frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Páll Halldórsson, Ívan Árni Róbertsson, Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir leiðbeinandi. Aftan við hópinn standa Stefán Jósefsson og Einar Ásgeirsson en þeir óku hópnum út að Brandaskarði.
Séra Pétur og Dómhildur - safn167
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) og Bergþóra Kristjánsdóttir (d. 9.5.2011) Blönduósi.
Jón Jónsson315
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) bóndi á Mánaskál í veislunni.
Barnaból - safn197
Inga Valdís Heimisdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Ólafur Bernódusson561
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Jón Jónsson290
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og María Magnúsdóttir.
Barnaból - safn178
Heiða Berglind Fannarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn261
Jón Hall Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1980.
Barnaból - safn188
Sindri Fanndal Júlíusson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn319
Marínó Freyr Jóhannesson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn179
Björgvin Örn Ragnarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Jónsson273
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd eru gestir í kaffi vegna vígslunnar. Frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir, Sigfús Jónsson, Gylfi Sigurðsson, Emelía Rós Sigfúsdóttir, Kristbjörg Antonsdóttir , Lárus Ægir Guðmundsson, og Hörður Ragnarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn147
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) frá Viðvík. Þessi mynd var tekin af Gísla á tröppunum í Reykholti þar sem hann bjó á sínum efri árum. Á myndinni er hann með heiðursmerki (?sjómannadagsins?) í barminum.
Jón Jónsson244
<p>1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru umsjónarmenn skólaútvarpsins sem rekið var þessa viku. Frá vinstri: Baldur Magnússon, Hallgrímur Oddsson (sitjandi nær), Hans Birgir Högnason (standandi fjær), Viggó Magnússon og Halldór Gunnar Ólafsson. </p>
Jón Jónsson242
Þessi mynd var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 1985. Á myndinni situr Signý Richter með dóttur sína Maríu Markovic í fanginu. Hjá þeim situr Lísebet Gestsdóttir frá Brandaskarði.
Barnaból - safn241
Kristín Dís Sigurðardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn010
Myndin var tekin á einhverri skemmtun á vegum Höfðaskóla. Á sviðinu eru frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Magnús B. Jónsson, Lilja Ingólfsdóttir, Helga Bergsdóttir, Sverrir Berndsen, Bæring Skarphéðinsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson277
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) hélt upp á 50 ára afmæli sitt í Skátaskálanum 1973. Húsfyllir var í afmælinu og afmælisbarnið, sem er til vinstri á myndinni skemmti sér vel. Konan sem er með honum á myndinni er Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007)
Barnaból - safn245
Eygló Amelía Valdimarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn173
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) frá Bjargi. Yfir öxl Jónínu sést Elínborg Guðmundsdóttir (d. 8.4.2005) og Helga Daníelsdóttir (d. 17.1.2013) situr gegnt henni við borðið. Aftan við Rósu situr Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999).
Skagaströnd - safn280
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla fagnar tilkomu hússins.
Guðmundur Guðnason311
Þessi mynd var tekin utan við gamla bæinn á Höskuldsstöðum af biskupshjónunum þeim: Magneu Þorkelsdóttur (d. 10.4.2006) og herra Sigurbirni Einarssyni (d. 28.8.2008) biskupi. Til hægri á myndinni eru þeir Ingvar Ástmarsson lengst til hægri og Benóný Gunnarsson við hlið hans. Konan í bakgrunninum er Petrea Jónsdóttir (d. 22.3.1972) frá Skrapatungu.
Guðmundur Guðnason 2 413
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað:<em> Konur í Vatnsdal. Sigrún Grímsdóttir í Saurbæ lengst til hægri.</em> Önnur frá vinstri er Elín Sigurtryggvadóttir frá Kornsá þriðja frá vinstri er Ragnheiður Blöndal frá Brúsastöðum og konan í bleiku dragtinni er Lilja Halldórsdóttir (d. 29.9.1997) frá Haukagili. Næst lengst til hægri er líklega Guðlaug Ólafsdóttir frá Snærisstöðum. Konan lengst til vinstri er Fjóla ? frá Hvammi (kona Hallgríms Guðjónssonar).
Ólafur Bernódusson556
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru Valrún Eva Vilhelmsdóttir til vinstri og Dagbjört Agnarsdóttir til hægri.
Skagaströnd - safn335
Þessi mynd var tekin af gatnagerð á horni Fellsbrautar og Oddagötu árið 1988. Það sumar kom forsetinn frú Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn til Skagastrandar og reynt var að hafa allt fínt og fágað í bænum þegar hún kom. Á myndinni er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) að vinna með jarðvegsþjöppu og maðurinn sem stjórnar krananum á H 34 er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) eigandi bílsins. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 446
Brimnes BA 800 ný málaður í höfninni á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn186
Þessi mynd var tekin af Viggó Brynjólfssyni að moka snjó á Skagaströnd með jarðýtu í kringum 1960. Myndina tók Þórður Jónsson.
Ólafur Bernódusson571
Óhöpp gerast á sjónum eins og annars staðar. Á þessari mynd er verið að draga Auðbjörgina Hu 6 í dráttarbrautina til að hægt sé að skera snurvoðina úr skrúfunni. Eins og sést þarf ekki stóran bát til að draga ef stutt er að fara. Um borð í jullunni er Vilhjálmur Skaftason í gulri treyju en í stafni Auðbjargarinnar stendur Ólafur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1995.
Skagaströnd - safn182
Þessir hlaupagarpar hlupu frá Fargranesi í Langadal niður að vegamótum Skagastrandarvegar 22. júní 1991. Tilefnið var landshlaup FRÍ þar sem hlaupið var hringinn í kringum landið af félögum í ungmennafélögunum. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hrólfur Pétursson, Baldur Magnússon, Atli Þórsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir.
Barnaból - safn139
Á þessu skólaspjaldi frá Barnabóli 2003 - 2004 eru börnin sem voru í Sæbóli á þeim tíma. Hinn helmingur barnanna voru í Lundi og voru mynduð sér. Frá vinstri í fremstu röð: Margrét Björk Magnúsdóttir, Alexander Jóhannesson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Magnús Jóhannesson, María Jóna Jónasdóttir, Telma Jónasdóttir og Guðlaug Grétarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Eymundur Lórens Grétarsson, Elmar Grétarsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Lilja Hjaltadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, óþekktur, Birta Bessadóttir, Friðmar Kári Eiríksson og óþekktur. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn160
Þessi mynd var tekin á fundi hreppsnefndar 1984. Tilefni fundarins var meðal annars sveitarstjóraskipti á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson var að hætta og Sigfús Jónsson að taka við. Í hreppsnefnd voru talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir fulltrúi Alþýðuflokksins, Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Alþýðubandalagi, Adolf J. Berndsen oddviti frá Sjálfstæðisflokknum, Magnús B. Jónsson frá Framsóknarflokknum og Gylfi Sigurðsson frá Sjálfstæðisflokknum.
Barnaból - safn290
Friðvin Ingi Ernstson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Ólafur Bernódusson573
<p>Þessir þrír félagar áttu saman, og gerðu út í fjölda ára, bátinn Helgu Björgu Hu 7. Á vorinn réru þeir á grásleppu og verkuðu aflann sjálfir eins og sjá má af fullum hrognasigtum aftan við þá. Mennirnir eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998). Myndin var tekin snemma á tíunda áratugnum.</p>
Jón Jónsson346
Á árunum sem skíðalyfta var rekin í Spákonufelli var almennur áhugi á skíðamennsku á Skagaströnd. Fjöldi barna, unglinga og fullorðinna mættu í brekkurnar um helgar þegar færi gafst. Á þessari mynd, sem tekin var einhverntíma að vorlagi kringum 1985, eru ungir skíðagarpar að fá afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í páskamóti. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson en konan í hvíta jakkanum er Sigríður Einarsdóttir skíðakennari. Með þeim á myndinni eru ungir skíðamenn frá Skagaströnd.
Barnaból - safn079
Þriggja ára afmæli Elíasar Gunnars Hafþórssonar í leikskólanum Barnaból 27. janúar 1997. Elías situr við enda borðsins með kórónu. Við borðið nær okkur er Stefán Velemir til vinstri og óþekkt við enda borðsins. Við borðið fjær okkur eru frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Elías, Ellen Sigurjónsdóttir og óþekkt.
umf Fram 323
USAH stóð fyrir nokkrum félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín um árabil. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinendur á námskeiðunum voru Ólafur Oddsson og Pétur Eysteinsson til skiptir og kenndu þeir fólki ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru þátttakendur frá Blönduósi á einu slíku námskeiði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Páll Kristinsson, óþekkt, Sigurður Kristjánsson, Valdimar Guðmannsson, óþekktur, Þorbjörg Bergþórsdóttir (d. 7.5.1981), Gísli Grímsson, óþekkt, Hilmar Kristjánsson (d. 1.1.2008), Kristín Líndal, Valgarður Hilmarsson, Halla Jökulsdóttir, Pétur Eysteinsson leiðbeinandi og Kristófer Sverrisson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn 123
Grillveisla í leikskólanum Barnaból 8. júlí 1991. Ívar Gylfason til vinstri, Sigurgeir Árnason í miðið og óþekkt barn gæða sér á grilluðum pylsum og djúsi.
Skagaströnd - safn013
Söluskáli Olís á Skagaströnd
Skagaströnd - safn373
Holan virkar !! Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Á myndinni er verið að prófa hvort fóðringin, sem mennirnir eru nýbúnir að koma fyrir, virkar eins og hún á að gera. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson við loftpressuna, Rúnar Jóhannsson sem skrúfar frá krananum og Sigurjón Ástmarsson bíl- og kranastjóri.
Barnaból - safn060
Þórður Indriði Björnsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Jón Jónsson228
Þessi mynd var tekin 17. júní 1988 í Hólaneskirkju eldri af þeim Jóhanni Péturssyni (d. 13.1.1999) frá Lækarbakka til vinstri Lísu Berndsen frá Stóra Bergi og Snorra Gíslasyni (d. 29.5.1994) frá Höfðatúni.
Barnaból - safn262
Kristinn Björgvinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Jón Jónsson291
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, blandar Hallbjörn Hjartarson drykki fyrir gesti sem kona hans Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012) ber fram. Milli þeirra stendur Sólveig Róarsdóttir.
Jón Jónsson255
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Þórey Jónsdóttir í hlutverki sínu.
Skagaströnd - safn245
Að lokinni sumarvinnu 1996 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða á hótel Dagsbrún á Skagaströnd. Á þessari mynd er Linda Kristjánsdóttir á góðri stund fyrir matinn.
Scan10095
Kamrar teknir af vagni í undirbúningi kántrýhátíðar árið 2000. Kömrunum var siðan komið fyrir á tjaldsvæðum hátíðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 420
Ólafur Magnússon Hu 54, einn af mörgum bátum með þessu nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt gegnum tíðina.
Barnaból - safn 133
Guðbjörg Viggósdóttir, Jón Atli Magnússon sonur hennar og feðgarnir Gylfi Guðjónsson og Ívar Gylfason (í gulri peysu) baka piparkökur á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból í desember 1991.
Guðmundur Guðnason 2 438
Þórgunnur Snædal á Höfðanum á góðum degi. Þórgunnur er bróðurdóttir Guðmundar Guðnasonar sem tók þessa mynd.
Barnaból - safn075
Arnar Freyr Sigurjónsson fjögurra ára 12.nóvember 1996. Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból.
Barnaból - safn267
Eiður Örn Þórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
1
…
83
84
85
…
167
Leita í myndasafninu
Leita