Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn146
Þessi mynd var tekin eftir hádegið í Lundi, í leikskólanum Barnaból, í febrúar 1998. Fremsta röð frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir og Þórður Indriði Björnsson. Miðröð frá vinstri: Hjördís Laufey Ásgeirsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Elísabet Anna Einarsdótttir, Valþór Óli Vilhelmsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Aftasta röð til vinstri: Alex Már Gunnarsson, Guðjón Oddur Ingólfsson, Lilja Kristinsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Helga Bergsdóttir, Elías Kristinn Sæmundsson, Alexandría Björg ? og Alexander Ragnarsson.
Skagaströnd - safn212
Bændur í Austur Húnavatnssýslu tóku sig til og keyptu líflömb - líklega vestan af Ströndum - til að kynbæta hjá sér fjárstofninn. Lömbin voru flutt sjóleiðis til Skagastrandar þaðan sem þeim var svo ekið til nýrra heimkynna sinna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekinn né hvaða fólk er á henni en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn301
Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006) á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1992.
Árni Geir Ingvarsson - safn 455
Unnið við löndun úr Örvari HU 21. Á myndinni eru þau samhent að vinna; Jón Vilhjalmsson (d. 31.8.2011) og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn 182
Þessi mynd var tekin af kirkjuskólanum í mars 1980. Kirkjuskólinn hefur greinilega verið vinsæll á þessum tíma ef miðað er við fjölda nemenda á myndinni. Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Hjaltason, Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Friðrik Gunnlaugsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Íris Gunnarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Eva Björg Jónasdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir eru uppi á handriðinu, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Hallgrímur Oddsson, Hugrún Pálsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Steinþór Karlsson og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012). Þriðja röð frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Halldór Gunnar Ólafsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Áslaug Gunnarsdóttir og Anna Þóra Birgisdóttir. Fjórða röð frá vinstri: Jón Indriðason, Þorlákur Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Erlingsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Efsta röð frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Soffía Lárusdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Birna Sveinsdóttir, Bergþór Huld Birgisdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Vala Rós Ingvarsdóttir og Berglind Stefánsdóttir eru framar, Ingvar Jónsson og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000)
Jón Jónsson303
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Þessir ungu menn voru meðal þeirra sem komu til að líta á forsetann og fá að taka í hönd hennar. Frá vinstri: Jón Arnarsson, Viggó Magnússon, Guðbjartur Sævarsson, Arnar Erlingsson og Baldur Magnússon.
Jón Jónsson302
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd eru Gunnlaugur Árnason á Karlsskála til vinstri og Pétur Jóhannson frá Lækjarbakka til hægri.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn006
Þessi mynd var sennilega tekin í fermingarveislu frændanna á myndinni vorið 2002. Guðjón Ebbi Sigtryggsson er afi strákanna en þeir eru frá vinstri: Ívar Gylfason, Óðinn Örn Sævarsson og Kristján Pétur Guðjónsson.
Guðmundur Guðnason 2 364
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>" Á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Klemens Kristjánsson (á miðri mynd) segir frá tilraunum með Kornrækt. Ljósm. Guðm. Kr. Guðnason".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið á myndinni er óþekkt nema Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem horfir í átt að ljósmyndaranum.
Barnaból - safn201
Íris Elva ? á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985. Ef þú veist hvers dóttir Íris Elva er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Guðmundur Guðnason 2 410
Þessi mynd sem tekin var upp eftir Bogabrautinni sýnir m.a. Bogabraut 13 í byggingu. Húsin í kring eru nýbyggð nema efsta húsið, Sunnuhlíð.
Jón Jónsson337
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, óþekkt og Soffía Lárusdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson311
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru frá vinstri: Vilhelm Harðarson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Ragnheiður Hafsteinsdóttir og Ása Jóhannsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 353
Brún í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn172
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Helga Jóhannesdóttir, Adolf J. Berndsen oddviti og Sólveig Róarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 381
Þessi myndarlegi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn168
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd - safn396
<p>Báturinn Re 317 hét Sæljón og landaði oft á Skagaströnd en hinn báturinn er Brynjar St 50 frá Hólmavík. Eigendur bátanna voru bræðurnir Gunnar Guðmundsson eigandi Sæljóns og Jóhann Guðmundsson sem átti Brynjar. Milli bátanna eru nótabátarnir en þeir voru notaðir við síldveiðarnar þannig að nótin var dregin inn í þá þegar snurpað var (= þrengt að síldinni í nótinni). Var það gert með handafli en síðan var síldin háfuð um borð í móðurbátinn með háf eins og þeim sem sést hanga í bómunni á Sæljóninu. Bassaskýli var nafnið á litlu kössunum/skjólunum sem sjást uppi á stýrishúsum bátanna. Þegar verið var að leita að síld var einn eða fleiri menn hafðir uppi í Bassaskýlinu til að reyna að koma augu á vaðandi síldartorfur. Þó að skýlin væru axlarhá og lokuð allan hringinn var oft kalsamt að standa þar og stara út á hafið í kring. Bassaskýlin voru síðan aflögð með tilkomu astiks og fleiri tæknivæddra fiskleitartækja um borð í bátunum. </p>
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Guðmundur Guðnason 2 458
<p>Hér er verið að landa úr óþekktum bát. Ekki er vitað hvar myndin er tekin né hvenær. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Jón Jónsson276
Þessar tvær blómarósir voru gengilbeinur í 50 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar sem hann hélt í Skátaskálanum 1973. Konurnar voru í kvenfélaginu á þessum tíma en félagið sá um veitingar fyrir Guðmund. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir og Helga Ottósdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 356
Fyrstu jepparnir voru gjarnan notaðir sem landbúnaðartæki. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Willys H 94 notaður til að rifja heyið. Hjónin Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir áttu H 94 lengi en seinna fékk sonur þeirra Ástmar Kári Ástmarsson númerið og notaði á sína bíla.
umf Fram 340
Verðlaunahafar í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupi - á óþekktum tíma. Frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson, Erlingur Ottósson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Scan10096
<p> Vilhelm Björn Harðarson við vinnu sína á ruslabílnum á Kántrýhátíð 2001.</p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 394
Guðjón Ebbi Sigtryggsson var vanur að stýra stærri skipum en þessu litla horni sem hann er á hér á myndinni ásamt afabörnum sínum. Ebbi var aflasæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf í áratugi. Á myndinni stendur hann og kannar dýpið með ár. Með honum eru afabörnin hans, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1990.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn095
Leikarar í Ástin sigrar gera sig klára í eldhúsinu í Fellsborg fyrir sýningu þar. Leikklúbburinn setti verkið á fjalirnar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekkt (?Sigrún Jónsdóttir?) að greiða sér. Anna Sjöfn Jónasdóttir málar einhvern leikara sem ekki sést fyrir William Sillar í hvítri skyrtu. Jane Sillar er aftan við mann sinn í rauðri peysu en skeggjaði maðurinn sem Guðbjörg Viggósdóttir er að gera klárann er Þorvaldur Skaftason. Óskar Þór Óskarsson stendur en stúlkan við dyrnar er óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 224
Hér sitja þeir hesta sína gangnamennirnir Már Hall Sveinnsson (d. 1.3.2008) frá Réttarholti til vinstri og Gísli Kristjánsson frá Háagerði til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið upp úr 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 381
Þessi mynd var tekin við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær. Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga, smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf á Skagaströnd. Hinir bátarnir á myndinni eru Sæfari Su 85, Helga Björg Hu 7 og Dagrún St 12.
Jón Jónsson319
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri til hægri mata hvorn annan á jógúrt.
Barnaból - safn142
Þessi börn voru í Sæbóli á leikskólanum Barnaból 1997 - 1998. Fremri röð frá vinstri: Bryndís Brá Guðmundsdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Indriði Theódór Hjaltason og Einar Kristberg Einarsson. Aftari röð frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Birna Blöndal, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarson - safn 467
Þessi mynd var tekin af Skúffugarðinum þegar allt er á kafi í snjó.
Skagaströnd - safn085
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Eiður Hilmarsson, Sævar Bjarnason, Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir (d. ?), Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004) og Hjalti Skaftason.
Barnaból - safn 098
Þessi mynd var tekin fyrir utan útihús sem eru á Steinnýjarstöðum. Kristján Kristjánsson (d. 10.10.2007) bóndi heldur á óþekktu barni og hjá honum stendur annað barn sem ekki er vita hvert er. Drengurinn á reiðhjólinu er afabarn Kristjáns, Heiðmar Kristjánsson.
Guðmundur Guðnason2 342
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er grjótnám í Höfðanum í fullum gangi. Sennilega var myndin tekin kringum 1950 af hlaðinu í Ægissíðu, þar sem ljósmyndarinn bjó.
Barnaból - safn153
Kristrún Lilja Sævarsdóttir/Lilja Nótt Sævarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn209
Salóme Ýr Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn 110
Þessi mynd var tekin í desember 1990 á leikskólanum Barnaból þegar börnin þar bökuðu piparkökur með aðstoð foreldra sinna. Á myndinni er Þorbjörg Magnúsdóttir að hjálpa syni sínum Ívari Gylfasyni við baksturinn. Ívar er reyndar í gæðaprófun með því að smakka á kökunum.
Skagaströnd - safn 318
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru konur að hreinsa innyfli frá vöðva hörpudisksins en vöðvinn var afurðin, sem var hirt og skapaði verðmæti vinnslunnar. Brosandi konan á myndinni er Bajrnhildur Sigurðardóttir en aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn 103
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er Dóra Jónasdóttir að aðstoða son sinn Eið Bjarka Þórarinsson við baksturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 478
Vegna sviptinga í kvótamálum og söfnunar á rúmmáli í skipum eignaðist Skagstrendingur hf þennan togara - Fisherman- eingöngu til að úrelda hann til að fá leyfi til að láta smíða nýjan og stærri togara. Fisherman var aldrei gerður út frá Skagaströnd öfugt við Rex sem var gamli Arnar HU 1 (Japans Arnar) en hann færði óhmju verðmæti á land á þeim árum sem hann var gerður út frá Skagaströnd.
Barnaból - safn043
Hinn árlegi piparkökudagur leikskólans 1982 var haldinn 14. desember. Á myndinni eru mæðgurnar Linda Kristjánsdóttir með kökukefli og Írena Rúnarsdóttir .
Barnaból - safn224
Kolbrún Jenný Ragnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn184
Magnús Filip Sævarsson á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Jón Jónsson309
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru hjónin Steindór Haraldsson og Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn032
<p>Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni leikarar og starfsfólk sýningarinnar eftir æfingu í Fellsborg. Fremsta röð frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Magnús B. Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d. 29. 7.2003). Næsta röð frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Einar Helgason, Rúnar Loftsson, Hjörtur Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Bernódus Ólafsson. Fjórða röð frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Þar fyrir ofan frá vinstri: Birna Blöndal, Hjörtur Guðmundsson og Hallbjörn Hjartarson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Jón Jónsson259
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Ingimar Oddsson í hlutverki sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 429
Auðbjörg HU 6 í klössun í slippnum. Guli bíllinn á myndinni er Trabant en þeir bílar voru frægir fyrir að þeir voru (eru?) byggðir úr plasti. Gárungarnir söðu að munurinn á Trabant og Trabant Delux væri að það væri öskubakki afturí í Delux típunni.
Guðmundur Guðnason 2 451
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson leiðir fermingarbörn til kirkju fyrir fermingu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Fermingarkrakkarnir eru óþekkt. Húsið til vinstri á myndinni er Iðavellir en innst með fjörunni sér í Óseyri og Bráðræði. Milli aftasta og næst aftasta fermingardrengsins sér í Rjúpnafell en yfir höfuð næst fremstu stúlkunnar sér í Konnabæinn (Garðhús). Dagsbrún er svo húsið sem sést bak við prestinn. Öll eru þessi hús horfin í dag nema Iðavellir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamleag sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson257
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd, sem tekin var á frumsýningarkvöldinu, eru höfundarnir og leikstjórinn með leikurunum á sviðinu. Allir í salnum sungu þá saman "Síldin kemur og síldin fer". Talið frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, tveir óþekktir, Iðunn Steinsdóttir höfundur, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Hendrik Berndsen, Kristín Steinsdóttir höfundur, Viggó Magnússon, Steindór Haraldsson og Magnús B. Jónsson.
Barnaból - safn087
Þessi mynd var tekin í heimsókn leikskólans Barnaból í hesthús í júní 1997. Á henni er óþekkt folald að lykta af þessum gestum sínum. Gestirnir eru frá vinstri: Tinna ?, Elías Gunnar Hafþórsson og Bryndís Brá?
Jón Jónsson344
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Jón Jónsson297
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi líklega 1988. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri er til vinstri en í barminum ber hann heiðurskross sjómannadagsins, sem hann var sæmdur þennan dag. Við hlið Björns er Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) en þeir tveir voru vinir og samherjar í mörgu í daglegu lífi.
Barnaból - safn 122
Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból í júní 1991. Á henni eru frá vinstri: Daníel Guðmundsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekkt, Anna María Magnúsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari363
Hjónin Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) frá Höfðakoti.
Barnaból - safn320
Unnar Már Garðarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Steinþór Karlsson 2
Þessi loftmynd er af Spákonufellsborg eða Borgarhausnum sjálfum, tekin úr suð-austri. Hausinn er um 900 metra langur frá austri til vesturs og rennisléttur að ofan, vaxinn mjúkum, viðkvæmum mosa. Auðveldasta og öruggasta gönguleið upp á Borgarhausinn er eftir rindanum hægra megin á myndinni. Fremst á Borgarhausnum til hægri er stór grjótvarða en í henni er kistill með gestabók fyrir þá sem þar koma. Útsýn af Borgarhausnum er einstaklega gott í góðu skyggni. Hæðin sem ber yfir miðjan hausinn heitir Molduxi. Eins og sjá má eru gilin tvö í forgrunninum nánast ófær fyrir bratta enda heita þau Ófærugil og Illagil. Spákonufellið er um 640 metra hátt.
umf Fram 341
Verðlaunahafar í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupi - á óþekktum tíma. Frá vinstri: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttirt, Kristjana Jónsdóttir og Jóney Gylfadóttir.
umf Fram 329
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd var tekin af þátttakendum á Skagaströnd. Frá vinstri: óþekktur (nær), Ólafur Bernódusson (fjær), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Guðmundur Haukur Sigurðsson (nær), óþekkt (fjær), Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Sigurður Guðmundsson, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003)(fjær), Jón Jónsson (d. 9.7.1991)(nær).
Jón Jónsson300
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru standandi þeir Rafn Sigurbjörnsson frá Örlygsstöðum 2 til vinstri og Sveinn Sveinsson Tjörn til hægri. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Salóme Jóna Þórarinsdóttir, frú Vigdís Finnbogadóttir og Vilhjálmur Skaftason. Fyrir aftan Vilhjálm spjalla saman þeir Kári Lárusson til vinstri og Jón Benediktsson (d. 30.12.2002) Höfnum til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
84
85
86
…
167
Leita í myndasafninu
Leita