Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram 329
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd var tekin af þátttakendum á Skagaströnd. Frá vinstri: óþekktur (nær), Ólafur Bernódusson (fjær), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Guðmundur Haukur Sigurðsson (nær), óþekkt (fjær), Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Sigurður Guðmundsson, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003)(fjær), Jón Jónsson (d. 9.7.1991)(nær).
Jón Jónsson300
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru standandi þeir Rafn Sigurbjörnsson frá Örlygsstöðum 2 til vinstri og Sveinn Sveinsson Tjörn til hægri. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Salóme Jóna Þórarinsdóttir, frú Vigdís Finnbogadóttir og Vilhjálmur Skaftason. Fyrir aftan Vilhjálm spjalla saman þeir Kári Lárusson til vinstri og Jón Benediktsson (d. 30.12.2002) Höfnum til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn059
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim Sigrúnu Jónsdóttur til vinstri og Hallveigu Ingimarsdóttur til hægri í hlutverkum sínum.
umf Fram 331
Ekki er vitað hvenær þesi mynd var tekin en það var gert á íþróttavellinum á Skagaströnd. Á henni er verið að afhenda þeim Soffíu Guðmundsdóttur; Birnu Sveinsdóttur og Hallbjörgu Jónsdóttur (talið frá vinstri) verðlaun fyrir unnin afrek á vellinum.
Guðmundur Guðnason325
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin af Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1988) með ?Þórey Ólafsdóttur? frá Árbakka vinkonu sinni. Ef þú getur staðfest að konan sé Þórey Ólafsdóttir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn271
Ólína Laufey Sveinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn010
Myndin var tekin á einhverri skemmtun á vegum Höfðaskóla. Á sviðinu eru frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Magnús B. Jónsson, Lilja Ingólfsdóttir, Helga Bergsdóttir, Sverrir Berndsen, Bæring Skarphéðinsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn267
Eiður Örn Þórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Guðmundur Guðnason 2 471
Unga stúlkan á hestbaki er óþekkt einnig konan (?Stína?)sem heldur í hestinn. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn016
Skipsfélagarnir og vinirnir Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) og Guðjón Guðjónsson slappa af í sófunum og leysa lífsgátuna. Myndin var tekin af þeim félögum 1985.
Barnaból - safn324
Brynja Hödd Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Guðmundur Guðnason243
Þessi staður er óþekktur. Ef þú veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn 116
5. mars 1991 var stór dagur í lífi Eiðs Bjarka Þórarinssonar í leikskólanum Barnabóli því þá varð hann fimm ára. Hjá honum á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir með fagurlega skreytta afmælisköku.
Skagaströnd - safn 321
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er Gunnar Albertsson verkstjóri í verkstjóarkompunni að glugga í samningana um kaup og kjör.
Árni Geir Ingvarsson -safn 485
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af húsunum í Skeifunni, sem er efsti hluti Hólabrautarinnar, en síðan hefur gatan tekið á sig nýja mynd með fleiri húsum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn095
Leikarar í Ástin sigrar gera sig klára í eldhúsinu í Fellsborg fyrir sýningu þar. Leikklúbburinn setti verkið á fjalirnar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekkt (?Sigrún Jónsdóttir?) að greiða sér. Anna Sjöfn Jónasdóttir málar einhvern leikara sem ekki sést fyrir William Sillar í hvítri skyrtu. Jane Sillar er aftan við mann sinn í rauðri peysu en skeggjaði maðurinn sem Guðbjörg Viggósdóttir er að gera klárann er Þorvaldur Skaftason. Óskar Þór Óskarsson stendur en stúlkan við dyrnar er óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 224
Hér sitja þeir hesta sína gangnamennirnir Már Hall Sveinnsson (d. 1.3.2008) frá Réttarholti til vinstri og Gísli Kristjánsson frá Háagerði til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið upp úr 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 381
Þessi mynd var tekin við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær. Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga, smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf á Skagaströnd. Hinir bátarnir á myndinni eru Sæfari Su 85, Helga Björg Hu 7 og Dagrún St 12.
Guðmundur Guðnason 2 403

Þessa mynd tók Þorvaldur Skaftason af kirkjukór Hólaneskirkju á heimili séra péturs Þ. Ingjaldssonar í Höfða árið 1971. Þorvaldur var þá nýkjörinn formaður kórsins. Sitjandi frá vinstri: Elísabet Árnadóttir, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðrún Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Bjarni Harðarson, Rúnar Hartmannsson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988).
Scan10094
Á myndinni sinnir Vilhelm Harðarson viðhaldi á fyrsta ruslabílnum sem kom í Húnavatnssýslurnar. Bílinn keypti Vilhelm til Skagastrandar 1990.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn002

Barnaafmæli á Suðuvegi 9 sennilega vegna afmælis Kristjáns Péturs Guðjónssonar. Hann á afmæli í september þannig að myndin hefur sennilega verið tekin í þeim mánuði einhverntíma á árunum 1997 -1999. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Arnór Snorri Gíslason, Hanna Gylfadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Óðinn Sævarsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Sindri Jóelsson og Ívar Gylfason.

Jón Jónsson249
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla sennilega árið 1987. Þá sýndi hópur nemenda fimleika undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Á myndinni eru frá vinstri: Inga Matthíasdóttir íþróttakennari, Skúli Tómas Hjartarson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Guðný Finnsdóttir og Auðna Ýr Oddsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 479

Ekki er vitað hvenær þessi sólríka mynd var tekin af fjölskyldunni í Réttarholti á pallinum framan við húsið. Fremst eru hjónin Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Elísabet Árnadóttir með ung óþekkt börn í fanginu. Fyrir aftan þau standa, frá vinstri: Vilborg Másdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Aðalheiður Másdóttir og Erla Másdóttir. Aftast standa, frá vinstri: Sveinn Másson, Árni Másson, óþekkt, og Ómar Másson (d. 16.6.2002).

Barnaból - safn296
Haukur Viðar Alfreðsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn126

Á myndinni er Björn Sigurðsson (Bjössi á Jaðri) (d. 5.10.1999) við smíðar um borð í Engilráð frá Ísafirði. Báturinn var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf. Í baksýn má sjá bátana Ósk Hu 21 nær og Stíganda Hu 9 fjær. Húsið sem ber yfir höfuð Björns er Karlsminni sem er nú löngu horfið.

Jón Jónsson307
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru þau saman við kaffiborðið Adolf J. Berndsen þáverandi oddviti Höfðahrepps og frú Vigdís Finnbogadóttir forseti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 482
Þetta er Auðbjörg Hu 6 í Skagastrandarhöfn 1968. Bátinn áttu þeir Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson, Eiður Hilmarsson og Gunnar Sveinsson. Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Auðbjörg Hu 6 301. Báturinn var snmíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1957 var sett í hann 150 ha. Albion vél, 1963 kom 200 ha. Scania vél og svo 1973 fékk hann 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn í júlí 1947 og gerði út til ársins 1959 er hann var seldur til Reykjavíkur og hét þá Auðbjörg RE 341. Í júní 1967 var báturinn keyptur á nýjan leik til Skagastrandar frá Ólafsvík þar sem hann hét Auðbjörg SH 197. Kaupendur voru Eiður Hilmarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Jósef Stefánsson. Þeir félagar gerðu bátinn út fram í júní 1970 er hann var seldur til Kópavogs og fékk nafnið Sigmundur Sveinsson KÓ 6. Báturinn sökk á Húnaflóa 27. júní 1979 og hét þá Vinur ST 21 og var í eigu aðila á Hólmavík. Áhöfn bátsins, tveir menn, komust í gúmbjörgunarbát. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF Sýn, fann gúmbátinn og vísaði flutningaskipinu Jökulfelli á hann og tók það mennina um borð".

Hafliði Óskarsson sem var skipverji á Jökulfellinu þegar þessir atburðir gerðust segir svo frá atburðinum: "Skipbrotsmennirnir tveir af m.b. Vin ST 21 (ex Auðbjörg HU 6) höfðu dvalist í gúmmíbjörgunarbátnum í einar 10-12 klst. þegar m.s. Jökulfell bar að og tók mennina um borð. Báðir voru mennirnir klæddir svokölluðum varmapokum, en þeir kvörtuðu undan kulda engu að síður þegar þeir komu um borð í Sambandsskipið. Þótti víst lítið skjól af pokunum þó um hásumar væri. Jökulfellið sigldi að lokinni björgun stystu leið til næstu hafnar, sem var Skagaströnd, fyrrum heimahöfn bátsins sem hér var nýlega sokkinn í sæ. Úti fyrir Skagastrandarhöfn beið þilfarsbátur sem ferjaði skipbrotsmennina til hafnar, en Jökulfell snéri stefni til hafs og hélt áfram för
Jón Jónsson274
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd skenkir Jón Ingi Ingvarsson Hrefnu Jóhannesdóttur (d. 9.11.2011) kaffi í krús. Næst okkur er Jónína Valdimarsdóttir en hinum megin við Jón Inga er konan hans Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) með son þeirra Gunnar Borg Jónsson. Við borðið til vinstri eru hjónin Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Helgi Gunnarsson en barnið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 468
Haukur Ægir Ragnarsson um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Til hægri glittir í Þórarinn Ingvarsson föðurbróðir Hauks.
Barnaból - safn167
Elínborg Ásdís Árnadóttir á leikskólaárum sínum í kringum 1990.
Jón Jónsson319
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri til hægri mata hvorn annan á jógúrt.
Barnaból - safn269
Patrik Heiðarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega í kringum 1985
Leikklúbbur Skagastrandar - safn154
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 386

Um Kristján Hu 123 segir svo í bókinni ,,Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

,, Kristján HU 123 734. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1948 og var 38 brl. með 132 ha. Kelvin vél. Hann var endurbyggður 1970 og sett í hann 240 ha.Caterpillar vél og mældist þá 37 brl. Báturinn var endurbyggður öðru sinni árið 1979 og árið 1983 kom í hann 325 ha. Catepillar vél. Skagstrendingur h/f eignaðist Kristján árið 1990 en þá var félagðið að safna rúmmetrum vegna smíði nýs togara. Báturinn var leigður Björgu s/f og var gerður út á úthafsrækjuveiðar sumarið 1990. Hann var seldur til Ólafsvíkur árið 1991."

Barnaból - safn075
Arnar Freyr Sigurjónsson fjögurra ára 12.nóvember 1996. Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból.
Jón Jónsson277
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) hélt upp á 50 ára afmæli sitt í Skátaskálanum 1973. Húsfyllir var í afmælinu og afmælisbarnið, sem er til vinstri á myndinni skemmti sér vel. Konan sem er með honum á myndinni er Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007)
Séra Pétur og Dómhildur - safn176
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni er Jóhanna Jónasdóttir frá Höfðatúni. Bak við hana sér í Þórð Jónsson (d. 25.12.2009) og Bergþóru Kristjánsdóttur (d. 9.11.2011). Aðrir á myndinni eru óþekktir
Séra Pétur og Dómhildur - safn143

Fólkið á myndinni eru foreldrar séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) þau Guðrún Pétursdóttir (d. 24.7.1951) og Ingjaldur Þórðarson (d. 23.7.1944). Myndin var tekin í nóvember 1907.

Barnaból - safn 126
Nemendur fyrir hádegi og starfsfólk leikskólans Barnaból í júlí 1991. Frá vinstri: Erna Högnadóttir, Ívar Gylfason, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Sindri Hafþórsson, Eydís Ósk Einarsdóttir, Sonja Berndsen, Eva Rún Rúnarsdóttir, Jón Atli Magnússon, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, Bára Þorvaldsdóttir (fjær) og Valgerður Guðmundsdóttir.
Jón Jónsson304
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni er Jóhann D. Baldvinsson (d. 9.4.1990) eða Jói norski í veislunni. Árið 1972 kom út ævisaga Jóhanns eftir Erling Davíðsson.
Jón Jónsson253

7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Birna Blöndal, William Sillar, óþekktur, Ingimar Oddsson, Steindór Haraldsson, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Hendrik Berndsen.

Leikklúbbur Skagastrandar - safn066
Fannar Viggósson liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Guðmundur Guðnason 2 432

Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd, með gleraugu, er Jón Sölvason (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Maðurinn með húfuna lengst til hægri gæti verið Sigurjón Magnússon ?(d. 16.3.2007) frá Sólvangi. Ef þú getur staðfest að um Sigurjón sé að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Árni Geir Ingvarsson - safn 394
Guðjón Ebbi Sigtryggsson var vanur að stýra stærri skipum en þessu litla horni sem hann er á hér á myndinni ásamt afabörnum sínum. Ebbi var aflasæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf í áratugi. Á myndinni stendur hann og kannar dýpið með ár. Með honum eru afabörnin hans, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1990.
Steinþór Karlsson 2
Þessi loftmynd er af Spákonufellsborg eða Borgarhausnum sjálfum, tekin úr suð-austri. Hausinn er um 900 metra langur frá austri til vesturs og rennisléttur að ofan, vaxinn mjúkum, viðkvæmum mosa. Auðveldasta og öruggasta gönguleið upp á Borgarhausinn er eftir rindanum hægra megin á myndinni. Fremst á Borgarhausnum til hægri er stór grjótvarða en í henni er kistill með gestabók fyrir þá sem þar koma. Útsýn af Borgarhausnum er einstaklega gott í góðu skyggni. Hæðin sem ber yfir miðjan hausinn heitir Molduxi. Eins og sjá má eru gilin tvö í forgrunninum nánast ófær fyrir bratta enda heita þau Ófærugil og Illagil. Spákonufellið er um 640 metra hátt.
umf Fram 341
Verðlaunahafar í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupi - á óþekktum tíma. Frá vinstri: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttirt, Kristjana Jónsdóttir og Jóney Gylfadóttir.
umf Fram306
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru Anna Dís Ragnarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson sem heldur á litlum kettlingi. Myndin var tekin þegar krakkarnir fóru í heimsókn að Brandaskarði.
Guðmundur Guðnason339
Þessi mynd var tekin í heimsókn krikjukórs Hólaneskirkju til Hvammstanga. Tímasetningin er ekki þekkt en á myndinni eru frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Einar ??, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Sigrún Lárusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir, Sævar Bjarnason og Kristján Hjartarson.
Skagaströnd - safn369
Þessi mynd var tekin 3. mars 1995 á Sunnuvegi en þá var allt á kafi í snjó á Skagaströnd. Veturinn 1995 var með snjóþyngstu vetrum sem menn muna.
Barnaból - safn194
Heiðrún Villa Friðriksdóttir leikskólaárum sínum á Skagaströnd í kringum 1988.
Barnaból - safn085
Unnar Leví Sigurbjörnsson fékk að fara á bak með Rúnari Jóhannssyni í hesthúsferð leikskólans Barnaból í júní 1997.
Guðmundur Guðnason257
Myndin var tekin á skíðamóti við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 174 - 1978. Á myndinni grúfa keppendur sig yfir blað með árangri sínum. Fremst á myndinni til vinstri rennir Jóhannes Sveinsson sér en aðrir á myndinni eru frá vinstri: Jón Pálssson með myndavél, Páll Jónsson og Rannveig Jónsdóttir. Lengst til hægri sér í Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002). Aðrir eru óþekktir.
umf Fram 332
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni eru frá vinstri við borðið næst okkur: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), Jónína Valdimarsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jón Ingi Ingvarsson og Gunnar Borg Jónsson. Við borðið aftan við þau má m.a. sjá Viggó Brynjólfsson og Helga Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn175
Magnús Líndal Þrastarson á leikskólaárum sínum. Magnús er fæddur 1983.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn009
Fermingarbörn frá 23. maí 1999 í Hólaneskirkju. Fremri röð frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Daníel Guðmundsson.
Barnaból - safn174
Hermann Freyr Guðjónsson á leikskólaárum sínum kringum 1990
Minjasafn 137
Gripur nr. 137. Ullarkambur 20 cm langur og 11 cm breiður. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Jón Jónsson316
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru þáverandi hjón William og Jane Sillar. Jane var kennari við tónlistarskóla A-Hún og organisti í Hólaneskirkju en William vann ýmis störf meðan þau hjón dvöldu á Skagaströnd. Til hægri á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson en til vinstri er dóttir hans Soffía Lárusdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn 117
Morgunleikfimi í leikskólanum Barnaból í apríl 1991. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir með börnunum, frá vinstri: Kristbjörg Una Guðpmundsdóttir, Sigurgeir Árnason, Leifur Ingi Vilhelmsson, Ívar Gylfason (nær), Arnór Gíslason (fjær) , Sonja Berndsen? og óþekktur.
Guðmundur Guðnason 2 439
Á þessari mynd eru þær Helga Berndsen til vinstri og Guðfinna Pálsdóttir til hægri á leið í Hólaneskirkju á sjómannadegi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1

85
86
87

167
Leita í myndasafninu
Leita