Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram 311
Þessir ungu drengir halda á viðurkenningarskjölum sem þeir unnu sér inn með sigrum í einhverri íþrótt - líklega víðavangshlaupi árið 1982. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson og Arnar Haukur Ómarsson.
Skagaströnd - safn338
Eftir að nýja Hólaneskirkja hafði verið vígð 21. október 1991 var haldið kaffisamsæti í Fellsborg og þar var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Steinunn Steinþórsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Sigvaldason (nær), Gunnlaugur Sigmarsson (fjær), óþekkt kona, Baldur Haraldsson, Torfhildur Stefánsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og María Alexandersdóttir.
Minjasafn 91
Gripur nr. 91. Smellurammi með fimm myndum tengdum síldarvinnslu.
Guðmundur Guðnason 2 404
Stúlkan hægra megin á myndinni er Olga Ólafsdóttir en sú til vinstri er óþekkt. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn011
Þessi mynd var tekin á einhverri samkomu í Höfðaskóla sennilega kringum 1992 - 1993. Í fremstu röð frá vinstri eru: Hallgrímur Axelsson, Sverrir Berndsen, Trausti Magnússon, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Vignir Hafþórsson, Guðjón Ebbi Guðjónsson en á milli þeirra í næstu röð fyrir aftan er Elva Dröfn Árnadóttir, tvær óþekktar stúlkur, Ólafur Guðmundsson og Elvar Arinbjörn Grétarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn034
Piparkökudagur í leikskólanum Barnaból 14. desember 1985. Nær okkur á myndinni er Margrét Haraldsdóttir með (d.24.6.2000) með tveimur af börnum sínum, Kristínu Dís Sigurðardóttur nær og Brynjari Sigurðssyni fjær. Bak við þau Margréti er Þór Gunnlaugsson að aðstoða börnin sín þau Elvu Mjöll Þórsdóttur, sem horfir á ljósmyndarann, og Eið Örn Þórsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn092
Sigríður Einarsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Barnaból - safn313
Ásþór Óðinn Egilsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Minjasafn 52
Gripur nr. 52. Mynd af hjónunum Hannesi Jónssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur frá Spákonufelli í ramma. Hannes var fæddur að Iðstöðum.
Barnaból - safn204
Svava Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn093
Þessir krakkar á leikskólanum Barnaból skoða myndasýningu í tilefni 20 ára afmælis leikskólans. Á myndinni, sem tekin var í júní 1997, eru frá vinstri: Þórir Óskar Björnsson, Hanna María Gylfadóttir, Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson og Guðjón Örn Arason.
Barnaból - safn258
Árni Halldór Eðvarðsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn336
<p>13. september 2001 fóru krakkarnir í leikskólanum Barnaból út á golfvöll - Háagerðisvöll - til að kynna sér golfíþróttina. Á þessari mynd eru krakkarnir ásamt nokkrum foreldrum, golfurum og starfsmönnum Barnabóls. Frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Fjóla Ævarsdóttir, Adolf H. Berndsen og Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Börnin eru óþekkt</p><p><br></p>
Barnaból - safn180
Leó Kristberg Einarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 366
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kristján Blöndal og Kristín Jónsdóttir.
Skagaströnd - safn121
Þorgeir Jónsson við vinnu í nýbyggingum við Mánabraut. Myndin var tekin 1982.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn209
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðjón Inga Sigurðsson sem leikstýrði leikritinu: Láttu ekki deigan síga Guðmundur fyrir Leikklúbbinn leikárið 1989 - 1990.
Guðmundur Guðnason 2227
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á myndinni er Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhól á Skagaströnd - nú Hólabraut 10. Keli - eins og hann var kallaður - heldur á hundinum sínum, Vin. Vinur og Keli voru mjög miklir vinir og litu þeir hvor á annan sem jafningja. Þar sem Keli fór þar var Vinur nálægur. Bróðir Þorkels var Jón Magnússon skáld sem dó í febrúar 1944 en hans frægasta ljóð er sennilega Líknargjafinn þjáðra þjóða sem oft er sungið í kirkjum landsins á sjómannadegi.
Barnaból - safn051
<p>Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 21.8.1996 á afmælisdegi Gunnars Más Sæmundssonar, sem situr við borðsendann með bláa kórónu. Næst okkur til vinstri er Alexander Ragnarsson. Hægra megin við borðið talið frá Gunnari: Patrik Snær Bjarnason, Guðjón Örn Arason, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Jóhann Stefánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir og Sævar Tryggvason. Önnur börn á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd. </p>
Barnaból - safn287
Leifur Ingi Vilhelmsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn237
Sverrir Brynjar Berndsen á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Ólafur Bernódusson 672
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru frá hægri: Hallbjörg Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Líney Árnadóttir þáverandi forstöðumaður greiðslustofunnar. Hinar konurnar á myndinni eru óþekktar.
Jón Jónsson269
Á þessari mynd eru leikararnir í Saumastofunni sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið undir leikstjórn Halldórs Laxnes veturinn 1984. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Jón Jónsson271
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd sem tekin var uppi á lofti eru frá vinstri: Sigurgeir Árnason, Ingibergur Guðmundsson, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir(næst), Auður Eva Guðmundsdóttir (í miðið), Guðbjörg Gylfadóttir (fjærst), Erlingur Ottósson (fjær á stól), Þórunn Bernódusdóttir, óþekktur, Baldur Eðvarðsson, María Magnúsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekkt og óþekkt barn. Allt fullorðna fólkið á myndinni lagði einhverja hönd á plóginn við byggingu skálans.
Barnaból - safn046
Þessi mynd var tekin á öskudaginn í febrúar 1982 á leikskólanum Barnaból. Hún er af þeim Þorláki Guðjónssyni til vinstri og Ólafi Magnússyni til hægri þar sem þeir taka hesta leikskólans til kostanna.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn015
Skólaskemmtun Höfðaskóla í Fellsborg sennilega kringum 1998. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason?, tvö óþekkt, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon og Kristján Pétur Guðjónsson.
umf Fram304
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Guðrún Anna Halldórsdóttir með kettling í fanginu í sveitaheimsókn að Brandaskarði.
Séra Pétur og Dómhildur - safn170
<p>Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Konan í hvíta jakkanum er Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Njálsstöðum en Kristín Jóhannesdóttir Blönduósi. Aftan við þær sést í Sigurð Sigvaldason (d. 8.3.2008) frá Hólma/Krókseli. </p>
Jón Jónsson299
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Benediktsson (d. 30.12.2002) frá Höfnum (nær), Helga Berndsen (fjær), Guðrún Guðmundsdóttir, Árni Björn Ingvarsson, frú Vigdís Finnbogadóttir og Kristín Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason 2 380
Fermingar- og frændsystkinin Valgeir Karlsson frà Víkum og Ingunn Hjaltadóttir frà Skeggjastöðum à tröppum Hofskirkju à fermingardaginn sinn vorið 1957.
Guðmundur Guðnason 2 381
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: "Í Spákonufellsrétt. Pétur Jónsson Bergi". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er réttin greinilega í byggingu. Pétur Jónsson frá Stóra Bergi fæddist 9. október 1891 en dó 18. febrúar 1966.
Barnaból - safn308
Almar Freyr Fannarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993
Barnaból - safn225
Systkinin Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og Þorlákur Ómar Guðjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Guðmundur Guðnason 2 447
Fólk gengur úr óþekktri kirkju eftir athöfn. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir það eða kirkjuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn323
Ragnar Már Björnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995
Guðmundur Guðnason 2 495
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) árið 1982 ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni. Fremri röð frá vinstri: Ársæll Ottósson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Hilmar Indriðason og Guðmundur Óskarsson. Aftari röð frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Kristín Karlsdóttir, séra Oddur, Guðmunda Ólafsdóttir og Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Jón Jónsson343
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Áslaug Gunnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Barnaból - safn158
Eva Dögg Bergþórsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn150
Systkinin á þessari mynd eru Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og Karl Ómar Jónsson (d. 23.2.2014).
Skagaströnd - safn378
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin né hvenær. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Jóhann Jakobsson ?(d. 24.3.1987), óþekkt, Hrólfur Jakobsson ?(d. 27.12.1996), Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, fjögur óþekkt, Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og fjögur óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason2 341
<p>Flaggað á réttardegi í Skrapatungurétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á miðri mynd er Jón Guðmundsson (d. 3.7.1992) frá Sölvabakka boginn í baki og með húfu. Til hægri við hann í köflóttri skyrtu er Jökull Sigtryggsson frá Núpi þá kemur Magnús Daníelsson (d. 1.6. 1993) frá Syðri - Ey. Hallgrím Einarsson (d. 3.4.1998) frá Neðri-Mýrum má þekkja með ljósa húfu og í vinnugalla í hópnum vinstra megin við Jón. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 434
Hér vinnur Karl Berndsen (d. 12.2.1995) ásamt fleirum að því að rífa Arnarborg HU 11 í slippnum. Maðurinn með húfuna og gleraugun er Sigurjón Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson278
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) hélt upp á 50 ára afmæli sitt í Skátaskálanum 1973. Húsfyllir var í afmælinu en við borðið næst okkur eru frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Valgerður Kristjánsdóttir, Jökull Sigtryggsson og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007). Við borðið fjær sitja frá vinstri: María Hjaltadóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), óþekkt og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Guðmundur Guðnason 2 388
Í nokkur ár kringum 1980 var komið á Norrænni fjölskylduskíðakeppni. Hún fólst í því að hver sem var gekk á skíðum ákveðna vegalengd og fyllti út eyðublað fyrir hverja ferð. Þátttakendur gátu svo fengið barmmerki, kopar, silfur og gulllituð eftir að hafa gengið ákveðið margar ferðir. Ferðirnar voru síðan taldar saman hjá öllum þátttakendum á landinu og svo var fjöldi ferða borinn saman við höfðatölu í hverju landi fyrir sig og það norðurlandanna sem hafði hæsta hlutfallið stóð uppi sem sigurvegari. Á myndinni er ?Vilborg Másdóttir? að ganga eina ferð á merktri braut sem lá meðfram Hólabergjunum og síðan niður með Vetrarbraut og út undir Réttarholt eftir skurðunum og svo meðfram Höfðanum og upp með Vetrarbrautinni til baka. Gaman er að skoða baksvið þessarar myndar, sem er efsti hluti Hólabrautar og Fellsbrautar, því þar hafa götumyndirnar breyst mikið síðan þessi mynd var tekin. Ef þú getur staðfest að það sé Vilborg sem er á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn307
Suðurvegur 13. Myndin ver tekin 27.desember 2000.
Jón Jónsson347
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Friðrik Birgisson, Brynjar Pétursson, Sigríður Einarsdóttir skíðakennari og Skúli Tómas Hjartarson.
Guðmundur Guðnason 2 470
Ungi knapinn er óþekktur sem og aðrir á myndinni. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason337
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Sigurður Ísólfsson (d. 31.7.1992) til hægri standa fyrir utan Hólaneskirkju eldri. Sigurður var organisti eins og Kristján og sennilega hafa þeir félagar verið að æfa tækni sína í organleik.
Árni Geir Ingvarsson -safn 479
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) stundaði netaveiði á silungi á þessu litla horni sínu og fór einnig með færið sitt til að fá sér þorsk í soðið á góðviðrisdögum á sumrin. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 403
Nýr bátur sjósettur frá Mánavör hf. Maðurinn vinstra megin við bátinn er Ástmar Kári Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn111
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðbjörgu Viggósdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins auk þess að vera starfsmaður við nokkrar þeirra sem sminka og hárgreiðslukona.
Guðmundur Guðnason 2 424
Jaðar eða Neðri Jaðar eins og húsið var kallað í upphafi því þá stóð annað eldra hús hægra megin á móti sem hét Jaðar eða Efri Jaðar.
Guðmundur Guðnason 2 374
Bergsstaðir í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson350
Skíðaskálinn í Spákonufelli var byggður af skíðaáhugafólki og var vígður 1985. Í vígslukaffi mætti fjöldi manns til að skoða skálann og gleðjast með skíðamönnum. Á þessari mynd, sem tekin var uppi á svefnloftinu, eru frá vinstri: Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Sigurjón Guðbjartsson með son sinn Jóhann Guðbjart Sigurjónsson, Guðmundur Jóhannesson, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og Benóný Gunnarsson.
Barnaból - safn260
Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980
umf Fram 316
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Á þessari mynd er einn hópur nemenda í íþróttabúðunum einhverntíma kringum 1975. Leiðbeinendur á myndinni, með Karli, eru bræðurnir Þorsteinn og Guðmundur Jenssynir frá Reykjaskóla í Hrútafirði. Ekki er vitað hvor þeirra er hver. Standandi eru frá vinstri: leiðbeinandi, Jón Heiðarsson,Bryndís Heiarsdóttir, Sigurður Jóhannesson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989), Hafsteinn Pálsson, Valdimar Viggósson, Bergþór Gunnarsson, Ragnar Jónsson, Skafti Fanndal Jónasson, Karl Lúðvíksson búðastjóri, Ingólfur Sveinsson, Jóhannes Sveinsson (fjær), Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), leiðbeinandi, Birna Sveinsdóttir og Orri Blöndal. Börnin í fremri röðinni eru, frá vinstri: Sigurjón Eðvarð Karlsson, tveir óþekktir, ?? Hilmarsson (í Stíganda), tveir óþekktir Agnarssynir Leví, Guðmundur Jónsson (d.?), Guðmundur Lúðvík Gunnarsson, Berglind Stefánsdóttir, Unnar Ingvarsson og tvö óþekkt. Ef þú þekkir einhvern af hinum óþekktu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. <br></p>
Barnaból - safn229
Rakel Petrea Finnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Guðmundur Guðnason 2 355
Eiríksstaðir í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn125
Þessi mynd er úr safni hjónanna séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) og Dómhildar Jónsdóttur (d.18.10.2012). Á myndinni sér heim að Höskuldsstöðum í Vindhælishreppi. Bærinn og gamla kirkjan til hægri eru bæði horfin en nýja kirkjan, sem byrjað er að mála, var vígð 13. mars 1963 og er enn í notkun. Á hlaðinu hjá Höskuldsstöðum sér í prestsbílinn sem var af Austin gerð. Myndin var tekin 13. júlí 1959. Á sínum tíma var á Höskuldsstöðum höfuðkirkja og prestsetur en kirkjan á Spákonufelli var útkirkja eða annexía (reyndar frá kirkjunni á Hofi) þannig að presturinn á Höskuldsstöðum þjónaði í Spákonufellskirkju öfugt við það sem er í dag. Séra Pétur Ingjaldsson var settur prestur á Höskuldsstöðum en prestsetrið var ekki flutt til Skagastrandar fyrr en árið 1963 þegar séra Pétur og Dómhildur kona hans keyptu Höfða á Skagaströnd og fluttu þangað. Tilfærslan frá Höskuldsstöðum á Skagaströnd hafði reyndar verið samþykkt 10 árum áður eða 1953 eftir að málið hafði verið að velkjast í kerfinu allt frá árinu 1936.<font size="1"> ( heimild "Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson</font>)
Baldur Eðvarðsson - safn 3
Þorvaldur Skaftason stendur hér við "Lilla", sem var bíll föður hans, Skafta Fanndal Jónassonar (d. 2.9.2006). Bílinn kallaði Skafti "Lilla" en hann var smíðaður upp úr drossíu og gerður að pallbíl. Myndin var sennilega tekin kringum 1965.
1
…
86
87
88
…
167
Leita í myndasafninu
Leita